Morgunblaðið - 16.12.2005, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
á morgun
Kyrrðin í
hreyfingunni ÁRNI M. Mathiesen, fjár-málaráðherra, opnaði í gær nýttveftímarit íslenskra stjórnmála- og
stjórnsýslufræðinga. Tímaritið er
gefið út af Stofnun stjórnsýslu-
fræða og stjórnmála og er öllum
opið.
Veftímaritið mun gegna fjöl-
þættu hlutverki fyrir íslenska
stjórnmálafræði. Í því er ritrýndur
hluti sem gegnir hlutverki fræði-
tímarits í stjórnmála- og stjórn-
sýslufræðum, en slíkt rit hefur ekki
verið til staðar hingað til, segir í
tilkynningu.
Veftímaritinu, sem heitir Stjórn-
mál og stjórnsýsla, er ætlað að
gefa stjórnmála- og stjórnsýslu-
fræðingum kost á að gera rann-
sóknir sínar aðgengilegar og auka
þannig fræðilega umfjöllun. Nokk-
uð er um rannsóknir á þessum
sviðum í dag í háskólum landsins,
meðal sjálfstætt starfandi fræði-
manna og hjá ýmsum stofnunum. Í
tilkynningu segir að þess sé vænst
að með útgáfu veftímaritsins munu
rannsóknir á þessum fræðasviðum
aukast enn frekar.
Tímaritið verður öllum opið á
netinu og í lok hvers útgáfuárs
verður hægt að fá prentaða útgáfu
af ritrýndu efni fyrir þá sem þess
óska. Slík útgáfa verður jafnframt
til á söfnum.
Efnisflokkar tímaritsins eru rit-
rýndar fræðigreinar, greinar al-
menns eðlis um stjórnmál og
stjórnsýslu, bókadómar, útdrættir
úr lokaritgerðum háskólanema,
stjórnmála- og stjórnsýslufræð-
ingatal, upplýsingar um opna fundi,
námskeið og málþing á döfinni eru
hverju sinni, ásamt tenglum er
varða fagsvið stjórnmála og stjórn-
sýslufræða s.s. fræðitímarit sem
aðgengileg eru á vefnum, samtök
stjórnmálafræðinga o.fl. Félag
stjórnmálafræðinga hefur einnig
heimasvæði sitt á vefnum.
Ritstjórar hins ritrýnda hluta
tímaritsins eru Arnar Þór Másson,
MSc. og dr. Gunnar Helgi Krist-
insson. Almennur hluti ritsins er í
ritstjórn Margrétar S. Björns-
dóttur, MPA, og um bókadóma sjá
dr. Birgir Hermannsson og dr.
Stefanía Óskarsdóttir. Haukur
Arnþórsson, MPA, er vefstjóri hins
nýja tímarits.
Ritstjórn hefur sér til aðstoðar
ráðgefandi ritstjórn sem gegnir
lykilhlutverki við ritrýningu á
greinum.
Efni má senda ritstjórum en
tölvupóstfang veftímaritsins er
stogst@hi.is. Vefslóðin er
www.stjornmalogstjornsysla.is.
Veftímarit um stjórn-
mál og stjórnsýslu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra opnaði nýtt veftímarit íslenskra
stjórnmála- og stjórnsýslufræðinga í Háskóla Íslands í gær.
Á FÉLAGSFUNDI í Æðaskurð-
lækningafélagi Íslands var samþykkt
ályktun þar sem fordæmd er sú
harka sem stjórnendur Landspítal-
ans hafi sýnt í samskiptum við Stefán
E. Matthíasson æðaskurðlækni, en
honum var nýverið vikið frá störfum.
