Fréttablaðið - 19.09.2002, Qupperneq 15
Leikstjórinn Steven Soderberghætlar að leikstýra framhaldi
kvikmyndarinnar Ocean’s 11 og
eru allir aðalleikararnir sem léku
í fyrri myndinni í viðræðum um
að leika í framhaldinu. Myndin á
að gerast í Evrópu og tökur eiga
að hefjast í byrjun ársins 2004.
„Ég veit að við getum gert betri
mynd. Ég veit að tökur fara fram
í Evrópu og að allir leikararnir
verða með í för,“ sagði Soder-
bergh.
Söngvarinn Ryan Adams segistaldrei ætla að gefa út upptökur
af sinni útgáfu af síðustu breið-
skífu hljómsveitarinnar The
Strokes,“ Is This It.“ Tók hann
plötuna upp í gamni sínu á fjög-
urra rása upptökutæki. „Ég ætla
ekki að gefa út mína útgáfu af
skífu þeirra vegna þess að ég þarf
að taka upp mínar eigin breiðskíf-
ur. Það verður líka gaman ef ég
get spilað fyrir þá lögin þeirra þar
sem þeir hljóma furðulega - eins
og bluegrass.“
Til stendur að framleiða eró-tískan söngleik byggðan á ást-
arævintýri Bill Clinton, fyrrver-
andi forseta Bandaríkjanna, og
Monicu Lewinsky. Rússneska tón-
skáldið Vitaly
Okorov ætlar að
semja tónlistina. Í
stað þess að söng-
leikurinn gerist í
Hvíta húsinu
verður sögusviðið
Kreml í Rúss-
landi. Aðalsögu-
hetjurnar verða
forseti Rússlands, Vladimir Putin
og ritari hans, Macha Lewins-
konova.
Nýjasta breiðskífa hljómsveit-arinnar The White Stripes
gæti gefið af sér einn mesta hagn-
að í tónlistarsögunni. Jack og
Meg, meðlimir hljómsveitarinnar,
eyddu innan við tveimur vikum í
upptökur á skífunni, sem nú er
nánast lokið. Kost-
aði hún aðeins um
540 þúsund krón-
ur í framleiðslu og
þegar hótelkostn-
aður og ýmis önn-
ur útgjöld hafa
verið tekinn með í
reikninginn kost-
aði framleiðslan í
heild sinni um 800 þúsund krónur,
sem teljast smáaurar í tónlistar-
bransanum. 20 lög voru tekinn
upp í hljóðverinu og er talið er 15
þeirra verði að finna á plötunni.
Síðasta breiðskífa sveitarinnar,
White Blood Cells, hefur selst í
750 þúsund eintökum og hefur
hagnaður af henni numið um 1,2
milljörðum króna. Talið er að ef
ein milljón eintaka seljist af nýju
plötunni, verði hagnaður af henni
um 1,6 milljarðar króna.
15FIMMTUDAGUR 19. september 2002
STÚART LITLI 2 m/ísl. tali kl. 6
Sýnd kl. 5.45, 8.30 og 11 b.i. 14
Sýnd kl. 8 og 10.50 b.i. 12
SÍMI 553 2075
STUART LITTLE 2 kl. 6SUM OF ALL FEARS kl. 8 og 10.10
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10 Sýnd kl. 6, 8 og 10.10LILO OG STITCH m/ísl. tali kl. 4 VIT429 SLAP HER SHÉS FRENCH kl. 5 og 7
VIT
426
PLUTO NASH kl. 4, 6, 8 og 10 VIT432 Sýnd kl. 9 VIT 432
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 VIT 435
6
6
8
8
10.15
10.15
SPÆNSK HÁTÍÐ
ÚLTIMO VIAJE DE ROBERT
PAU I EL SEU GERMÁ
JUANA LA LOCA
LOLA VENDE CÁ
LLUVÍA EN LOS ZAPATOS
POSITIVO / SMITAÐUR