Morgunblaðið - 16.12.2005, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 2005 59
AFMÆLI
Opið bréf til Stefáns
Sigurðar Gunnlaugssonar,
sem er áttræður í dag
Sæll frændi, ég óska þér hjartan-
lega til hamingju með daginn. Þú
berð aldurinn vel enda vel hertur í
lífsins ólgusjó. Þú ert elstur okkar
frænda og ert nestor ættarinnar.
Berð nafn afa okkar, Stefáns, og milli-
nafn nafn föðurbróður okkar, Sigurð-
ar Jóels, og langafa okkar, Sigurðar
Gunnarssonar, bónda í Saurbæ í
Vatnsdal í Húnavatnssýslu. Jafn-
framt búskap var langafi okkar for-
maður á hákarlaveiðiskipi, sem gert
var út af Ásgeiri Einarssyni, alþing-
ismanni á Þingeyrum. Í einni slíkri
ferð drukknaði langafi okkar. Eftir
það var afi okkar, Stefán, tekinn í
fóstur af fyrrnefndum Ásgeiri Ein-
arssyni og konu hans, Guðlaugu Jóns-
dóttur frá Melum í Hrútafirði. Svo vel
leið afa okkar á Þingeyrum, að hann
og amma okkar ákváðu að skíra næst-
elsta son sinn Ásgeir Guðlaug í höf-
uðið á heiðurshjónunum frá Þingeyr-
um. Auðvitað þekkir þú þessa sögu
ekki síður en ég, en það er fróðlegt að
rifja hana upp á tímamótum sem
þessum.
Allir iðnaðarmenn
Feður okkar og þeirra bræður
urðu allir í fyrstu iðnaðarmenn. Sig-
urður, Ásgeir og Tryggvi trésmiðir,
eins og Stefán faðir þeirra, Gunnlaug-
STEFÁN SIGURÐUR
GUNNLAUGSSON
ur og Ingólfur bakarar, Friðfinnur og
Ingólfur aftur síðar múrarar. Allir
voru þeir mjög dugandi menn í sinni
iðn. Ásgeir sneri sér síðar að útgerð,
Friðfinnur að landbúnaði og faðir
þinn kaupmennsku. Hver, sem kom-
inn er vel yfir miðjan aldur, man ekki
eftir auglýsingu í útvarpinu frá Gunn-
laugsbúð, sem hljóðaði svona: „Gunn-
laugur sér um sína.“ Skemmtilegt
„logo“, ekki satt, frændi.
Þú sjálfur
Þú aflaðir þér góðrar menntunar,
gagnfræðaprófs frá Flensborg, versl-
unarprófs frá Verzlunarskóla Ís-
lands, góðrar verslunar- og viðskipta-
menntunar í Englandi. Þetta var
vissulega góður undirbúningur undir
lífið.
Ekki má gleyma sjómennskunni.
Vinna til sjávar og sveita var stór
hlutur í menntun fólks hér áður.
Menn kynntust lífsbaráttu og störf-
um almennings. Þú varst á stríðsár-
unum, þegar færi gafst frá skóla, há-
seti á Óla Garða undir stjórn Baldvins
Halldórssonar, skipstjóra, föður Haf-
steins Baldvinssonar, sem tók við
starfi bæjarstjóra í Hafnarfirði af þér
árið 1962. Síðar varst þú með Baldvini
á Bjarna riddara.
Alþýðuflokkurinn
Þú fæddist inn í Alþýðuflokkinn
eins og sumir aðrir. Eftir að Guð-
mundur Jónasson, bæjarfulltrúi og
verkstjóri á Mölunum, hafði fengið
Ásgeir til þess að ganga í flokkinn
fylgdi öll fjölskyldan á eftir.
Þú gekkst í FUJ þegar aldur leyfði,
gerðist formaður í því félagi 1949 og
fram til 1951. Þegar Ásgeir, Björn Jó-
hannesson og Kjartan Ólafsson
hættu í bæjarstjórn varst þú ásamt
tveimur öðrum valinn í þeirra stað.
Flokkurinn valdi þig sem bæjarstjóra
árið 1954 og gegndir þú þeirri stöðu
til 1962. Þú sast á þingi fyrir flokkinn
1971 til 1974. Þú gerðist aftur bæj-
arfulltrúi árin 1970 til 1974. Svona
væri hægt að halda lengi áfram.
Það eru ekki margar fjölskyldur
sem geta státað af því sama og þú
ásamt sonum þínum, þeim Finni
Torfa, Gunnlaugi og Guðmundi Árna,
að hafa allir setið á Alþingi Íslend-
inga.
