Morgunblaðið - 16.12.2005, Síða 28
28 FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
AKUREYRI
Glænýr Saab
Við kynnum SAAB í sínu
náttúrulega umhverfi.
Komdu og skoðaðu nýjan og endurhannaðan Saab 95. Þessi kraftmikli og öruggi
bíll er fullkominn í skíðaferðina eða í bústaðinn, enda þrífst hann best við erfiðar
íslenskar aðstæður. Fágaðar línurnar og einstakt útlitið vekja athygli allra sem
á hann líta. Rétti bíllinn fyrir veturinn í norðri.
Verð frá 2.980.000,-
Reynsluaktu nýjum SAAB 95. Hann er margverðlaunaður fyrir öryggi og hannaður fyrir akstur á norðurslóðum.
Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9:00–18:00 og laugardaga kl. 12:00–16:00
BÓKASAFN Jafnréttisstofu hefur verið afhent
Bókasafni Háskólans á Akureyri að gjöf og sam-
einað því. Safnið hefur verið skráð í Gegni, lands-
kerfi bókasafna.
Margrét María Sigurðardóttir, framkvæmda-
stjóri Jafnréttisstofu, sagði að safnið sem byggt
hefði verið upp um árabil hefði ekki nýst nægilega
vel fram til þessa, ekki verið nægilega aðgengilegt
almenningi, enda engin aðstaða fyrir hendi til út-
lána. Nú ættu mun fleiri að hafa að því aðgang og
vænti hún þess að það myndi einnig hafa þau áhrif
að fleiri nemendur myndu leggja fyrir kynjarann-
sóknir. Jafnréttisstofa mun að sögn Margrétar
halda áfram að gefa Bókasafni HA bækur og rit.
Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Ak-
ureyri, þetta mikilvæga bókagjöf og þakkaði það
traust sem sýnt væri með því að afhenda safnið til
varðveislu og útlána. Hann sagði safnið nýtast vel
öllum deildum háskólans, „þetta eru bækur sem
koma að miklu gangi,“ sagði hann en þær næðu yfir
öll fræðasvið háskólans og væru mikilvæg viðbót við
þann safnakost sem fyrir væri. Þá gat Þorsteinn
þess að bækurnar myndu einnig nýtast öllum al-
menningi sem og þeim sem sinntu fræðistörfum.
Þorsteinn sagði bókagjöfina hvatningu til annarra
stofnana, sem ekki hefðu bókakost aðgengilegan.
Jafnréttisstofa
gefur bókasafn sitt
Morgunblaðið/Kristján
Bókasafn Jafnréttisstofa hefur fært bókasafni Há-
skólans á Akureyri bókasafn stofnunarinnar að
gjöf. Á myndinni eru Þorsteinn Gunnarsson, rektor
HA, og Margrét María Sigurðardóttir, fram-
kvæmdaststjóri Jafnréttisstofu.
Söngnemar | Tónleikar söngnem-
enda Tónlistarskóla Eyjafjarðar
verða haldnir í Laugarborg sunnu-
daginn 18. desember og hefjast þeir
kl. 13:30. Fram koma flestallir nem-
endur söngdeildarinnar. Söngkenn-
ari er Þuríður Baldursdóttir og und-
irleikari Daníel Þorsteinsson.
Styrkur | Á fundi menningarmála-
nefndar var tekið fyrir erindi frá
Björgu Þórhallsdóttur þar sem hún
óskar eftir styrk til að mæta kostn-
aði við áheyrnarpróf og markaðs-
setningu í óperusöng fyrir umboðs-
menn og óperuhús í Evrópu.
Menningarmálanefnd heimilar að
menningarfulltrúi gangi frá styrkt-
arsamningi við Björgu um stuðning
upp á kr. 400.000. Fyrri helmingur
komi til greiðslu á þessu ári en sá
seinni á árinu 2006. Í samkomulag-
inu felist jafnframt að Björg haldi
tónleika á Akureyri á næsta ári, t.d.
á Akureyrarvöku.
Fíkniefnavandi | Á formannafundi
Íþróttabandalags Akureyrar, ÍBA, í
vikunni var samþykkt ályktun þar
sem lýst er yfir fullum stuðningi við
aðgerðir lögreglunnar og forvarn-
arfulltrúa Akureyrar sem og bæj-
aryfirvalda í baráttunni við fíkni-
efnavandann, sem því miður er
orðinn staðreynd hér í bæ. Íþrótta-
hreyfingin á Akureyri heitir því að
beita öllum tiltækum ráðum í sam-
starfi við þar til bær yfirvöld til að
uppræta þennan vágest.
