Fréttablaðið - 19.09.2002, Side 8
LÆKNINGAR „Við höfum alls ekki á
móti því þó aðrar stéttir sem hafa
annars konar bakgrunn en við og
tengjast heilsu, hafi leyfi til að
stunda sína vinnu. Hins vegar
viljum við að það sé gert á réttum
forsendum,“ segir Reynir Tómas
Geirsson forseti læknadeildar og
vísar þá í viðtal við Birnu Imsland
í Fréttablaðinu í
gær þar sem hún
segir frá að eftir
nám sitt muni hún
ráða við almennar
heimilislækningar
á breiðu sviði.
Reynir Tómas vill
meina að læknar
taki hug, tilfinn-
ingar og orsakir
inn í myndina þeg-
ar þeir fáist við sjúkdóma. Hann
bendir einnig á að orðið læknir sé
lögverndað starfsheiti sem ekki
sé heimilt að nota nema að baki
því liggi viðurkennt nám á því
sviði. „Það er ekki hægt að bera
saman nám sem tekið er í fjar-
námi í fjögur ár saman við sam-
tals tólf ára nám heimilislæknis.“
Haukur Valdimarsson aðstoð-
arlandlæknir gerir einnig athuga-
semd við viðtalið við Birnu og
segir að ef hómópatar ætli sér að
fara að stunda almennar heimilis-
lækningar þá myndi hann halda
að um blekkingar væri að ræða.
„Við getum alls ekki lagt blessun
okkar yfir það þótt að á hinn bóg-
inn séum við alls ekki á móti
hómópötum sem slíkum. Þeir
verði að vinna á sínu sviði og ekki
rétt að blanda því saman við vinnu
almennra lækna. „Það er ekki rétt
ef einhver segist geta gert það
sem læknir gerir þá er verið að
brjóta lög með því. Við köllum það
að villa á sér heimildir.“ Haukur
segir að lengi hafi verið notað orð-
ið smáskammtalækningar og við
það sé ekkert að athuga.
Hómópatar ættu alls ekki að segj-
ast geta stundað lækningar heldur
nota sitt rétta starfsheiti.
Birna Imsland segist líta svo á
að hennar hlutverk sé á breiðu
sviði og því ekki ólíkt heimilis-
lækningum. „Ég er ekki að segja
að ég sé læknir en hlutverkið er
svipað og heimilislækningar
vegna þess að við meðhöndlum
svo fjölbreytt vandamál. Nálgun-
in er hins vegar allt önnur og að-
ferðafræðin ekki sú sama enda er
nám í hómópatíu og nám í lækn-
ingum gjörólíkt. Við meðhöndlum
manneskjuna sem eina heild, lík-
amlega huglægt og tilfinninga-
lega.“ segir Birna.
19. september 2002 FIMMTUDAGUR
Hómópatar
ættu alls ekki
að segjast
geta stundað
lækningar
heldur nota
sitt rétta
starfsheiti.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
Ka
na
rí
sól og
sumar
allt
ári›
fyrir 4ra manna fjölskyldu
í 19 daga 30. nóvember
á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn 2ja-11 ára
Innifalið: Flug, gisting á Aloe, ferðir til og frá
flugvelli erlendis og flugvallarskattar.
á mann ef 2 fullorðnir ferðast saman
Ver›dæmi
Flugsæti
45.140 kr.
69.630 kr.
staðgr.
staðgr.
staðgr.
44.930 kr.
á mann með flugvallarsköttum.
SATTAHIP, AP Uppreisnarsamtök ta-
míla á Sri Lanka segjast ekki leng-
ur krefjast sjálfstæðs ríkis heldur
láti sér nægja sjálfstjórn Tamíla á
norður- og austurhluta eyjunnar.
„Það hefur enga þýðingu að
segja að samtökin séu að berjast
fyrir sjálfstæði,“ sagði Anton
Balasingham, aðalsamningamað-
ur Tamílsku tígranna, eins og upp-
reisnarsamtökin nefna sig. Yfir-
lýsing þeirra þykir auka mjög lík-
urnar á því að brátt muni takast
að semja um frið á eyjunni.
Uppreisnarmennirnir vilja þó
ekki leggja niður vopn fyrr en
friðarsamkomulag hefur verið
undirritað. Ólíklegt er að það tak-
ist fyrr en í fyrsta lagi á næsta
ári. Stjórn Sri Lanka fagnar engu
að síður þessari afstöðu þeirra.
