Morgunblaðið - 18.12.2005, Qupperneq 20
20 | 18.12.2005
Þ etta verður í fyrsta skipti í mörg ár sem fjölskyldan verður öll saman. Eftirað foreldrar mínir skildu höfum við haldið jól hvert í sínu lagi, en nú ætlaallir að hittast heima hjá eldri systur minni; mamma, pabbi og föðurafi.
Föðuramma mín dó í vor og því ákváðum við að hafa þetta svona, það er svo stutt
síðan gamla konan lést. Það verður því ágætlega fjölmennt og góðmennt á að-
fangadag. Við fórum saman út að borða í byrjun desember og drógum um hver
ætti að koma með hvað. Aðalréttirnir verða hamborgarhryggur og drottning-
arskinka. Eftirrétturinn verður í höndum okkar Evu (Daggar Júlíusdóttur) og á að
koma á óvart. En á undan höfum við að sjálfsögðu grjónagraut og möndlugjöf, sem
er hefð fyrir heima hjá mér. Afi ætlar að lesa á pakkana, eins og hann gerði alltaf
hér áður fyrr, og tilhlökkunarefni að upplifa það á ný. Á jóladag ætlum við að reyna
að vera þrjú saman, við hjónin og Maren Karitas. Ég hef haft mikið fyrir stafni að
undanförnu og konan verið í próflestri, sem hefur bitnað á þeirri stuttu. Því
stefnum við að því að vera á náttfötunum frameftir degi, horfa á jólamyndir og úða
í okkur góðgæti. Maren Karitas varð tveggja ára 13. desember og við ætlum að
halda upp á afmælið hennar á milli jóla og nýárs og tökum það því rólega yfir jólin
sjálf. Á jóladag verður líklega lamb eða naut á borðum, þar sem hvorugt okkar er
mikið í hangikjötinu. Á gamlárskvöld verða mamma, pabbi, föðurbróðir minn og
afi í mat hjá okkur. Þá verður hamborgarhryggur, við erum miklir aðdáendur ham-
borgarhryggjar. Maður verður að hafa eitthvað sem öllum líkar. Það er frekar að
við bjóðum upp á eitthvað óvænt í forrétt eða eftirrétt, segir Jón Sigurðsson um
jólahald sitt og fjölskyldunnar.
Jón Sigurðsson – Til þín
Jón Sig. söng sig inn í hug og hjörtu fólks í fyrstu keppni Idol – Stjörnuleitar og er enn
að. „Til þín“ er önnur sólóplata Jóns, en sú fyrri seldist í yfir 5 þúsund eintökum. Hér
flytur Jón lög eins og Ég leitaði blárra blóma, Eitthvað undarlegt og Vetrarnótt svo
eitthvað sé nefnt. Útgefandi: Sena.
L
jó
sm
yn
d:
B
ry
nj
ar
G
au
ti
JÓN SIGURÐSSON OG FJÖLSKYLDA
Allir saman á aðfangadag
Jón, Eva Dögg og
Maren Karitas,
tveggja ára.
JÓLASIÐIR