Morgunblaðið - 16.12.2005, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 16.12.2005, Blaðsíða 54
54 FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Sólveig ÁgústaRunólfsdóttir fæddist í Reykjavík 16. mars 1934. Hún lést á Heilbrigðis- stofnun Suðurlands 8. desember síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Aðalheiður Engilrós Ólafsdóttir, f. 26.5. 1914, d. 9.7. 1939, og Runólfur Bjarnason, prentari, f. 22.8. 1908, d. 25.8. 1973. Seinni kona Runólfs var Guðrún Hólmfríður Árnadóttir, f. 20.4. 1913, d. 1.11. 1996. Hálfsyst- ir Sólveigar er Edda Runólfsdóttir, f. 8.4. 1952, og hennar maður er Einar Sigþórsson, f. 26.10. 1952 Sólveig ólst upp hjá móðurafa sínum og -ömmu, Ólafi Grímssyni, f. 20.10. 1985, d. 6.12. 1960, og Guð- rúnu Árnadóttur, f. 17.12. 1881, d. 14.6. 1962, eftir að móðir hennar dó úr berklum 1939. Hún stundaði hefðbundið grunnskólanám við Miðbæjarskólann í Reykjavík og síðan framhaldsnám við Kvenna- skólann. Sólveig giftist 11. desember 1953 eftirlifandi eiginmanni sínum, Guð- unnusti hennar er Jónas Óli Jónas- son. f.) Árni Konráð, f. 14.2. 1994. 2) Aðalheiður Guðmundsdóttir, f. 5.5. 1955. Hennar maður er Simon de Haan, f. 3.1. 1949. Börn Aðalheiðar eru: a) Erna Sólveig Júlíusdóttir, f. 4.11. 1979, og b) Matthías Örn Hall- dórsson, f. 15.1. 1994. 3) Úlfur Guð- mundsson, f. 26.3. 1960. Hans kona er Sólrún Tryggvadóttir, f. 12.7. 1959. Börn þeirra eru a) Tryggvi Örn, f. 18.4. 1986. b) Þóra Ágústa, f. 9.12. 1988, unnusti hennar Bogi Pétur Eiríksson. c) Sólveig Heiða, f. 13.9. 1993. 4) Hróbjartur Örn Guð- mundsson, f. 24.6. 1967, sambýlis- kona hans er Elín Björg Héðins- dóttir, f. 22.10. 1966. 5) Sigurveig Guðmundsdóttir, f. 22.6. 1971, son- ur hennar er Jakob Ágúst Krist- jánsson, f. 23.12. 1993. Sólveig starfaði sem skrifstofu- maður hjá Bláa bandinu og síðar lengi sem gjaldkeri hjá fataverk- smiðjunni Gefjun. Síðustu starfsár sín starfaði hún sem bókari hjá Byggingafélagi Gunnars og Gylfa. Sólveig var virk í félagsmálum. Hún var formaður Freyju, félags framsóknarkvenna í Kópavogi, um árabil, varabæjarfulltrúi og fyrsti formaður jafnréttisnefndar Kópa- vogs, auk þess sem hún var virkur félagi í Norræna félaginu í Kópa- vogi, sat í stjórn þess og var for- maður um tíma. Útför Sólveigar verður gerð frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 13. mundi Erni Árnasyni, skógfræðingi, f. 18.6. 1930. Foreldrar hans voru Ingibjörg Guð- mundsdóttir frá Hellatúni í Ásahreppi í Rangárvallasýslu, f. 2.4. 1907, d. 1.12. 1999, og Árni Guð- mundsson læknir frá Lóni í Kelduhverfi í Norður-Þingeyjar- sýslu, f. 3.12. 1899, d. 10.10. 1971. Sólveig og Guðmundur bjuggu lengst af í Kópavogi, í Laufbrekku 17. Börn þeirra eru: 1) Árni Guðmundsson, f. 19.1. 1955, maki Sigríður Huld Konráðsdóttir, f. 4.4. 1956. Börn þeirra eru: a) Guðmundur Örn, f. 13.5. 1976, og er sambýliskona hans Elizabeth Mary Arnaldsdóttir. b) Erla María, f. 3.5. 1980, og er eig- inmaður hennar Róbert Karl Hlöð- versson. c) Íris Björk, f. 22.7. 1981, og er sambýlismaður hennar Krist- ján Jón Jónatansson, og dætur þeirra Katrín Embla, f. 20.10. 2003, og Birta María Huld, f. 18.12. 2004. d) Unnur Svanborg, f. 1.5. 1984, og á hún soninn Viktor Ísar, f. 17.4. 2001. e) Sigríður Hulda, f. 4.6. 