Morgunblaðið - 16.11.2005, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 16.11.2005, Qupperneq 34
34 MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ Atvinnuauglýsingar Biskup Íslands auglýsir laust til umsóknar embætti sóknarprests í Hallgrímsprestakalli Reykjavíkurprófastsdæmi vestra. Embættið veitist frá 1. febrúar 2006. Embættið er afar krefjandi í stórri sókn. Sóknar- presturinn gegnir mikilvægu hlutverki sem hirðir safnaðarins og leiðtogi í stórum hópi samstarfsfólks. Helgihald og predikun er einn veigamesti þáttur í starfi sóknarprestsins. Sam- starf á sviði lista og menningar er og snar þátt- ur í starfinu. Því er lögð rík áhersla á víðtæka reynslu af kirkjulegu starfi, færni í prédikun og helgiþjónustu, leiðtogahæfileika og sam- starfsvilja. Kirkjumálaráðherra skipar í embætti sóknar- presta til fimm ára. Óskað er eftir því að um- sækjendur geri skriflega grein fyrir menntun sinni, starfsferli og öðru því sem þeir óska eftir að taka fram. Umsóknarfrestur rennur út 15. desember 2005. Umsóknir sendist Biskupi Íslands, Biskups- stofu, Laugavegi 31, 150 Reykjavík. Allar nánari upplýsingar um embættið, starfs- kjör, helstu lög og reglur sem um starfið gilda, eru veittar á Biskupsstofu, s. 535 1500. Sjá ennfremur vef Þjóðkirkjunnar, www.kirkjan.is/biskupsstofa. F.h.b. Þorvaldur Karl Helgason Raðauglýsingar 569 1100 Kennsla Menntaskólinn við Hamrahlíð www.mh.is Stöðupróf í desember 2005 Stöðupróf á vegum menntamálaráðuneytisins verða haldin í Menntaskólanum við Hamrahlíð sem hér segir: Föstudaginn 2. desember kl. 18:00 Spænska (SPÆ103 - 403) Laugardaginn 3. desember kl. 10:00 Norska (NOR103 - 203) og sænska (SÆN103 - 203) Mánudaginn 5. desember kl. 18:00 Danska (DAN103 - 203) Þriðjudaginn 6. desember kl. 18:00 Ítalska (ÍTA103 - 403) Fimmtudaginn 8. desember kl. 18:00 Franska (FRA103 - 403) Föstudaginn 9. desember kl. 16:00 Enska (ENS103 - 303) Þriðjudaginn 13. desember kl. 18:00 Þýska (ÞÝS103 - 403) Miðvikudaginn 14. desember kl. 18.00 Stærðfræði (STÆ103, STÆ203 og STÆ263) Skráð er í stöðupróf á skrifstofu skólans í síma 595 5200. Prófgjald, kr. 3.500 á hvert próf, greiðist hálf- tíma fyrir prófið. Sýna þarf persónuskilríki með mynd í prófinu. Í Aðalnámskrá framhaldsskóla er tekið fram, að þessi próf séu ætluð þeim, sem búa yfir þekkingu og reynslu sem ekki hefur verið aflað með hefðbundnum hætti í skóla. Að gefnu til- efni skal tekið fram, að fyrir liggur álit mennta- málaráðuneytisins um að stöðupróf skuli ekki nota sem upptektarpróf fyrir nemendur sem fallið hafa á annar- eða bekkjarprófi. Rektor. Listmunir Listmunir Erum að taka á móti verkum á næsta listmunauppboð sem verður 4. desember. Fyrir viðskiptavini okkar leitum við að góðum verkum eftir Þorvald Skúlason, Gunnlaug Scheving, Gunn- laug Blöndal, Kristínu Jónsdóttur, Þórarin B. Þorláksson, Jón Stefánsson, Mugg, Nínu Tryggvadóttur, Louisu Matthíasdóttur og Svavar Guðnason. Gallerí Fold, Rauðarárstíg 14, sími 551 0400. Til sölu Hvalur hf. — hlutabréf Tilboð óskast í hlutabréf í Hval hf. með fyrir- vara um forkaupsrétt félagsins og hluthafa. Síðasta kaupgengi sem vitað er um var 55,22 falt nafnverð miðað við staðgreiðslu. Tilboð sendist til augldeildar Morgunblaðsins eða í box@mbl.is, merkt: „H — 17883.“ Tilkynningar BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 411 3000 • MYNDSENDIR 411 3090 Reykjavíkurborg Skipulags- og byggingarsvið Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík Í samræmi við 25. gr. skipulags- og bygg- ingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík. Reitur 1.152.3, Skuggahverfi Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir reit 1.152.3, Skuggahverfi, sem afmarkast af Skúla- götu, Frakkastíg, Lindargötu og Vatnsstíg. Tillagan gerir ráð fyrir m.a að turnbygging á miðju skipulagssvæðinu og lágbyggingar norðan við turnbyggingar við Lindargötu eru felldar niður, jafnframt er lágbygging milli hábygginga við Lindargötu felld niður og vestari hábygging færð til austur. Það bygg- ingarmagn sem bundið var í ofangreindum lágbyggingum verður flutt yfir í hábyggingar við Skúlagötu og Lindargötu. Einnig verður felld niður tenging lágbyggingar við turn við Vatnsstíg og verður byggingin því stakstæð. Byggingarmagn verður aukið um 1250 m2, byggingarmagn bílgeymslu aukið um 4000 m2 og aðkomu að bílgeymslum og akstursleiðum innan lóðar verður breytt. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Tillagan liggur frammi í upplýsingaskála skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur- borgar í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 16. nóvember til og með 28. desember 2005. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs (merkt skipu- lagsfulltrúa) eigi síðar en 28. desember 2005. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan til- skilins frests, teljast samþykkja tillögurnar. Reykjavík, 16. nóvember 2005 Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur Rangárþing eystra auglýsir ný og breytt deiluskipulög í Rangárþingi eystra Í samræmi við Skipulags- og byggingarlög númer 73/1997 grein 25. auglýsir sveitar- stjórn Rangárþings eystra hér með tvö ný deiliskipulög, og breytingu á tveimur eldri deiliskipulögum. 1. Deiliskipulag miðbæjarins á Hvolsvelli. Um er að ræða nýtt deiliskipulag miðbæjarins á Hvolsvelli. Mörk deiliskipulagsins afmarkast af Hvolsvegi, Vallarbraut, Hlíðarvegi og vestan við Austurveg. Einnig eru inni á skipulaginu svokölluð veghlið inn á Hvolsvöll beggja vegna, þ.e. norðvestan við Björkina og í rétt suður fyrir gamla Vegagerðarhúsið. Markmið veghliða er að hægja á umferð gegnum Hvols- völl, auk þess að greiða fyrir allri umferð gegn- um miðbæinn. Þá er og einnig gert ráð fyrir íbúðarhúsnæði, þ.e. parhúsum, raðhúsum og fjölbýlishúsum upp á allt að 4 hæðir. Gert ráð fyrir verslunar- og þjónustuhúsum á jarðhæð auk íbúða þar fyrir ofan. Einnig er gert ráð fyrir lóð fyrir stofnanir. Deiliskipulagið var samþykkt á fundi skipulags- og byggingarnefndar 13. september sl. og staðfest á fundi sveitar- stjórnar þann 13. október sl. 2. Lambalækur - breyting á eldra deili- skipulagi. Um er að ræða stækkun svæðis um 9,7 ha og leyfi til að byggja á 3 nýjum lóðum. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkti breytinguna 13. september sl. og staðfest í sveitarstjórn Rangárþings eystra 13. október sl. Eldra gildandi deiliskipulag var staðfest í maí árið 2000. 3. Deiliskipulag frístundabyggðar í Langa- nesi 3. áfangi. Um er að ræða stækkun á nú- verandi svæði frístundabyggðar, þ.e. 12 nýjar lóðir, hver um sig tæpur 1,0 ha að stærð. Lóðirnar eru norðan við núverandi frístunda- byggð og í boga með Eystri Rangá. Deiliskipu- lagið var samþykkt í skipulags- og byggingar- nefnd 13. september sl. og í sveitarstjórn 13. október. 4. Deiliskipulag frístunda- og ferðaþjón- ustusvæðis að Hellishólum í Fljótshlíð. Um er að ræða eftirfarandi breytingar: Gisti- skálum fækkar en á móti er fjölgun á frístunda- lóðum. Nýr byggingarreitur fyrir nýja veit- ingaþjónustu á Lambhúshól og færslu á bygg- ingarreit þjónustuhúss ferðamanna innan Lambhúslautar. Deiliskipulagið var samþykkt í skipulags- og byggingarnefnd 1. nóvember sl. og í byggðarráði 3. nóvember sl. Deiliskipulagsuppdrættir liggja frammi á skrif- stofu Rangárþings eystra, Hlíðarvegi 16, Hvolsvelli, frá 16. nóvember til og með 14. desember nk. Athugasemdafrestur er til kl. 16.00 föstudaginn 28. desember 2005. Athugasemdum, ef einhverjar eru, skal skila skriflega á skrifstofu Rangárþings eystra fyrir lok ofangreinds frests. Þeir, sem ekki gera athugasemd við tillöguna innan ofangreinds frests, teljast samþykkir henni. Ath.: Athugasemdir skulu berast skriflega. F.h. Rangárþings eystra, Hvolsvelli, 11. nóvember 2005, Rúnar Guðmundsson, skipulags og byggingarfulltrúi Rangárþings eystra. Atvinnuauglýsingar • augl@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.