Morgunblaðið - 16.12.2005, Blaðsíða 66
66 FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Síðasta mynd sem ég sá í bíó var bandaríska myndin
Crash. Það var góð mynd og ég hef oft hugsað um hana síðan.
Hvaða plötu ertu að hlusta á?
Ég er að hlusta á Johnny Cash. Ég fæ aldrei leið á honum.
Uppáhaldsútvarpsstöðin?
Eru til fleiri útvarpsstöðvar en RÚV?
Besti sjónvarpsþátturinn?
Það eru til margar gerðir af sjónvarpsþáttum í heiminum.
Sumir eru mjög góðir, aðrir eru ágætir og enn aðrir eru afar
slakir. Ég sé mest af þeim fyrstnefndu og síðastnefndu.
Margir af þeim bestu eru breskir en þeir slökustu eru gjarn-
an frá Bandaríkjunum.
Gætirðu hugsað þér að taka þátt í raunveruleikaþætti í
sjónvarpi?
Nei.
G-strengur eða venjulegar nærbuxur?
Allra helst ekki!
Helstu kostir þínir?
Kærastan mín svarar neitandi.
En gallar?
Kærastan hristir höfuðið á ný (eftir reyndar fulllangan um-
hugsunarfrest!).
Besta líkamsræktin?
Ég hef alltaf verið hrifinn af kynlífi. Það hljómar reyndar
ekki eins frumlegt og til dæmis dvergakast en ég held mig við
það.
Hvaða ilmvatn notar þú?
Ég nota svolítið af ilmvatni kærustunnar minnar, sem smit-
ast á mig þegar ég kyssi hana. Hún notar Armani, en svo
heppilega vill til að það er líka ætlað karlmönnum.
Ertu með bloggsíðu?
Nei það er ég ekki.
Pantar þú þér vörur á netinu?
Ég keypti einu sinni flugmiða á netinu.
Flugvöllinn burt?
Látið flugvöllinn vera á sínum stað í allavega hálft ár í við-
bót. Í maí ætla ég nefnilega að heimsækja fallega landið ykk-
ar og vil mjög gjarnan að flugvélin hafi einhvern stað til að
lenda á. Ég geri mér þó grein fyrir að hér er trúlega á ferð-
inni umræða um hvort flugvöllurinn eigi að flytjast eitthvað
annað. Mínar áhyggjur snúast þó um eftirfarandi hluti: Mun
flugmönnum verða greint frá fyrirhuguðum breytingum?
Munu flugmenn vera vanir að lenda annars staðar en á gamla
flugvellinum eða neyðast þeir til að nauðlenda í Stafangri?
Þessar spurningar geta spillt nætursvefninum mínum.
Hvers viltu spyrja næsta aðalsmann?
Er það satt að Íslendingum þyki Danir upp til hópa tala
allt, allt of mikið og vera sífellt annaðhvort flissandi eða grát-
andi?
Hvað segir þú gott?
Ég segi allt fínt, en þú?
Hefðirðu ekki frekar viljað að Nellie Olson hefði orðið
blind en Mary Ingalls fyrst einhver þurfti að verða blindur?
(Spurningin er frá síðustu aðalskonu, Gerði Kristnýju.)
Ég skammast mín fyrir að viðurkenna að þessi nöfn segja
mér ekkert og ég get því ekki svarað spurningunni. Eru þetta
keppendur í víðavangsboxi fyrir konur? Eru þetta kannski
alls ekki kvenmansnöfn heldur nöfn hunda eða kinda? Eru
þetta kannski persónur úr íslenskri bókmenntasögu? Ég hef
ekki hugmynd og freistast til að fullyrða: Ég er fullkomlega
blindur á svarið við þessari spurningu.
Kanntu þjóðsönginn?
Ég get sungið þjóðsöngva fjöldamarga landa og er afar
hrifinn af þessu samspili tónlistar og söngs. Aftur á móti er
ég ekki gefinn fyrir þjóðernisstefnu af neinum toga.
Hvenær fórstu síðast til útlanda og hvert?
Ég var nýverið í New York en ferðin stóð frá 17. nóvember
til 22. Tilgangur ferðarinnar var að veita Emmy-verðlaun-
unum viðtöku fyrir Örninn en með í ferðinni var meðal ann-
arra íslenska leikkonan Elva Ósk. Við flugum yfir Ísland bæði
á leiðinni út og heim og sendum þangað okkar bestu kveðjur.
Ferðin var val heppnuð og veðrið var gott.
Uppáhaldsmaturinn?
Uppáhaldsmaturinn er allur matur sem eldaður er af ástúð
af fólki sem þykir vænt um mig. Það er sem betur fer nóg af
því.
Bragðbesti skyndibitinn?
