Morgunblaðið - 16.11.2005, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005 43
ÞEGAR Bjöggi var að slá í gegn rétt
fyrir 1970 reyndu unglingsstúlkur
að hlaupa á vegg til þess að brjóta í
sér framtönn svo þær gætu orðið
eins og goðið. Bjöggi varð goðsögn
áður en fyrsta platan hans og Æv-
intýris kom út; Þó líði ár og öld.
Undirrituð sá atburði þessa í ljóma,
ekki orðin unglingur sjálf en fylgdist
með af furðu og nokkurri spennu.
Tónlistin var grípandi og skemmti-
leg, röddin nýstárleg, útlit goðsins
framandi. Síðan hefur sólin skinið á
Bjögga, í þrjátíu og fimm ár hefur
hann verið einn fremsti og dáðasti
poppsöngvari þjóðarinnar, sungið
með ótal hljómsveitum og átt ótal
smelli sem bókstaflega allir kunna. Í
tilefni þess að þrjátíu og fimm ár eru
liðin frá útgáfu fyrstu plötunnar er
söngleikur settur á svið og út er
komin þreföld plata með úrvali af
tónlist goðsins.
Það er vel til fundið að kalla sýn-
inguna úrval úr söngbók Björgvins
því að í henni eru vinsælustu lögin
sem gestir geta sungið með en þeir
eru svo sannarlega hvattir til þess.
Sýningin skiptist í tvennt; fyrir hlé
er reynt að sýna umhverfið og tíð-
arandann sem Bjöggi er sprottinn
úr og sköpuð er spenna þriggja
stúlkna fyrir söngvaranum á sjö-
unda áratugnum. Þær eru sungnar
og leiknar af söngkonunum tveimur,
Regínu Ósk og Heiðu, sem geta leik-
ið prýðilega og leikkonunni Bryndísi
sem kemur á óvart með fína söng-
rödd. Léttur og nokkuð brota-
kenndur söguþráðurinn snýst laus-
lega um Nínu sem ætlar að giftast
Jóni í byrjun en er trufluð af æsku-
ástinni Geira sem nemur hana brott.
Geiri, leikinn og sunginn af Steini
Ármanni, er gerður að rótara hjá
Bjögga Halldórs, goðinu sem Nína
þráir að hitta í þrjátíu og sex ár. Og
fær það loks í nútímanum, á sviðinu
á Broadway. Það er engin djúp
merking í sögunni en hún er
skemmtileg og fjörleg með brönd-
urum á réttum stöðum, trúðslátum
Steins Ármanns sem hins einfalda
Geira og firnamiklum krafti í söng
og dansi. Þetta kvöld var hópurinn
að sýna í fyrsta sinn frá frumsýn-
ingu og nú fyrir fullu húsi af kátum
matargestum á uppskeruhátíð
hestamanna. Örlítils stirðleika gætti
í byrjun, sérstaklega þar sem flytj-
endur þurftu að tala textann sinn
mjög hátt og einhver vandamál voru
með stillingu á míkrófóni Steins Ár-
manns. Þessi stirðleiki ætti að slíp-
ast af þar sem sýningin er einmitt
ætluð kátum matargestum.
Eftir því sem á fyrri þáttinn líður
eykst spennan sem byggist á því að
stúlkurnar komist í návígi við
Bjögga sem svo birtist í eigin per-
sónu rétt fyrir hlé. Einstaka atriði
draga úr spennunni, svo sem vídeó
af Geira í sjónvarpsviðtali og end-
urtekin samtöl stúlknanna sem und-
irbúa sig fyrir ball. Aðalatriðin eru
þó söngurinn og tónlistin sem voru
einstaklega vel flutt í eyrum leik-
mannsins; áður er stúlknanna getið
en Friðrik Ómar er ekki síðri. Hann
þroskast með hverju árinu, bæði
hvað varðar söng og framkomu og
það var fyndið og skemmtilegt að sjá
hann stæla Bjögga. Dansinn setti
einstaklega sterkan svip á sýn-
inguna, dansararnir voru liprir og
orkumiklir en þar ber sérstaklega að
nefna Sigrúnu Birnu Blomsterberg.
