Morgunblaðið - 16.12.2005, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 16.12.2005, Blaðsíða 44
44 FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Herborg Jóns-dóttir fæddist á Herríðarhóli í Ása- hreppi í Rangár- vallasýslu 4. maí 1936. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 7. des- ember síðastliðinn. Foreldrar hennar ar voru Jón Jónsson frá Hárlaugsstöðum, f. 12. janúar 1897, d. 3. október 1970 og Rósa Runólfsdóttir, f. 8. febrúar 1908, d. 12. júlí 1987. Systkini Herborgar eru: Guðrún, f. 22. maí 1928, Knút- ur, f. 20. júlí 1929, Sigurður, f. 23. júlí 1931, Sigrún, f. 18. janúar 1933, Jón Vídalín, f. 27. júní 1934, Helgi, f. 31. ágúst 1937, d. 12. jan- úar 1997, Inga, f. 3. ágúst 1939, Lóa, f. 29. maí 1941, Kristín, f. 26. júní 1943, Ásta, f. 24. mars 1945, María, f. 20. október 1947, d. 5. júlí 1949, Maja, f. 21. júní 1950, Arnar, f. 12. desember 1951 og Kristín Herríður, f. 21. október 1953, d. 11. desember 1957. Herborg giftist Braga Jónssyni 7. október 1961. Foreldrar hans voru Jón Tómasson, f. 3. desember 1896, d. 28. september 1953, og Steinunn Árnadóttir, f. 5. júlí 1893, d. 6. september 1971. Börn Her- borgar og Braga eru: 1) Sigríður, f. 4. júlí 1960, gift Kjartani Lillien- dahl, f. 8. október 1961. Dætur þeirra eru Kristín Björk, f. 2. júlí 1992 og Helga Björt, f. 29. maí 1994. 2) Jón Trauti, f. 21. ágúst 1961, kvæntur Krist- ínu Laufeyju Reynis- dóttur, f. 10. júlí 1963. Synir þeirra eru Bjarki Þór, f. 2. júlí 2000 og Hannes Örn, f. 20. septem- ber 2001. 3) Tómas, f. 14. júní 1964, sam- býliskona Sigrún Edda Sigurðardótt- ir, f. 27. júní 1972, dóttir hennar er Sandra Birna Ragnarsdóttir, f. 5. janúar 1992. Dóttir þeirra er Hera Brá, f. 28. desember 2004. 4) Her- mann Kristinn, f. 21. nóvember 1965, kvæntur Jóhönnu Þorsteins- dóttur, f. 6. febrúar 1967. Börn þeirra eru Ásdís Birna, f. 24. októ- ber 1992 og Kristinn Freyr, f. 20 júní 1995. Herborg og Bragi stofnuðu heimili sitt í Vestmannaeyjum og bjuggu þar sín búskaparár. Í byrj- un sá hún um heimilið en fljótlega þurfti hún að fara út að vinna. Eft- ir að þau skildu 1990 bjó hún í Reykjavík og síðar í Kópavogi. Vann hún við aðhlynningu aldr- aðra og seinustu ár sín vann hún á sambýli í Garðabæ. Útför Herborgar fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Nú er komið að kveðjustund og margs er að minnast. Frá æsku- heimili sínu á Herríðarhóli, eða Herru eins og það er almennt nefnt, átti móðir okkar góðar stundir. Henni var efst í huga þegar hún tal- aði um æskuár sín að þau hefðu ein- kennst af útiveru. Mörgum stund- um fylgdi hún pabba sínum til hans verka, m.a. fylgdist hún með því þegar hann vann í smiðjunni við að smíða úr járni það sem hann van- hagaði um hverju sinni, hann var mikill hagleiksmaður. Við systkinin urðum líka þeirrar reynslu aðnjót- andi að dvelja á Herru nokkur sum- ur. Það var ánægjulegt að taka þátt í því starfi sem þar fór fram. Við eigum góðar minningar frá því að gefa taka þátt í heyskap, sækja kýrnar, gefa hænunum, vitja um netin á vatninu og taka þátt í því lífi sem var í sveitinni. Á Herru voru afi og amma ætíð til staðar en systkini mömmu voru miklir þátt- takendur í sveitastörfunum. Við nutum sérstaklega hlýju og um- hyggju frá Lóu frænku, þegar við vorum ung og án mömmu í sveit- inni. Bernskuminningar frá uppvexti okkar í Vestmannaeyjum eru helst- ar frelsið sem einkenndi leik okkar hvort sem var við leik inni eða at- hafnir úti. Á heimilinu var stofan leikvangur okkar þar máttum við snúa við húsgögnunum og byggja hús eða hvað eina. Mamma sýndi þessum leik okkar alltaf skilning og umburðarlyndi. Úti við barst leikur og landkönnun oft niður á bryggju eða inn í dal. Mamma mátti því oft leita að okkur fyrir