En allt er breytingum háð. Ættin
hefur átt næstum samfellt frá 1926
eða jafnvel fyrir þann tíma fulltrúa í
nefndum og/eða bæjarstjórn Hafnar-
fjarðar. Tengdadóttir
þín, Jóna Dóra, eigin-
kona Guðmundar
Árna, sonar þíns, sagði
nú fyrir stuttu af sér
sem bæjarfulltrúi og
forseti bæjarstjórnar
Hafnarfjarðar, þegar
þau hjón gerðust
sendiherrahjón í Svía-
ríki.
Enginn úr fjölskyld-
unni á sæti á fram-
boðslista Samfylking-
arinnar í Hafnarfirði
fyrir næstu bæjar-
stjórnarkosningar.
Þessum kafla er nú
lokið. Þessu er svipað farið hjá höf-
uðandstæðingnum, Sjálfstæðis-
flokknum, þar sem Mathiesenættin
verður ekki í átakasætum á þeirra
lista. En alltaf koma nýir menn í stað
þeirra sem víkja
Það hlýtur að verða spennandi við-
fangsefni fyrir sagn- og stjórnmála-
fræðinga framtíðarinnar að rannsaka
ástæður þess, hversu sterkur Alþýðu-
flokkurinn og síðan Samfylkingin
hafa verið í Hafnarfirði um áratuga
bil, miklu sterkari en í öðrum sveit-
arfélögum landsins. Ég held, að svar-
ið hvað varðar fyrri hluta tímabilsins
sé Bæjarútgerð Hafnarfjarðar.
Önnur störf
Þú hefur unnið í stjórnsýslunni
megnið af ævi þinni og sett þitt mark
þar á, bæði hérlendis og erlendis. Ég
minnist þess, þegar við Oddný, ásamt
þremur börnum, heimsóttum þig í
Englandi, þar sem þú starfaðir sem
viðskiptafulltrúi við sendiráðið. Hitt-
um við þar fyrir einnig Árna frænda
okkar Friðfinnsson og konu hans El-
ínu Eggerz. Það var auðséð, að þú
varst heimsborgari.
Gleði og sorg
Hún Margrét Guðmundsdóttir,
fyrrverandi eiginkona þín, er hörku-
dugleg kona og mjög pólitísk. Ég
held, að hún sé ennþá pólitískari en
við frændurnir. Börnin ykkar hafa
komið sér vel áfram í lífinu, Gunn-
laugur prestur, Snjólaug fjölskyldu-
ráðgjafi, Guðmundur Árni sendiherra
og Ásgeir flugmaður. Finnur Torfi,
sem þú áttir áður, er menntaður lög-
fræðingur og starfandi tónskáld. Þú
mátt vera hreykinn af börnunum.
Lífið er sjaldnast ætíð dans á rós-
um. Það var erfitt hjá þér, þegar þú
misstir dóttur þina, Snjólaugu,
tveggja barna móður, úr illvígum
sjúkdómi.
Lokaorð
Í Sólveigarbók er vitnað í skrif
Stefáns Júlíussonar rithöfundar og
segir þar m.a. svo um Ásgeir, frænda
þinn: „Hann [þ.e. Ásgeir, mitt inn-
skot] þurfti vissulega að leggja sig
fram og ekki verður því neitað að
hann var umtalaður maður í bænum,
stundum ekki vandaðar kveðjurnar,
enda aðsópsmikill og ákafasamur í
framkvæmdum.“
Það er ekki laust við, að þessi til-
vitnun geti að sumu leyti minnt á þig.
Þú gafst aldrei upp í pólitíkinni og lést
aldrei neinn eiga neitt inni hjá þér. Þú
svaraðir alltaf fyrir þig og hlutirnir
gengu.
Lifðu heill.
Hrafnkell Ásgeirsson.
Solveig Gunnlaugsdóttir með tveimur sonum,
Gunnlaugi til vinstri og Ásgeiri til hægri. Stefán
hefur sagt, að hann telji, að hún hafi alla tíð haft
mikil áhrif á þessa skapmiklu menn.