THOMAS C. Kenny, framkvæmdastjóri
þýska verktakafyrirtækisins Proworks,
efndi til opins fundar á Akureyri í gær-
kvöld, en hann freist-
ar þess nú að ná sam-
stöðu meðal lánar-
drottna Slippstöð-
varinnar og fá þá til
að leita sameiginlega
leiða til að gæta rétt-
ar síns. Fyrirtæki
hans tapaði um 20
milljónum króna í
kjölfar gjaldþrots
Slippstöðvarinnar í
byrjun október síðastliðins, en Proworks
var undirverktaki við stórt verkefni sem
Slippstöðin vann við sem undirverktaki
þýska fyrirtækisins DSD við Kára-
hnjúka. Hann telur sig hafa leitað allra
annarra leiða til að fá lausn sinna mála, en
hvarvetna rekið sig á vegg.
Nokkur fyrirtæki á Akureyri eiga
hagsmuna að gæta í tengslum við gjald-
þrot Slippstöðvarinnar, s.s. Sandblástur
og málmhúðun, Rafeyri, Lostæti og fleiri.
Kenny telur að þýska fyrirtækið DSD
beri mesta ábyrgð á þeim vandræðum
sem upp komu við verkið á síðastliðnu
sumri. Hann segir að Slippstöðin, lítið og
fjárvana fyrirtæki, hafi ekki haft bol-
magn til að standa gegn hinu stóra og al-
þjóðlega verktakafyrirtæki, DSD. Slipp-
stöðin vann við að fóðra tvö lóðrétt
aðrennslisgöng í Valþjófsstaðafjalli í
Fljótsdal og áfram að túrbínum Kára-
hnjúkavirkjunar.
Tafir komu upp við framkvæmd verks-
ins, illa gekk að setja upp aðrennslispípur
og segir Kenny að nánast alfarið megi
skrifa þær tafir á DSD, þeim hafi m.a.
gengið erfiðlega að stöðva leka í berginu.
Kenny gagnrýnir mjög 135 milljóna
króna greiðslu Landsbankans til DSD í
lok september, nokkrum dögum áður en
Slippstöðin var lýst gjaldþrota. Hann
segir að DSD hafi ekki greitt Slippstöð-
inni frá 1. júlí síðastlið sumar fyrir vinnu
á Kárahnjúkum og stöðin hafi því heldur
ekki getað greitt sínum undirverktökum
frá sama tíma.
Kenny vonaðist til þess að með því að
hóa hagsmunaaðilum saman til fundar og
fara yfir stöðu mála, myndu Landsvirkj-
un og Landsbankinn skoða þessi mál upp
á nýtt og leiðrétta þau mistök sem Kenny
telur að hafi verið gerð í aðdraganda og
við gjaldþrot Slippstöðvarinnar.
Kröfuhafi í þrotabú
Slippstöðvarinnar boðaði
til almenns fundar
Hvetur aðra
kröfuhafa til
samstöðu
Thomas C. Kenny
JÓLASVEINAHÓPURINN
Söngva Sveinar hefur fært
Þroskahjálp á Norðurlandi
eystra skemmtilega gjöf, nýja
geisladiska sem hópurinn hefur
verið að vinna að. Í umslaginu
er annars vegar hljómdiskur
með 10 jólalögum og hins vegar
mynddiskur með þremur mynd-
skeiðum með söng. Þroskahjálp
mun gefa diskana á öll sambýli
á Akureyri. Forsaga málsins er
sú, að þegar þessir sveinar
voru að syngja og skemmta fyr-
ir jólin í fyrra kom til þeirra
fötluð stúlka sem ekki gat tjáð
sig með orðum en var afskap-
lega hrifin af þeim sveinum og
klappaði þeim mikið. Í kjölfarið
fóru þeir að velta fyrir sér
hvað hægt væri að gera til að
gleðja stúlkuna og önnur fötluð
börn og útkoman var þessi
diskur.
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Gjafmildir Kolbrún Ingólfsdóttir, formaður Þroskahjálpar Norðurlandi eystra, með Söngva Sveinum.
Gjafmildir jólasveinar
ÞRIÐJUNGUR verslana í miðbæ
Akureyrar er með góðar eða við-
unandi verðmerkingar í gluggum.
Engar verðmerkingar er að finna í
60% tilfella.
Neytendasamtökin könnuðu
verðmerkingar í gluggum 30 versl-
ana í miðbæ Akureyrar 12. desem-
ber síðastliðinn. Í ljós kom að ein-
ungis 40% verslana í miðbænum
eru með góðar eða þokkalegar
verðmerkingar í gluggum. Alltof
margar verslanir eru með engar
eða ófullnægjandi verðmerkingar
eða 60%. Samkvæmt lögum er skylt
að verðmerkja vörur í sýningar-
gluggum. Markmið laganna er að
efla verðvitund neytenda og efla
þannig samkeppnina.
Fyrri kannanir Neytendasamtak-
anna hafa sýnt að mjög fáar versl-
anir verðmerkja vörur sem stillt er
út í sýningarglugga. Ástandið hef-
ur þó aðeins skánað, en í könnun
sem gerð var árið 2004 voru ein-
ungis 20% verslana vel merktar.
Gluggar í miðbæ
illa merktir