Morgunblaðið - 16.11.2005, Page 44
44 MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Þegar maður er þetta lítill
verður maður að hugsa
stórt.
Er frábær staður til að uppgötva sjálfan sig upp á nýtt.
Þeir voru leiddir í gildru...
nú þarf einhver að gjalda!
Elizabeth Town kl. 5.30 - 8 - 10.30
Litli Kjúllinn (Chicken Little) kl. 6 Ísl. tal
Tim Burton´s Corpse Bride kl. 6 - 8 - 10
Wallaze & gromit kl. 6 enskt tal
Four Brothers kl. 10 b.i. 16 ára
OKTÓBERBÍÓFEST
DV
topp5.is
S.V. / MBL
NÝ KVIKMYND FRÁ LEIKSTJÓRA “JERRY MAGUIRE” OG “ALMOST FAMOUS”
MEÐ ÞEIM HEITU STJÖRNUM ORLANDO BLOOM (“LORD OF THE RINGS”)
OG KIRSTEN DUNST (“SPIDER-MAN”).
Nýjasta stafræna teiknimy-
ndaundrið frá Disney .
Toppmyndin í USA.
Nýjasta stafræna teiknimyndaundrið
frá Disney .
Toppmyndin í USA.
Assasination of R. Nixon • Sýnd kl. 8
Drabet (Morðið) • Sýnd kl. 8 og 10
Guy X • Sýnd kl. 10
Hip Hip Hora ! • Sýnd kl. 8
The Child (L´enfant) • Sýnd kl. 6
Sýnd bæði með
íslensku og ensku tali.
DV
TÓNMILDA ÍSLAND er sú þýð-
ing sem Orðabók Háskóla Íslands
og útgáfufélagið Steinsnar ehf.
sameinuðust um þegar leitað var
eftir íslenskun á nafni plötunnar
Acoustic Iceland sem kom út fyrr
á þessu ári. Á plötunni er að finna
þekkt dægurlög flutt af lands-
þekktum söngvurum á borð við
Björgvin Halldórsson, Bubba
Morthens, Ragnheiði Gröndal,
Stefán Hilmarsson, Pál Rósin-
krans auk fimmtán annarra söngv-
ara en auk titilsins voru allar upp-
lýsingar um plötuna á ensku enda
platan ekki síst hugsuð fyrir er-
lenda ferðamenn sem hingað
sækja.
Steinar Berg útgáfustjóri Stein-
snar segir að fljótlega hafi það
orðið ljóst að Íslendingar hefðu
ekki minni áhuga á plötunni og lá
það þá beint við að þýða texta um-
slags og nafn og gefa plötuna aft-
ur út en útgáfudagur er í dag, 16.
nóvember.
Tónmilda Ís-
landi er mark-
aður ákaflega
skýr tónlistar-
legur og texta-
legur útgáfu-
rammi, að sögn
Steinars og en
þar til viðbótar er viðamikill bækl-
ingur sem meðal annars inniheld-
ur skemmtilegan pistil eftir Guð-
mund Andra Thorsson, ítarlegar
upplýsingar um lögin ásamt ein-
stökum ljósmyndum Mats Wibe
Lund af íslensku landslagi.
Steinar segir að platan hafi ver-
ið vinsæl hjá ýmsum fyrirtækjum
og stofnunum og þykja ensku og
íslensku útgáfurnar henta vel sem
gjafir til viðskiptavina. „Þannig
eru fyrirliggjandi fyrirframpant-
anir sem ásamt sölu á fyrrihluta
ársins ættu að tryggja sölu á yfir
12 þúsund eintökum og gerir Tón-
milda Ísland að mest seldu plötu
ársins hingað til.“
Tónlist | Acoustic Iceland endurútgefin
fyrir íslenskan markað
Tónmilda Ísland
TÓNLEIKAFERÐALAGI hljómsveitarinnar Íra-
fárs og Íslandsbanka til styrktar einstökum börnum
var ýtt úr vör í síðustu viku. Alls heldur sveitin 11
tónleika á jafn mörgum stöðum á Íslandi og rennur
allur ágóði af tónleikunum óskertur til félagsins Ein-
stök börn. Að sögn Birgittu Haukdal, söngkonu sveit-
arinnar, hefur tónleikaferðin gengið afar vel. Fullt
hús hefur verið á öllum stöðum hingað til og hefur
safnast tæplega milljón króna.
„Þetta hefur gengið alveg rosalega vel og okkur
þykir mjög vænt um hvað fólk er duglegt að mæta og
styrkja þetta góða málefni,“ sagði Birgitta. „Ferða-
lagið hefur verið mjög skrautlegt. Við vorum föst á
Möðrudalsöræfum í nokkra klukkutíma því að
bremsurnar frusu fastar og tók því ferðin til Húsa-
víkur 14 tíma. Annars hefur allt gengið mjög vel og
við hæstánægð með móttökurnar.“
Þess má geta að nýjasti geisladiskur Írafárs er
kominn í verslanir.
Tónlist | Íslandsferð Írafárs og Íslandsbanka
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Birgitta Haukdal segist afar ánægð með viðtökurnar.
Frábærar
viðtökur
!
" !
#
$!%&&
%
'
"
!
