Morgunblaðið - 16.11.2005, Side 30

Morgunblaðið - 16.11.2005, Side 30
30 MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Jóhanna Ingi-björg Þor- björnsdóttir fæddist í Bakkakoti í Skorradal 4. febr- úar 1924. Hún and- aðist á sjúkrahúsi Akraness þriðju- daginn 8. nóvember síðastliðinn. For- eldrar hennar voru hjónin Ingibjörg Magnúsdóttir frá Iðunnarstöðum Lundarreykjadal í Borgarfirði, f. 29. apríl 1896, d. 16. febrúar 1973, og Þorbjörn Jóhannsson frá Kjart- ansstöðum í Skagafirði, f. 3. sept- ember 1891, d. 6. júní 1953. Jó- hanna ólst upp hjá foreldrum sínum, fyrst í Bakkakoti í Skorra- dal og flutti ung með þeim að Hávarðsstöðum í Leirársveit og þaðan til Akraness og átti þar heima að mestu síðan. Systur hennar eru: 1) Guðbjörg, f. 27. apríl 1917, gift Beinteini Helga- syni, f. 1913, d. 1959. Börn þeirra eru Sigríður Sjöfn, f. 1940, Ingi- björg Fanney, f. 1941, d. 2004, og Bragi, f. 1946. Seinni maður Guð- bjargar var Steingrímur Matthías Sigfússon, f. 1919, d. 1976. 2) El- ísabet, f. 4. júní 1920, d. 1. sept- ember 1995, gift Ágústi Sigurði Guðjónssyni, f. 1912, d. 1995. leikskólakennari, f. 1971. Hennar maki er Hallgrímur Ævarsson, f. 1967. Þeirra sonur er Ævar Björn, f. 2001. Hanna Dóra, kenn- ari, f. 1974. Hennar maki er Einar Andri Gíslason, f. 1969. Þeirra börn eru Telma Ösp, f. 2000, og Hildur Heba, f. 2002. Hrefna Gerður, háskólanemi, f. 1981. Björn Ingi, menntaskólanemi, f. 1987, unnusta hans er Júlíana Alda Óskarsdóttir, f. 1988. 2) Inga Þorbjörg, hjúkrunarfræðingur, f. 4. apríl 1955, gift Sigurði Mikaels- syni sölustjóra. Þeirra börn eru: Steindór Emil, rafmagnsverk- fræðingur, f. 1976. Sigrún Birna, BA í sálfræði, f. 1979. Hennar sambýlismaður er Ingi Jarl Sig- urvaldason, f. 1977, háskólanemi. Jóhann Fannar fæddur 1981, há- skólanemi, hans sambýliskona er Tinna Gunnarsdóttir mennta- skólanemi, f. 1984, þeirra barn er Gunnar Mikael, f. 2003. Mikael Hrannar, grunnskólanemi, f. 1990. 3) Sigurður Heiðar, endur- skoðandi, f. 22. júní 1958. Hans kona er Sigríður Haraldsdóttir, hjúkrunarfræðingur, f. 1960. Þeirra börn eru: Haraldur Heið- ar, menntaskólanemi, f. 1986. Arnór Heiðar, grunnskólanemi, f. 1993. Birgir Heiðar, grunnskóla- nemi, f. 1994. Jóhanna stundaði nám við hér- aðsskólann á Laugum í Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu og hús- mæðraskólann á Blönduósi. Hún vann ýmis störf, einkum verslun- arstörf, saumaskap hjá Akra- prjóni en lengst af í fiskvinnslu hjá Haraldi Böðvarssyni. Útför Jóhönnu verður gerð frá Akraneskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Þeirra börn eru Inga Sólveig, f. 1941, Ólöf, f. 1942, Edda, f. 1944, Sigrún, f. 1947, og Hulda, f. 1948. 3) Auður, f. 29. apríl 1926, d. 26. desem- ber 2000, gift Ólafi Þórmundssyni, f. 1917, d. 2000. Þeirra börn eru Ólöf, f. 1947, d. 1982, Þórir, f. 1950, Guðrún, f. 1957. Jóhanna giftist 4. febrúar 1951 Stein- dóri Emil Sigurðssyni húsa- og húsgagnasmíðameistari frá Mel- um í Árneshreppi í Strandasýslu, f. 4. febrúar 1922, d. 9. júní 1979. Foreldrar hans voru Sveinsína Guðrún Steindórsdóttir frá Mel- um, f. 13. maí 1898, d. 13. desem- ber 1988, og Sigurður Bjarnason smiður frá Naustavík í Árnes- hreppi, f. 6. júní 1894, d. 13. des- ember 1926. Systur Steindórs eru: 1) Clara Jenný, f. 1920, d. 2000, gift Jónasi Halldórssyni, f. 1921, d. 2001. 