Eftir hlé var Bjöggi sjálfur á svið-
inu. Hann söng dásamlega vel, var
með örugga og skemmtilega sviðs-
framkomu, lék með Bryndísi og
Steini, gaf dönsurunum sitt rými
sem og söngvurunum þremur sem
nú voru bakraddasöngvarar eins og
þeir gerast bestir. Síðast en ekki síst
hafði kóngurinn áhorfendur á öllum
aldri með sér hverja stund þegar
hver smellurinn af öðrum var fluttur
af vaxandi styrk. Gunnar Helgason
hefur léð sýningunni kraft og gleði
með leikstjórn sinni þótt deila megi
um uppbygginguna fyrir hlé en það
er vel gert hvernig leikritið leysist
upp í tónleika Björgvins Halldórs-
sonar. Eins og áður segir er hljóð-
færaleikurinn til fyrirmyndar, lýs-
ingin er vel gerð og umgjörðin.
Sýningin er fyrst og fremst hin
besta skemmtun sem nær hæð sinni
með söng stjörnunnar.
Er ekki Bjöggi bara bestur?
LEIKLIST
Söngleikur
Höfundur handrits: Gísli Rúnar Jónsson.
Leikstjóri: Gunnar Helgason. Leikarar:
Bryndís Ásmundsdóttir og Steinn Ár-
mann Magnússon. Söngvarar: Björgvin
Halldórsson, Friðrik Ómar Hjörleifsson,
Heiða Ólafsdóttir og Regína Ósk. Hljóm-
sveitarstjóri: Þórir Baldursson. Hljóð-
færaleikarar: Þórir Baldursson, Þórir Úlf-
arsson, Vilhjálmur Guðjónsson, Benedikt
Brynleifsson, Matthías Stefánsson og
Róbert Þórhallsson. Dansarar: Ásta Bær-
ings, Jónatan Örlygsson, Leifur Eiríksson
og Sigrún Birna Blomsterberg. Danshöf-
undur: Guðfinna Björnsdóttir. Útlit: Björn
G. Björnsson. Lýsing: Alfreð Sturla.
Hljóð: Gunnar Smári og Ásgeir Jónsson.
Broadway 12. nóvember 2005
Sagan af Nínu og Geira
Úr söngbók Björgvins Halldórssonar
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
„Eftir því sem á fyrri þáttinn líður eykst spennan sem byggist á því að stúlkurnar komist í návígi við Bjögga sem
svo birtist í eigin persónu rétt fyrir hlé,“ segir m.a. í dómi Hrundar Ólafsdóttur um Söguna af Nínu og Geira.
Hrund Ólafsdóttir
Sjáið Wallace & Gromit í sinni fyrstu bíómynd.
ENGINN
SLEPPUR
LIFANDI
FARÐU TIL
HELVÍTIS!
OKTÓBERBÍÓFEST
Sýnd kl. 5.30 B.i. 16 ára
"FLOTTASTA HROLLVEKJA ÁRSINS"
KÓNGURINN OG FÍFLIÐ / X-FM
EMPIRE MAGAZINE. UK
Sýnd kl. 10.20 B.i. 16 ára
Sýnd kl. 5.30 og 8 B.i. 12 ára
Nánari upplýsingar um myndir og dagskrá
á www.icelandfilmfestival.is
hörku spennumynd frá
leikstjóra 2 fast 2 furious
og boyz´n the hood
Þeir voru leiddir í gildru...
nú þarf einhver að gjalda!
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20 B.i. 16 ára
553 2075Bara lúxus ☎
MBL
TOPP5.IS
Sýnd kl. 10.30 B.i. 16 ára
Kóngurinn og Fíflið, XFM
VJV Topp5.is
MMJ Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5.30 og 8
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20 B.i. 14 ára
Sími 551 9000
Miðasala opnar kl. 17.00
Þetta var hið
fullkomna frí
þangað til
þau fundu
fjársjóðinn!
Sjóðheit spennumynd með
ofurtöffaranum Paul Walker og
hinni stórglæsilegu Jessicu Alba.
TOPP MYNDIN Á ÍSLANDI Í 2 VIKUR
400 KR Í BÍÓ*
* Gildir á allar sýningar merktar með rauðu
Separate Lies • Sýnd kl. 6 Enskt tal / ísl. texti
The King • Sýnd kl. 6 Enskt tal
Angela Shelton • Sýnd kl. 8 Enskt tal
Lie With Me • Sýnd kl. 8 Enskt tal / ísl. texti
My Summer of Love • Sýnd kl 10 Enskt tal
Yes • Sýnd kl 10 Enskt tal
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111