Morgunblaðið - 18.12.2005, Síða 34
34 | 18.12.2005
T
inna Gunnarsdóttir iðnhönnuður býr ásamt manni sínum,
Sigtryggi Bjarna Baldvinssyni myndlistarmanni, og tveimur
börnum þeirra í sögufrægu húsi við Miklatún. Húsið hefur
verið kallað Englaborg en það var byggt af Jóni Engilberts
listmálara (1908–1972) sem notaði það bæði sem heimili og
vinnustofu. Englaborgin er afar bjart og stílhreint hús með
mikilli lofthæð, sannarlega viðeigandi rammi fyrir hönn-
uðinn Tinnu og myndlistarmanninn Sigtrygg, enda hafa þau bæði haft vinnustofur
sínar í húsinu síðan þau festu kaup á því fyrir sjö árum.
Tinna hlaut nýverið Hönnunarverðlaunin 2005 en þau voru veitt í fyrsta sinn á
svonefndum Hönnunardögum nú í nóvember og nam verðlaunaféð fimm hundruð
þúsund krónum. Sagði í rökstuðningi dómnefndar að Tinna hlyti verðlaunin „fyrir
nýstárlega hönnun á gangstéttarhellum úr áli, og framleiðslu á gúmmídúkum og
gólfmottum þar sem frumleg notkun efnis og listræn úrvinnsla í munsturgerð fer
saman“.
Verk sín hefur Tinna sýnt víða erlendis og framundan er sýning í Listasafni ASÍ í
janúar. Í byrjun febrúar tekur hún síðan þátt í sýningu í Stokkhólmi og í apríl fer
hún til Mílanó. Hún segir næg verkefni framundan; en auk alls þessa kennir hún
vöruhönnun í Myndlistarskólanum í Reykjavík og Listaháskóla Íslands.
Erfitt að koma heim | Faðir Tinnu, Gunnar Magnússon, er innanhússarkitekt og
húsgagnahönnuður og hún segist því hafa fundið töluvert sterka tengingu við
myndlist og hönnun sem barn og unglingur.
„Lengi vel var ég þó að velta því fyrir mér hvort ég ætti kannski að fara allt aðra
leið, hefja nám í verkfræði eða einhverju þess háttar,“ segir hún.
L
jó
sm
yn
d:
B
ry
nj
ar
G
au
ti
LYKILATRIÐI AÐ VERA
FRJÁLS Í HUGSUN
Tinna Gunnarsdóttir iðnhönnuður
hefur margt á prjónunum
HÖNNUN | SIGRÚN ERLA EGILSDÓTTIR
Tinna í vinnustofu sinni
í Englaborg.