2) Sigríður, f. 1924, gift Sigurði Árnasyni, f. 1920, d. 1986. Jóhanna og Steindór eignuðust þrjú börn, þau eru: 1) Sveinsína Guðrún, ritari, f. 18. nóvember 1950, gift Birni Mikaelssyni yf- irlögregluþjóni, f. 1950. Þeirra börn eru: 1) Hrönn Arnheiður, Amma mín Jóhanna hefur kvatt þennan heim. Hún var sko engin venjuleg kona heldur einstök mann- eskja. Þekkt fyrir ofurdugnað sinn og sjálfstæði. Á lífsgöngu sinni gekk hún í gegnum ýmsar þrautir, en aldrei kvartaði hún. Hún bar sig alltaf vel og stóð bein í baki í lífsbar- áttunni. Hún vann alla tíð hörðum höndum fyrir sínu og lét ávallt gott af sér leiða. Amma var athafnasöm kona og allt lék í höndum hennar hvort sem um ræðir heimilishald eða hannyrðir. Hún var gestrisin með meiru og töfraði fram hvert veislu- borðið á fætur öðru með þvílíkri snilld. Að ógleymdu kvöldkaffinu, því mátti ekki sleppa. Hún fylgdist vel með þjóðfélagsumræðunni og fannst gaman að spjalla um öll lífs- ins mál. Margar eldhúsumræðurnar urðu ansi líflegar og eftirminnilegar, amma hafði ákveðnar skoðanir á hlutunum. Mér er ofarlega í huga öll sjálfsharkan sem einkenndi ömmu, hún vildi ekki vera öðrum háð og það var hún ekki. Þrátt fyrir að heilsu og sjón hrakaði síðustu árin var ótrúlegt hvernig hún kom sér upp leiðum og kerfum til að geta bjargað sér sjálf. En að sama skapi var líka erfitt fyrir vel gefna og viljasterka konu að vera ekki lengur fær um að gera hluti sem hún áður hafði unun af. Þá fundum við að lífs- löngun hennar dofnaði. Það var erf- itt að sætta sig við að svona færi, bæði fyrir ömmu og líka okkur að- standendur. Að neyðast til að fylgja framvindu sem ekkert okkar stjórn- ar. Þurfa að sætta sig við að nú væru æðri máttarvöld komin við stjórnvölinn. Elsku amma, mig tekur það svo sárt að hafa ekki getað verið nærri þér síðustu vikur og mánuði. Að hafa ekki náð að kveðja þig almenni- lega. Það hefði ég svo gjarnan viljað. Fyrirgefðu mér amma mín. Mér þykir svo vænt um þær stundir sem við áttum saman, minningarnar lifa enn í huga mér. Þær ætla ég að varðveita. Ég man þegar við syst- urnar vorum litlar og þú fórst með okkur niður á Langasand. Við busl- uðum berfættar í sjónum, tíndum skeljar og byggðum sandkastala. Ég man jólin þegar þú komst norður og valdir að vera heima hjá mér og Andra. Það þótti mér sérstaklega vænt um. Ég man þegar þú komst í skírn eldri dóttur minnar, það var áður en þú veiktist. Þú varst svo fal- leg. Við eigum yndislegar myndir frá þeim atburði. Þú fagnaðir með mér útskriftinni úr Kennaraháskól- anum. Þú lékst þér við Telmu Ösp er við mæðgur gistum hjá þér sum- arið sem ég gekk með Hildi Hebu. Ég man hvað Telma hló og hvað þú hlóst. Það var svo gaman hjá okkur. Og ég man að þú varst viðstödd brúðkaup okkar, skömmu áður en við fjölskyldan fluttum úr landi. Þú lést þig aldrei vanta á stórviðburð- um í lífi mínu. Svo þegar kemur að þeirri stundu að þú kveður, þá er ég hvergi nærri. Fyrirgefðu mér, amma mín. Ég veit líka að þú ert sátt við að yfirgefa þennan heim, þú hafðir ósk- að þér hvíldarinnar fyrr. Það erum við hin sem eftir sitjum sem eigum erfitt með að sleppa af þér hendinni. Við syrgjum þig sárt amma mín og eigum eftir að sakna þín lengi. Okk- ar sár koma til með að gróa með tímanum, en þín verður oft minnst. Nú þegar vetur konungur blæs úti, yljum við okkur í ullarvettlingum og sokkum sem þú prjónaðir. Þeir veita okkur hlýju á köldum og erfiðum tímum sem þessum. Það verða líka blendnar tilfinningarnar þegar ég kveiki á keramikjólatrénu í upphafi aðventu, jólatrénu sem þú bjóst til og gafst mér. Þakka þér amma mín fyrir allt sem þú hefur veitt okkur í gegnum tíðina. Telma Ösp sagði í kvöld að nú væri langamma orðin stjarna á himninum hjá Guði. Sökn- uðurinn