Morgunblaðið - 16.11.2005, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005 31
MINNINGAR
Með sorg í hjarta
kveð ég elsku Hannes
Björgvinsson. Ég
kynntist honum fyrir mörgum árum
þegar ég var í nokkur ár í sambandi
með barnabarni hans. Strax náðum
við vel saman, þvílík ást og hlýja sem
umvafði mann í Sunnubergi frá
fyrstu tíð. Þar fékk maður alltaf
hjartanlegar viðtökur hjá honum og
elsku Stínu minni. Ég var svo heppin
að fá að eiga þau að og þessa setn-
ingu meina ég svo frá hjartanu og
tárin streyma niður kinnar mínar
þegar ég hugsa þetta.
Mig langar að skrifa Hannesi
kveðju- og þakkarbréf fyrir allt sem
hann var mér.
Kæri vinur. Mikið hrikalega er
erfitt að setjast niður og skrifa
hinstu kveðju til þín en ég veit að þú
virðir við mig þessa tilraun til að
þakka þér fyrir þá traustu samfylgd
sem ég naut með þér og þá ríku vin-
áttu sem þú veittir mér allt frá því
við hittumst fyrst. Þótt ég hafi vitað
hversu mikið þú varst veikur þá
bjóst ég ekki við því að fá hringingu
strax um að þú værir búinn að kveðja
þennan heim. Viku áður en þú
kvaddir talaði ég við þig í síma þegar
þú varst í Neskaupstað og þá varstu
nú alveg viss um að fara að komast
heim því eins og þú orðaðir það þá
væri þar best að vera og besta lækn-
ingin. Þið elsku pabbi minn voruð
búnir að liggja tvisvar saman í Nes-
kaupstað og þótti mér voða vænt um
HANNES
BJÖRGVINSSON
✝ Hannes Björg-vinsson fæddist
á Skriðu í Breiðdal
12. nóvember 1925.
Hann lést á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu í
Neskaupstað 5. nóv-
ember síðastliðinn
og var útför hans
gerð frá Heydala-
kirkju 11. nóvem-
ber.
að hafa ykkur saman,
þótt auðvitað hefði ég
viljað hafa ykkur bara
heima hressa. En það
var styrkur fyrir mig
að hafa þig hjá pabba
mínum sem ég elska af
öllu hjarta.
Og, elsku Hannes,
ef þú bara vissir hvað
þú átt stóran stað í
mínu hjarta, þú og
elsku Stína mín sem
stóð þér við hlið eins
og klettur allan tím-
ann. Já, elsku vinur,
það eru forréttindi að eignast svona
góða konu eins og þú áttir sem er
með hjarta úr gulli. Og ég lofa þér
því að hugsað verður vel um hana,
þið eigið stóran hóp af yndislegum
börnum, barnabörnum og barna-
barnabörnum, svo rík eruð þið, og
munu þau öll sjá vel um hana. Og ég
var búin að lofa því að hún missi mig
aldrei og það skal ég sko standa við
með ánægju og gera allt fyrir hana.
Alveg frá því við Brynjar slitum
sambandi létuð þið mig alltaf vita að
ykkur þætti vænt um mig og létuð
mér líða vel í návist ykkar.
Það er mér minnisstætt þegar ég
heimsótti þig og pabba í Neskaup-
stað í sumar með Jón Aðalstein litla,
þá varstu svo kátur að sjá mig eða
Röggu þína eins og þú kallaðir mig
þá. Og man ég hvað það snerti mitt
litla hjarta þegar ég var að kveðja
þig, þá tókstu utan um okkur Nonna
og fórst að gráta. Þótt það sé ekkert
fallegt að segja að það hafi verið gott
að sjá þig gráta snerti það mig mikið
að vita það að þessi tár komu svo
innilega frá hjartanu þínu, því orð-
margur varstu aldrei. Svo heimsótti
ég þig á sjúkrahúsið á Egilsstöðum í
vetur og þá áttum við yndislega
stund saman. Allan þann tíma sem
ég var hjá þér hélstu utan um mig.
Svo löbbuðum við saman niður í mat-
sal og þú slepptir mér ekki einu sinni
þegar þú varst að borða, passaðir vel
upp á Röggu þína. Svo þegar hjúkk-
urnar voru alltaf að koma og spyrja
þig hvort ég væri barnabarn þitt þá
sagðirðu alltaf: „Ég á þessa bara,“ og
hlóst svo. Sárt að vita að það hafi
verið síðasta knúsið sem ég fékk frá
þér en ég á alltaf minningarnar um
þau.
Þegar þú kvaddir þennan heim
var vika í 80 ára afmælið þitt og veit
ég að þú heldur upp á það í nýja
heiminum og vonandi býður þú
Nonna bróður í afmælið.