Fyrsta áfanga friðarviðræðna
milli tamíla og stjórnarinnar lauk
í gær. Norðmenn hafa haft milli-
göngu um að koma þessum friðar-
viðræðum á. Þær eru haldnar í
Taílandi.
Tamílsku tígrarnir hafa barist
fyrir stofnun sjálfstæðs ríkis í
tæpa tvo áratugi. Borgarastyrj-
öldin hefur kostað nærri 65 þús-
und manns lífið.
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja-
víkur hefur nú tekið til meðferðar
kröfu Gunnars Þórs Jónssonar
bæklunarskurðlæknis á hendur
Háskóla Íslands vegna kröfu um
greiðslu um 71 milljónar króna
vegna vangoldinna launa og launa
fram til ársins 2012 auk miska-
bóta.
Gunnar hefur einnig gert fjár-
kröfu á Landspítalann vegna
starfsmissis þar í kjölfar upp-
sagnarinnar hjá Háskólanum.
Fjárkröfur Gunnars á Landspítal-
ann nema samtals um 4 milljónum
króna.
Gunnari Þór hefur ekki verið
heimilað að snúa aftur til prófess-
ors- og yfirlæknisstöðu sinnar
þrátt fyrir að staðfest sé að ólög-
mætt hafi verið að víkja honum
frá.
Gunnari Þór var skipaður pró-
fessor í slysalækningum við Há-
skóla Íslands árið 1984. Starfinu
fylgdi yfirlæknisstaða á Borgar-
spítalanum. Honum var sagt upp
sem yfirlækni í júlí 1999. Hæsti-
réttur úrskurðaði uppsögnina
ólöglega í maí árið 2000. Háskóli
Íslands veitti Gunnari Þór lausn
um stundarsakir frá prófessors-
stöðunni í desember 1999. Nefnd
um réttindi og skyldur starfs-
manna ríkisins komst að þeirri
endanlegu niðurstöðu að ekki hafi
verið rétt að veita honum lausn
frá störfum.
Hætt hefur verið við fyrirhug-aða sölu á bandaríska súkkl-
aðiframleiðandanum „Hersey
Foods“, sem talinn er um 1050
milljarða króna virði. Mikil óá-
nægja hafði verið með fyrirhug-
aða sölu fyrirtækisins í Banda-
ríkjunum.
Frakkar ætla að efna til átaksgegn umferðaróhöppum í
landinu. Rúmlega 8000 manns
deyja og 26 þúsund manns slasast
á ári hverju af völdum umferðar-
slysa í Frakklandi. Ástandið er
það alvarlegt að slys á vegum úti
eru aðal dauðaorsök fólks undir
30 ára aldri.
AÐ LOKNUM SAMNINGAFUNDI
G.L. Peiris, fulltrúi stjórnarinnar á Sri Lanka,
og Anton Balasingham, aðalsamningamað-
ur tamíla, koma af samningafundi. Á milli
þeirra er Vidar Helgeson, aðstoðarutanrík-
isráðherra Noregs, sem hefur haft milli-
göngu um viðræðurnar.
Friður í sjónmáli á Sri Lanka:
Tamílar falla frá sjálfstæðiskröfu
AP
/A
PI
C
H
AR
T
W
EE
R
AW
O
N
G
HÁSKÓLI ÍSLANDS
Gunnar Þór Jónsson bæklunarlæknir vill að Háskólinn og Landspítalinn efni skyldur sínar.
Mál bæklunarprófessorsins tekið fyrir í héraðsdómi:
Krefst 75 milljóna frá Háskóla og Landspítala
HÓMÓPATAR SINNA
SMÁSKAMMTALÆKNINGUM
Nota meðal annars afurðir sem unnar eru úr
íslenskum jurtum við meðhöndlun sjúkdóma.
Aðeins læknar geta
stundað lækningar
Aðstoðarlandlæknir er ekki sáttur við að hómópatar skuli tala um að sinna lækningum. Þær
eru lögverndað starfsheiti og aðeins læknar geta nefnt sig það. Birna Imsland segir nálgun
hómópatans vera aðra og meðhöndlunina aðra.
REYNIR TÓMAS
GEIRSSON
Læknar taka tilfinningar
inn í myndina þegar þeir
fást við sjúkdóma
BIRNA IMSLAND
Segist ráða við almennar
heimilislækningar.
HAUKUR
VALDIMARSSON
Hómópatar eiga að vinna
á sínu sviði sem sé annað
en svið lækna.