er sár en minningin lifir. Hann afi tekur vel á móti þér, það er ég viss um. Mikið sem þið eruð búin að bíða þessa endurfundar lengi. Saman veit ég að þið fylgist með okkur. Við biðjum góðan Guð um að fylgja þér til móts við afa. Megi þið njóta samverunnar um ókomna tíð. Guð veri með ykkur. Okkur langar til að senda inni- legar samúðarkveðjur til foreldra minna, systkina og systursonar. Til systkina mömmu, Ingu og Heiðars og þeirra fjölskyldna. Ásamt sam- úðarkveðjum til annarra ættingja og þeirra sem þóttu vænt um ömmu mína. Blessuð sé minning hennar. Guð veri með ykkur á þessum sorgartímum og gefi ykkur styrk. Við hugsum til ykkar héðan frá Danmörku. Hanna Dóra, Andri, Telma Ösp og Hildur Heba. Við viljum þakka tengdamóður og ömmu alla hjálpsemina og gæskuna í okkar garð. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibj. Sig.) Elsku Jóhanna, hjartans þakkir. Þín tengdadóttir og ömmustrák- ar, Sigríður, Haraldur, Arnór og Birgir. JÓHANNA INGIBJÖRG ÞORBJÖRNSDÓTTIR Kæri bróðir okkar, ERLENDUR GUÐNI ERLENDSSON frá Helgastöðum, til heimilis í Krummahólum 4, Reykjavík, lést sunnudaginn 30. október. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Gísli Erlendsson, Helga Kristjánsdóttir, Una Kristjánsdóttir, Guðrún Kristjánsdóttir, Alda Kristjánsdóttir og fjölskyldur. Elskulegur faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, ÁGÚST GUÐBRANDSSON frá Stígshúsi, Stokkseyri, lést á Landspítalanum Fossvogi sunnudaginn 13. nóvember. Útförin fer fram frá Stokkseyrarkirkju laugar- daginn 19. nóvember kl. 14.00. Guðbrandur Stígur Ágústsson, Brynhildur Arthúrsdóttir, Guðríður Bjarney Ágústsdóttir, Sigríður Inga Ágústsdóttir, Dagrún Mjöll Ágústsdóttir, Aron Hauksson, Hólmfríður Hlíf Steinþórsdóttir, Einar Páll Bjarnason, Ragnheiður Drífa Steinþórsdóttir, Logi Hjartarson, Kristín Steinþórsdóttir, Jason Steinþórsson, Hrönn Sturlaugsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR KOLKA, er látin. Útförin verður auglýst síðar. Guðbjörg og Ragnhildur Kolka. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, dóttir, tengdamóðir, systir, mágkona og tengdadóttir, GUÐBJÖRG HILMARSDÓTTIR, Seljahlíð 7e, Akureyri, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri föstu- daginn 11. nóvember. Útförin fer fram frá Glerárkirkju mánudaginn 21. nóvember kl. 14.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á félag aðstandenda langveikra barna á Akureyri, Hetjurnar. Smári L. Einarsson, Hilmar Örn Smárason, Sigurveig Gunnarsdóttir, Haukur Þór Smárason, Signý Sigurlaug Smáradóttir, Hilmar Ágústsson, Þora Jones, Axel Alan Jones, Kristbjörg Hilmarsdóttir, Ingólfur Sveinsson, Valgeir Hilmarsson, Elín Högnadóttir, Signý Sigurlaug Tryggvadóttir, Haukur Þórðarson. Elskulegur maðurinn minn, bróðir, tengdasonur og mágur, RÓBERT ÞÓR RAGNARSSON, Hveralind 6, Kópavogi, lést af slysförum mánudaginn 14. nóvember. Útförin verður auglýst síðar. Hulda Olsen, Ásta Þórey Ragnarsdóttir, Rósalind Ragnarsdóttir, Ólafía Árnadóttir, Reynir Lárus Olsen, Árni Hrafn Olsen, Hrefna Björk Olsen. Ástkær móðir, tengdamóðir, amma og langamma, PETRA MOGENSEN, Miðleiti 5, andaðist á hjúkrunarheimilinu Sóltúni laugar- daginn 12. nóvember. Ellen M. Thors, Jón Thors, Hulda G. Mogensen, Elsa Mogensen, Páll Guðmundsson, Edda Thors, Sigurður Guðjónsson, Hildur Thors, Helgi Sigurðsson, Mogens Gunnar Mogensen, Margrét Steinþórsdóttir, Guðrún Þóra Mogensen, Árni Sigurjónsson, Petra Björk Mogensen, Sveinbjörn Sveinbjörnsson og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.