Morgunblaðið - 16.12.2005, Side 24

Morgunblaðið - 16.12.2005, Side 24
„Náunginn í næstu gröf er af sjaldgæfri tegund skáldsagna: fyndin ástarsaga. Meira að segja drepfyndin á köflum ... Yndisleg saga.“ Silja Aðalsteinsdóttir á tmm.is Ástin í kýrhausnum „Dásamleg bók“ Västmanlands Nyheter „Bókin er perla“ Stocholms Tidningen „Brjálæðislega skemmtileg“ Aftonbladet HÁLF MILLJÓNEINTAKA SELDÍ SVÍÞJÓÐ Húsavík | Þorri Gunnarsson er ungur Húsvíkingur sem sótti jólasveinana heim í Dimmuborgir á dög- unum. Var hann alls óhræddur við sveinana og hér gæðir hann sér á epli sem þeir gaukuðu að honum. Morgunblaðið/Hafþór Fékk epli hjá jólasveinunum Glaðningur Höfuðborgin | Suðurnes | Akureyri | Austurland Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórs- dóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi- @mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Úr bæjarlífinu HÉÐAN OG ÞAÐAN Skötuveisla í Garði | Unglingaráð Víðis í Garði heldur sitt árlega skötuhlaðborð í dag. Á borðum Samkomuhússin eru tvær tegundir af skötu, saltfiskur, siginn fiskur og fleira góðgæti. Unglingaráðið hefur staðið fyrir skötu- hlaðborði lengi og hefur aðsókn farið vax- andi. Þannig komu yfir tvö hundruð manns á hlaðborðið fyrir ári, að sögn forsvars- manna unglingaráðs sem nýtur góðs af fjár- öflun. Hádegishlaðborðið stendur frá kl. ell- efu til tvö og kvöldborðið frá sex til níu.    Kirkjuklukkan hljóðnaði | Sprunga hef- ur myndast í annarri kirkjuklukku Landa- kirkju í Vestmannaeyjum. Hafði það þær afleiðingar að hljómur klukkunnar dofnaði við athöfn um síðustu helgi. Kom þetta í ljós þegar skoðunarmaður frá Iðntæknistofnun athugaði málið fyrir sóknarnefndina í gær- morgun. Klukkan sem er liðlega 260 ára gömul er talin ónýt og tekið er fram í frétt á fréttavefnum sudurland.is að hún sé komin úr ábyrgð. Eldri klukka Landakirkju er frá 1617 og gengur enn. Verður hún notuð á meðan unnið er að útvegun nýrrar kirkju- klukku. Klædd í hvíta kyrtla, drengir með stjörnuhatta og auðvitað Lúsían sjálf ljósum prýtt og með ljós í hendi líkt og þernur hennar, gengu þau um. Nýbakaðir Lúsíusnúðar biðu foreldra og gesta á Það hefur sann-arlega verið bjartog glatt yfir mann- lífinu í Grímsey, það sem af er desember. Manna- mót og gleði í nafni jóla- undirbúningsins. Fyrst skal telja að- ventukaffi ferðanefndar Kvenfélagsins Baugs. Þangað streymdu Gríms- eyingar, nutu veitinga og keyptu jólablómin. Því næst var stórglæsilegt jólahlaðborð félaganna tveggja, Baugs og Gríms. Allt fagurlega skreytt með jólatré í sal og ís- lensku jólasveinunum og ljómandi jólastjörnum í öllum gluggum félags- heimilisins. Sönn jóla- gleði í sál og sinni. Svo fögnuðu skólabörn- in Lúsíuhátíðinni í tólfta sinn á heimskautsbaug. borðum. Að sjálfsögðu var jólasöngnum gert hátt undir höfði á öllum þessum skemmtunum. Skólabörnin sungu af inn- lifun jólalög undir stjórn skólastjórans, Dónalds Jóhannessonar. Morgunblaðið/Helga Mattína Stjörnudrengir á Lúsíu Ingólfur, Adam, Sigurður, Ív- ar og Bjarni tóku þátt í hátíð í grunnskólanum. Bjart yfir mannlífi Stefán Vilhjálmssonsat að laufa-brauðsskurði með „Garðshyrningafélaginu“ og orti: Hamast ég við uppá helmingabýtti, hverja af annarri kökuna sker. Svo verður steikt uppúr kransæðakítti, kætist nú hjartað í brjóstinu á mér. Davíð Hjálmar Haralds- son var við svipaða iðju og orti: Laufabrauð ég lengi sker, litli bróðir steikir. Bragðast vel. Þá búið er