Fréttablaðið - 29.03.2003, Page 4

Fréttablaðið - 29.03.2003, Page 4
4 29. mars 2003 LAUGARDAGUR ■ Landsfundur Áttu von á skattalækkunum eftir kosningar? Spurning dagsins í dag: Hvernig gengur karlaliði KR í fótbolta næsta sumar? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 59,0% 32,1% Nei 8,9%Veit ekki Já Kjörkassinn Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is STJÓRNSÝSLA Tölvufræðingur sem annast öryggisþjónustu við tölvukerfi segir afar gagnrýnis- vert að Ríkisendurskoðun hafi í nýrri skýrslu gert ítarlega grein fyrir snöggum blettum á tölvu- kerfum sýslumannsembætta. Tölvufræðingurinn, sem starfs síns vegna segist ekki vilja láta nafns síns getið, segir Ríkisendurskoðun svo gott sem hafa gert leiðarvísi fyrir óheið- arlegt fólk sem kunni að vilja komast í trúnaðarupplýsingar um meðborgarana. „Við höfum nú ekki hugsað þetta sem handbók fyrir glæpa- menn,“ segir Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi. Hann segist þó vel geta tekið undir að sjálf- sagt sé að velta fyrir sér sjónar- miði viðmælanda Fréttablaðsins. Það verði gert. „Það má hins vegar spyrja sig, úr því þetta liggur svona á glám- bekk, hvaða öryggi felist í því. Ef einhver ætlar sér að komast í þessi gögn þá gengur hann bara að þeim,“ segir ríkisendurskoð- andi. ■ SIGURÐUR ÞÓRÐARSON Ríkisendurskoðandi segist ætla að skoða hvort of nákvæmar upplýsingar um veik- leika öryggismála sýslumanna séu settar fram í nýrri skýrslu. Skýrsla um öryggismál sögð leiðbeina óprúttnum: Er ekki handbók fyrir glæpamenn Landsfundur: Gleymdi að setja fundinn LANDSFUNDUR Davíð Oddsson, for- maður Sjálfstæðisflokksins, gleymdi að setja landsfund Sjálf- stæðismanna eftir ræðu sína í fyrradag. Davíð upp- lýsti þetta í upphafi annars dags lands- fundarins í gær áður en fyrirspurnir til ráðherra Sjálfstæðisflokksins hófust. Við það tækifæri tilkynnti hann að fundurinn hefði verið settur í gær. ■ TILLÖGUR ASÍ ATHYGLISVERÐAR Davíð Oddsson forsætisráðherra segir að tillögur Alþýðusambands Íslands í velferðarmálum séu at- hyglisverðar. Hann segir að þær séu varla innlegg í kosningabarátt- una heldur séu þær sjálfsagt frek- ar hugsaðar sem útspil í væntan- legum kjarasamningaviðræðum. VARLEGA Í BREYTINGAR Geir H. Haarde fjármálaráðherra segir að það þurfi að fara varlega í all- ar breytingar á íslenska lífeyris- sjóðakerfinu. Að hans mati er það hins vegar óhjákvæmileg þróun að sjóðfélagar lífeyrissjóðanna í landinu öðlist aukin réttindi, t.a.m. til þess að kjósa fulltrúa í stjórn sjóðanna. NEFSKATTUR FYRIR RÚV Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra vill afnema afnotagjöld Ríkisút- varpsins í núverandi mynd. Hann vill breyta stofnuninni í hlutafé- lag og innheimta afnotagjöld í formi nefskatts. ÓHLUTDRÆGUR RÁÐHERRA Í fyrirspurnar- tíma ráðherra Sjálfstæðisflokks- ins á landsfundin- um í gær var Sól- veig Pétursdóttir dómsmálaráð- herra spurð að því hvers vegna hún hefði ekki sagt sig frá máli er varðaði flutning hættulegra efna um Hvalfjarðargöng. Sól- veig er gift Kristni Björnssyni, forstjóra Skeljungs. Sólveig sagði að þess hefði ekki verið þörf þar sem hlutlausir sérfræðingar hefðu fjallað um málið og gert tillögur. EKKI BARA HINIR EFNAMEIRI Með því að afnema hátekjuskatt- þrep er ekki einungis verið að koma til móts við hina efnameiri, að sögn Geirs H. Haarde fjár- málaráðherra. Hann segir