Ég vil enda þetta bréf á þessu ljóði
sem mér finnst svo fallegt og segir
ljóðið allt sem segja þarf:
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Ég vil þakka þér fyrir þann tíma
sem ég átti með þér og ég veit að þér
líður vel núna, það verðum við að
hugsa um, við sem kveðjum þig hér
með stórt sár í hjartanu.
Elsku Stína mín, þú ert með fal-
legasta hjarta í heimi og var Hannes
svo heppinn að hafa þig sér við hlið,
þú hefur misst mikið og mun tíminn
græða þau sár með tímanum. Elsku
Skúli, Malla, Hrefna, Fanney, Krist-
ín, Stefanía, Hrafnkell, barnabörn,
barnabarnabörn og vinir, ég bið guð
að blessa ykkur og hjálpa ykkur yfir
missinn. Minning um góðan mann,
pabba, afa, langafa og vin, mun ávallt
vera í hjarta okkar.
Takk, elsku Hannes, fyrir mig og
guð blessi þig, elsku vinur.
Þín
Ragnhildur Sveina.
LEGSTEINAR
Steinsmiðjan MOSAIK
Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík
sími 587 1960 • www.mosaik.is GUÐNÝ JÓHANNA ÓSKARSDÓTTIR,
Birkimel 8,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn
18. nóvember kl. 13.00.
Vandamenn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SÓLVEIG SIGURBJÖRNSDÓTTIR,
Dalalandi 1,
Reykjavík,
sem lést laugardaginn 12. nóvember, verður jarð-
sungin frá Hallgrímskirkju föstudaginn 18. nóv-
ember kl. 15.00.
Gróa Björnsdóttir,
Sigurður Björnsson, Ásdís Magnúsdóttir,
Sigurbjörn Björnsson, Svava Björnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
SIGRÍÐUR JÓSEFSDÓTTIR,
Hringbraut 50,
áður Tómasarhaga 44,
Reykjavík,
sem andaðist á hjúkrunarheimilinu Grund
miðvikudaginn 9. nóvember, verður jarðsungin
frá Eyvindarhólakirkju, Austur-Eyjafjöllum, laugar-
daginn 19. nóvember kl. 13.00.
Börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma og langalangamma,
SÓLVEIG BJÖRNDÍS GUÐMUNDSDÓTTIR,
Kirkjuvegi 5,
Keflavík,
verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju föstudaginn
18. nóvember kl. 14.00.
Sveindís Hansdóttir, Gunnar Bjarnason,
Brynjar Hansson,
Sumarrós Fjóla Hansdóttir, Jón Júlíusson,
Vigdís Kristjánsdóttir,
Bára Hansdóttir, Guðmundur Pétursson,
Danelíus Hansson, Gunný J. Henrýsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabarn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður og afa,
BJÖRNS EIRÍKSSONAR,
Bólstaðarhlíð 45,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki bráða-
móttöku Landspítalans við Hringbraut.
Hjördís Halldórsdóttir,
Steinunn Björnsdóttir,
Eiríkur Björnsson, Matthildur Bára Stefánsdóttir,
Birgir Björnsson, Björk Alfreðsdóttir,
Anna Björnsdóttir
og barnabörn.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og
útför ástkærs eiginmanns míns, föður, tengda-
föður og afa,
GUNNARS SIGURGEIRSSONAR,
Austurvegi 5,
Grindavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Víðihlíðar.
Sigurrós Benediktsdóttir,
Hildur Gunnarsdóttir, Ragnar Ragnarsson,
Sigurrós Ragnarsdóttir,
Gunnar Ólafur Ragnarsson.
Innilegar þakkir færum við þeim, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elsku-
legs eiginmanns míns, bróður, mágs og frænda,
SKÚLA JÓNSSONAR
bónda á Selalæk.
Sérstakar þakkir fær heimahlynning krabbameins-
sjúkra og starfsfólk Landspítala á deild 13D.
Aðalheiður Finnbogadóttir
og fjölskylda,
Eygló Jónsdóttir, Bragi Haraldsson,
Egill Jónsson, Helena Weihe,
Sjöfn Guðmundsdóttir,
Svanborg Jónsdóttir, Sæmundur Ágústsson,
Bjarni Jónsson, Kristín Bragadóttir,
Bjarnveig Jónsdóttir, Ármann Ólafsson,
Bára Jónsdóttir, Árni Þór Guðmundsson,
Þórir Jónsson, Guðný Sigurðardóttir,
Viðar Jónsson, Jóna Árnadóttir,
Guðjón Egilsson
og fjölskyldur þeirra.
Ástkær eiginkona mín, besti vinur og móðir okkar,
CARLA PIZARRO FERNADEZ,
lést sunnudaginn 13. nóvember.
Símon Jóhann Bragason,
Sóldís Rós Símonardóttir,
Veronica Alexandra Símonardóttir,
Rafael Róbert Símonarson.