báðir magaveikir. Ekki eru allir jafn ánægð- ir með komu jólanna eins og óþekktur höfundur á vísnavef þeirra Skagfirð- inga: Áður hafði ég yndi og skjól, ævi minnar langt við ról. Nú vill lífs míns sortna sól sextugustu og fimmtu jól. Líður að jólum pebl@mbl.is Bíldudalur | Bílddælingur hf. hefur fisk- vinnslu að nýju í frystihúsinu á Bíldudal í byrjun nýs árs. Unninn verður fiskur sem fluttur verður ferskur á erlenda markaði. Nýir fjárfestar eru að ganga til liðs við fyr- irtækið. Bílddælingur hf. sagði upp öllu starfs- fólki sínu í byrjun júní á síðasta ári og lagði niður fiskvinnslu á Bíldudal. Starfsmenn voru alls 50 á sjó og landi, þar af 29 í fisk- vinnslunni. Félagið á enn fiskiskipið Hall- grím BA, en það er á söluskrá. Fiskvinnsla hefst að nýju fljótlega eftir áramót og verða áherslur aðrar en áður, að sögn Jens Valdimarssonar, eins af eigend- um Bílddælings. Nú verður áhersla lögð á vinnslu ferskfisks til útflutnings með flugi en áhersla fyrri rekstrar var á frystingu. Byrjað verður smátt, með tólf starfsmenn, að sögn Jens, og unnið úr 700 til 800 tonn- um á ári. Spurður að því hvað hefði breyst frá því í maí sagði Jens að nýir hluthafar væru komnir inn í fyrirtækið og reksturinn end- urskipulagður. „Við leggjum að minnsta kosti á djúpið aftur,“ sagði Jens þegar hann var spurður að því hvort grundvöllur væri kominn til áframhaldandi rekstrar. Afurðunum verður ekið suður á Keflavík- urflugvöll. Bæjarstjórinn fagnar Guðmundur Guðlaugsson, bæjarstjóri í Vesturbyggð, kvaðst fagna því að fisk- vinnsla væri að hefjast á ný á Bíldudal en þetta fyrirtæki var langstærsti vinnuveit- andinn áður en fiskvinnslan var lögð niður. Einnig forverar þess sem margir hættu rekstri vegna fjárhagserfiðleika. Kvaðst bæjarstjórinn álíta að grundvöllur þessa nýja rekstrar væri traustari en áður hefði verið. Guðmundur sagði að bæjarstjórnin ætti ekki beina aðild að þessum rekstri en hefði lagt sig fram um að aðstoða eigendurna, eins og kostur hefði verið, meðal annars í samskiptum við stjórnvöld og ýmsa aðra aðila. „Leggjum aftur á djúpið“ Vinnsla aftur á Bíldudal Morgunblaðið/Ómar Vinnsla Unnið var í karfa síðustu dagana áður en vinnslunni var lokað í vor. Grái Fergusoninn efstur | Grái Fergu- soninn virðist vera frumtraktorinn í hugum Íslendinga, ef marka má skoðanakönnun sem gerð var á heimasíðu Búvélasafnsins á Hvanneyri, buvelasafn.is. Bjarni Guð- mundsson segir frá niðurstöðu könnunar- innar í grein í nýútkomnu Bændablaði. Nærri tvö hundruð lesendur vefsíðunnar tóku þátt í könnuninni. Hinn grái Ferguson fékk atkvæði þriðjungs þátttakenda og spyr Bjarni hvort það sýni ekki að nefna megi hann sem þjóðardráttarvélina. Í öðru sæti lenti þúfnabaninn með liðlega fimmt- ung atkvæða og síðan Farmalarnir A og Cub. Aðrir fengu mun færri atkvæði. Fram kemur hjá Bjarna að grái Fergu- soninn er sú dráttarvélagerð sem mest hef- ur verið flutt inn af, fyrr og síðar, samtals nærri 1.700 vélar. Þúfnabaninn kom aftur á móti í fáum eintökum. Farmalarnir voru gagnstætt Ferguson litríkar vélar sem fönguðu athygli margra við komu sína. Bjarni segir að kalla megi Farmal A fyrstu heimilisdráttarvélina en fyrstu eintökin komu fjórum árum á undan Ferguson en þessi dráttarvélagerð náði þó aðeins tæplega þriðjungs útbreiðslu á við hann. Kubburinn hafði ögn betur og sam- tals komu hingað til lands um 1.100 Far- malar.   

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.