Morgunblaðið - 16.12.2005, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 2005 43
UMRÆÐAN
AÐ UNDANFÖRNU hefur átt
sér stað mikil umræða um rétt-
arstöðu samkynhneigðra innan
kirkjunnar, og ekki að
ástæðulausu, enda
hefur máli þeirra verið
hallað þar á bæ lengur
en elstu menn muna.
Öðrum megin víglín-
unnar hafa skipað sér
hinir íhaldssamari af
klerkastéttinni, en
hinum megin þeir
frjálslyndari. Hvorir
hafa nokkuð til síns
máls. Hvað guð-
fræðilega rökfestu
varðar virðast þeir
fyrrnefndu ótvírætt
hafa vinninginn, enda er ritningin
ómyrk í máli þegar samkynhneigð
er annars vegar. Ef ritningin fer
rétt með vilja guðs (sem ég býst við
að klerkar séu almennt sammála
um), þá verður ekki séð að mikill
vafi leiki á.
Samúð mín er samt með frjáls-
lyndu guðfræðingunum. Ég sé
hvorki að nein haldbær rök hnígi
gegn því að réttarstaða allra manna
sé sú sama, né að það komi neinum
við hvoru kyninu fólk hneigist að,
hvað þá að það sé rétt að hindra fólk
í að bindast lífsförunaut eftir því
sem tilfinningar þess bjóða því. Því
síður þykir mér afsakanlegt að
stofnun sem á að heita
að þjóni öllum lands-
mönnum án mann-
greinarálits komist upp
með að mismuna fólki
með þeim hætti sem
kirkjan gerir samkyn-
hneigðum. Þarna er
siðferði samtímans
komið fram úr siðferð-
inu sem ríkti á rit-
unartíma Biblíunnar.
Þarna eru mennirnir
komnir fram úr meintu
almættinu í siðferð-
isþroska. Dragi fólk af
því þær ályktanir sem það vill.
Bók sem boðar að kynvillinga
skuli fordæma og beita ofbeldi hefur
dagað uppi siðferðislega. Geta menn
verið trúir ritningunni um leið og
þeir ganga í berhögg við skýr fyr-
irmæli hennar? Hafa menn heimild
til að endurskoða orð guðs? Eitt-
hvað rámar mig í að ritningunni sé
klykkt út með heldur ókræsilegum
viðurlögum þeim til handa, sem
bætir við eða tekur af henni.
Í deilum rétttrúaðra og endur-
skoðunarsinna er þögn eins manns
æpandi, biskups Þjóðkirkjunnar.
Hvar er forystan sem ætti að setja
niður innanbúðardeilur eins og þær
sem nú ganga fjöllum hærra? Víst
er úr vöndu að ráða. Hvort á að
halda í kristilega kenningu og sið-
ferði eða stíga skrefið og endur-
skoða innihald hennar og laga að
húmanísku umburðarlyndi samtím-
ans? Hvort á kirkjan að dragast aft-
ur úr framförunum og halda áfram
að steinrenna, eða afneita orðum
ritningarinnar og gengisfella um
leið trúna sem hún snýst um? Hvort
á hún að halda velli trúarlega og sjá
á eftir fólkinu sem mun yfirgefa
hana frekar en að taka þátt í kristi-
legri fordæmingu á samkynhneigð,
eða hlaupast undan eigin merkjum
og halda hóp sinn skuldbindinga-
lausan? Þótt ekki sé öfundsvert,
væri æskilegt að biskup Íslands
gengi að föðurleifð sinni, rækti
ábyrgð sína og tæki af skarið í þess-
ari deilu.
Kreppa endurskoð-
unarguðfræðinnar
Vésteinn Valgarðsson fjallar
um réttarstöðu samkyn-
hneigðra innan kirkjunnar
Vésteinn Valgarðsson
’Í deilum rétttrúaðraog endurskoðunarsinna
er þögn eins manns æp-
andi, biskups Þjóðkirkj-
unnar. ‘
Höfundur er sagnfræðingur.
BORGARSTJÓRNARFLOKKUR
F-listans fagnar nýjum kjarasamn-
ingum þar sem laun
umönnunarstétta sem
hafa verið gróflega
vanmetnar til launa
eru leiðrétt verulega.
Það er forsenda þess
að borgin geti mannað
þýðingarmiklar
þjónustustofnanir í
velferðarkerfinu og að
með sómasamlegum
hætti sé hægt að veita
barnafjölskyldum,
öldruðum og sjúkum
þá þjónustu sem ber
að veita þeim.
F-listinn er það afl í
borgarstjórn, sem
hefur flutt flestar
dagskrártillögur í
borgarstjórn Reykja-
víkur á þessu kjör-
tímabili. Tillögur hans
í skattamálum, sam-
göngumálum, um-
hverfismálum og
varðandi lág þjón-
ustugjöld aldraðra,
öryrkja, barna og
unglinga vitna um þá
ríku áherslu sem hann leggur á vel-
ferð og öryggi borgarbúa.
