Morgunblaðið - 16.12.2005, Side 67
Jólamyndin 2005
Upplifðu ástina og kærleikann
Hún er að fara að hitta foreldra hans
…hitta bróður hans
…og hitta jafnoka sinn
Yndisleg jólamynd
fyrir alla fjölskylduna
400 KR Í BÍÓ*
* Gildir á allar sýningar merktar með rauðu
Sími 551 9000 Miðasala opnar kl. 17.15
Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 16ára
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 16 ára
BYGGÐ Á SÖNNUM ATBURÐUM
eee
S.K. DV
eee
Topp5.is
eee
S.V. Mbl.
KOLSVARTUR HÚMOR! MISSIÐ EKKI AF ÞESSARI!
FRÁ LEIKSTJÓRA GROUNDHOG DAY
OG ANALYZE THIS
BAD SANTA
JÓLAMYND Í ANDA
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 B.i. 16
Alls ekki fyrir
viðkvæma
hversu langt myndir þú
ganga til að halda lífi
fór beint á toppinn í bandaríkjunum
eeee
Ó.Ö.H / DV
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20
hversu langt myndir þú ganga til að
halda lífi?
Áætlunin er margbrotnari, útfærslan er flóknari
og leikurinn skelfilegri en nokkru sinni fyrr
Alls ekki fyrir viðkvæma
553 2075Bara lúxus ☎
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10 - POWER B.i. 12 ára
FRÁ ÓSKARSVERÐLAUNALEIKSTJÓRANUM PETER JACKSON
fór beint á toppinn í bandaríkjunum
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10 STRANGLEGA B.i. 16 ára
Sara Jessica Parker
tilnefnd til Golden Globe
verðlaunanna
„King Kong er án efa ein
magnaðasta kvikmyn-
daupplifun ársins.“
Topp5.is / V.J.V.
E.P.Ó. / kvikmyndir.com
****
****
S.U.S. / XFM 91,9
****
V.J.V. / topp5.is
****
S.V. / Mbl.
***
DV
****
A.B. / Blaðið
POWERSÝNING
KL. 10
Á STÆRSTA thx
TJALDI LANDSINS
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 2005 67
SÖNGKONAN Eivör Pálsdóttir
kemur fram á þrennum jóla-
tónleikum Langholtskirkju um
helgina. Jólatónleikarnir bera yf-
irskriftina Jólasöngvar en tónleik-
arnir hafa verið haldnir árlega frá
árinu 1978. Auk Eivarar koma
fram einsöngvararnir Garðar Thor
Cortes og Ólöf Kolbrún Harð-
ardóttir. Hljóðfæraleikarar verða
Hallfríður Ólafsdóttir og Anna
Kristín Einarsdóttir, flautuleik-
arar, Monika Abendroth, hörpu-
leikari, Jón Sigurðsson á kontra-
bassa, Guðmundur Sigurðsson á
orgel, Kjartan Valdemarsson á pí-
anó og Pétur Grétarsson á tromm-
ur. Stjórnandi er Jón Stefánsson.
Þetta er í fyrsta sinn sem Eivör
kemur fram á þessum árlegu jóla-
tónleikum en hún flytur lagið
„Jólanótt“. „Lagið fjallar um boð-
skap jólanna,“ sagði Eivör í sam-
tali við Morgunblaðið en hún
kveðst sjálf vera mikið jólabarn og
hlakka mikið til hátíðarinnar.
Það er talsverðra breytinga að
vænta hjá Eivöru en hún flyst til
Danmerkur strax í næstu viku.
„Ég ætla að prófa að búa þar í
eitt ár til að byrja með,“ segir Ei-
vör en hluti af ástæðu flutning-
anna er sú að hún hefur mikið ver-
ið að spila í Skandinavíu og á
meginlandi Evrópu að undanförnu
og á því verður ekkert lát á næst-
unni.
„Tónleikarnir um helgina eru
kannski að vissu leyti kveðju-
tónleikar,“ segir Eivör.
Hún segist samt vonast til að
geta komist sem mest til Íslands á
þessum tíma og segist ekki tilbúin
að flytjast alfarin héðan.
Tónlist | Söngkonan Eivör Pálsdóttir
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Eivör Pálsdóttir á æfingu í Langholtskirkju.
Flyst til Danmerkur
Jólasöngvar Langholtskirkju fara
fram í kvöld klukkan 23, laugardag
klukkan 20 og 23 og á sunnudag
klukkan 20. Miðasala fer fram á
midi.is.
TÓNLISTARMAÐURINN Mugison var staddur á
Litla-Hrauni í gær þegar Morgunblaðið náði í skottið á
honum. Þar var hann að gera sig tilbúinn til að stíga á
svið með reggí-hljómsveitinni Hjálmum en Mugison mun
endurtaka þann leik í kvöld á NASA þar sem glimmer-
og glamúrsveitin Trabant mun einnig skerast í leikinn.
Mugison segist hafa fengið hugmyndina að þessum
bræðingi eftir að hann uppgötvaði að hann þyrfti að
standa við yfirlýsingu sem hann gaf út þess efnis að hann
væri hættur að koma fram einn.
„Þetta hentar ágætlega enda eru þessar sveitir báðar í
miklu uppáhaldi hjá mér. Þær munu leika mín lög með
mér en eftir þeirra eigin nefi, og svo leik ég eitthvað með
þeim í þeirra eigin lögum.“
Mugison viðurkennir þó að það hafi ekki farið mikið
fyrir stífum æfingum með hvorri sveitinni fyrir sig en þó
hafi eitt eða tvö rennsli náðst á undanförnum vikum. Þar
á meðal eitt þegar hann var leynigestur á tónleikum
Trabant í MH.
„Það var stórkostlega gaman en ég er ennþá að ná af
mér glimmerinu og augnskugganum. Satt að segja líkist
ég mjög mikið þreytulegri dragdrottningu. Á meðan það
er eins og að fara upp í sumarbústað og setjast fyrir
framan arineld, að spila með Hjálmum, er það líkara að
hellt sé yfir þig úr fötu fullri af vatni, að spila með Trab-
ant.“
Nú á dögunum kom út hljómdiskurinn Little Trip sem
inniheldur tónlist Mugison sem hann samdi við nýjustu
mynd Baltasars Kormáks A Little Trip to Heaven. Eins
og allir Tom Waits áhugamenn vita er titill myndarinnar
fenginn úr samnefndu lagi Tom Waits af plötunni Clos-
ing Time. Mugison segir að lagið sé og hafi verið uppá-
haldslag Baltasars í fjölmörg ár og í fyrstu hafi upp-
runalega lagið átt að hljóma í myndinni.
„Það var búið að kaupa réttinn að laginu en eftir að ég
var búinn að semja tónlistina fyrir myndina passaði upp-
runalega lagið ekki inní. Það varð því úr að ég gerði mína
eigin útgáfu af laginu og hún passaði betur inn í heild-
armyndina. Þetta var mjög skemmtileg vinna og kannski
skemmtilegast að þurfa ekki að semja texta við lögin.“
Mugison segist á hinn bóginn vera byrjaður að vinna
að nýju efni. „Ég hef sagt að næsta plata verði hljóm-
sveitarlegri en ég á líklega eftir að vinna hana eins og
hinar. Það á samt allt eftir að koma í ljós. Ég stefni á að
koma henni út í byrjun næsta sumars.“
Mugison,
Hjálmar og
Trabant
Tónleikarnir í NASA hefjast upp úr miðnætti og að-
gangseyrir er 2.000 krónur. Forsala aðgöngumiða fer
fram í 12 Tónum.
www.mugison.com