að með því sé t.d. einnig verið að koma til móts við þá sem séu með háar tekjur vegna þess að þeir leggi hart að sér til að koma sér þaki yfir höfuðið. UMFERÐARSEKTIR SKILA ÁR- ANGRI Hækkun umferðarsekta um 50% hefur skilað góðum ár- angri í umferðaröryggismálum, að sögn Sólveigar Pétursdóttur dómsmálaráðherra. Að svo stöddu telur hún ekki rétt að hækka bíl- prófsaldurinn úr 17 í 18 ár. OF HÁTT RAUNGENGI Davíð Oddsson forsætisráðherra hefur áhyggjur af sterkri stöðu ís- lensku krónunnar. Hann segir raungengið vera of hátt og það skýrist m.a. af lækkun erlendra gjaldmiðla, sérstaklega dollara. RÍKISSTOFNANIR Á LANDS- BYGGÐINA Davíð Oddsson for- sætisráðherra segir að ekki hafi gengið nægilega vel að flytja rík- isstofnanir út á landsbyggðina. Á því séu ýmsar skýringar sem kristallist einna best í þeim vandamálum sem fylgdu flutn- ingi Landmælinga til Akraness. EKKI EITT SKATTÞREP Aðspurður telur Geir H. Haarde fjármála- ráðherra ekki heppilegt að lækka virðisaukaskatt í 10 til 12%. Hann segir að ef skatturinn yrði eitt þrep myndi hann þurfa að vera í kringum 18 til 20%. EKKI FLATAN TEKJUSKATT Geir H. Haarde telur ekki raun- hæft að hafa flat- an tekjuskatt. Það myndi leiða til af- náms barnabóta, vaxtabóta og per- sónuafsláttar og skattleysismörk yrðu engin. HLUTLEYSI NORÐMANNA Hlut- leysi Norðmanna í Íraksmálinu ræðst af því að þar er minni- hlutastjórn við völd, að mati Davíðs Oddssonar forsætisráð- herra. Hann segir stjórnina hvorki vera í stöðu til að taka afstöðu með aðgerðum gegn Írak eða á móti. SAMNINGURINN VIÐ HERJÓLF Sturla Böðvars- son samgönguráð- herra segir sjálf- sagt að Ríkisend- urskoðun taki til athugunar samn- ing Vegagerðar- innar og Sam- skipa vegna Herj- ólfs. Hann segist telja að farið hafi verið eftir sett- um reglum í útboðinu. ÁFRAM VERÐTRYGGING Geir H. Haarde segist ekki telja tímabært að afnema verðtrygg- ingu lána. Hann segir vísitölu- tengingu hafa lítil áhrif við nú- verandi aðstæður þegar verð- bólga sé í lágmarki. Afnám verð- tryggingar gæti hins vegar leitt til hækkunar vaxta. DÍSILBÍLAR HAGKVÆMIR Vegna ódýrari orku og minni mengunar yrði frekari notkun landsmanna á dísilbifreiðum þjóðhagslega hagkvæm, að mati Geirs H. Haarde fjármálaráð- herra. Hann vill fara í breytingar á lögum um þungaskatt á næsta kjörtímabili. ■ Landsfundur TÓKÍÓ, AP Alberto Fujimori, fyrrum forseti Perú, lætur sér ekki bregða þó Interpol hafi sett hann á lista yfir þá glæpamenn sem mest áhersla er lögð á að koma á bak við lás og slá. Hann er sakaður um morð og mannrán. Sjálfur segist Fujimori vera saklaus af ákærunum. Hann segist ætla að snúa aftur til Perú í fram- tíðinni. Það getur hann þó ekki gert nú þar sem stjórnvöld í landinu vilja draga hann fyrir dómstólana vegna glæpa sem hann er sagður hafa framið meðan hann var við völd. Fujimori hefur japanskan ríkisborgararétt og þarlend stjórn- völd neita að framselja hann. ■ LANDSFUNDUR Að opinbera upplýs- ingar um það hvaðan tekjur stjórn- málaflokka koma er í raun ekkert annað en afnám leynilegs kosninga- réttar, að mati Kjartans Gunnars- sonar, framkvæmdastjóra Sjálf- stæðisflokksins. „Með reglulegu millibili reyna andstæðingar Sjálfstæðisflokksins að koma af stað umræðum um fjár- mál stjórnmálaflokka í því skyni að reyna að gera fjáröflun Sjálfstæð- isflokksins og fjármál hans tor- tryggileg,“ sagði Kjartan þegar hann flutti skýrslu framkvæmda- stjóra á landsfundi Sjálfstæðis- flokksins í gær. „Þegar búið er að tína utan af þessari svokölluðu kröfu um opið bókhald stjórnmála- flokkanna skrautmælgina, stendur það eitt eftir að gerð er krafa um að birtar séu nákvæmar upplýsingar um það hvaðan tekjur stjórnmála- flokka koma.