kvöldmatinn. Saman byggðu pabbi og mamma heimili að Hrauntúni 19 sem þau fluttu inn í árið 1970. Heimili okkar var fallegt, skemmtilegt útsýni og hraunið umhverfis húsið fékk að halda sér. Á neðri hæð hússins var vinnuaðstaða sem pabbi notaði til smíða. Mamma var handlagin og unnu þau stundum saman að verk- efnum bæði fyrir heimilið og aðra. Unglingsárin þar voru litrík og skemmtileg. Þar var alltaf nóg að gera við vinnu og leik. Það kom ber- lega í ljós kraftur hennar og sköp- unargleði. Hún var alltaf að brasa eitthvað og koma í framkvæmd hugmyndum sem hún fékk. Hafði hún okkur oft með í því. Drifkraft- ur, elja og hvatning hennar kom okkur til góða. Var hún alltaf til taks og studdi okkur eindregið til náms og annarra verka. Hún var stolt af því sem við börnin hennar gerðum í námi. Það var alveg sama hvað hún tók sér fyrir hendur þá leysti hún það vel. Jólin voru alltaf sérstakur tími í huga hennar og hjá okkur systkinunum. Hafði hún sér- staklega gaman af því að skreyta og hafa það hlýlegt um jólin. Hún var sjálfstæð og áræðin, hún vílaði ekki fyrir sér að vera öðruvísi ef það hentaði henni. Hún hjólaði um alla Eyju löngu áður en það varð al- gengt og fékk viðurnefnið „konan á hjólinu“. Eftir skilnað flutti hún til Reykjavíkur þar sem við systkinin vorum búsett. Þegar barnabörnin fóru að koma naut hún þess að vera með þeim. Hún sýndi barnabörnum sínum hlýju og sérstaka alúð. Hún hafði gaman af að kenna þeim og liðsinna og gerði hún hlutina með þeim, en þau fengu að gera hlutina á sínum hraða og á eigin forsend- um. Gönguferðir út í náttúruna og að virða og njóta hennar kenndi hún þeim. Eitt af þeim hugðarefn- um sem hún sinnti mikið í seinni tíð var að rækta plöntur. Hún hafði barnabörn sín með í þessari garð- rækt og við systkinin nutum góðs af þessari ræktun hennar þegar kom að því að gróðursetja í lóðirnar hjá okkur. Mamma naut þess að vera úti í náttúrunni og leggja sitt af mörk- unum til þess að fegra hana og bæta. Nokkur sumur tók hún þátt í vinnu sjálfboðaliðasamtaka og kom að gerð göngustíga víðs vegar um landið. Hún hafði gaman af að eiga samskipti við aðra og vílaði ekki fyrir sér að fara með nýjum hópum í ferðir þar sem hún kynntist skemmtilegu fólki. Hún hafði oft á orði að í einni ferðinni hefði hún sofið úti undir berum himni og notið fegurðar og kyrrðar. Mamma var mikill vinur vina sinna. Hún sá allt- af það jákvæða í öllum og þó svo að við kynntumst ekki nema broti af vinum hennar höfðum við góða hug- mynd um þá út frá því sem hún sagði gott um þá. Mamma naut þess að hitta skólasystur sínar frá Hús- mæðraskólanum á Laugavatni, þær hittust árlega fyrstu helgina í maí. Seinast þegar þær hittust fögnuðu þær 50 ára útskriftarafmæli. Okkur er minnisstætt seinasta af- mælið hennar þá var hún 69 ára og okkur lánaðist að koma henni á óvart. Við sungum fyrir hana af- mælissönginn og á eldhúsborðinu loguðu 69 kerti. Þetta gladdi hana mikið. Eitt barnabarnanna spurði hana hve gömul hún væri, hún svar- aði um hæl að hún væri 59 ára. Það svar sýnir glöggt hvernig henni leið, hún var lífsglöð og létt í lund. Þessi uppákoma var henni hugstæð lengi á eftir. Í veikindum sínum hélt mamma jákvæðni sinni og bjartsýni en hún átti ekki afturkvæmt eftir að hún fór í aðgerð á Landspítalanum við Hringbraut í október. Minning um ástkæra móður mun lifa í hjarta okkar. Sigríður, Jón Trausti, Tóm- as og Hermann Kristinn. Í dag kveðjum við elskulega tengdamóður mína, hana Herborgu. Ég kynntist henni fyrir rúmum átta árum þegar ég hóf sambúð með Jóni Trausta syni hennar. Herborg tók mér opnum örmum og minnist ég fyrstu heimsókna minna til hennar þar sem hún bauð upp á sitt eigið te úr birkilaufi sem hún hafði tínt og þurrkað. HERBORG JÓNSDÓTTIR Elsku amma. Takk fyrir allar góðu stund- irnar okkar saman, nú ert þú búin að finna friðinn og líður vel. Láttu guðs hönd þig leiða hér, lífsreglu halt þá bestu: blessað hans orð, sem boðast þér, í brjósti og hjarta festu. Hvíl í friði elsku amma. Þinn Kristinn Freyr. Elsku amma. Það var alltaf svo gaman þegar þú komst í heimsókn til okkar. Þegar ég og þú fórum út í garð að sinna plöntunum. Þú varst alltaf svo góð við mig og gafst mér marg- ar fallegar plöntur. Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesús mæti. (Höf. ók.) Þín, Helga Björt. Fegursta stund ævinnar lifir eins lengi og við sjálf, þó hún hafi ekki verið nema augnablik. (Hulda Almar Brá.) Elsku amma. Takk fyrir allar þær stundir sem við áttum saman og takk fyrir það minn- ingasafn sem við höfum skapað og bætt reglulega í. Það eru svo margar fallegar minningar sem koma uppí hugann þegar ég hugsa um þig. Ég man eftir öll- um blómunum þínum, gleðinni þinni, brosi og hlátri. Þótt ég hafi þig ekki lengur hjá mér munu Guð og hans englar vera með þér. Guð gefi þér eilíft líf elsku amma. Kristín Björk. Elsku amma Herborg, þú varst lasin á sjúkrahúsi. Núna ertu dáin og það er leiðinlegt. Þú ert engill. Amma bakaði alltaf pönnukökur handa strák- unum sínum. Það var gaman að fara í göngutúr í skóginum hjá ömmu. Okkur þótti mjög vænt um ömmu Herborgu. Bjarki Þór og Hannes Örn. Elsku Herborg, amma. Takk fyrir allar stundirnar okkar saman, frá því að við kynntumst. Þú sagðir alltaf að barnabörnin þín væru átta, mér þykkir ávallt vænt um að hafa orðið eitt þeirra. Ég á góðar minningar frá ferð okkar sam- an á Akur að skoða allt lífræna grænmetið. Við skemmtum okkur konunglega saman þá. Þín Sandra Birna. HINSTA KVEÐJA ✝ Jón Guðjónssonfæddist í Reykjavík 20. jan- úar 1924. Hann lést á Hrafnistu í Reykjavík 8. des- ember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Guðjón Jóns- son frá Dagverðar- nesi á Rangárvöll- um og Magnea Halldórsdóttir frá Ólafsfirði. Jón var elstur af níu systk- inum, hin eru: Grétar, Þórmar, Þórir Bogi, Ein- ar, Hilmar, Hlín, Elísa og Bragi Guðjónsbörn. Jón kvæntist Helgu Þorleifs- dóttur úr Svarfaðardal 1948. Þau eignuðust þrjár dætur, þær eru: Selma, f. 1947, búsett í Sví- firði þar sem hann lauk gagn- fræðaprófi. Fjölskyldan bjó nokkur ár í Málmey í Skagafirði og gegndi Jón þar hlutverki kennara fyrir yngri systkinin. Jón fór snemma að stunda sjó- sókn og lauk prófi frá Stýri- mannaskólanum 1947. Jón var skipstjóri á nokkrum bátum og togurum, stundaði sjósókn frá Vestmannaeyjum og fylgdi fjöl- skyldan þá með. Þar var hann m.a. skipstjóri á Sigurði Pétri og Eyjabergi. 1962 kaupir hann bátinn Andvara VE 101, stækkar við sig 1969 er hann kaupir Arnaberg RE 101 og er skip- stjóri samhliða útgerðinni á báð- um bátunum. Jón hættir stærri útgerð um 1975 en kaupir lítinn trillubát sem hann kallar einnig Arnaberg 101 og gerir hann út frá Hrísey á sumrin. Áhugamál Jóns hin síðari ár var skógrækt sem hann stundaði af mikilli al- úð í Þrastarskógi. Útför Jóns fer fram frá Sel- tjarnarneskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. þjóð og á tvö börn, Stefan og Christel Sahlin, Hildur Gréta, f. 1948, gift Sigmundi Karli Rík- arðssyni og eiga þau tvo syni, Ríkarð og Jón Teit, og Magnea Björg, f. 1953, á son, Loka Alexander Hopkins. Helga á tvö börn fyrir, þau eru: El- ísabet Óskarsdóttir, á fjögur börn, Ósk- ar, Sigrúnu Pálínu, Helgu Björgu og Indriða, og Jón Leifur Óskarsson, kvæntur Láru Ingólfsdóttur og eiga þau þrjá syni, Óskar, Birki og Orra. Afkomendur Jóns og Helgu eru orðnir 36. Jón ólst upp að mestu á Siglu- Kveðja frá pabbastelpum. „Ó, pabbi minn kæri, komdu nú heim,“ var eitt af okkar uppáhalds- lögum í gamla daga þegar þú varst á sjó og við Selma