1987, Móðir mín Sólveig Runólfsdóttir lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi fimmtudagskvöldið 8. des- ember. Mig langar á þessum tíma- mótum til að rifja upp nokkur minn- ingabrot um móður mína. Mamma var aðeins fimm ára göm- ul þegar Aðalheiður mamma hennar dó og ólst hún því upp hjá afa sínum og ömmu þeim Ólafi Grímssyni og Guðrúnu Árnadóttur. Ég var svo lánsöm að fá að heim- sækja þau þar sem þau bjuggu síð- ustu æviárin rétt hjá Höfða. Hús- næðið þar sem þau bjuggu var ekki stórt né vítt til veggja en þar var gott að koma og þau reyndust dótturdótt- ur sinni vel. Var vistin þar góð þó svo að sjálfsagt hefur hún saknað þess að eiga ekki systkini á sama reki og ald- ursmunur verið talsverður á henni og uppalendum hennar. Afi Runólfur kom um hverja helgi og heimsótti dóttur sína og það var ávallt kært á milli þeirra. Mamma var aðeins átján ára þeg- ar hún og pabbi kynntust á kvenna- skólaballi. Ári síðar giftust þau og fluttust svo út til Noregs sama ár, þ.e. 1953. Þau bjuggu hins vegar lengst af í Kópavogi og þar ólumst við systkinin upp. Mamma vann mikið í gegn um tíð- ina sem var frekar óvenjulegt á þess- um tíma. Við systkinin urðum sjálf- sagt fyrir vikið sjálfstæðari og lærðum að bjarga okkur. Ég man varla eftir öðru en mömmu útivinn- andi en einnig hafði hún gaman af fé- lagsstörfum og var virk í Framsókn- arflokknum, var formaður kvenfélagsins Freyju um tíma. Ég var ekki nema á 11 ári þegar ég fór að fara með henni að spila framsókn- arvist sem var afar vinsælt á þeim tíma. Einnig komu vinkonur mínar þær Hanna Rúna og Hulda með í nokkur skipti. Var þetta hin besta skemmtun og tókst okkur einhverju sinni að krækja í aðalvinning sem okkur þótti ekki ónýtt. Við mamma vorum miklar vinkon- ur en þar sem ég var ein með Ernu Sólveigu dóttur mína fór ég oft í Laufbrekkuna á þeim tíma. Einnig ferðuðumst við töluvert á sumrin, bæði í styttri ferðir og lengri. Eitt skipti fórum við í heimsókn til Úlfs og Sólrúnar sem voru með sum- arbústað á Þingvöllum. Lenti bíllinn í gjótu með framhjólið þeim megin sem mamma sat með þeim afleiðing- um að bíllinn hékk í lausu lofti að hluta til. Ég panikeraði og baðaði út öllum öngum hoppandi í kring um bílinn og skipaði mömmu að reyna að koma sér út hið snarasta en mamma eins og alltaf haggaðist ekki þó leiðin út væri ekki greið. Úlfur kom sem betur fer fljótlega aðvífandi og bjarg- aði okkur úr ógöngunum en mikið var hlegið að þessari uppákomu. Laufabrauðsgerð var einn af föstu punktunum hjá stórfjölskyldunni sem mamma stóð fyrir, eins konar litlu jól. Þá spiluðum við jólalögin skárum út kökur og fengum okkur kaffi og með því en krakkarnir fengu sérblandaðan drykk að hætti mömmu sem mátti ekki missa sín. Höfum við systkinin reynt að halda í þennan sið eftir að mamma var ekki fær um að standa fyrir því. Sunnudagsbíltúrarnir með mömmu voru ófáir. Fórum við gjarn- an að heimsækja vini og vandamenn. Heimsókn til Imbu í Skipasundið var einn af okkar föstu punktum og eins bauð mamma mér og fleirum sem voru með í för gjarnan á kaffihús eða ís í Álfheimunum. Mamma var ekki heilsugóð síðustu árin, hún átti erfitt með gang og var bundin við hjólastól síðasta hálfa árið í kjölfar erfiðra veikinda í apríl sl. Einnig var nærminni farið að gefa sig. Hún var vistmaður á hjúkrunar- heimilinu Lundi á Hellu í framhaldi af áðurnefndum veikindum, var að bíða eftir að komast inn á heimili nær sínu fólki en því miður rættist sá draumur ekki. Starfsfólk á Lundi og vistmenn reyndust móður minni hins vegar ákaflega vel og eiga þau þakkir skilið fyrir alúð og hlýju. Einnig vil ég nota tækifærið og þakka starfsfólki á Sjúkrahúsinu á Selfossi fyrir góða umönnun bæði nú þessa síðustu