Morgunblaðið - 16.12.2005, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 16.12.2005, Blaðsíða 72
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Opið 8-24 alla daga í Lágmúla og Smáratorgi gómsætir jólaostar! Nýtt ÞAU ERU mörg störfin sem falla til við höfn- ina í Reykjavík. Hvernig sem viðrar, hvenær sem er ársins, þarf að dytta að bátum og skip- um. Hér er einn af fjölmörgum starfsmönnum Granda að logsjóða í Ásbjörgu RE 50 sem er nú í slipp. Yfir öllu saman trónaði bjart tungl sem sást vel í Reykjavík í gær og sjálfsagt mun víðar. Senn líður að stysta degi ársins, 21. des- ember, þegar vetrarsólstöður verða. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Logsýður undir logandi tungli TIL ÞESS getur komið að sjávarútvegsfyr- irtæki greiði meira í tekjuskatt en nemur hagnaði af rekstri þeirra. Hátt gengi krón- unnar veldur því að skuldir sjávarútvegsins í erlendri mynt og afborganir af þeim lækka í ís- lenzkum krónum talið. Þar verður því til óinn- leystur gengishagnaður, en af honum er greiddur tekjuskattur. Á hinn bóginn veldur hið háa gengi því að færri krónur koma inn fyrir seldar afurðir og rekstrartekjur lækka. Þegar gengi krónunnar er hins vegar lágt, snýst dæmið við. Tekjurnar aukast verulega, en erlendu skuldirnar og afborganirnar hækka. Við það verður gengistap vegna lán- anna svo mikið, að þrátt fyrir mun meiri getu fyrirtækjanna til að greiða tekjuskatt greiða þau engan tekjuskatt og eru jafnvel gerð upp með tapi, þótt rekstrartekjur séu miklar. Þarf að breyta reglunum Eiríkur Tómasson, framkvæmdastjóri Þor- bjarnar Fiskaness í Grindavík, segir að þessu þurfi að breyta. Líta verði á þessar sveiflur í gengishagnaði sem óinnleystan hagnað eða tap eftir því hvað við á og því eigi ekki að reikna þetta inn í tekjur. Það komi engir pen- ingar inn í fyrirtækin þó skuldir og afborganir lækki tímabundið og á sama hátt fari pening- arnir ekki út sé gengi krónunnar lágt. „Það er mikið óréttlæti að gera okkur að greiða tekjuskatt af óinnleystum hagnaði með þessum hætti. Sérstaklega í ljósi þess að þeir, sem eiga hlutabréf, sem hafa opinberlega skráð gengi, greiða ekki skatt af óinnleystum hagnaði vegna hækkunar gengis þeirra. Þessi meðferð gengismunar veldur miklum sveiflum í afkomu fyrirtækjanna og bitnar mest á fyr- irtækjum sem standa höllum fæti og fyrir- tækjum sem eru í landshlutum sem eiga erfitt uppdráttar,“ segir Eiríkur. Meiri tekju- skattur en rekstr- artekjur? Eftir Hjört Gíslason hjgi@mbl.is „LANDBÚNAÐURINN á Íslandi verður að búa sig undir meiri sam- keppni og breytta tíma. Það er ekkert vafamál og þessir samn- ingar hér eru hluti af því. Það er neytendum til hagsbóta en það verður að sjálfsögðu að gefa þess- um aðilum svigrúm til þess að hagræða,“ segir Geir H. Haarde utanríkisráðherra sem situr þessa dagana ráðherrafund Heimsvið- skiptastofnunarinnar (WTO) í þátttakandi í því en það er spurn- ing um að gera það þannig að það eigi sér stað eðlileg aðlögun.“ Geir segist sjálfur vera „mikill fríverslunarmaður“ og telja það gríðarlegt hagsmunamál fyrir alla heimsbyggðina að viðræðum WTO ljúki með niðurstöðu sem byggist á meira frelsi í viðskiptum. „Náist skynsamleg niðurstaða í þessum viðræðum, þá getur hún lyft hundruðum milljóna manna úr sárri fátækt til bjargálna.