í skátunum. Glamr- að var á gítar þrjú gripin sem við kunnum og sungið var af mikilli til- finningu. Og þú komst alltaf heim og það voru alltaf gleðifundir. Einhvern veginn var hátíð í bæ þegar þú komst af sjónum, ekki af því að heimilisástandið væri slæmt heldur máttum við gera ýmislegt þegar þú varst heima sem mamma bannaði og svo glottum við saman þegar það tókst að plata múttu. Það voru líka alger jól þegar þú komst heim úr siglingum, hlaðinn gjöfum, stundum leikföng, falleg föt og einu sinni komstu með flottasta píanó sem við höfðum séð sem prýddi alla tíð ykkar fallega heimili. Við viljum líka þakka þér, pabbi minn, fyrir að vera þessi góða fyrirmynd alla tíð. Þú varst ótrúlega harður í horn að taka í allri vinnu og þetta gafstu okkur öllum í vöggugjöf stelpunum þínum. Við segjum líka alltaf þegar við göngum fram af fólki að þetta sé allt pabba að kenna, þessi dugnaðarforkur, skemmtilegi og góði pabbi sem þú varst okkur alla tíð. Þær munu lengi lifa prakkarasögurnar af þér og þín- um bræðrum á Siglufirði og víðar sem þú sagðir bæði okkur og afa- börnunum þínum. Það er líka gaman að hugsa til baka um allar þær skemmtilegu stundir á heimilinu þegar frændfólk og vinir komu í heimsókn. Allir voru velkomnir og hlýja ykkar mömmu og traust var greinilega það sem fólki fannst eftirsóknarvert. Það var líka mikið hlegið hvort sem var í Hrísey, í Þrastarskógi eða á heimilum okkar í Reykjavík,Vestmannaeyjum eða á Seltjarnarnesi. Þú kenndir okkur að spila og það var oft skemmtilegt við spilaborðið á árum áður og sér í lagi þegar maður náði smá að svindla sem þú og afi kennduð okkur, en það var nú partur af leikreglunum, svo var gert grín að öllu saman. Þú varst alltaf tilbúinn með hvatn- ingu og að gefa okkur tækifæri. Þú varst okkar fyrirmynd, pabbi minn, og ekki síst á sjónum þegar við fengum meira að segja tækifæri til að fara með þér á sjó. Í dag er Arn- arbergið þitt í fullum gangi í Hrísey og í dag kunnum við að verka og vinna harðfisk eins og þú kenndir okkur og að meta auðlindina hafið að verðleikum, sem hefur skipað svo stóran sess í lífi okkar allra. Nú reynum við að hugsa eins vel um mömmu eins og þú gerðir á Hrafnistu, þar á starfsfólk góðar minningar um herramanninn sem lífgaði svo sannarlega upp á and- rúmsloftið. Þakka þér fyrir, pabbi, að kenna okkur að bera virðingu fyrir öðrum, að vera sjálfum okkur samkvæm og að vera trú og trygg okkar vinum og vandamönnum. Hvíl þú í friði elsku pabbi, Selma, Hildur og Magnea Björg. Kæri stjúpi. Nú er sú stund runn- in upp að við getum ekki lengur setið saman og spjallað. Dvöl þinni á með- al okkar lauk í svefni að morgni 8. des. síðastliðinn. Þegar fundum okkar bar fyrst saman var ég tíu ára snáði að koma úr rúmlega árs dvöl hjá Guðrúnu móðursystur minni í Hrísey. Eftir- væntingin var mikil að hitta þig í fyrsta sinn og ekki síst vegna þess að ég hafði eignast litla systur. Strax frá upphafi tókst með okkur vinátta sem entist æ síðan. Á þessum fyrstu árum varst þú mikið til sjós á tog- urum og því sjaldan heima og var það miður. Seinna fórst þú að róa á bátum og varst þá oftar og lengur heima. Um 1968 eignaðist fjölskyld- an sumarbústað í landi Norðurkots í Grímsnesi og upp frá því voruð þið mamma þar eins oft og færi gafst. Þarna fékkst þú útrás fyrir nýtt áhugamál, trjáræktina sem seinna tók stóran hluta af frítíma þínum í bústaðnum. Stundum vorum við Lára ásamt syni okkar í bústaðnum með ykkur um helgar. Eina slíka helgi sóttum við þig til Þorlákshafn- ar á grænu Cortínunni og fórum í bústaðinn. Á leiðinni fékkst þú þér kaffi, fullt lok af kaffibrúsa, og viti menn, ekki fór dropi niður þó veg- urinn væri bæði holóttur og krók- JÓN GUÐJÓNSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.