Morgunblaðið - 16.11.2005, Page 21

Morgunblaðið - 16.11.2005, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005 21 MINNSTAÐUR Greiðsluáskorun Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtalinna gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar: Gjöldin eru: Staðgreiðsla tekjuskatts, útsvars og og tryggingagjalds sem fallið hefur í eindaga til og með 15. nóvember 2005, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 5. nóvember 2005 og önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til og með 15. nóv- ember 2005, á staðgreiðslu tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds, virðisaukaskatti, virðisauka- skatti í tolli, vanskilum launagreiðenda á gjöldum í og utan staðgreiðslu, fjármagnstekjuskatti á skilaskylda aðila, áfengisgjaldi, launaskatti, bifreiðagjaldi, úrvinnslugjaldi, föstu árgjaldi þunga- skatts, þungaskatti skv. ökumælum, viðbótar- og aukaálagningu söluskatts vegna fyrri tímabila, skráningargjaldi vegna lögskráningar sjómanna, iðgjaldi í Lífeyrissjóð bænda, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vörugjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, aðflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjöldum, fisksjúkdómagjaldi, jarðar- afgjaldi og álögðum þing- og sveitarsjóðsgjöldum, sem eru: Tekjuskattur og útsvar, ásamt verðbótum á ógreiddan tekjuskatt og útsvar, sérstakur tekju- skattur manna, eignarskattur, sérstakur eignarskattur, fjármagnstekjuskattur, slysatrygginga- gjald vegna heimilisstarfa, tryggingagjald, búnaðargjald, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmálagjald, markaðsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra og skattur af verslunar- og skrifstofuhús- næði, ofgreiddar barnabætur og ofgreiddar vaxtabætur. Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftir- stöðvum gjaldanna, ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda. Athygli skal vakin á því, að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 12.700 kr. fyrir hvert fjárnám. Þinglýsingargjald er 1.350 kr. og stimpilgjald 1,5% af heildarskuldinni, auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjald- endur hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað. Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald, afdreg- inn fjármagnstekjuskatt, áfengisgjald og virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara, þeir gjaldendur er skulda bifreiðagjöld og þungaskatt mega eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara og þeir gjaldendur sem skulda gjöld þar sem lögveð fylgir mega búast við að send verði út sérstök greiðsluáskorun fyrir gjaldföllnum kröfum. Greiðsluáskorunin hefur ekki áhrif á þessi innheimtuúrræði þannig að fyrr- greindur 15 daga frestur frá dagsetningu áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum. Reykjavík, 16. nóvember 2005. Tollstjórinn í Reykjavík Sýslumaðurinn í Kópavogi Sýslumaðurinn í Hafnarfirði Sýslumaðurinn í Keflavík Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli Sýslumaðurinn á Akranesi Sýslumaðurinn í Borgarnesi Sýslumaðurinn í Stykkishólmi Sýslumaðurinn í Búðardal Sýslumaðurinn á Ísafirði Sýslumaðurinn í Bolungarvík Sýslumaðurinn á Patreksfirði Sýslumaðurinn á Hólmavík Sýslumaðurinn á Siglufirði Sýslumaðurinn á Sauðárkróki Sýslumaðurinn á Blönduósi Sýslumaðurinn á Akureyri Sýslumaðurinn á Húsavík Sýslumaðurinn á Ólafsfirði Sýslumaðurinn á Seyðisfirði Sýslumaðurinn á Eskifirði Sýslumaðurinn á Höfn Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum Sýslumaðurinn á Selfossi Sýslumaðurinn í Vík Sýslumaðurinn á Hvolsvelli Gjaldheimta Vestfjarða Gjaldheimta Austurlands Gjaldheimtan í Vestmannaeyjum SUÐURNES Reykjanesbær | Steypan er heiti á aðstöðu sem Reykjanesbær hefur komið upp fyrir bílskúrshljóm- sveitir. Húsnæðið er rekið af 88 hús- inu og er í aflögðu skrifstofuhúsnæði gömlu steypustöðvarinnar í Njarð- vík. Tvær hljómsveitir hafa þegar fengið inni í húsnæðinu og fleiri eru væntanlegar. Aðstaðan var formlega tekin í notkun við athöfn sem fór fram í fyrradag. Menningarmiðstöð ungs fólks í Reykjanesbæ, 88 húsið, hefur lengi leitað að aðstöðu fyrir bílskúrs- hljómsveitir, að sögn Hafþórs Barða Birgissonar forstöðumanns. Hefur það gengið illa því húsnæðið