' (
(
'
'
)(
$ *
+
, %
' YTRI frágangur á öllum þeim
grúa „001“ hljómdiska sem ein-
staklingar gefa út hér á hverju
ári, er sem kunnugt upp úr og of-
an. Á þessum tvöfalda diski (annar
á ensku, hinn á íslenzku) er hann
ótvírætt upp úr. Allt – frá súrreal-
ísku málverki Hafliða Haralds-
sonar á umslaginu, vel læsu prent-
letri jafnt þar sem í bæklingi og
almennt fagmannlegu útliti yfir í
engu ófagmannlegri upptöku,
hljóðblöndun og atvinnuspila-
mennsku meðspilenda – er í topp-
flokki og hvetur óneitanlega til
nánari kynna við inntakið.
En þar tekur því miður lakara
við. Hvorki hin tíu lög Sæmundar
Haraldssonar né textar hans þykir
mér í neinu samræmi við glæsi-
legu umgjörðina. Og þó að gítar-
og munnhörpuleikurinn sleppi að
mestu fyrir horn, er lögunum
fjarska lítill greiði gerður með
framlagi söngvarans. Fyrstu og
mestu mistök höfundar voru því
að syngja efnið sjálfur, í stað þess
að fá til söngvara af sambæri-
legum karat og meðspilendur.
Þá hefði einnig mátt bjarga
ýmsu, hefðu góðir menn haft hönd
í bagga með textagerð í tæka tíð.
Og ekki sízt með hljómasetningu
laglína, sem er víðast hvar gizka
viðvaningsleg (t.d. sker klifun
minnkaðra sjöundarhljóma iðulega
í eyrun). Hins vegar gerir bráð-
fallega spiluð strengjaútsetning
Hrólfs Sæmundssonar talsvert
fyrir Veginn (11), þar sem þokka-
leg laglínan hefði jafnvel staðið
undir 8 mín. lengd, hefði söngur
laghöfundar ekki dregið hana nið-
ur.
Gamalt latneskt spakmæli út-
leggst „Þótt kraftana þrjóti, er
viðleitnin samt lofsverð“. Og það á
einnig við hér – en varla gagnvart
öðrum en nánustu aðstandendum.
Við því er ekkert að segja þó að
áhugamenn langi til að skilja eftir
persónulegan vitnisburð. En það
er ekki þar með sagt að hann eigi
alltaf erindi á opinberan markað.
Af lofsverðri viðleitni
TÓNLIST
Hljómdiskur
Shar: Hugarþel/Minding. 10 lög og
textar eftir Sæmund Haraldsson, auk ísl.
rímnalags og Round Midnight eftir Th.
Monk. Sæmundur Haraldsson söngur/
gítar/munnharpa, Jon Carlsson gítar,
Fredrik Samuelsson bassi, Leif Carlquist
slagverk, Johnny Lindström sax, Roger
Karlsson hljómborð, Jonathan Bryntes-
son trommur, Magnus Bylund básúna,
Maud Andersson & Elisabeth Pousi bak-
raddir. Flauta & strengjakvartett á „Veg-
urinn": Björn j:son Lindh flauta, Zbigniew
Dubik & Szymon Kuran fiðlur, Helga Kol-
beinsdóttir víóla, Lovísa Fjeldsted selló
og Hrólfur Sæmundsson úts./bassi.
Hljóðritað í Åmål/Svíþjóð, Víðistaða-
kirkju og á Spáni 1-2/2005. Lengd: 2 x
47:55 mín. Útgefandi: Sæmundur Har-
aldsson & Memoria Music AB, 2005.
Sæmundur Haraldsson, Shar – Hugarþel/
Minding
Ríkarður Ö. Pálsson
LangaðsóknarmestA
mynd helgarinnar
var Litli kjúllinn
(Chicken Little) en
tæplega 5.300 manns
lögðu leið sína á
hana. Christof Weh-
meier hjá Sambíó-
unum segir að mikið
af fjölskyldufólki hafi
komið að sjá þetta
„nýja stafræna
teiknimyndaundur
frá Disney“ eins og
við mátti búast. Hann segir ung-
linga heldur vilja sjá ensku útgáfu
myndarinnar.
Tvær aðrar myndir eru nýjar á
lista. Léttklædd Paul
Walker og Jessica Alba
í Into the Blue náðu
öðru sætinu en um
2.500 manns sáu hana.
Mynd Camerons
Crowe, Elizabethtown,
byrjaði hins vegar ekki
vel og hafnaði í níunda
sæti.
Októberbíófest setur
líka mark sitt á listann
en „Mörgæsamyndin“
svokallaða situr í
fjórða sæti. Tæplega 1.400 manns
sáu hana um helgina og alls hafa
um 3.600 manns fylgst með þessu
Suðurskautsævintýri.
Litli kjúllinn stór
!"
#
$
%% &'
'
('
)'
*'
+'
,'
-'
.'
&/'
3283 & $ D $4$ &# +@ &4-)<$
Stafræni Litli kjúllinn
er krúttlegur.
Leikkonan Sienna Miller hefurstaðfest að hún og Jude Law
séu tilbúin til að sættast. Parið fór
saman á frumsýningu Casanova,
nýjustu myndar Siennu í Los Ang-
eles.
„Það er frábært að hafa hann
hérna til að styðja myndina. Við
erum að reyna að leysa úr okkar
málum. Hann verður alltaf besti
vinur minn í heimi,“ sagði Sienna í
samtali við fréttastofu AP.
Fólk folk@mbl.is