„Stefán á að baki farsælt starf og
flekklausan feril sem læknir og
stjórnandi á LSH sl. 10 ár og hefur
verið ötull frumkvöðull að uppbygg-
ingu æðaskurðlækninga á LSH og á
landsvísu. Undanfari uppsagnar Stef-
áns er áminning sem forstjóri og
lækningaforstjóri LSH veittu honum
nýverið vegna „óhlýðni við yfir-
mann“. Forsagan mun eiga rætur í
deilum sem komu upp um fram-
kvæmd ráðningarsamnings sem
gerður var er hann tók við stöðu yf-
irlæknis æðaskurðlækninga á LSH
árið 2002. Vegna þessa ágreinings er
þetta mál er nú fyrir dómstólum. Í
stað þess að bíða niðurstöðu þessa
máls ákváðu fyrrgreindir aðilar að
segja honum upp starfi yfirlæknis
fyrir sakir sem verða að teljast létt-
vægar. Honum var einnig gert að
rýma skrifstofu sína samstundis, án
möguleika til að vinna út uppsagnar-
frest og ganga frá ýmsum málum,
einkum gagnvart sjúklingum.
Æðaskurðlækningafélag Íslands
fordæmir þessa háttsemi og hörku
stjórnenda LSH gegn starfsmanni
sem unnið hefur fórnfúst starf og
sinnt því ámælislaust faglega séð, af
mikilli eljusemi og trúnaði og lagt sig
mjög fram um framgang sérfræði-
greinarinnar, svo og haft í heiðri
hagsmuni sjúklinga og orðspor spít-
alans. Æðaskurðlækningafélag Ís-
lands telur mikið skarð höggvið í
æðaskurðlækningar á Íslandi með
þessari ákvörðun og skorar á stjórn-
endur LSH að endurskoða þessa
ákvörðun sína tafarlaust og beinir til-
mælum til Læknafélags Íslands,
læknaráðs LSH og ráðherra heil-
brigðismála að hlutast til um farsæla
lausn á þessu máli.“
Ályktun frá Æðaskurðlækningafélagi Íslands
Fordæma hörku spítalans
ÞORBJÖRG Jónsdótt-
ir, fyrrum skólastjóri
Hjúkrunarskóla Ís-
lands, lést á hjúkrunar-
heimilinu Sóltúni 14.
desember. Hún fæddist
á Sauðárkróki 2. janúar
1917, dóttir hjónanna
Geirlaugar Jóhannes-
dóttur húsfreyju og
Jóns Þ. Björnssonar
skólastjóra frá Veðra-
móti, þriðja barn í hópi
tíu systkina.
Þorbjörg lauk námi
við Hjúkrunarskóla Ís-
lands 1944. Hún stund-
aði framhaldsnám og störf í ýmsum
sérgreinum hjúkrunar hér heima, í
Bandaríkjunum og á Englandi á ár-
unum 1944 til 1953. Hún stundaði
einnig nám í hjúkrun-
arkennslu og kynnti
sér rekstur sjúkrahúsa
og hjúkrunarskóla
einkum á Englandi.
Hún var kennari við
Hjúkrunarskóla Ís-
lands 1948 til 1954 og
skólastjóri sama skóla
frá 1. janúar 1954 til
23. mars 1983. Hún var
í stjórn Hjúkrunar-
félags Íslands um tíma
og átti undir lok starfs-
ævinnar sæti í ritnefnd
um „Sögu Hjúkrunar-
skóla Íslands“ sem
kom út 1990.
Síðustu árin dvaldi Þorbjörg á
hjúkrunarheimilinu Sóltúni og naut
þar umönnunar og hlýju.
Andlát
ÞORBJÖRG
JÓNSDÓTTIR
GERT er ráð fyrir um tvö hundruð
gestum á hátíðar- og fjáröfl-
unarkvöldverð Samtakanna Barna-
heilla – Save the Children á Íslandi –
í Súlnasal Hótel sögu í kvöld, föstu-
dag, að sögn Guðbjargar Björns-
dóttur, formanns Barnaheilla.
Kvöldverðurinn er haldinn til stuðn-
ings Barna- og unglingageðdeildar
Landspítala, BUGL.
