Morgunblaðið - 16.12.2005, Síða 8
8 FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Dælulykill Atlants-olíu er nýjung hérá landi en sjö
milljónir slíkra lykla eru í
notkun í Bandaríkjunum,
þar sem þeir komu fyrst
fram 1998, að sögn Huga
Hreiðarssonar, markaðs-
stjóra Atlantsolíu ehf.
Hann sagði að undirbún-
ingur þess að taka dælu-
lykla í notkun hafi staðið í
um eitt ár og öryggis-
þættinum verið gefinn
mikill gaumur. Nóg er að
beina dælulykli að elds-
neytisdælu Atlantsolíu til
að fá afgreiðslu og engin þörf að
slá inn lykilnúmer (PIN). Lykill-
inn er tengdur kredit- eða debet-
korti viðskiptavinarins og er tekið
jafnóðum út af kortareikningnum
og viðskiptin fara fram. Hægt er
að tengja fleiri en einn lykil við
sama reikning. Veittur er einnar
krónu afsláttur af hverjum elds-
neytislítra sem keyptur er með
dælulykli. Hugi sagði að umsækj-
andi um dælulykil þyrfti að velja
hámarksupphæð sem hægt væri
að kaupa fyrir á hverjum sólar-
hring með lyklinum, það er 5.000
kr., 10.000 kr. eða 15.000 kr. Mælt
væri með því að hafa dælulykilinn
á sömu kippu og bíllykillinn er.
„Þú veist fljótlega af því ef lykl-
arnir týnast eða þeim er stolið. Þá
er hægt að hafa samband við Atl-
antsolíu á skrifstofutíma, eða
neyðarnúmer greiðslukortafyrir-
tækisins, og láta loka fyrir úttekt
með lyklinum. Ef reynt er að nota
lokaðan lykil verður þess vart í
afgreiðslukerfinu og er hægt að
sjá hver reynir það og á hvaða bíl
hann er, því á sjálfsafgreiðslu-
stöðvum okkar eru eftirlits-
myndavélar. Þannig getur þetta
hjálpað til við að endurheimta
týnda eða stolna lykla,“ sagði
Hugi. Dælulyklar þykja góður
kostur í Bandaríkjunum, því þar
er mörgum illa við að taka upp
veskið á sjálfsafgreiðslustöðvum.
Þá gengur afgreiðsla með dælu-
lykli hraðar fyrir sig en ella, að
sögn Huga.
Nýjar dyr að opnast
Ingi Þór Hermannsson, deild-
arstjóri markaðsdeildar hjá Olíu-
félaginu ehf., sem m.a. rekur
ESSO bensínstöðvarnar, sagði að
fyrirtækið hafi lengi velt fyrir sér
nýjum greiðsluleiðum fyrir við-
skiptavini sína. Greiðslukortafyr-
irtækin hafi hins vegar sett
strangar kröfur um lykilnúmer
(PIN) undanfarin ár. Nú virðist
það hafa breyst, eins og dælulykl-
arnir séu dæmi um.
„Við höfum verið með ESSO
viðskiptakort um tíu ára skeið og
er engra PIN-númera krafist af
þeim. Þau eru álíka þægileg og
dælulykill varðandi afgreiðslu-
hraða. Hægt er að velja hvort
greitt er við dælu eða inni.“ Við-
skiptakortin tengjast reikningi
hjá Olíufélaginu og skilgreinir
viðskiptavinurinn hvaða hámark
hann vill hafa á kortinu. Leitað er
heimildar með rafrænum hætti
fyrir öllum viðskiptum með þess-
um kortum. Þá er einnig samið
um hvernig úttekt er gerð upp.
„Þegar slakað hefur verið á
kröfum sem hingað til hafa verið
gerðar varðandi greiðslumálin
opnast margar dyr,“ sagði Ingi
Þór. „Við m.a. höfum horft á
lausn sem samstarfsfyrirtæki
okkar, ExxonMobil, hefur notað
um árabil í Bandaríkjunum. Hún
byggir á örgjörvatækni og skynj-
urum sem lesa upplýsingar með
útvarpsbylgjum um viðskipta-
reikning viðkomandi viðskipta-
vinar.“
Viðskipti á ábyrgð seljanda
Ragnar Önundarson, fram-
kvæmdastjóri Kreditkorts hf.,
sagði að notkun lykilnúmers
(PIN) í kortaviðskiptum sé talin
jafngilda undirskrift. Væru við-
skipti gerð án undirskriftar væru
þau alfarið á ábyrgð seljandans
samkvæmt gildandi skilmálum.
Það ætti t.d. við um tækni á borð
við dælulykil. Ragnar sagði að
MasterCard, samstarfsaðili
Kreditkorts hf., bjóði upp á svip-
aða lausn og dælulykilinn og leyfi
slíkar lausnir í viðskiptum. Sólar-
hringsmörk á úttektum og það að
hægt er að tilkynna um glataða
eða stolna lykla geri að verkum
að ekki sé talin mikil hætta á mis-
notkun þessa greiðslumáta.
Ragnar sagði að vegna mikilla
kortasvika víða um heim leituðust
alþjóðlegu kortafyrirtækin við að
auka öryggi kortaviðskipta með
nýrri tækni á borð við örgjörva-
kort. Á sama tíma væru íslenskir
seljendur að slaka á öryggiskröf-
um vegna mikils trausts sem ríkti
hér í viðskiptum. Nefndi Ragnar
að það færðist í vöxt að fólk þyrfti
ekki að kvitta undir kortaúttektir
til að flýta afgreiðslu.