þarf að uppfylla ákveðnar kröfur og vera fjarri íbúðarbyggð. Fjórar hljómsveitir fá aðstöðu Hafþór segir að Árni Sigfússon bæjarstjóri hafi vakið athygli á því að Sparisjóðurinn í Keflavík hafi eignast húsnæði gömlu steypustöðv- arinnar, þegar málið var rætt í fræðsluráði og Sparisjóðurinn strax verið fús til að leyfa endurgjaldslaus afnot af því þegar eftir var leitað. Í húsinu eru tvö hljómsveitaher- bergi, auk setustofu, eldhúskróks og hreinlætisaðstöðu. Reiknað er með að tvær hljómsveitir geti sameinast um hvort herbergi, að sögn Hafþórs, þannig að minnsta kosti fjórar hljómsveitir fái notið aðstöðunnar, jafnvel fleiri. Hann segir að ef vel gangi með þennan rekstur og fleiri hljómsveitir þurfi aðstöðu, komi vel til greina að reyna að fá bæjaryfir- völd til að bæta við húsnæði. Skrifa undir samning og undirgangast strangar reglur Meðlimir hljómsveitanna sem fá inni í Steypunni gera samning við 88 húsið þar sem þeir undirgangast ákveðnar reglur um notkun húsnæð- isins. Þær fela meðal annars í sér að aðstaðan sé algerlega vímulaus og að hún sé ekki notuð eftir miðnætti, eða eftir að útivistartíma viðkom- andi ungmenna lýkur, ef þau eru á grunnskólaaldri. Hver meðlimur greiðir 1.000 krónur á mánuði, til að standa undir kostnaði við ljós og hita. Áhugi er á því hjá forstöðumanni 88 hússins að koma upp litlu hljóð- veri. Hafþór segir að það yrði þá væntanlega sett upp í 88 húsinu við Hafnargötu 88. Yrði þá um leið hald- ið námskeið í hljóðupptökum. Haf- þór segir að það gæti orðið mikil lyftistöng fyrir bílskúrshljómsveit- irnar. Bílskúrshljómsveitir fá inni í Steypunni Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Sungið saman Hljómsveitirnar Ritch og Gun Shy Odyssey léku saman lag til að fagna nýja æfingahúsnæðinu. „ÞETTA eru ágætar reglur. Það væri ekki hægt að vera hér ef það mætti drekka,“ segir Davíð Þór Sveinsson, einn þeirra ungu manna sem fengið hafa inni í Steypunni og undir það tekur Al- bert Karl Sigurðsson. Báðir eru sautján ára, eins og flestir í hljómsveitunum tveim sem byrj- aður eru í Steypunni. Albert er í hljómsveitinni Gun Shy Odyssey og Davíð í hljómsveit sem borið hefur nafnið Ritch en er í nafn- breytingaferli. Albert segir að sín hljómsveit hafi verið í miklu hallæri með að- stöðu og það hafi bitnað verulega á henni. „Við vorum í bílskúr hjá trommaranum en þar er þröngt og ekki hljóðeinangrað svo ná- grannar hafa kvartað. Við gátum því ekki æft eftir átta á kvöldin,“ segir Albert. Hann segir að starf- semi hljómsveitarinnar hafi lagst í dvala um tíma vegna aðstöðu- leysis og þeir hafi verið lengi að leita að betra húsnæði. Hann seg- ir að æfingahúsnæði þurfi að uppfylla ákveðnar kröfur, svo sem um að þar sé rafmagn og hlýja og helst þurfi að vera ör- yggiskerfi svo menn geti skilið eftir tækin sín. Þeir hafi ekki fundið slíkt húsnæði, ekki fyrr en nú. „Þetta er geggjað,“ sagði Al- bert um nýju aðstöðuna. Davíð og félagar hans æfðu í bílskúr heima hjá honum. Hann segir að þeir hafi verið í ágætum málum enda búnir að hljóðein- angra bílskúrinn til að ekki trufla nágrannana. „Við vorum ekki að leita að húsnæði en hér er auðvitað allt miklu betra,“ segir hann. Safna fyrir upptökugræjum Strákarnir hafa unnið talsvert í húsnæðinu og komið með hús- gögn að heiman, meðal annars sófa í setustofuna. Þeir segjast fá að stjórna starfseminni að mestu sjálfir, og eru ánægðir með það. Strákarnir segjast æfa á hverju kvöldi, kannski í tvo tíma og setj- ast svo niður við leikjatölvuna eða sjónvarpið á eftir. Báðar hljómsveitirnar hafa starfað í um það bil tvö ár og spilað víða á þeim tíma. Davíð og Albert segja góða tíma fram- undan. Sveitirnar verði miklu þéttari þegar hægt sé að æfa svona stíft. Þeir stefna að því að koma sér upp tækjum til að taka upp. Sjálf- ir ætla þeir að borga aukalega 500 krónur hver á mánuði, í tækjasjóð, og reyna líka að fá styrki. „Svo getum við borgað meira í sumar, þegar við förum að vinna,“ sagði Albert. Formleg opnun Árni Sigfússon, Brynjar Freyr Níelsson, Geirmundur Kristinsson og Guðmundur Arnar Guðmundsson voru við opnunina. Nemendur úr Fjölbrautaskólanum afhentu þeim táknrænan grip. Strákarnir stjórna æfingahúsnæðinu að mestu sjálfir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.