Fréttablaðið - 19.09.2002, Síða 12
12 19. september 2002 FIMMTUDAGURBLAK
ÓSÁTTUR
Boris Yeltsin, fyrrverandi forseti Rússlands,
var ekki ánægður með árangur rússneska
kvennalandsliðsins í blaki þegar það tap-
aði fyrir því bandaríska í heimsmeistara-
mótinu um síðustu helgi. Ítalir fögnuðu
heimsmeistaratitlinum.
FÓTBOLTI Ísland stendur í stað á
styrkleikalista Alþjóðaknatt-
spyrnusambandsins sem kynntur
var í gær. Ísland er í 54. sæti list-
ans líkt og í síðasta mánuði. Liðið
hefur spilað tvo leiki á þessum
tíma, sigraði Andorra en tapaði
fyrir Ungverjum. Brasilíumenn
eru sem fyrr efstir á listanum en
Frakkland og Spánn eru jöfn í
öðru sæti. Þjóðverjar, sem leika
með Íslendingum í riðli í und-
ankeppni Evrópumótsins, eru í
fjórða sæti og fara upp um eitt.
Argentína fellur um þrjú sæti, úr
öðru í það fimmta. Tyrkland skýst
í fyrsta skipti inn á topp tíu list-
ann og er í sjöunda sæti.
Andstæðingar Íslands í und-
ankeppni Evrópumótsins þokast
ýmist upp eða niður listann. Skot-
ar falla niður um þrjú sæti, niður
í 63. sæti. Litháar falla einnig nið-
ur um þrjú sæti úr því 98., í það
101. Frændur okkar Færeyingar
fara hins vegar upp um fjögur
sæti eftir góðan leik gegn Skotum
á Tóftum-vellinum í Þórshöfn.
Færeyingar eru sem stendur í
119. sæti.
Styrkleikalisti FIFA:
Ísland stendur í stað
STYRKLEIKALISTI FIFA
Lið Var
1. Brasilía 1
2. Frakkland 4
2. Spánn 3
4. Þýskaland 5
5. Argentína 2
6. Mexikó 6
7. Tyrkland 11
8. Bandaríkin 9
9. England 7
10. Ítalía 9
STANDA Í STAÐ
Ísland vann Andorra en tapaði fyrir Ungverjum. Liðið stendur því í stað á
styrkleikalista FIFA.
KNATTSPYRNA Úrslit ráðast á Ís-
landsmóti karla í knattspyrnu á
laugardag, Símadeildinni. Augu
flestra beinast að tveimur leikj-
um, viðureign ÍA og Fylkis sem
fram fer á Akranesi og leik KR og
Þórs í Frostaskjólinu. Fylkir og
KR eiga bæði möguleika á titlin-
um og Knattspyrnusambandi Ís-
lands er því nokkur vandi á hönd-
um. Sambandið afhendir Íslands-
meisturunum bikarinn í leikslok
en nokkuð hefur vafist fyrir
mönnum hvar geyma á bikarinn.
„Við verðum með bikarinn uppi
á Skaga. Hann verður að vera á
öðrum hvorum staðnum. Við höf-
um hins vegar gert ráðstafanir til
að koma bikarnum í Vesturbæinn,
gerist þess þörf. Það verður þyrla
til taks,“ sagði Geir Þorsteinsson,
framkvæmdastjóri KSÍ.
Möguleikar KR-inga eru vissu-
lega fyrir hendi. Einn þeirra er að
KR sigri Þór og Fylkir tapi gegn
ÍA eða geri jafntefli. Annar er að
KR og Þór geri að minnsta kosti 4-
4 jafntefli og Fylkir tapi með eins
marks mun gegn ÍA. Geri bæði
Fylkir og KR jafntefli í leikjum
sínum er bikarinn Fylkismanna.
Sama á við ef bæði lið sigra í leikj-
um sínum eða ef bæði lið tapa
viðureignum sínum.
Ef svo ólíklega fer að KR og
Þór geri 3-3 jafntefli og úrslit í
leik ÍA og Fylkis verði 0-1 er kom-
in upp skondin staða. Þá eru KR
og Fylkir jöfn að stigum, marka-
munur liðanna er jafn, jafnt er á
öllum tölum í innbyrðisviðureign-
um liðanna og þá segja knatt-
spyrnulögin að leika þurfi úrslita-
leik.