Höggvið í heilbrigðisþjónustu og
menningarsögu borgarinnar
F-listinn er eina aflið í borginni,
sem hefur flutt tillögur um og látið sig
varða góða heilbrigðisþjónustu við
borgarbúa. Aðför R-listans gegn
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur vitn-
ar um hið gagnstæða, enda hafa
fulltrúar R-listans sagt að það sé ekki
á verksviði sveitarstjórnarmanna
hvernig heilbrigðisþjónusta er veitt í
borginni og hvar hún er veitt. Aðförin
gegn Heilsuverndarstöðinni er eitt af
mörgum höggum sem R-listinn hefur
látið dynja á menningarsögu borg-
arinnar. Má þar minna á aðförina
gegn nær öllum elstu byggingunum
við Laugaveg, og klúðrið varðandi
landnámsskálann í Aðalstræti þar
sem elstu minjum sem fundist hafa á
Íslandi er komið fyrir í hótelkjallara í
eigu einkaaðila sem að auki kaupa
umráðarétt yfir landnámskjallaranum
og endurleigja borginni með stór-
felldum hagnaði.
Í aðförinni gegn Heilsuvernd-
arstöðinni og elstu byggðinni við
Laugaveg hefur ríkt órofa samstaða
hjá R- og D-lista. Varð-
andi landnámsskálann í
Aðalstræti þá kúventi D-
listinn og reyndi að eigna
sér frumkvæði F-listans.
Það sama gerðist varð-
andi áform R- og D-lista
um niðurrif Austurbæj-
arbíós þar sem staðfesta
F-listans varð til þess að
samstaða niðurrifs-
flokkanna gliðnaði. Þar
tókst F-listanum að koma
í veg fyrir menningar-
sögulegt slys.
Ein versta gjörð
í sögu borgarinnar
Á fundi borgarráðs 1.
desember sl. lagði undir-
ritaður fram bókun og
greinargerð vegna sölu
Heilsuverndarstöðvar-
innar, en í bókuninni seg-
ir:
„Sala Heilsuvernd-
arstöðvarinnar úr hönd-
um almennings og til ann-
arra en hún var reist til að
hýsa er einhver versta
gjörð sem Borgarstjórn Reykjavíkur
hefur staðið fyrir um langt árabil.
Hún mun valda heilbrigðisþjónust-
unni í höfuðborginni óbætanlegu tjóni
og lýsir fullkomnu virðingarleysi fyrir
þeirri hugsjón sem leiddi til þess að
þessi fallega og nytsamlega bygging
var reist á sínum tíma og hefur orðið
eitt af táknum Reykjavíkurborgar.
Ekkert bendir til að kaupandi
Heilsuverndarstöðvarinnar ætli að
nýta hana undir heilbrigðisstarfsemi
eins og stöðin var sérhönnuð fyrir.
Þetta mun kalla á breytingar á bygg-
ingunni og einnig er rætt um bygg-
ingarrétt á nærliggjandi lóð. Reynsl-
an sýnir að bæði borgarfulltrúar R-
og D-lista ganga hart fram gegn
hagsmunum almennings og menning-
arsögu borgarinnar þegar um er að
ræða þjónkun við byggingarverktaka.
Menningarsögulegt slys virðist þann-
ig í uppsiglingu.“
F-listinn ver heil-
brigðis- og vel-
ferðarþjónustuna
Ólafur F. Magnússon
skrifar um stefnu F-listans
Ólafur F. Magnússon
’F-listinn ereina aflið í borg-
inni, sem hefur
flutt tillögur um
og látið sig
varða góða heil-
brigðisþjónustu
við borgarbúa.‘
Höfundur er læknir og oddviti
F-listans í borgarstjórn.
Ný kennslumynd
í hestamennsku
eftir Eyjólf Ísólfsson
tamningameistara
er komin.
Þessi mynd er sjálfstætt
framhald af fyrri mynd
Eyjólfs.
Markviss kennsla um
tamningu og þjálfun sem
nýtist öllu hestafólki.
Eyjólfur kynnir myndina
í Ástund laugardag og
sunnudag
milli kl. 15:00 og 17:00.
Allir velkomnir
Háaleitisbraut 68, s. 568 4240
astund@astund.is www.astund.is
Jólagjöf
hestamannsins
!
! "
!
#
"
# %&'&(
)
$%
&''()" '($
*+(
+
(&+
,
(#
&)&-&
.
)
/!
0&+# 1
))2 3
/(+
4'/()
(
( -
&
(&+
,
+( &
&
.
! (
,+.-5)&
.
(
(
, 6
&(
)
(
.
(
)
,
67
#) -
&(&+
, "&
)(
! +&
)&(
(&+
,
)
.
)8(( -
&((&+
, 5)
&
.
(
)(&+
,
- '
&&8(
%
)
,
0&+#
++ /&++&-
)
+(
(&+
, # %
#/ %)+
+&
)&(
+*
+(
(
)%
+(&+
,
&6
&(
)
67 &+!,
&! +&)
)&(%
)
)&(/)&!
+
,(/&++(##
) +
,
).(
/&++&-+
)&(
#!
!!" # $$%%&%&&&
!
" ! " #
$ %
& ' $