Í SÍÐUSTU viku varð Henrik
Danielsen íslenskur ríkisborgari og
er hann ellefti ríkisborgarinn sem
ber stórmeistaratign í skák sem
gerir engan greinarmun á kynjun-
um. Engin samkeppni var á milli
sjónvarpsfréttamanna þegar hinn
geðþekki og kurteisi stórmeistari
sté í fyrsta skipti fæti sínum á Ís-
land eftir að hann öðlaðist íslenskan
ríkisborgararétt. Hann var þá
staddur á Reykjavíkurvíkurflugvelli
eftir stórbrotna reisu hans og
Hróksmanna til Grænlands þar sem
500 grænlenskum börnum var af-
hent taflsett. Keppnisharka frétta-
manna var öllu meiri rúmu hálfu ári
áður þegar heimsmeistarinn fyrr-
verandi, Bobby Fischer, kom á sama
flugvöll í fyrsta sinn sem íslenskur
ríkisborgari. Málefni Fischers vöktu
þá mikla fjölmiðlaathygli og kom þá
m.a. fram að stórmeistarinn frá Bro-
oklyn fullyrti að eignir hans höfðu
verið gerðar upptækar af banda-
rískum yfirvöldum þar sem munir í
hans eigu í geymslu nokkurri hefðu
verið teknir og hann ekki fengið
neinar bætur fyrir. Andspænis þess-
um fullyrðingum hefur verið bent á
að Fischer hafi haft geymsluna að
láni og að eigandi hennar hafi gert
munina upptæka vegna þess að
leiga hafi ekki verið greidd.
Frá þessu er sagt hér þar sem hin
virta skáksíða Chessbase á netinu
birti nýverið frétt um að munir
Fischers úr geymslunni væru nú til
sölu á Ebay. Seljandi munanna full-
yrðir að hann hafi keypt þá á flóa-
markaði í Suður-Kaliforníu fyrir sex
árum. Einnig tekur seljandinn fram
að hann hafi ítrekað reynt að ná
sambandi við Bobby til þess að láta
honum þessa muni í té. Uppistaðan í
þessu safni muna eru skákbækur,
skáktímarit og minjagripir sem
Bobby hafði fengið vegna þátttöku í
skákmótum. Einnig er þar að finna
stúderingar fyrir marga af andstæð-
ingum hans sem og drög að bók
hans My 60 most memorable games.
Á heimasíðu Chessbase er að
finna mörg viðbrögð skákáhuga-
manna vegna þessara tíðinda. Flest-
ir eru á þeirri skoðun að koma eigi
mununum í hendur Fischers og er
seljandinn gagnrýndur af mörgum.
Því er haldið fram að hann segi ósatt
um hvernig hann hafi fengið munina
og efast er um lögmæti uppboðsins.
Bent er á að þetta sé í annað skipti
sem reynt sé að selja þessa muni og
að handskrifuð blöð sem seljandi
fullyrðir að séu rituð af Fischer séu í
raun og veru skrift annarra manna.
Einnig benti einn New York-búi á
að Fischer hafi ítrekað fullyrt að um
stolna muni sé að ræða og að aðdá-
endur sínir eigi ekki að kaupa þá til
þess að koma þeim til sín. Svo virðist
sem þessum tilmælum meistarans
hafi verið hlýtt þar eð engin boð
hafa borist í munina.
Heimsbikarkeppni
FIDE að ljúka
Heimsbikarkeppni FIDE lýkur í
Khanty-Mansiysk í Rússlandi um
helgina. Í átta manna úrslitum
keppninnar lagði Ruslan Ponomar-
iov (2.704) frá Úkraínu Evgeny
Bareev (2.675) frá Rússlandi að
velli, armenski stórmeistarinn Le-
von Aronjan (2.724) bar sigurorð af
Mikail Gurevich (2.652), Rússinn Al-
exander Grischuk sigr-
aði landa sinn Sergey
Rublevsky (2.652) og
Frakkinn Etienne
Bacrot (2.725) náði að
sigra Ísraelann Boris
Gelfand (2.717) eftir
maraþoneinvígi. Und-
anúrslit keppninnar
hófust rólega með
tveim jafnteflum en í
síðari skák Aronjans
og Bacrot þjarmaði
Armeninn að þeim
franska. Að loknum
fimmtugasta leik
Frakkans kaus hann
að gefast upp í eftirfarandi stöðu.
Sjá stöðumynd.
Samkvæmt stúderingum sem
birtar hafa verið á netinu er staða
þessi jafntefli, sbr. leikjaröðin 51.
Kf4 h5 52. Ke4 Ke7 53. Kd5 Kd7 54.
f6+ Ke8! 55. Be6 h4 og svarta frí-
peðið á h-línunni veitir nægjanlegt
mótspil til að halda jafntefli.
