Fréttablaðið - 19.09.2002, Side 23
FIMMTUDAGUR 19. september 2002
Við höfum áhuga á því að kaupa lítil
og meðalstór ræstingafyrirtæki.
Stök verkefni koma einnig til greina.
Upplýsingar í síma 824 1230
FÓLK Írski söngvarinn Bob Geldof,
sem var giftur sjónvarpskonunni
Paulu Yates, þar til hún yfirgaf
hann vegna ástralska poppsöngv-
arans Michael Hutchence, segist í
fullri alvöru hafa ákveðið að
fremja sjálfsmorð. Geldof, sem á
þrjú börn með Yates, segir í sam-
tali við sjónvarpsstöð í Ástralíu að
hann hafi skrifað niður á tvo lista
ástæður fyrir að deyja og ástæður
til að lifa. „Dauðalistinn var upp á
tvær blaðsíður,“ segir söngvarinn,
„en hinn bara eitt orð: „Börnin“.“
Michael Hutchence fannst lát-
inn hangandi í belti sínu á hóteli í
Sidney árið 1997. Talið var að
hann hefði tekið þátt í kynsvalli
sem endaði með dauða hans. Paula
Yates lést af of stórum skammti
af heróíni fyrir tveimur árum.
Geldof, sem ættlæddi dóttur
Paulu og Michaels, Tiger Lily,
segir andlát þeirra beggja hafa
verið slys. „Svona gerast slysin
þegar fólk er komið á ystu nöf,“
sagði söngvarinn.
Geldof var aðlaður árið 1986
fyrir Live Aid-framtak sitt til
hjálpar hungruðum heimi.
BOB GELDOF
Átti þrjár dætur með Paulu og ættleiddi
svo sex ára dóttur hennar og Hutchence
þegar báðir foreldrar hennar voru látnir.
Bob Geldof:
Íhugaði sjálfsvíg þegar
Paula Yates yfirgaf hann
KEÐJUR
Hér sést fyrirsæta skarta óvenjulegu lík-
amsskrauti eftir skartgripahönnuðinn J
Maskrey. Sýning hans var sú síðasta sem
haldin var á tískuvikunni í London en
henni lauk á mánudag. Ekki er mælt með
því að íslenskar stúlkur taki upp þessa
tísku í vetur.
Enskar stórstjörnur:
Mótmæla
árásum á
Írak
MÓTMÆLI Stórstjörnur í Englandi,
þar á meðal meðlimir í Massive
Attack og Blur, mótmæltu á mið-
vikudag innrásinni á Írak í opnu
bréfi sem sent var til forsætisráð-
herrabústaðarins í Downing
Street í London. Í bréfinu hvetja
þeir ensk stjórnvöld til að styðja
ekki Bandaríkin í fyrirhuguðum
árásum á Miðausturlönd. Í bréf-
inu segir meðal annars að miðað
við núverandi aðstæður myndi
innrás í Írak vera óréttlætanleg
og gæti hugsanlega haft hræðileg-
ar afleiðingar. Árásin gæti opnað
„Pandóru-box“ sem ómögulegt
væri að loka aftur. Margar af
þekktustu stjörnum Bretlands
skrifuðu undir bréfið og má þar
nefna leikritahöfundinn Harold
Pinter, leikstjórann Ken Loach og
tónlistarmanninn Brian Eno. Aðr-
ir voru t. d. leikkonan Catherine
McCormac, rithöfundurinn Lucy
Irvine og grínistinn Mark Thom-
as. Í bréfinu er enskur almenning-
ur einnig hvattur til að taka þátt í
mótmælagöngu í London þann 21.
september næstkomandi.
NJÁLUFERÐIR
Tvo næstu sunnudaga verða
Njáluferðir frá Torfastöðum í
Fljótshlíð.
Upplýsingar og skráning í síma 575 1566
Reiðskólinn Þyrill – Reiðhöllinni Víðidal.