Morgunblaðið - 16.12.2005, Síða 22
22 FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Heppnir fá þá eitthvað fallegt...
bílaumferð var sömuleiðis bönnuð í
borgum Íraks til að fyrirbyggja
árásir á kjósendur. Almenningur
þurfti af þeim sökum að ganga á
kjörstað.
Leitað var á fólki áður en það
kom inn á kjörstaði, það voru
einkum liðsmenn írösku lögregl-
unnar og Íraksher sem sáu um ör-
yggisgæsluna. Næstum enga
bandaríska hermenn var til dæmis
að finna í Fallujah – þar hafa þeir
enda aldrei verið neinir aufúsu-
gestir – en um 4.000 Bandaríkja-
menn voru þó við öllu búnir í út-
jaðri borgarinnar.
Kosningarnar verði til
þess að hernáminu ljúki
Er því spáð að í kjölfar þessara
kosninga muni umræður um brott-
hvarf Bandaríkjahers í áföngum fá
byr undir báða vængi. Einn írask-
ur viðmælendi BBC á kjörstað í
Bagdad lýsti einmitt þeirri von
sinni að þessar kosningar myndu
hafa þær afleiðingar að hernámi
Bandaríkjamanna lyki. Írakar
yrðu þó að varast sundrungu.
„Stöðugleiki næst ekki nema með
ÍRAKAR flykktust á kjörstaði í
landinu í gær, konur með nýfædd
smábörn í fanginu jafnt sem fatlað
fólk í hjólastólum. Kjörsókn var
sögð hafa verið afar góð, svo virð-
ist sem íraska þjóðin hafi verið
staðráðin í að koma vilja sínum á
framfæri í þessum þingkosningum;
en með þeim gafst Írökum í fyrsta
sinn frá falli stjórnar Saddams
Husseins tækifæri á að velja sér
fulltrúaþing og ríkisstjórn til fjög-
urra ára.
„Íbúar Fallujah munu fara
skríðandi á hnjánum á kjörstað ef
það reynist nauðsynlegt,“ hafði
AFP-fréttastofan franska eftir
Amr Hamed, 30 ára verkfræðingi í
borginni Fallujah um hádegisbilið
í gær, en í Fallujah búa einkum
súnní-arabar og hefur borgin verið
ein sú allra róstusamasta í Írak
síðastliðin tvö og hálft ár.
Uppreisnarmenn í Írak eru
einkum taldir koma úr röðum
súnníta en flest benti hins vegar
til þess að súnnítar hefðu neytt
kosningaréttar síns að þessu sinni
en þeir hunsuðu kosningarnar sem
haldnar voru í janúar sl. Súnní-
arabar, sem áður réðu öllu í Írak,
eru á bilinu 15–20% landsmanna
og munu hafa viljað með þátttöku
sinni tryggja að þeir beri ekki
skarðan hlut frá borði að þessum
kosningum afloknum.
Gífurleg öryggisgæsla
Gífurleg öryggisgæsla var í
borgum Íraks vegna kosninganna
en reyna átti að fyrirbyggja að
uppreisnarmönnum tækist að setja
strik í reikninginn með sprengju-
tilræðum eða öðrum ódæðis-
verkum. Þetta virðist hafa tekist
að miklu leyti, þó að í Bagdad og
víðar heyrðust engu að síður
sprengingar af og til. Vitað var um
þrjá látna um miðjan dag í gær, í
borginni Mosul í norðurhluta
Íraks og í Bohruz.
Landamærum Íraks hafði verið
lokað í öryggisskyni, umferð flug-
véla yfir landið var bönnuð. Öll
samstöðu,“ sagði hann. „Þegar við
höfum stöðugleika geta Banda-
ríkjamenn farið.“
Dagur sigurs, dagur frelsis
Ríflega fimmtán milljónir Íraka
voru á kjörskrá og var vonast til
þess að yfir tíu milljónir þeirra
myndu neyta atkvæðisréttar síns.