Í hinni viðureigninni í undanúr-
slitum gerðu Grischuk og Ponomar-
iov tíðindalítil jafntefli í kappskák-
unum og í fyrri atskákinni sneri
Ponomariov hartnær töpuðu tafli í
sigur. Í síðari atskákinni vann fyrr-
verandi heimsmeistari FIDE
öruggan sigur og teflir hann því til
úrslita gegn Aronjan um sigurinn á
mótinu. Undrabarnið Magnus Carl-
sen lagði Lautier að velli í einvígi og
hefur enn möguleika á að trygga sér
þátttökurétt í áskorendakeppni
FIDE á næsta ári.
Skákmót um helgina
Jólaskákmót KB banka fer fram í
aðalútibúi bankans laugardaginn 17.
desember næstkomandi og hefst kl.
15. Margir af öflugustu skákmönn-
um þjóðarinnar taka þátt í mótinu
og má gera má ráð fyrir að handa-
gangur verði í öskjunni en tefldar
verða hraðskákir. Jólamót Tafl-
félags Reykjavíkur fer fram sama
dag í Faxafeni 12 og hefst kl. 14.
Mótið er ætlað grunnskólanemend-
um og má búast við miklu fjöri á
skákstað líkt og á jólapakkamóti
Taflfélagsins Hellis. Það mót fer
fram í Ráðhúsi Reykjavíkur sunnu-
daginn 18. desember og hefst kl. 13.
Munir Fischers til sölu
SKÁK
Vefsíða Chessbase
Uppboð á netinu
9.–19. desember 2005
HELGI ÁSS GRÉTARSSON
daggi@internet.is
Hluti af ætluðu skákbókasafni Bobby Fischers.
FRÉTTIR
HÁTT í áttatíu börn á frístunda-
heimilinu Undralandi í Granda-
skóla ákváðu að föndra jólavörur á
aðventunni og buðu síðan for-
eldrum sínum upp á að skipta á
jólaföndrinu og jólapökkum sem
þau færðu síðan Fjölskylduhjálp Ís-
lands.
Myndin var tekin þegar fulltrúi
Fjölskylduhjálpar Íslands tók á
móti þessum jólapökkum. Á mynd-
inni er hluti barnanna á Undralandi
í Grandaskóla með Rögnu Rósants-
dóttur, stjórnarkonu Fjöl-
skylduhjálpar Íslands, og Höllu Ösp
Hallsdóttur, umsjónarmanni frí-
stundaheimilisins Undralands í
Grandaskóla. Fjölskylduhjálp Ís-
lands tekur á móti gjöfum alla mið-
vikudaga kl. 13–17 í Eskihlíð 2–4.
Morgunblaðið/Golli
Börnin styrkja
Fjölskylduhjálpina
Rangt nafn á mynd
Glöggur lesandi hafði samband og
benti á að rangt væri farið með nafn
stöðuvatns á mynd Marco Paoluzzi
er birtist með umsögn um ljós-
myndasýningu hans. Þar væri um
Selvallavatn á Vatnaheiði á Snæ-
fellsnesi að ræða en ekki Baul-
árvallavatn einsog sagði í mynda-
texta. Er beðist velvirðingar á þessu.
LEIÐRÉTT
HEILSUSTOFNUN NLFÍ býður
upp á einnar viku námskeið dagana
8.–15. janúar nk., fyrir þá sem vilja
hætta að reykja. Námskeiðið tekur
sjö daga, frá sunnudegi til sunnu-
dags, með dagskrá og eftirfylgni í
eitt ár þar sem hringt verður í við-
komandi eftir einn mánuð, sex og
tólf mánuði, með það að markmiði
að veita þeim stuðning. Uppl. og
ráðgjöf er síðan veitt alla miðviku-
daga kl. 12.30–13, í síma 483 0347.
Meðferðin byggist á andlegri, lík-
amlegri og félagslegri uppbygg-
ingu, hreyfiþjálfun, þol- og þrek-
þjálfun og slökun. Að dagskránni
koma læknir, hjúkrunarfræðingur,
sjúkraliði, sjúkraþjálfarar, íþrótta-
kennari og næringarfræðingur.
Skráning er í síma 483 0300 fyrir
19. desember nk.
Námskeið fyrir
reykingafólk
UNDANFARIN ár hefur jólatrés-
sala Landakots látið hluta af hagn-
aði renna til Styrktarfélags krabba-
meinssjúkra barna og verður svo
einnig í ár. Sölustaðir eru við versl-
un IKEA í Holtagörðum, hjá
McDonald’s, Smáratorgi, og Landa-
kotskirkju.
Jólatréssala
Landakots