daga í lífi mömmu en einnig þegar hún þurfti að leita til þeirra síðustu árin. Vertu sæl, mamma, og Guð veri með þér – hvíl þú í friði. Aðalheiður og fjölskylda. Elsku tengdamamma. Ég kynntist þér fyrst í kringum 1971 þegar ég og Árni, elsti sonur þinn, fórum að vera saman. Á þeim tíma varst þú í fullri vinnu, með stórt heimili og að auki á kafi í ýmsum félagsmálum. Ég dáðist að hvað þú komst miklu í verk og hvað þú þekktir marga. Ég var stolt að taka við formennsku í jafnréttis- nefnd Kópavogs 1998 því þú varst fyrsti formaður þeirrar nefndar árið 1975 og má kannski segja að ég hafi verið að reyna að feta í sporin þín. Þú varst mikill höfðingi bæði innan og utan heimilis og við fjölskyldan eigum margar minningar tengdar því. Lengi vel fórum við Árni, með sí- stækkandi fjölskyldu, í morgunmat til ykkar á Laufbrekkuna um helgar og þá var ekkert til sparað. Þú kunn- ir svo sannarlega að taka vel á móti gestum og ég held að þér hljóti að hafa þótt það skemmtilegt því þú hafðir alltaf svo gaman af því að vera innan um fólk. Þú komst þeim sið á innan fjölskyldunnar að gera laufa- brauð og sá siður er nú orðinn órjúf- anlegur hluti jólahátíðarinnar hjá okkur flestum. Þú varst ávallt dugleg að hafa samband við alla í fjölskyld- unni, leita frétta af mönnum og mál- efnum og reyna að viðhalda góðum fjölskyldutengslum. Aldrei heyrði ég þig hallmæla neinum og þú vildir gera gott úr öllu og umfram allt halda friðinn. Ég skal viðurkenna að stundum fannst mér nóg um enda á ég það sjálf til að rjúka upp eins og raketta. Það var ekki æsingnum fyrir að fara hjá þér en þú fórst lengi vel þangað sem þú ætlaðir þér með hægðinni einni sam- an. Sum börnin okkar Árna líkjast þér í útliti eða innræti og ég verð að segja að það er ekki leiðum að líkjast. Síðastliðið ár var þér erfitt heilsu- farslega en þú kvaddir okkur of fljótt. Í dag er því komið að kveðjustund. Ég bið fyrir þér, elsku tengda- mamma, og takk fyrir öll árin sem við höfum átt samleið. Guð blessi þig. Þín tengdadóttir, Sigríður Huld. Sólveig tengdamóðir mín er látin aðeins 71 árs gömul. Ég kynntist Sól- veigu fyrir 23 árum þegar ég og son- ur hennar Úlfur fórum að vera sam- an. Samverustundir okkar hafa verið margar og alltaf góðar. Ekki hefði verið hægt að hugsa sér betri tengdamóður. Sólveig var hvers manns hugljúfi, alltaf glöð í sinni. Hún hallmælti aldrei nokkrum manni og var dugleg að finna kosti hvers og eins. Það vildi svo skemmti- lega til að móðuramma mín og Sól- veig unnu saman í mjólkurbúð þegar Sólveig byrjaði sinn starfsferil ung að árum. Þær höfðu alltaf gaman að því að rifja upp ýmislegt sem var brallað í þá daga. Amma var t.d. oft fengin til að spá fyrir Sólveigu þó svo að hún kynni ekkert að spá. Við Sólveig gerðum margt saman. Hún elskaði það að vera úti á meðal fólks enda mikil félagsvera. Oft var farið í bíltúr og þá var Sólveig dugleg að bjóða okkur upp á hressingu ein- hvers staðar. Eða að litið var inn til vina eða ættingja. Sólveig var sú sem hélt fjölskyldunni saman. Hún var mjög dugleg að hringja til fólks, einnig var hún dugleg að heimsækja vini og vandamenn og bjóða heim til sín. Við fórum nokkrar ferðir í sum- arbústað með Sólveigu og eldri dótt- ur hennar Aðalheiði. Einhverju sinni erum við í bústað á Þingvöllum og eitthvað hálfkalt hjá okkur. Það var kamína í bústaðnum, en lítið um eldi- við og allt blautt úti. Sólveig hafði tekið með sér bunka af Norsk Uge- blad sem hún var áskrifandi að frá því að hún bjó í Noregi