Fréttablaðið - 26.08.2002, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 26.08.2002, Blaðsíða 19
MÁNUDAGUR 26. ágúst 2002 ÚTVARP Tveir útvarpsmenn í Bandaríkjunum sem saman voru með þáttinn „The Opie and Ant- hony Show“ hafa verið reknir eft- ir að hafa hvatt hlustendur sína til ósiðlegs athæfis. Mennirnir hvöt- tu hlustendur til þess að hafa mök á sem undarlegustu stöðum. Þeir gáfu svo stig eftir því sem stað- irnir urðu undarlegri. Parið sem vann skellti sér að sjálfsögðu á helgasta staðinn á Manhattan eyjunni og höfðu mök í St. Patrick’s kirkjunni. Athöfn þeirra var lýst í beinni útsendingu af einum útvarpsmanninum sem fylgdist með í kirkjunni. Athæfið fór svo fyrir brjóstið á stórum hópi hlustenda að mörg þúsund kvartanir bárust stöðinni. Kaþólska kirkjan krafðist þess að leyfi útvarpsstöðvarinnar yrði afturkallað. Yfirmenn útvarp- stöðvarinnar, WNEW-FM, þar sem útvarpsmennirnir unnu sáu sér því ekki annað fært en að segja útvarpsmönnunum upp. Þætti þeirra var útvarpað um öll Banda- ríkin. Útvarpsráð ríkisins rann- sakar nú málið. Parið sem sagðist hafa haft mök í kirkjunni hefur verið kært fyrir ósiðlegt athæfi á almanna- færi. Þau fullyrða nú að þau hafi aðeins þóst hafa mök. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem útvarpsmennirnir eru reknir fyrir uppátæki sín. Árið 1998 voru þeir reknir af annarri stöð fyrir það að halda því fram að borgarstjórinn í Boston hefði lát- ist í bílsslysi. Síðar sögðu þeir að um aprílgabb hefði verið að ræða.  THE OPIE AND ANTHONY SHOW Þessir menn brosa líklegast ekki svo breitt í dag. Þekktir útvarpsmenn reknir í Bandaríkjunum: Lýstu samförum í kirkju í beinni TÍSKA Á INDLANDI Hér sést fatahönnuðurinn Azeem Khan ásamt indverskum fyrirsætum eftir velheppnaða tískusýningu hans í Bombay á dögunum. Hann þykir halda í hefðina og er vel virtur þar í landi. F A S T E I G N A V E I S L A Laufás, Kringlan 4-12, 9. hæð stóri turn. Sími 533 1111, fax 533 1115. Magnús Axelssonn lgf. GILJASEL Glæsilegt ca. 400 fm. vel staðett einbýli innst í lokuðum botnlanga. Húsið er vel skipulagt. Hægt er að hafa aukaíbúð í kjallara, jafnvel tvær. Tvöfaldur góður bílskúr. Möguleiki að taka minni eign uppí. V. 29,5 m. 1394 LYKKJA Vorum að fá í einkasölu býli á Kjalanesi ná- lægt byggðakjarna. Húsið er um 200 fm mjög mikið endurnýjað á fallegan og skemtilegan máta. Annað 180 fm hús fylgir, sem er verið að endurbyggja. Á jörðinni sem er 1,5 ha er aðstaða er fyrir hesta í húsi. Draumaeign. 1273 LITLABÆJARVÖR Fallegt 200 fm. einbýli á Álftanesi m/innb. bíl- sk. Forstofa m/flísum 4 svefnherb. þvottah. og tvö baðherb. Stofa og borðst. m/parketi, hátt til lofts. Stór verönd m/skjólveggjum og heitum potti. Kirsuberja innr. á eldhúsi og baði. Glæsilegt útsýni. V. 21,9 m. 1066 HÁKOTSVÖR 190 fm. einbýli ásamt 67,5 fm. bílskúr með fallegu útsýni. Húsið skiptst í 5 svefnherb. baðh. þvottah. eldh. m/góðri eikarinnr. stofu og sólstofu. Góð verönd m/heitum potti. Flís- ar á anddyri, parket á stofu og hjónaherb. 