Fréttablaðið - 29.03.2003, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 29.03.2003, Blaðsíða 18
18 29. mars 2003 LAUGARDAGUR Margt bendir til að Íslendingar hafi gjörbreyst á síðastliðnum 10 árum eða svo. Þeir versla öðruvísi, borða annan mat, haga sér öðruvísi, hugsa öðruvísi og búa yfir höfuð í allt öðruvísi þjóðfélagi. Nýir og breyttir Íslendingar Á undanförnum áratug hafa áttsér stað miklar breytingar á íslensku þjóðfélagi. Sumar þeirra eru í takti við umfangsmiklar breytingar í heiminum öllum, en aðrar ekki. Sumar eru stórar, aðr- ar litlar. Varla þarf að minnast á margar af stærstu breytingunum í tækni, sem eru svo sjálfsagðar að okkur hættir til að sjá þær ekki. Fyrir tíu árum voru fáir með GSM-síma og tölvupóstur og net- tengingar voru einungis á færi leyniþjónustumanna. En breyting- arnar spanna miklu víðara svið og þær má greina bæði í byltingar- kenndum nýjungum sem og litlum smáatriðum sem þó leyna á sér. Við borðum öðruvísi mat, verslum öðruvísi, högum okkur öðruvísi og hugsum jafnvel öðruvísi. Fyrir tíu árum var ekki hægt að kaupa skinn- og beinlausan kjúkling í búð, svo dæmi sé tekið, áfengis- verslanir hétu ennþá ÁTVR, en ekki Vínbúð, og enn var til fólk sem bjó í verkamannabústöðum. Annars konar matur á borðum Reglulega eru gerðar kannanir sem greina þjóðfélagsbreytingar. Könnun Manneldisráðs um matar- æði Íslendinga, sem birt var í vik- unni, er dæmi um eina slíka könnun. Sambærileg könnun var gerð árið 1990 og með því að bara saman nýju könnunina og þá gömlu kemur margt merkilegt í ljós. Neysla á fitu hefur minnkað og grænmeti og ávextir sjást oftar á borðum lands- manna. Í stórum dráttum hefur mataræði Íslendinga færst nær manneldismarkmiðum og þjóðin borðar hollari mat. Hins vegar er sjávarútvegsþjóðin farin að fúlsa við fiski, en fiskneysla hefur minnk- að um 45%, og sömuleiðis er mjólk- urdrykkja á undanhaldi. Vatn er orðið algengasti drykkur Íslend- inga. Heildarmagn kjöts hefur lítið breyst þótt nú sé meira borðað af kjúklingum og svínakjöti en minna af lambakjöti. Í stuttu máli virðist þjóðin hafa horfið frá klassískum ís- lenskum sveitamat, stöppuðum fiski með kartöflum. Pasta er löngu orðið víðtæk staðreynd á borðum landsmanna ásamt hinum ótvíræða sigurvegara í kapphlaupi matvæl- anna á borð landsmanna: pizzu. Því má halda fram að hún sé orðin þjóð- arréttur Íslendinga, sem segir ef til vill sína sögu um lífsmynstrið, því pizza er fljótleg og fjölbreytileg og virðist smella eins og flís við rass við aðrar merkjanlegar þjóðfélags- breytingar. Ungir karlmenn að sleppa sér Ungir karlmenn eiga stóran hluta í uppgangi pizzunnar, en þeir eiga metið í neyslu á tilbúnum mat og borða líka manna mest úti af öll- um Íslendingum. Þeir virðast líka hafa hellt sér af fullum þunga í gosneyslu. Neysla gosdrykkja hef- ur aukist gífurlega meðal ungra stráka, sem drekka að meðaltali tæpan lítra af gosdrykkjum á dag. Sykurneysla þeirra er jafnframt óheyrilega mikil eða 143 grömm af viðbættum sykri á dag. Stúlkur drekka minna af gosi og meira af vatni en strákar og velja fituminni vörur. Ef þessi þróun heldur áfram mætti hugsa sér að upp vaxi kyn- slóð feitra karlmanna á Íslandi, sem láta sér eftir alls kyns lystisemdir, og mjórra kvenna. Það er merkilegt að um þriðja hver ung kona sleppir aðalmáltíð einu sinni í viku. Þó svo ungu karlmennirnir séu gjarnir á að laumast út að borða og neyti tilbúinna rétta í meiri mæli, kannski vegna uppgangs ensku knattspyrnunnar á undanförnum árum og sjónvarpsútsendinga frá kappleikjum, þá borða nú samt, samkvæmt könnuninni, um 80% fólks aðalmáltíð dagsins með fjöl- skyldunni fimm daga vikunnar eða oftar. Fjölskyldan er sem sagt enn- þá til í að borða saman á Íslandi, þótt margt annað hafi breyst. Verslunarhættir hafa breyst Nýjung í samskiptum er hið svokallað „klukkan-þrjú-símtal“ milli para og hjóna. Þá er spurt: „Hvað eigum við að borða í kvöld?“ Síðan fer annað hvort út í búð og kaupir eitthvað inn í grænum hvelli. Af viðtölum við verslunar- menn að dæma hafa verslunar- hættir Íslendinga tekið verulegum stakkaskiptum á fáum árum. Inn- kaupalistar eru á undanhaldi og fólk verslar tíðar, þó svo stór hópur fólks ákveði að fara einu sinni í viku eða svo í lágverðsverslanir og kaupa inn nauðsynjavörur fyrir vikuna. En á sama tíma hefur eftir- spurn eftir ýmsum dýrari gæða- vörum aukist, enda er aukið fram- boð á þeim nýjung á Íslandi. Hér má nefna parmaskinku og kletta- salat og lífrænt ræktaðar vörur ýmiss konar. Það er athyglisvert að anna- samasti tíminn í þeim matvöru- verslunum sem opnar eru allan sól- arhringinn, sem er reyndar ein nýj- ung á Íslandi, virðist vera undir miðnætti á kvöldin. Þetta kemur fram í máli verslunarmanna. Þá er krökkt af fólki í búðunum. Hér er þá væntanlega um að ræða fólk sem vinnur vaktavinnu, eins og leigubílstjóra, námsfólk sem er búið að snúa sólarhringnum við og alls kyns fólk sem stundar öðruvísi líferni en aðrir á tímum aukinnar fjölbreytni og sveigjanleika. Hér kann líka að spila stóra rullu að samsetning fjölskyldunnar virðist hafa breyst. Fleiri einstæðir foreldrar Samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands fjölgaði einstæðum mæðr- um á Íslandi úr 7.625 árið 1991 í 10.394 árið 2001. Það er um 36% Íslendingar eru orðnir fjölbreyttari, opnari, einstæðari, sveigjanlegri, skilningsríkari, alþjóðlegri og pólitískari. Drekka mikið vatn og borða ofsalega mikið af pizzu. ,, FEITARI KARLAR OG MJÓRRI KONUR? Könnun Manneldisráðs sýnir að ungir strákar neyta mikils sykurs, einkum í gosdrykkjum. Stúlkur borða fituminni mat og drekka meira af vatni. Þær eru gjarnari á að sleppa stærri mál- tíðum. Ef þetta heldur áfram má leiða líkum að því að upp vaxi kynslóð feitari karla og mjórri kvenna. PÓLITÍSKARI UNGDÓMUR Ungt fólk streymir á þing og í framboð. Ung kynslóð rithöfunda vekur vaxandi at- hygli og stormar fram á sjónarsviðið með pólitískari viðfangsefni en áður. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.