á námsárum Guðmundar. Við fengum hana til að nota eitthvað af blöðunum til upphit- unar. Henni þótti svolítið sárt að horfa á eftir blöðunum en hverju fórnar maður ekki fyrir hlýjuna. Ég gæti endalaust haldi áfram að rifja upp en ætla að láta staðar numið hér. Ég vil þakka þér, Sólveig mín, fyr- ir samfylgdina og yndislegar stundir sem ég og börnin mín hafa átt með þér. Margt hef ég lært af þér og alltaf fór ég betri af þínum fundi. Þín tengdadóttir, Sólrún. Við bjuggumst ekki við því að þurfa að setjast niður og skrifa minn- ingargrein um Sólveigu ömmu okkar næstum því strax. Þótt heilsu hennar hafi hrakað síðustu ár héldum við að við ættum fleiri ár með henni en svona kemur lífið stundum á óvart og því miður er ekkert sem getur und- irbúið mann undir svona mikinn missi. Þegar við fórum að hugsa um hvað við gætum skrifað til þess að minnast hennar kom upp í hugann fullt af góðum minningum. Frá því við mun- um eftir okkur hefur amma verið stór þáttur í lífi okkar. Við áttum allt- af athvarf á Laufbrekkunni, þar var vel tekið á móti manni og við gátum spjallað um allt milli himins og jarð- ar. Við frænkurnar eyddum ófáum helgum saman hjá ömmu þar sem við spjölluðum saman, horfðum á sjón- varp og fórum í heimsóknir eða á „sunnudagsrúnt“ eins og við köllum það. Í seinni tíð höfum við sjaldnar gist hjá henni en í staðinn höfum við verið duglegar að fara þrjár saman í bíltúr og jafnvel út að borða og spjalla. Þessar samverustundir hafa verið stór þáttur í okkar daglega lífi og það er í raun fyrst núna sem mað- ur áttar sig á því hvað þessar stundir voru dýrmætar því enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur eins og máltækið segir. Ef við eigum að lýsa helstu ein- kennum ömmu er það fyrsta sem okkur dettur í hug hversu mikil fé- lagsvera hún var. Það lýsti sér meðal annars í því hversu dugleg hún var að halda sambandi við fólk með því að heimsækja það, hringja eða opna heimili sitt fyrir því. Það að halda tengslum við vini og ættingja skipti hana miklu máli og naut hún sín best í góðum félagsskap. Annað sem má nefna um ömmu er hversu gestrisin hún var, t.d var í mörg ár hefð fyrir því í fjölskyldunni að kíkja í síðbúinn morgunmat um helgar til ömmu. Þar rakst maður á aðra fjölskyldumeðlimi og passað var upp á að enginn færi svangur heim. Við frænkurnar brosum út í annað þegar við rifjum upp þessar stundir og erum sammála um það að sumt bragðast aldrei jafnvel og hjá ömmu. Elsku amma, við viljum þakka all- ar frábæru stundirnar sem við höfum átt saman í gegnum árin þótt við hefðum óskað að þær hefðu getað orðið fleiri. Þú verður alltaf í hjarta okkar og við erum heppnar að hafa fengið að eiga þig að í gegnum upp- vaxtarárin. Hvíl í friði, elsku amma. Erla María og Erna Sólveig. Elsku amma, mér þykir mjög leitt að þú sért dáin. Ég mun sakna þín mjög mikið og allir aðrir því þú varst svo góð við alla. Þú vildir gera allt fyrir alla og varst alltaf svo glöð og mjög gjafmild. Öllum þótti mjög mik- ið vænt um þig. Ég er svo heppin að heita í höfuðið á þér. Ég vil kveðja þig með ljóðinu Draumalandinu eftir Jón Trausta: Ó, leyf mér þig að leiða til landsins fjalla heiða með sælusumrin löng. Þar angar blómabreiða við blíðan fuglasöng. Þar aðeins yndi fann ég, þar aðeins við mig kann ég, Þar batt mig tryggðaband, því þar er allt sem ann ég. Það er mitt draumaland. Þín sonardóttir, Sólveig Heiða Úlfsdóttir. Elsku amma Sólveig. Minningin um þig er mjög góð, ég minnist allra morgunverðanna sem ég