Íslandsmótið í knattspyrnu:
Bikarinn uppi á
Skaga en þyrla til taks
MÖGULEG STIG KR OG FYLKIS
EFTIR LOKAUMFERÐINA
1 X 2
KR - ÞÓR 36 34 33
ÍA - FYLKIR 37 35 34
VERÐANDI ÍSLANDSMEISTARAR
KR og Fylkir hafa barist hart um titlinn í
sumar. Báðum viðureignum liðanna lauk
með 1-1 jafntefli. Tölfræðilegur möguleiki
er á því að liðin verði að mætast þriðja
sinni í sumar í hreinum úrslitaleik um Ís-
landsmeistaratitilinn.
FÓTBOLTI Kristján Guðmundsson,
þjálfari Þórsara, var fenginn til að
spá fyrir um slaginn í botnbarátt-
unni. Keflavík, sem er í næst
neðsta sæti deildarinnar með 17
stig, mætir nágrönnum sínum úr
Grindavík í lokaumferðinni á úti-
velli. Síðasti leikur liðanna í deild-
inni endaði með jafntefli, 2-2.
Grindavík siglir lygnan sjó í þrið-
ja sæti deildarinnar.
„Þetta verður mjög erfiður
leikur fyrir Keflavík. Þeir spiluðu
mjög vel á móti okkur og Fylki en
ekki á móti KR, „segir Kristján.
„Spurning er hvort þeir spili vel
og klári þetta með stæl. Ef þeir
hafa jafn gaman af því að spila og
á móti okkur seinast, vinna þeir.
Þetta er grannaslagur þannig að
það verður ekkert gefið eftir. Það
gætu orðið óvænt úrslit en ég býst
við að leikurinn endi með jafn-
tefli.“
Fram hefur einnig 17 stig en
betra markahlutfall en Keflavík-
ur-liðið. Fram á erfiðan leik fyrir
höndum þegar liðið sækir KA
heim á Akureyrarvöll. KA hafði
betur þegar liðin mættust síðast í
deildinni. „KA menn eru afslapp-
aðir. Að vísu er Dean Martin í
banni og það getur haft áhrif. Það
er erfitt að spá fyrir um þetta en
ætli Fram hafi ekki betur,“ segir
Kristján.
FH er í sjöunda sæti deildarinn-
ar með 19 stig og fær ÍBV í heim-
sókn í Kaplakrikan. Síðast þegar
liðin áttust við í deildinni höfðu
Eyjamenn betur, unnu með tveim-
ur mörkum gegn engu. „Þessi leik-
ur endar með jafntefli. FH-liðið
hefur ekki verið að spila vel und-
anfarið en þeir hljóta að taka sig
saman í andlitinu og ná sér í eitt
stig og bjarga sér fyrir horn,“
sagði þjálfari Þórs að lokum.
Hörð barátta
framundan
Þegar ein umferð er eftir af Símadeild karla í knattspyrnu er spennan á
toppi sem botni deildarinnar í hámarki. Eitt lið, Þór, er þegar fallið nið-
ur í fyrstu deild. Aðeins þrjú stig skilja að liðið í næst neðsta sæti og það
sem er í fimmta sæti. Þó eru litlar líkur sem engar á því að liðin í fimm-
ta og sjötta sæti, ÍBV og ÍA, geti fallið.
ÚR LEIK FRAM OG ÞÓRS
Þórsarar eru þegar fallnir niður í fyrstu deild. Fram á hins vegar í harðri baráttu við að
halda sér uppi og þurfa að sækja KA-menn heim.
SÍMADEILDIN
Lið Leikir U J T Mörk Stig
Fylkir 17 10 4 3 30 : 20 34
KR 17 9 6 2 27 : 18 33
Grindavík 17 8 5 4 31 : 22 29
KA 17 6 7 4 18 : 16 25
ÍBV 17 5 5 7 22 : 20 20
ÍA 17 5 5 7 27 : 26 20
FH 17 4 7 6 27 : 29 19
Fram 17 4 5 8 26 : 33 17
Keflavík 17 3 8 6 21 : 29 17
Þór 17 3 4 10 22 : 38 13
BORÐAÐU ÞIG GRANNA(N)
Nú á Islandi, De Danske Vægtkonsulenter,
sem hafa farið sigurför um Danmörku,
með ótrúlegum árangri
Kynningarfundur
Í Stjörnuheimilinu, Ásgarði, Garðabæ
Fimmtudagur 26. september kl. 19.30 - 20.30
Tina Thorsted fulltrúi DDV í Danmörku
Kristín Óladóttir hj.fr. fulltrúi DDV á Íslandi
Skráðu þig á kynninguna í síma 865- 8407
eða á kvo@simnet.is
Nú er tækifærið!
Taktu aukakílóin föstum tökum – byrjaðu strax!
Innritun hefst eftir fund
www.vaegtkonsulenterne.dk