3 herb.m/dúk. V. 19,8 m. 1352 NJÁLSGATA Stórlæsileg hæð 105,5 fm og kjallari 53,1 fm alls 158,6 fm. með sérinngangi í báðar íbúðir og glæsilegum garði. Komið er inn á andyri með steinflísum á gólfi fallegir bitar í lofti. Stofa með steinflísum á gólfi, fallegum arni, gluggum á tvo vegu og er einn gluggi hlaðinn með glerflísum, einn veggur er hleðsluveggur í lofti eru trébitar. Eldhús með steinflísum á gólfi, nýrri fallegri innréttingu, stálplötu á milli skápa, glugga og stórum borðkrók. V. 19,5 m. 1250 TJARNARSTÍGUR Fallegt og bjart 180 fm parhús á einni hæð með stórum bílskúr á Seltjarnarnesi. Eldhús með fallegri innréttingu parket og teppi á gólf- um, viðarklæddu lofti. Eign sem vert er að skoða. V. 20,9 m. 1351 Skrifstofuhúsnæði ca. 220 fm. Allt nýlega inn- réttað á vandaðan hátt. Skiptist í tvö stór herb. þrjú minni herbergi, móttöku, kaffistofu og opið rými. Leiga er um 200.000 - per mán- uð. 1150 LYNGBREKKA Vorum að fá í einkasölu góða 106 fm. sérhæð í Kópavogi. Rúmgóð íbúð með góðu skápa- plássi, parketi og fallegum innréttingum. V. 13,7 m. 1379 DYNSALIR Glæsileg 129,2 fm. íbúð með sér inngangi. Rúmgóð forsofa með fallegum skáp. Eldhús með stórri og fallegri innréttingu, Stór og björt stofa með parketi og útgengi á suðurverönd. Glæsilegt baðherberi með flísum á gólfi og á veggjum, baðkari og sturtu og innréttingu. Hjónaherbergi með parketi á gólfi og stórum fallegum skáp. Barnaherbergi með parketi á gólfi og skáp. Þvottaherbergi með skolvaska. Sér geymsla. Sér garður og ekki verður byggt nálægt þessu húsi. Örstutt í skóla, sundlaug og verslun. V. 17,9 m. 1400 Stálgrindarskemma á kjalarnesi samtals 1400 fm. Getur selst í minni einingum allt frá 160 fm. og upp í 364 fm. Sanngjarnt verð. Ath. skipti. V. 60 m. 1151 KARFAVOGUR Skemtilegar tvær íbúðir sem gert hefur verið að einni. Staðsetningin er frábær og allur frá- gangur vandaður. Komið er inn á miðhæð í íbúð sem er tvær stofur, eldhús, lítið salerni, hol ofl. Hringstigi er niður á neðri hæð þar sem eru tvö herbergi sjónvarpsherbergi, bað- herbergi, geymslur og inngangur í þvottahús og geymslur. V. 12,9 m. 1349 KÓRSALIR GLÆSILEG 125,7 fm. ÍBÚÐ Í NÝJU LYFTU- HÚSI MEÐ BÍLAGEYMSLU: Fullbúin íbúð laus fljótlega. Forstofa með flísum á gólfi og skáp. Rúmgóð stofa með útgengi út á suðvestur- svalir. Eldhús með fallegri innréttingu, borð- krók og plássi fyrir uppþvottavél. Hjónaher- bergi með fallegum skáp. Tvö herbergi með skápum. Gott sjónvarpshol. Parket á öllum gólfum. Baðherbergi með flísum á, baðkari, sturtuklefa og innréttingu. Mjög góð eign. 1382 FÆRANLEGT HÚS Timburhús sem notað var undir skrifstofur. Er 120 fm. og tilbúið til að færa strax. V. Tilboð 1391 KÓRSALIR Glæsilegar 4 herbergja og penthous-íbúðir með stórum svölum og meiriháttar útsýni. Fyrir þá vandlátu. v.16,9-22 m. 1401 VEGHÚS Mjög góð 93,2 fm. íbúð með góðum bílskúr. Stórar suðursvalir, flísar og parket á gólfum. Efri hæð með sérinngangi stórt herb. gætu verið tvö og snyrting gæti hentað til útleigu. Hús og lóð í góðu standi V. 13,2 m. 1354 VESTURBERG Góð 3ja herb.