“ Hann segir Íslendinga reyna að leggja sitt af mörkum á fundinum þó Ísland sé fjarri því að vera í einhverju aðalhlutverki þar. Nokkrir stórir aðilar, Bandarík- in, Evrópusambandið og Japan og nokkur stór þróunarríki, s.s. Bras- ilía og Indland, ráði úrslitum um hvort niðurstaða náist. Geir bendir á að viðræðurnar á vettvangi WTO séu hluti af ferli sem er í gangi. „Það eru að verða miklar breytingar í alheimsvið- skiptum t.d. með landbúnaðarvör- ur. Ísland verður óhjákvæmilega Hong Kong. „Það hefur orðið mik- il framleiðniaukning í íslenskum landbúnaði á undanförnum árum og vonandi heldur það áfram, svo atvinnugreinin verði betur í stakk búin til þess að takast á við sam- keppni.“ Viðræður ganga mjög hægt Geir segir viðræðurnar á fundi WTO ganga mjög hægt og segja megi að lítill árangur hafi náðst til þessa, „þó menn séu ekki alveg úrkula vonar um að eitthvað ger- ist,“ segir hann. Utanríkisráðherra situr ráðherrafund Heimsviðskiptastofnunarinnar Landbúnaðurinn búi sig undir meiri samkeppni Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is  Lítill árangur | Miðopna VALGERÐUR Sverrisdóttir við- skiptaráðherra segir fréttir af háu matvöruverði á Íslandi í skýrslu samkeppniseftirlita á Norðurlönd- um ekki vera góð tíðindi. Ljóst sé að margir þættir valdi háu verði, m.a. mikil fákeppni á matvörumarkaðn- um, og hún treysti eftirlitsaðilum eins og Samkeppniseftirlitinu til að tryggja að markaðsráðandi fyrir- tæki misnoti ekki aðstöðu sína. Valgerður segir það styrkja skýrsluna að eftirlitsstofnanir á Norðurlöndum hafi unnið sameigin- lega að henni. Unnið verði áfram í þeim málum og Samkeppniseftirlitið hafi ákveðnu hlutverki að gegna. Um það hvort ástæða sé til að draga úr innflutningshöftum á land- búnaðarafurðum segir Valgerður að þau mál heyri ekki undir sitt ráðu- neyti. Hún telur ástæðu til að skoða álagningu vörugjalda á matvælum. Þau séu „úrelt fyrirbrigði“ og skoða megi hvort hægt sé að draga úr þeirri gjaldtöku. Valgerður segir stjórnvöld fylgja þeirri stefnu að vernda íslenskan landbúnað. Ísland sé ekki eina landið sem setji tolla á innfluttar vörur og WTO leggi lín- urnar í þeim efnum. Hins vegar bendir hún á að Íslendingar gangi hvað lengst þjóða í álagningu tolla. Viðskiptaráðherra segir hátt matvöruverð vondar fréttir Telur vörugjöld úrelt BJÖRN Bjarnason dómsmálaráðherra var ekki vanhæfur til að setja sérstakan saksókn- ara í Baugsmálið. Er þetta niðurstaða Héraðs- dóms Reykjavíkur sem í gær synjaði öllum kröfum sakborninganna um niðurfellingu málsins. Sakborningar ætla að kæra úrskurð héraðs- dóms til Hæstaréttar. Um er að ræða þá átta ákæruliði málsins, sem Hæstiréttur vísaði ekki frá með dómi sínum. Krafa sakborninganna um að málið yrði látið niður falla var í fyrsta lagi byggð á því að þrívegis hefði verið um að ræða útivist í þinghaldi hjá Sigurði Tómasi Magnússyni, settum ríkissaksóknara. Í öðru lagi vísuðu verjendur til vanhæfis dómsmálaráðherra til að setja sérstakan sak- sóknara í málið, vegna ýmissa ummæla sem hann hefur látið falla opinberlega um sakborn- ingana og Baug. Í niðurstöðu héraðsdóms seg- ir m.a. að þótt ummæli ráðherrans séu mjög gagnrýnin verði þó ekki séð að gagnrýni hans tengist beint einstökum sakarefnum sem liggi fyrir dómnum. Þá fari dómsmálaráðherra ekki með stjórnsýsluvald á neinu því sviði, sem um- mæli hans varða. Hinn setti ríkissaksóknari sé sjálfstæður að lögum og lúti í engu boðvaldi ráðherra. Ekki sé unnt að fallast á það að ráð- herra hafi verið vanhæfur. Kröfu um niðurfellingu Baugsmálsins var hafnað í héraðsdómi Ráðherra ekki vanhæfur  Kröfum | 4 og Ítarefni á mbl.is ÞÓRHILDUR Helga Hrafnsdóttir og Snæ- dís Björnsdóttir fengu galdrabók gefins í skólanum sínum. Þær gátu ekki beðið og fóru strax að lesa hana. Neðst á myndinni er Andrea Sif Hafliðadóttir. Morgunblaðið/Sverrir Með galdrabók ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.