Morgunblaðið - 16.12.2005, Qupperneq 63
Bækur
Á næstu grösum | Sigríður Jónsdóttir les
úr ljóðabók sinni Einnar báru vatn á veit-
ingastaðnum Á næstu grösum, Laugavegi
20b, 17. des. kl. 18.30–19.30. Þetta er
fyrsta bók skáldkonunnar.
Landsbankinn aðalbanki | Upplestur kl.
14.30. Hrafnhildur Schram – Huldukonur í
íslenskri myndlist. Guðmundur Magnússon
– Thorsararnir: auður – völd – örlög. Allir
velkomnir.
Þjóðmenningarhúsið | Einn af öðrum tín-
ast spennusagnahöfundarnir í Þjóðmenn-
ingarhúsið dagana fyrir jól og skjóta áhlýð-
endum skelk í bringu með hrollvekjandi
upplestri úr nýjum verkum sínum: Í dag kl.
12.15; Þráinn Bertelsson les úr bók sinni
Valkyrjum. Rauðrófusúpa á veitingastof-
unni. Allir velkomnir.
Dans
Broadway | Dansleikur með Á móti sól frá
miðnætti. 1.000 kr. inn.
Skemmtanir
Breiðin Akranesi | Sálin hans Jóns míns
spilar í kvöld.
Cafe Catalina | Hörður G. Ólafsson spilar
og syngur.
Kringlukráin | Geirmundur Valtýsson og
hljómsveit í kvöld kl. 23.
Vélsmiðjan Akureyri | Hljómsveitin Sér-
sveitin leikur fyrir dansi um helgina, frítt
inn til miðnættis.
Kvikmyndir
Útskrift frá Kvikmyndask. Íslands | Nem-
endur sýna lokaverkefni sín í húsakynnum
skólans að Laugavegi 176. Sýningar fara
fram kl. 13 (1. önn), 14.30 (2. önn) og 15.30
(3. önn). Allir eru velkomnir á þessar sýn-
ingar meðan húsrúm leyfir.
Fréttir og tilkynningar
Happdrætti bókatíðinda | Númer dagsins
16. desember er 60379.
Skógræktarfélögin | Helgina 17. og 18. des.
verða eftirtalin skógræktarfélög með sölu
á jólatrjám á eftirtöldum stöðum: Skóg-
ræktarfélag Hafnarfjarðar í Höfðaskógi hjá
Selinu, lau. kl. 10–18, sun. kl. 10–16. Skóg-
ræktarfélag Mosfellsbæjar í Hamrahlíð í
Úlfarsfelli kl. 10–16. Skógræktarfélag Kópa-
vogs, Mosfellsbæjar, Kjósarhrepps og Kjal-
arness, á Fossá í Hvalfirði kl. 10–15. Skóg-
ræktarfélag Borgfirðinga í Daníelslundi kl.
11–16. Skógræktarfélag Eyfirðinga í Kjarna-
skógi kl. 10–18. Skógræktarfélag Austur-
lands í Eyjólfsstaðaskógi kl. 12–16. Skóg-
ræktarfélag Reykjavíkur í Heiðmörk, lau.
kl. 11–15. Skógræktarfélag Austur-
Skaftafellssýslu í Haukafelli lau. kl. 11–16.
Skógræktarfélag Stykkishólms í anddyri
Grunnskólans í Stykkishólmi kl. 11–16.
Staðlaráð Íslands | Framleiðendur, hönn-
uðir, verkfræðingar, 1. desember gekk í gildi
íslensk þýðing staðalsins ÍST EN 206-1
Steinsteypa? 1. hluti: Tæknilýsing, eig-
inleikar, framleiðsla og samræmi. Staðall-
inn skilgreinir verksvið hönnuðar, framleið-
anda og notanda. Nánari upplýsingar á vef
Staðlaráðs www.stadlar.is.
Börn
Þjóðminjasafn Íslands | Íslensku jólasvein-
arnir í safninu. Jólasveinarnir koma alla
daga 12.–24. desember kl. 11 virka daga (og
á aðfangadag) en kl. 14 um helgar.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 2005 63
MENNING
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Jólasúkkulaði og
bingó. Gerður G. Bjarklind og tónlist-
arkonurnar Guðbjörg Sandholt,
Anna Helga og Guðný Þóra sjá um
jólastemminguna. Allir velkomnir.
Árskógar 4 | Bað kl. 8–16. Handa-
vinna kl. 9–12. Smíði/útskurður kl.
9–16.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, hárgreiðsla, böðun, fótaað-
gerð, frjálst að spila í sal.
Dalbraut 18–20 | Félagsstarfið er
öllum opið. Fastir liðir eins og venju-
lega. Kíktu við, skoðaðu dagskrána,
líttu í blöðin og láttu þér líða vel yfir
aðventuna t.d. í morgunkaffinu hjá
okkur alla virka daga. Nokkrir miðar
til á Vínarhljómleikana 6. jan. 2006.
Munið Þorláksmessuskötuna! Uppl.
588 9533
Félag eldri borgara í Kópavogi | Fé-
lagsvist verður spiluð í kvöld kl.