Besti skyndibitinn er sá sem borðaður er í góðra vina hópi
og þá sérstaklega þegar vinirnir borga!
Besti barinn?
Sá bar sem maður sækir í félagsskap þess sem manni þykir
vænst um. Í New York settist ég til dæmis inn á bar með
kærustunni minni, sem var með í ferðinni. Þar fengum við
okkur drykk og horfðumst í augu meðan kvöldaði fyrir utan.
Þetta var góður bar!
Hvaða bók lastu síðast?
Þar til fyrir 10 mínútum var ég að lesa bókina Hundehoved
eftir danska rithöfundinn Morten Ramland en bókina á ég að
lesa upp í útvarpi á næstunni. Síðasta íslenska bókin sem ég
las var Kæledyrene (Gæludýrin) eftir Braga Ólafsson. Frá-
bær!
Hvaða leikrit sástu síðast?
Fyrir þremur dögum fór ég og sá kærustuna mína lesa upp
verk eftir hinn sænska Lukas Svensson sem byggist á vitn-
isburðum viðstaddra í óeirðunum í París á dögunum. Verkið
nefnist Le Weekend og var flutt í Mammut-leikhúsinu hér í
Danmörku.
En kvikmynd?
Íslenskur aðall | Jens Albinus
Hundahöfuð fyrir 10 mínútum
Aðalsmaður vikunnar er reyndar ekki
af íslensku bergi brotinn þó svo að
hann fari með hlutverk íslenskættaðs
manns í sjónvarpsþáttunum Erninum.
Hér er á ferðinni danski leikarinn Jens
Albinus, sem landsmenn þekkja
kannski frekar sem lögreglumanninn
Hallgrím Örn.
Jens Albinus fær að eigin sögn aldrei leið á Johnny Cash.
Sýnd kl. 5.20 B.i. 12
Sýnd kl. 5.20
eee
-M.M.J. Kvikmyndir.com
eee
-H.J. Mbl.
eee
-L.I.B.Topp5.is
ÞAÐ SEM KOM FYRIR EMILY ROSE
ER ÓHUGNANLEGRA EN NOKKUÐ
SEM ÞÚ GETUR ÍMYNDAÐ ÞÉR
FÓR BEINT Á TOPPINN Í
BANDARÍKJUNUM!
eee
S.K. DV
eee
Topp5.is
eee
S.V. Mbl.
Sýnd kl. 8 og 10.30 B.i. 16 ára
fór beint á toppinn í bandaríkjunum
Alls ekki fyrir viðkvæma
Áætlunin er margbrotnari, útfærslan
er flóknari og leikurinn skelfilegri en
nokkru sinni fyrr
Sýnd kl. 8 og 10.10 B.i. 16 ára
FRÁ LEIKSTJÓRA GROUND-
HOG DAY OG ANALYZE THIS
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20
Yndisleg jólamynd fyrir alla fjölskylduna
kl. 5.40, 8 og 10.20
Sýnd kl. 6 B.i. 16 ára
fór beint á toppinn
í bandaríkjunum
hversu langt myndir þú
ganga til að halda lífi
hversu langt myndir þú
ganga til að halda lífi
KOLSVARTUR HÚMOR!
MISSIÐ EKKI AF ÞESSARI!
FRÁ LEIKSTJÓRA GROUNDHOG DAY OG ANALYZE THIS
...ÞAÐ GERÐIST
Á AÐFANGA-
DAGSKVÖLD
HÆTTULEGIR
ÞJÓFAR Á
HÁLUM ÍS!
BAD SANTA
JÓLAMYND Í ANDA
eeee
Ó.Ö.H / DV
Sýnd kl. 6 og 8 B.i. 16 ára
Sýnd kl. 8 og 10
Yndisleg jólamynd
fyrir alla fjölskylduna
Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 16 ára
KOLSVARTUR HÚMOR!
MISSIÐ EKKI AF ÞESSARI!
...ÞAÐ GERÐIST
Á AÐFANGA-
DAGSKVÖLD
HÆTTULEGIR
ÞJÓFAR Á
HÁLUM ÍS!
BAD SANTA
JÓLAMYND Í ANDA
eeee
Ó.Ö.H / DV
Sími 564 0000Miðasala opnar kl. 15.30
Jólamyndin 2005
Upplifðu ástina og kærleikann
Hún er að fara að hitta foreldra hans
…hitta bróður hans
…og hitta jafnoka sinn
Jólamyndin 2005
Upplifðu ástina og kærleikann
Hún er að fara að hitta foreldra hans
…hitta bróður hans
…og hitta jafnoka sinn
Sara Jessica Parker
tilnefnd til Golden Globe
verðlaunanna
Sara Jessica Parker
tilnefnd til Golden Globe
verðlaunanna
kl. 10 - KRAFTSÝNING B.i. 16 ára