Stefnt er að því að taka í notk-
un greiðslukort með örgjörva hér
á landi innan skamms, að sögn
Ragnars. Þá verða kortalesarar
að vera með lyklaborði og þegar
aðlögunartíma lýkur þurfa við-
skiptavinir að kvitta fyrir við-
skiptin með því að slá inn lyk-
ilnúmer (PIN). Ragnar sagði að
ef söluaðilar yrðu ekki búnir að
útvega sér slíka kortalesara inn-
an tilskilins tíma yrðu viðskiptin á
þeirra ábyrgð. Ragnar sagði að
skipt yrði um öll kredit- og debet-
kort viðskiptavina Kreditkorts hf.
á næstu tólf mánuðum.
Fréttaskýring | Nýjungar í greiðslumiðlun
Viðskipti án
undirskriftar
Viðskipti án undirskriftar eru á ábyrgð
seljandans samkvæmt skilmálum
Dælulykill Atlantsolíu borinn að bensíndælu.
Dælulykill er dæmi um
nýjan greiðslumáta
Nýjungar í greiðslumiðlun
leiða hugann að því hvort hætta
sé á að óprúttnir aðilar finni nýj-
ar smugur til að eyða annarra fé.
Nú geta bíleigendur fengið dælu-
lykil sem gerir óþarft að slá inn
lykilnúmer eða taka upp veskið
þegar keypt er eldsneyti.
Tækninni fleygir ört fram og má
vænta enn fleiri nýjunga á þessu
sviði á næstunni. Spurningin er
hvernig reynt er að tryggja ör-
yggi viðskiptanna.
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
Kristín Helga Gunnarsdóttir
edda.is
Bókamerki
fylgir!
Nýjar sögur um Fíusól sem heillaði
lesendur á öllum aldri í fyrra!
„Önnur bókin um gleðisprengjuna Fíusól
er komin út. Jibbí! ... andrúmsloftið í Fíusól
er notalegt, öruggt og ánægjulegt. Hvað
betra er hægt að bjóða börnum?“
Inga María Leifsdóttir, Mbl.
2. sæti
Barnabækur
Penninn Eymundsson
og Bókabú›ir MM
7. – 13. des.
2. sæti
Barnabækur
Metsölulisti Mbl.
6. – 12. des.
2. prentun
komin í
verslanir
1. prentun
uppseld
PÁLL Samúelsson, eigandi
Toyota-umboðsins á Íslandi, færði
í gær Mæðrastyrksnefnd Reykja-
víkur 250 veglegar matarkörfur
að gjöf frá fyrirtæki sínu, auk
250 gjafa fyrir stráka og stelpur
á aldrinum fimm til fjórtán ára.
Áætlað verðmæti gjafanna er
um 3 milljónir og segir Páll það
mikla ánægju að geta hjálpað til
fyrir jólin. „Við gerum þetta með
mikilli ánægju. Það hefur alla tíð
verið stefna fyrirtækisins að skila
svona aftur til samfélagsins þeg-
ar afgangur er og vel gengur,“
segir Páll.
„Við höfum ekki styrkt Mæðra-
styrksnefnd beinlínis með þessum
hætti. Yfirleitt hafa þetta verið
peningar. Núna standa Hjálp-
arstofnun kirkjunnar og Mæðra-
styrksnefnd sameiginlega að
þessu og þess vegna kom þetta
til. Við gáfum einn pakka miðað
við hvern seldan bíl á ákveðnu
tímabili.“
Í dag afhendir Páll mæðra-
styrksnefnd Kópavogs svipaða
gjöf, en hún er í réttu hlutfalli
við mannfjölda í Kópavogi.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Páll Samúelsson afhendir starfsfólki Mæðrastyrksnefndar matarkörfu og jólapakka. Með honum á myndinni eru, frá
vinstri: Vilborg Oddsdóttir, Aðalheiður Frantzdóttir, Margrét K. Sigurðardóttir og Ragnhildur Guðmundsdóttir.
Gaf matarkörfur og jólapakka
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær
gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðs-
dóms Suðurlands yfir manni sem
handtekinn var í tengslum við um-
fangsmikla kannabisræktun í Ár-
nessýslu. Sætir hann því gæslu til
20. desember.
Í úrskurði héraðsdóms kemur
m.a. fram að maðurinn hafi gengist
við að hafa ræktað mikið magn
kannabisplantna sem lögregla fann
við húsleit og að hafa stundað þessa
ræktun frá því í ágúst sl. Einnig
fundust rúmlega 5 kg af misþurrk-
uðu maríúna. Hann sagðist ekki
hafa lagt neina alúð við ræktunina
og kvaðst hafa byrjað á henni í fikti.
Hann bar fyrir dóminum að hann
vissi ekki hvað hann ætlaði að gera
við plönturnar og neitaði bæði hjá
lögreglu og dómi að hafa haft í
hyggju að selja efnið eða dreifa.
Þegar litið er til þess mikla magns
sem hér er um að ræða og aðbún-
aðar á staðnum, þótti héraðsdómi
skýringar mannsins ekki trúverðug-
ar. Verulegar líkur væru á því að
framleiðslan væri ætluð til sölu í
ágóðaskyni og að kærði ætti sér vit-
orðsmenn þó að hann neiti því. Fall-
ist var á það með lögreglustjóra, að
augljós hætta væri á því að kærði
gæti haft áhrif á rannsókn málsins,
með því að spilla sakargögnum eða
hafa áhrif á aðra sem kunna að
tengjast meintum brotum, færi
hann frjáls ferða sinna.
Var þessi niðurstaða staðfest í
Hæstarétti. Málið dæmdu hæsta-
réttardómararnir Ingibjörg Bene-
diktsdóttir, Jón Steinar Gunnlaugs-
son og Ólafur Börkur Þorvaldsson.
Gæsluvarðhald vegna
kannabisræktunar staðfest