20.30 í Gjábakka. Brids í Gjábakka í
dag kl. 13.15
Félag eldri borgara, Reykjavík | Að-
stoð verður veitt við útfyllingu
tekjuáætlunar Tryggingastofnunar
ríkisins á skrifstofu Félag eldri borg-
ara, uppl. í síma 588 2111.
Félagsheimilið Gjábakki | Kl. 9.30
boccía, kl. 13 gler- og postulíns-
málun, kl. 13.15 brids, kl. 20.30 fé-
lagsvist.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–
16.30 vinnustofur opnar m.a. bók-
band. Kl. 10.30 létt ganga um ná-
grennið. Frá hádegi spilasalur opinn.
Kl. 13.30 undirbúningsfundur fyrir
Lista- og menningarhátíð eldri borg-
ara í Breiðholti m.a. börn frá leik-
skólanum Hraunborg flytja helgileik
o.fl. Allir velkomnir. Strætó S4 og 12.
Furugerði 1 | Í dag kl. 9 aðstoð við
böðun, smíðar og útskurður. Messa
kl. 14, prestur sr. Ólafur Jóhannsson,
Furugerðiskórinn syngur undir stjórn
Ingunnar Guðmundsdótur. Allir vel-
komnir. Munið Þorláksmessusköt-
una, pantið tímanlega. Uppl í síma
553 6040.
Hraunbær 105 | Kl. 9 Kaffi, spjall,
dagblöðin. Almenn handavinna, út-
skurður, baðþjónusta, fótaaðgerð
(annan hvern föstudag), hárgreiðsla.
Kl. 11 spurt og spjallað. Kl. 12 hádeg-
ismatur. Kl. 14.45 bókabíll. Kl. 15
kaffi. Kl. 14 bingó.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnu-
stofa 9–12, postulínsmálning. Böðun
fyrir hádegi. Fótaaðgerðir
588 2320. Hársnyrting 517 3005.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er
öllum opið. Fastir liðir eins og venju-
lega. Kíktu við, líttu í blöðin, fáðu
þér kaffisopa, skoðaðu dagskrána og
láttu þér líða vel á aðventunni í
Betri stofunni í hjá okkur. Jólatréð
okkar er verulega fallegt. Munið
skötuna á Þorláksmessu. Sími
568 3132.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir. Kl. 9.15–14.30 hann-
yrðir. Kl. 11.45–12.45 hádegisverður.
Kl. 13.30 sungið við flygilinn við
undirleik Sigurgeirs. Kl. 14.30–16
dansað við lagaval Sigurgeirs.
Rjómaterta í kaffitímanum. Kl. 15
spila Steinunn Harðardóttir og El-
ísabet Snjólaug Reinharðsdóttir jóla-
lög.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
9–12.30, leirmótun kl. 9–13, morg-
unstund kl. 9.30, leikfimi kl. 10, leir-
mótun kl. 13, bingó kl. 13.30.
Kirkjustarf
Fríkirkjan Kefas | Starf fyrir ung-
linga er á föstudagskvöldum kl. 20.
Samkomur og samverustundir sem
allir unglingar eru velkomnir á.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía |
Kirkja unga fólksins. Samkoma hefst
klukkan 20. Bænastund fyrir sam-
komu. Guðrún og Kári, nemendur úr
biblíuskóla í Englandi, tala. Lofgjörð-
arhópur kirkju unga fólksins leiðir
lofgjörð. Láttu sjá þig! Workshop eru
í fríi í desember.
1. d4 d6 2. e4 g6 3. Rc3 Bg7 4. f4 a6 5.
Rf3 b5 6. Bd3 Rd7 7. Be3 c5 8. dxc5
Rxc5 9. Bxc5 dxc5 10. e5 Ha7 11. De2
Rh6 12. a4 Da5 13. 0–0 b4 14. Re4 0–0
15. Df2 Hc7 16. Rfd2 Be6 17. Rc4 Bxc4
18. Bxc4 Rf5 19. Hfd1 Db6 20. c3 h5 21.
a5 Dc6 22. De2 Hb8 23. Bd5 Db5 24. Bc4
Dc6 25. Bd5 De8 26. Bc4 Bh6 27. g3 Hd8
28. Bxa6 Hxd1+ 29. Hxd1 Da4 30. Bc4
Dxa5
Undrabarnið norska, Magnus Carl-
sen (2.570), lék Zurab Azmaiparashvili
(2.658) grátt í atskákeinvígi þeirra á
heimsbikarmóti FIDE sem fer senn að
ljúka í Khanty-Mansyinsk í Rússlandi. Í
fyrri atskákinni þjarmaði hann með
svörtu hægt og sígandi að georgíska of-
urstórmeistaranum sem að lokum þurfti
að játa sig sigraðan. Staðan kom upp í
síðari atskákinni og lauk Magnus henni
nú með snjallri sóknaratlögu. 31. e6!
fxe6 31. … f6 hefði ekki gengið upp
vegna 32. Rxf6+. 32. Rf6+! Kh8 32. …
exf6 gekk ekki upp vegna 33. Dxe6+.