og fjöl- skyldan mættum í á Laufbrekkuna, þá varst þú tilbúinn í að stjana við alla. Ekki má gleyma laufabrauðinu sem þú hélst, það var notaleg fjöl- skyldustund. Þú varst líka dugleg að hafa samband við alla í fjölskyldunni. Þú varst góð kona sem vildir allt fyrir alla gera. Nú er komið að kveðjustund og ég kveð þig með trega, minningin um þig mun alltaf lifa með mér og ég á eftir að sakna þín. Ég elska þig, þín Unnur. Elsku amma Sólveig. Oft gerir maður sér ekki grein fyrir því hversu vænt manni þykir um einhvern, fyrr en sú manneskja fellur frá. Ég á margar góðar minningar um þig og er mér efst í huga er við fjölskyldan komum reglulega til þín í morgun- mat. Þá var ekkert til sparað og sást þú alltaf til þess að allir færu vel saddir heim. Það var einmitt það sem einkenndi þig, þú vildir alltaf öllum vel. Ég man þau ófáu skiptin þegar við stelpurnar vorum yngri að þú læddir að okkur pening og sagðir okkur að kaupa sælgæti. Að sjálf- sögðu gladdi það litlar sálir. Mér þykir vænst um hversu dug- leg þú varst að halda sambandi við okkur og var greinilegt hversu mikils virði fjölskyldan var þér. Ég kveð þig með söknuði elsku amma mín og mun minning þín alltaf lifa í hjarta mér. Þín Sigríður Hulda. Elsku amma mín. Þú varst alltaf góð og skemmtileg og það var alltaf gaman að hitta þig. Þú áttir alltaf eitthvað gott í pokahorninu handa okkur barnabörnunum. Elska þig og sakna þín. Þinn sonarsonur, Árni Konráð. Ég kveð elskulega mágkonu mína og góða vinkonu í meira en hálfa öld. Mér eru efst í huga þakkir til hennar fyrir umhyggju og vinarþel sem hún sýndi mér og mínum. Við hittumst fyrst á Akureyri 1953 er hún kom í heimsókn norður til tengdafólks síns, en hún hafði þá nokkru áður, eða í nóvember sama ár, gifst eldri bróður mínum Guð- mundi Erni. Þau eignuðust frumburð sinn, Árna, 19. 1. 1955. Þá voru þau komin til Noregs en bróðir byrjaði í námi í skógfræði á árinu 1952. Þar bjuggu þau á mörgum stöðum eins og í Steinker í Þrændalögum og Ási og víðar. Er Árni sonur þeirra var tveggja ára gamall brann ofan af þeim húsnæði þeirra. Til að bjarga því ástandi sem við það skapaðist var Árni sendur heim með Braatensvél. Það var mitt hlutverk að ganga drengnum í föður stað. Síðar það sama ár komu foreldrarnir heim og tóku við drengnum. Ég held að drengurinn hafi ekki hlotið skaða af föðurskiptunum þennan stutta tíma. Eftir að hafa lokið prófi í Land- búnaðarháskólanum í Ási í Noregi, 5́9 fluttu Sólveig og Guðmundur heim. Hann hóf störf hjá Skógrækt ríkisins. Þau bjuggu þá í Njörva- sundi, en við að hefja störf hjá Gróðr- arstöðinni Alaska fluttu þau í Breið- holt sem Alaska hafði keypt undir starfsemi sína. Ég flutti síðan út til Englands og síðar Svíþjóðar og dvaldi þar í sjö ár. Eftir heimkomuna 7́1 hófust samskiptin að nýju. Við mættum í laufabrauðsskurð í Kópa- voginn til Sólveigar og var öll árin eftir það stunduð laufabrauðsgerð í byrjun desembermánaðar. Úlfur, ég og Aðalheiður vorum kjörin flatn- ingsmenn við þessa iðju. Við Úlfur vorum mjög samrýndir í hesta- mennsku, enda hlotið uppeldi á því sviði hjá Guðna frænda í Hellatúni. Sólveig var mikil framsóknarkona og í frítímum sínum vann hún mikið að málefnum framsóknarkvenna í Kópavogi. Hún var formaður félags þeirra um skeið. Hún vann einnig að jafnréttismálum í Kópavogi. Sólveig eignaðist fimm börn, ellefu barnabörn og þrjú barnabarnabörn. Um miðjan desember síðasta ári SÓLVEIG ÁGÚSTA RUNÓLFSDÓTTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.