„Þetta er dagur sigurs, dagur
sjálfstæðis og frelsis,“ hrópaði 60
ára gamall sjía-múslími, Moham-
med Ahmed al-Bayati, fyrir fram-
an kjörstað í Bagdad. „Hér eru
engir hryðjuverkamenn nema
Bandaríkjamennirnir og hernáms-
liðið í landi okkar,“ bætti hann við
en al-Bayati kvaðst hafa greitt
Íraska bandalaginu, kosninga-
bandalagi ýmissa helstu sjíta-
leiðtoga landsins, atkvæði sitt.
Hlutskipti sjíta í Írak var slæmt
í stjórnartíð Saddams Husseins. Á
kjörstað í Bagdad, skammt frá
einni af höllum Saddams, gladdist
sjíta-kona ein því innilega þeim
sögulegu tíðindum að geta nú kos-
ið um framtíð sína. „Þetta er lýð-
ræði! Þessar kosningar munu
breyta miklu,“ sagði konan, Su-
heila Mohammed, en hún var
klædd svörtum fatnaði frá hvirfli
til ilja og hafði með sér unga dótt-
ur sína.
Í Basra í suðurhluta Íraks og í
hinni helgu borg Najaf, miðja vegu
milli Basra og Bagdad, hafði fólk
flykkst út á götu til að dansa og
syngja stuðningssöngva til handa
Íraska sjíta-bandalaginu. Var kjör-
sókn góð í þessum borgum.
Næsta víst þykir að sjítabanda-
lagið fái meira en 40% atkvæða í
kosningunum og ljóst þykir því að
þessar kosningar munu staðfesta
að valdajafnvægið í Írak hefur
breyst til frambúðar. Spurningin
er hins vegar sú hvort ríkisstjórn
undir forystu sjíta muni launa
súnnítum lambið gráa, eða stefna
að sáttum þjóðarbrotanna í land-
inu.
Kjörseðlarnir kláruðust
Á fjórða hundrað stjórn-
málaflokka, kosningabandalaga
eða óháðra frambjóðenda voru í
boði í gær, alls hátt í sjö þúsund
frambjóðendur. Kjósendur merktu
við á kjörseðli sínum, brutu hann
síðan í tvennt og skiluðu í kjör-
kassann. Um leið dýfðu þeir fingr-
inum ofan í blek, þannig var mein-
ingin að koma í veg fyrir að menn
greiddu atkvæði oftar en einu
sinni.
Íraski bloggarinn Salam Pax
lýsti stemningunni í Bagdad á
kjördag í grein á vefsíðu The Gu-
ardian. Hann sagði göturnar tóm-
ar, hvergi bíl að sjá. Þegar menn
nálguðust kjörstaði breyttist hins
vegar andrúmsloftið, þá fengi
maður á tilfinninguna að hátíð
stæði yfir. Hvarvetna væri glað-
legt fólk, börn með þjóðfána, menn
sýndu ekki einu sinni hefðbundna
óþolinmæði í biðröðinni eftir því
að kjósa. „Ef við gætum svo bara
[í framhaldinu] stöðvað þessar
sprengingar,“ segir hann svo.
Á nokkrum kjörstöðum, einkum
í Fallujah, kláruðust kjörseðlarnir
áður en yfir lauk. Stefnt hafði ver-
ið að því að ljúka kjörfundi kl.
fimm síðdegis í gær, eða kl. 14 að
íslenskum tíma. Sökum góðrar
kjörsóknar var þó ákveðið að hafa
kjörstaði opna um klukkustund
lengur, eða til kl. 18 að staðartíma.
Hátíðarstemning á
kjörstöðum í Bagdad
Reuters
Írösk kona stendur á milli kjörklefa í Bagdad, höfuðborg Íraks, í gær þeg-
ar landsmenn flykktust á kjörstaði til að kjósa nýtt þing til fjögurra ára.
Reuters
Írakar mynda sigurmerki með fingrunum á göngu um miðborg Bagdad-borgar eftir að hafa kosið í gær.
Mikil þátttaka
í þingkosning-
unum í Írak
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
Reuters
Stúlka sýnir fingur, merktan með
bleki, á kjörstað í bænum Baquba
eftir að móðir hennar hafði kosið.
’Íbúar Fallujah munufara skríðandi á hnján-
um á kjörstað ef það
reynist nauðsynlegt.‘