33. Hd8+ Kg7 34. Hg8+ og svartur
gafst upp enda verður hann mát eftir
34. … Kxf6 35. Dxe6#.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Opið - Mánud. - föstud. kl. 12-19 laugard. 12-18
sunnud. 14 - 18 S: 568 0404 / 894 0367
Gefðu elskunni þinni málverk í jólagjöf.
Fjárfesting til frambúðar.
Vaxtalaus listalán:
10% útborgun í verk fyrir 36 til 600 þúsund kr.
og listalán í allt að 36 mánuði.
Laugavegi 4, sími 551 4473
• www.lifstykkjabudin.is
Þú minnkar um 1 númer
Litir: Svart - hvítt - húðlitað
Póstsendum
Í kjólinn fyrir jólin
Allar gerðir af
HIN árlega Menningarveisla
Bílastjörnunnar, Bæjarflöt 10 í
Grafarvogi, verður haldin í dag
milli kl. 18 og 20. Grafarvogs-
skáldin lesa úr verkum sínum.
Gestaskáld Kristján Hreins-
son. Leynigestur les upp úr
verkum sínum.
Tónlistaratriði: Agnar Már
Magnússon, Jón Sigurðsson,
Óskar Pétursson, Johnny and
the rest. Ýmsir myndlistar-
menn frá galleríinu „www.art-
Iceland.com“ sýna myndlist-
arflæði á skjávarpa.
Léttar veitingar í boði Bíl-
anausts. Glæsileg flugeldasýn-
ing í umsjón „Alvöru flugelda“
kl. 20.
Kynnir verður séra Vigfús
Þór Árnason. Aðgangur er
ókeypis.
Að menningarveislunni
standa Bílastjarnan og þjón-
ustumiðstöðin Miðgarður með
dyggri aðstoð Bílanausts og Ís-
landsbanka.
Menning-
arveisla
Bílastjörn-
unnar
KVENNAKÓR Garða-
bæjar og Sinfóníuhljóm-
sveit áhugamanna halda
saman jólatónleika í Sel-
tjarnarneskirkju á laug-
ardaginn og í Víðistaða-
kirkju á sunnudaginn.
Hvorir tveggja tónleik-
arnir hefjast klukkan 17.
Flutt verður fjölbreytt
efnisskrá kór- og hljóm-
sveitarverka eftir þá
Mozart-feðga Wolfgang
Amadeus og Leopold, Elgar, Bach,
Händel, Fauré, Jón Ásgeirsson,
Jórunni Viðar, Ingibjörgu Þor-
bergs og fleiri.
Í lokin verður almennur söngur
og verða sungin jólalög við undir-
leik hljómsveitarinnar. Stjórnandi
verður Óliver Kentish og einsöng
syngur Ingibjörg Guðjónsdóttir,
sópran. Bæði kórinn og
hljómsveitin halda upp á
stórafmæli um þessar
mundir.
Sinfóníuhljómsveit
áhugamanna var stofnuð
árið 1990 og Kvennakór
Garðabæjar árið 2000.
Þessir hópar sameina nú
krafta sína í fyrsta skipti.
Ingibjörg Guðjónsdóttir er
stjórnandi Kvennakórs
Garðabæjar og Óliver
Kentish er aðalstjórnandi Sinfón-
íuhljómsveitar áhugamanna.
Forsala aðgöngumiða er hjá
kór- og hljómsveitarfélögum og í
Bókabúðinni Grímu, Garðatorgi.
Aðgangseyrir er 1.800 kr., 1.500
kr. í forsölu og 1.300 kr. fyrir líf-
eyrisþega. Frítt fyrir börn 15 ára
og yngri.
Tvöfalt afmælisár
Ingibjörg
Guðjónsdóttir
DAGSKRÁ í boði Lista- og menn-
ingarráðs Kópavogs í samvinnu við
Ritlistarhóp Kópavogs og aðstand-
endur Geirlaugs Magnússonar verð-
ur haldin í kaffistofu Gerðarsafns,
Listasafni Kópavogs, á laugardag-
inn kl. 15 til 17.
Sigurrós Þor-
grímsdóttir, for-
maður Lista- og
menningarráðs
Kópavogs, setur
samkomuna. Ein-
ar Ólafsson
fjallar um ljóð
Geirlaugs. Ljóða-
upplestur: Þor-
leifur Frið-
riksson,
Eyvindur P. Eiríksson, Kristján
Hreinsson og Lillý Guðbjörnsdóttir.
Gísli Þór Ólafsson syngur ljóð Geir-
laugs og leikur undir á gítar.
Eftir hlé með veitingum koma
fram Óskar Árni Óskarsson og Guð-
mundur Ólafsson og Gísli Þór Ólafs-
son syngur ljóð Geirlaugs og leikur
undir á gítar.
Geirlaugur les að endingu eigin
ljóð (af bandi). Tvær nýjustu bækur
Geirlaugs, Andljóð og önnur og Til-
mæli verða til sölu.
Geirlaugs-
minni
Geirlaugur
Magnússon