Morgunblaðið - 16.12.2005, Síða 1
STOFNAÐ 1913 341. TBL. 93. ÁRG. FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Hallgrímur Örn
í Íslenskum aðli
Danski leikarinn Jens Albinus svarar
spurningum Morgunblaðsins | 66
Bílar og Íþróttir í dag
Bílar | Opel Vectra Kia neitar viðgerð Kvartmílan Bílar
lögreglunnar Renault í lúxus Ford Edge Íþróttir | Viggó vill
ekki fleiri landsleiki Roy Keane til Celtic Liverpool með met
www.postur.is
21.12.
er síðasti öruggi skiladagur
á jólakortum og
-pökkum innanlands!
lýsingu um stuðn-
ing við algert
bann gegn pynt-
ingum á föngum í
höndum Banda-
ríkjamanna, einn-
ig því sem nefnt
hefur verið niður-
lægjandi meðferð
á föngum.
Bush hafði áður
hótað neitunarvaldi gegn lögum af
þessu tagi. Hann sagði í gær að sam-
Washington. AP, AFP. | Stjórn George
W. Bush í Bandaríkjunum sneri í gær
við blaðinu og samþykkti kröfur hins
áhrifamikla öldungadeildarþing-
manns repúblikana, John McCains,
um ótvírætt bann við pyntingum af
öllu tagi. Áður hafði forsetinn sagt að
slík lög myndu binda um of hendur
starfsmanna leyniþjónustunnar,
CIA, í baráttunni gegn hryðjuverk-
um.
Báðar deildir þingsins samþykktu í
vikunni með miklum meirihluta yfir-
komulagið myndi sýna allri heims-
byggðinni að stjórn hans léti ekki
pynta fanga og „við hlítum ákvæðum
alþjóðlegra sáttmála [gegn pynting-
um], hvort sem er heima fyrir eða ut-
an landsins“. McCain, sem sat við hlið
forsetans á skrifstofu hans í Hvíta
húsinu er hann tjáði sig um þessa
stefnubreytingu, var að vonum
ánægður. „Við höfum sent heiminum
þau skilaboð að Bandaríkjamenn séu
ekki eins og hryðjuverkamennirnir,“
sagði McCain.
John McCain
Banna allar pyntingar
MUN meiri kjörsókn var í þingkosningunum í
Írak í gær en reyndin var í janúar þegar súnní-
arabar hunsuðu að mestu kosningarnar. Um 15,5
milljónir manna voru nú á kjörskrá og embætt-
ismenn töldu að víða hefðu um 60-80% manna kos-
ið. Hermdarverkamenn al-Qaeda höfðu hótað
árásum á kjörstaði. Nokkrar sprengingar heyrð-
ust, m.a. í höfuðborginni Bagdad og alls féllu fjórir
menn í landinu en víðast hvar fór allt friðsamlega
fram.
Talið er að tvær vikur muni líða áður en end-
anlegar niðurstöður verða birtar. Mikil kjörsókn
var að þessu sinni í héruðum súnní-araba, sem
voru helstu stuðningsmenn Saddams Husseins,
fyrrverandi forseta, og eru hatrömmustu and-
stæðingar Bandaríkjamanna. Í Fallujah í Anbar-
héraði reyndust kjörseðlar of fáir og varð að ná í
meiri birgðir. Fallujah hefur lengi verið eitt helsta
vígi uppreisnarinnar.
„Þetta er hátíðisdagur allra Íraka,“ sagði Kúrd-
inn Jalal Talabani, núverandi forseti Íraks.
George W. Bush Bandaríkjaforseti og fleiri ráða-
menn um heim allan fögnuðu því einnig að Írakar
skyldu ekki láta hótanir hryðjuverkamanna aftra
sér frá því að nota atkvæðisréttinn. Sagði Bush að
um mikilvægt, sögulegt skref væri að ræða í átt að
markmiði Bandaríkjamanna sem væri lýðræðis-
legt Írak, „þjóð sem geti staðið á eigin fótum og
varið sig sjálf, þjóð sem mun verða liðsmaður okk-
ar í baráttunni gegn hryðjuverkum og þjóð sem
mun verða öflugt fordæmi fyrir aðrar á svæðinu“.
Nýja þingið mun velja menn í helstu valdastöð-
ur í landinu, ekki síst í embætti forsætisráðherra
og forseta. Þótt kosningarnar hafi gengið vonum
framar eru margar hættur framundan. Er einkum
bent á að sundurlyndi og rótgróin tortryggni milli
helstu fylkinga, sjía-araba, súnní-araba og Kúrda,
geti valdið því að langur tími líði þar til öflug
stjórn nái tökum á ástandinu og uppfylli vænt-
ingar almennings um öryggi og bætt kjör.
Kosið af ákefð í Írak
Jalal Talabani, Kúrdaleiðtogi og Íraksforseti: „Hátíðisdagur allra Íraka“
George W. Bush Bandaríkjaforseti: „Öflugt fordæmi fyrir aðrar þjóðir“
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Hátíðarstemmning | 22
Morgunblaðið/RAX
Nú þegar líða fer að jólum má sjá veglegar og hátíðlegar skreytingar víðs vegar um bæ og borg. Þessar stúlkur úr Melaskólanum voru ekki í vandræðum
með að sýna ljósmyndara Morgunblaðsins hvar glæsilegustu skreytingarnar væri að finna, en það eru nemendur skólans sem eiga heiður af myndunum.
Viðskiptaráðherra um
sölu bréfa í FL Group til
Landsbanka Íslands
„Ástæða til
að vera á
varðbergi“
VALGERÐUR Sverrisdóttir við-
skiptaráðherra segir margt varðandi
viðskipti með bréf FL Group og af-
leiðusamning Landsbankans við
Baug Group og Oddaflug vekja at-
hygli sína og „ástæða sé til að vera á
varðbergi“ eins og hún orðar það í
samtali við Morgunblaðið.
Valgerður segir að í ráðuneyti
sínu verði fylgst með málinu en of
snemmt sé að segja til um hvort
ástæða sé til að breyta lögum hér á
landi um verðbréfaviðskipti. Ekki sé
hægt að kveða upp úr um það á með-
an þar til bærir aðilar eins og yf-
irtökunefnd og Fjármálaeftirlitið
séu með samninginn til skoðunar.
Yfirtökunefnd Kauphallar Íslands
hefur óskað eftir því við Landsbank-
ann að fá að sjá afrit af afleiðusamn-
ingnum sem gerður var í kjölfar álits
yfirtökunefndar um að yfirtöku-
skylda hefði myndast með saman-
lagt nærri 50% hlut félaganna í FL
Group. Fjármálaeftirlitið er með álit
yfirtökunefndar til skoðunar en sam-
kvæmt upplýsingum blaðsins hafa
afleiðusamningar ekki verið algengir
hér á landi.
Yfirtökunefnd | 18
Eftir Björn Jóhann Björnsson
og Arnór Gísla Ólafsson