Guðbjörg segir að stjórn Barna-
heilla hafi fyrir nokkru ákveðið að
beina kröftum sínum að málefnum
barna með hegðunarörðugleika og
geðraskanir. Ágóði söfnunarinnar í
kvöld. mun m.a. renna í bygging-
arsjóð til stækkunar á húsakynnum
BUGL. „Við buðum fyrirtækjum að
kaupa sig inn á þennan atburð og
þau hafa boðið viðskiptavinum sín-
um eða starfsmönnum til sætis.“
Þrettán jólatré, eftir jafnmarga
listamenn, verða boðin upp á kvöld-
verðinum. Jólatrén hafa verið kynnt
í Kastljósi Sjónvarpsins og eru til
sýnis í í gluggum verslunar Sævars
Karls við Bankastræti. Einnig er
hægt að skoða trén á vefsíðunni
barnaheill.is.
Guðbjörg segir að fólk geti einnig
haft samband við samtökin fyrir
kvöldverðinn og látið vita um áhuga
á því að bjóða í trén. Hún segir að
kvöldverðurinn verði haldinn undir
heitinu Hátíð trjánna, og að vernd-
ari hátíðarinnar sé forsetafrúin,
Dorrit Moussaieff. Forsetahjónin
verði því einnig á kvöldverðinum.
Árviss viðburður erlendis
Hátíð trjánna hefur verið árviss
fjáröflunarviðburður hjá Save the
Children-samtökum víða um heim,
en að sögn Guðbjargar er þetta í
fyrsta sinn sem samtökin haldi slíka
fjáröflun hér á landi. Hún segir að
listamennirnir sem hanni trén hafi
gefið vinnu sína. Það geri einnig
aðrir listamenn sem koma fram á
kvöldverðinum og skemmta gestum.
Listamennirnir sem hönnuðu tréin
eru Alistair Macintyre, Brian Griff-
in, Brian Pilkington, Finnbogi Pét-
ursson, Gabríela Friðriksdóttir,
Guðrún Öyahals, Helgi Gíslason,
Jónas Bragi Jónasson, Leifur Breið-
fjörð, Sigurður Árni Sigurðsson,
Steinunn Þórarinsdóttir, Svava
Björnsdóttir og Vignir Jóhannsson.
Eftirfarandi listamenn koma fram á
kvöldverðinum: Hulda Björk Garð-
arsdóttir óperusöngvari við undir-
leik Brynhildar Ásgeirsdóttur.
Spaugstofumenn, Hildur Vala Ein-
arsdóttir og Jón Ólafsson.
„Barnaheill vilja þakka öllum
styrktarfélögum fyrir stuðninginn
sl. 16 ár, en almenningur hefur verið
dyggasti stuðningur við samtökin í
gegnum árin. Með Hátíð trjánna eru
samtökin að opna fyrirtækjum leið
til að styrkja gott málefni.“
Selja þrettán jólatré á uppboði
SAMTÖK um betri byggð hafa sent
frá sér ályktun í tilefni þess að í dag
er áformað að vígja flutning Hring-
brautar í Reykjavík.
Þar er vakin athygli á sex ára and-
ófi samtakanna gegn „makalausri
framkvæmd sem vart á sinn líka,
framkvæmd sem er allt í senn, frek-
leg móðgun við heilbrigða skynsemi,
tilræði við hagsmuni Reykvíkinga og
siðlaus sóun á almannafé, líkt og nýi
flugvöllurinn, sem byggður var í
Vatnsmýri þremur árum fyrr,“ eins
og segir m.a. í ályktuninni.
Þar segir einnig að flugvöllurinn
hafi kostað tvo milljarða króna og
flutningur Hringbrautar 1,5 millj-
arða. Samfélagsverðmæti lands und-
ir flugvellinum sé að minnsta kosti
200 milljarðar og verðmæti bygging-
arlands sem fari í súginn við hina
nýju Hringbraut sé að minnsta kosti
20 milljarðar króna.
„Samtök um betri byggð vekja at-
hygli á því að bæði þessi mannvirki
þurfa að víkja sem fyrst ef takast á
að endurreisa miðborgina og stöðva
stjórnlausa útþenslu borgarinnar.“
Segja mannvirki
þurfa að víkja