“ Kjartan sagðist ekki sjá neina ástæðu fyrir því að gera þessar upplýsingar opinberar.„Ég sé ekki að krafan um það að leggja þær upplýsingar fram með opinberum hætti sé í raun annað en krafa um afnám leynilegs kosningaréttar. Er það ekki sama einkamál manns hvort hann kýs að verja sjálfsaflafé sínu til fjárhagslegs stuðnings þeirri pólitísku hugmyndafræði sem hann aðhyllist og það er einka- mál hans hvern hann kýs í alþingis- eða sveitarstjórnarkosningum?“ Davíð Oddsson, formaður Sjálf- stæðisflokksins, ræddi einnig um fjármál flokkanna í fyrirspurnar- tíma á landsfundinum í gær. Hann sagði að Sjálfstæðisflokkurinn væri tilbúinn að banna fyrirtækj- um að styrkja stjórnmálaflokka og að hann væri eini flokkurinn sem myndi lifa slíkt af. Davíð gagnrýndi fjölmiðla fyrir að dansa með Samfylkingunni í um- ræðunni um fjármál flokkanna en sagði þá hafa brugðist eftirlits- skyldu sinni. Þeir hefðu ekki fylgt eftir innantómum loforðum forystu flokksins í síðustu kosningum um að upplýst yrði hverjir hefðu lagt fé í kosningasjóð hans. Á sama tíma og formaður Sjálf- stæðisflokksins sagði að flokkur- inn væri sá eini sem myndi lifa það af að banna fyrirtækjum að styrkja stjórnmálaflokka sendi framkvæmdastjórinn út neyðar- kall til landsfundarfulltrúa um fjárframlög. „Það er raunar nauðsynlegt að efla styrktarkerfið að miklum mun og það er nauðsynlegt að hækka þær fjárhæðir sem greiddar eru af hverjum styrktarmanni og jafn- framt þarf að fjölga styrktar- mönnum mjög mikið. Það er t.d. leitt til þess að vita að á þessum fundi eru hundruð fulltrúa sem ekki eru í styrktarmannakerfi Sjálfstæðisflokksins og vil ég skora á þá að gera bragabót á því nú þegar en það er hægt að gera í afgreiðslu fundarins í anddyri Laugardalshallarinnar.“ trausti@frettabladid.is Engin ástæða til að opna bókhald Framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins líkir opnu bókhaldi við afnám leynilegs kosningaréttar. Formaðurinn segir flokkinn til í að banna fyr- irtækjastyrki. Gagnrýndi fjölmiðla fyrir að dansa með Samfylkingunni. FORMAÐURINN OG FRAMKVÆMDASTJÓRINN Á sama tíma og formaður Sjálfstæðisflokksins sagði að flokkurinn væri sá eini sem myndi lifa það af að banna fyrirtækjum að styrkja stjórnmálaflokka sendi framkvæmdastjórinn út neyðarkall til landsfundarfulltrúa um fjárframlög. ALBERTO FUJIMORI Hyggst snúa aftur til Perú þegar hann þarf ekki lengur að hafa áhyggj- ur af því að verða ákærður. Alberto Fujimori: Lætur sér ekki bregða KAJAKÚTSALA 35%Afsláttur Lettmann Seatour expedition, eins manns Lettmann Rivertour, tveggja manna Verð aðeins kr. 89.500.- áður kr. 141.500.- Einnig straumvatnskajak á aðeins kr. 60.000.- Innifalið í verði eitt stýri, ein svunta og ein ár Opið laugardag 10.00 - 16.00 • Opið sunnudag 11.00 - 16.00 Netsalan Garðatorgi 3, 210 Garðabær Símar: 565 6241/ 544 4210 Fax: 544 4211 Netfang: netsalan@itn.is Heimasíða: www.itn.is/netsalan www.itn.is/netsalan Opið á virkum dögum 10:00 - 18:00 laugardaga 10:00 - 12:00 FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.