íbúð í lyftublokk. Forstofa m/eik á gólfi, parketlagður gangur. Eldhús m/flísum og ágætri innr. Stofa m/ parketi gengið út á góðar austursvalir. Baðherb. flísl. hólf í gólf, baðkar m/sturtu. Stærra svefnherb. m/parketi og skápum. Sér geymsla í kjallara. Sameiginl. þvottah. með vélum á hæð. V. 9,5 m. 1377 ÁSVALLAGATA Vorum að fá í sölu 3ja herbergja íbúð í vestur- bænum. Eldhús er með hvítri innréttingu með nýlegum tækjum. Parket og dúkur er á gólf- um. Rúmgott 15 fm. sér herbergi er í kjallara ásamt þvottahúsi, þurrkherbergi og geymslu. Húsið allt ný tekið í gegn. V. 11,2 m. 1350 BARÐAVOGUR Þriggja herbergja íbúð á miðhæð með bílskúr. Íbúðin er öll ný standsett með parketi á gólf- um. Góð eign á góðum stað. V. 13,2 m. 1072 ÞÓRUFELL Vorum að fá í einkasölu mjög góða 2ja her- bergja 57 fm. íbúð með stórk. útsýni yfir alla borgina. Nýlegar eldhúsinnréttingar, stórar svalir sem gengið er út á úr stofu skápur í holi og stór skápur í svefnherbergi. Fallegur og vel hirtur stigagangur. Góð fyrsta eign. V. 7,2 m. 1259 TORFUFELL Falleg 2ja herbergja íbúð á 3ju hæð í fjölbýlis- húsi.. Hol með dúk á gólfi, nýlegur skápur. Baðherbergi með flísalagðri sturtu. Gott eld- hús með nýlegri innréttingu. Rúmgott her- bergi með dúk á gólfi, nýlegur skápur. Rúm- góð stofa gengið út á svalir. V. 7,5 m. 1387 BERGSTAÐARSTRÆTI Tvær tveggja herbergja íbúðir á besta stað í miðbænum. Íbúðirnar eru ný innréttaðar og eru mjög góðar til að leigja eða búa í annari og leigja hina. Leigutekjur eru nú um 120 þús. á mánuði. ákv. 7,5 m. V. 10 m. 1157 KAPLASKJÓLSVEGUR Vorum að fá í einkasölu góða 2ja herbergja íbúð á einum besta stað bæjarins. Íbúðin er björt, rúmgóð og vel skipulögð. Innrétt. eru ágætar og dúkur á gólfum. Húsið er í góðu ásigkomulagi og aðkoman góð. V. 8,2 m. 1399 MARBAKKABRAUT Vorum að fá í sölu 132 fm parhús á þessum frábæra stað. Húsið er með andyri, baðher- bergi, þvottarhúsi, eldhúsi stórri stofu sem gefur möguleika á að skipta í herbergi og stofu og geymslu á neðri hæð. Á efri hæð eru þrjú svefnherbergi, baðherbegi og sjónvrps- hol. Húsið afhendist fokhelt. afhendist V. 14,2 m. 1353 BLÁSALIR Erum með í sölu vandaðar og glæsilegar 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðir í 12 hæða blokk. Útsýni er vægt sagt stórkostlegt úr öllum íbúðum yfir Suðurnes, Reykjavík og víðar. Íbúðunum er skilað fullbúnum en án gólfefna, í öllum herbergjum eru sjónvarps og síma- tenglar og sér hljóðeinangrun. Öll sameign verður fullbúin og lóð fullbúin með tveimur leiksvæðum. Upphitað bílskýli er í kjallara sem selst sér. Byggingaraðili tekur öll afföll af húsbréfum, lánar allt að 85%, greiðslur úr sölu mæta kaupum og !00 þúsund kr. gjafa- bréf frá Húsasmiðjunni fylgir ef staðfest er fyr- ir 1. sept. V. 12,5-19,3 m.V. 15,9 m. 1228 Í smíðum 2 herbergja 3 herbergja Atvinnuhúsnæði Hæðir Rað-parhús Einbýli KIRKJUBRAUT NJARÐVÍK Glæslegt 144 fm. einbýli m/frábærum garði og heitum potti. Glæsilegt eldhús, 4 svefnherb. á svefnh.gangi. tvö baðh. þvottahús m/útgengi á nýja verönd, eina af tveimur. Glæsileg lóð afgirt. Leyfi fyrir að byggja 50 fm. bílskúr. V. 13,9 m. 1374 LÓMASALIR 6-8 Nýjar glæsilegar og vandaðar 3ja her- bergja 103,4 fm íbúðir verð 14,9 m., og 4ra herbergja 122 fm. íbúðir verð 16,5 m. með sérinngangi af svölum í nýju 4ra hæða 24 íbúða lyftuhúsi. Eigninni fylgir stæði í upp- hitaðri bílageymslu. Byggingaraðili tekur öll afföll af húsbréfum, lánar allt að 85%, greiðslur úr sölu mæta kaupum og !00 þús- und kr. gjafabréf frá Húsasmiðjunni fylgir ef staðfest er fyrir 1. sept. V. 14,9-16,5 m. 1304 Vantar allar tegundir eigna á skrá

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.