Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.03.2003, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 29.03.2003, Qupperneq 24
Albert fæddist í Reykjavík 5.október 1923, sonur Guð- mundar Gíslasonar gullsmiðs og Indíönu Bjarnadóttur. Þau eign- uðust átta börn og var Albert elstur þeirra. Hann missti föður sinn þegar hann var tólf ára og ólst upp hjá ömmu sinni, Ingi- björgu Guðmundsdóttur, í þak- herbergi við Smiðjustíginn. Al- bert gekk ungur í K.F.U.M., og kynntist stofnandanum séra Frið- rik Friðrikssyni vel og hafði hann og þau málefni sem K.F.U.M. létu sig varða mótandi áhrif á dreng- inn. Fótboltinn var í hávegum hafður hjá K.F.U.M. og drengirn- ir söfnuðust saman hjá séra Frið- rik og spörkuðu bolta í portinu á meðan þeir biðu eftir því að fund- arsalirnir opnuðu. Albert komst fyrst í kynni við knattspyrnu þegar móðurfrændi hans, sem var sjómaður, gaf hon- um skinnbelg harðfylltan af lofti. Belgurinn var hin besta gjöf og Albert sparkaði honum linnu- laust þar til hann eignaðist pen- ing fyrir almennilegum bolta. Draumur hans var svo að komast í meistaralið Vals og eignast Valsbúning. Hann náði síðan miklu lengra en hann hafði gert sér vonir um og ferill hans er líklega draumur flestra sem byrja að iðka knatt- spyrnu af fullum krafti í æsku. Drengurinn sem var sendill í Reykjavík, sælgætissali á Mela- vellinum, dorgaði á bryggjunni og seldi flöskur sem hann fann á götunni hélt út í hinn stóra heim til þess að mennta sig og sneri aft- ur dáður og sigursæll atvinnu- maður í fótbolta. Albert hóf feril sinn með Glasgow Rangers árið 1945 og þaðan lá leiðin til Arsenal á Englandi. Arsenal fór til Parísar á vopnahlésdaginn 1946 og keppti við Racing Club de Paris og vann leikinn 2:1. Albert vakti athygli Frakkanna, sem föluðust eftir honum. Aðstæður í Frakklandi voru miklu betri en á Englandi og forsvarsmenn Arsenal, sem voru staðráðnir í að gera Albert að al- vöru atvinnumanni, hvöttu hann eindregið til að fara til Frakk- lands og þrátt fyrir að Club de Paris hefði upphaflega sóst eftir honum endaði hann hjá Nancy. Al- bert reyndist liðinu öflugur liðs- auki og vegur og virðing Nancy jókst til muna á meðan Íslending- urinn lék með liðinu. Hvíta perlan Albert var duglegur að skora mörk á fyrsta tímabili sínu hjá Nancy, var markahæstur leik- manna liðsins og skoraði tvö mörk í öllum bikarleikjum, en liðið vann þá alla 2:1. Sjálfur sagðist Albert hafa verið hepp- inn en frammistaða hans varð til þess að íþróttafréttamenn fóru að kalla hann „hvítu perluna“. Albert lýsir þessu í bók Gunnars Gunnarssonar, Albert, frá 1982: „Nafngiftin var þannig til kom- in, að árið áður en ég kom til Nancy, hafði komið fram á sjón- arsviðið norður-afrískur leik- maður, sem hét Ben Barek. Hann var talinn með þeim snjöllustu sem spörkuðu bolta á meginlandi Evrópu og gekk und- ir nafninu „svarta perlan“ í blöðunum.“ Albert og Barek tókust fyrst á í leik Nancy og Stade Francais. Mikið var gert með þessa hólm- göngu og báðir fengu leikmenn- irnir að ávarpa þjóðina í útvarpi fyrir leik og keppnin var aug- lýst út um allt land sem einvígi milli hvítu perlunnar og þeirrar svörtu. Barek byrjaði vel í leiknum og skoraði tvö mörk í fyrri hálf- leik. Albert fann sig ekki og leist ekki á blikuna en fann sig í sein- ni hálfleik, skoraði tvö mörk og lagði upp þriðja markið í sigri Nancy og fjölmiðlar sögðu að með sigrinum hefði Albert unn- ið sig upp í varanlegt álit hjá frönsku þjóðinni. Úr boltanum í stjórnmálin Árið 1948 samdi Albert við AC Milan en þegar hann hné- brotnaði í leik gegn Lazio di Roma var hann afskrifaður enda þótti engin von um að hann næði fullum bata. Það var svo læknir höfuðandstæðinganna í Inter Milan sem vildi gera tilraun til að bjarga hnénu með skurðað- gerð. Milan vildi ekki taka slíka áhættu og Albert keypti því samning sinn við liðið gegn vægu verði og fór í aðgerðina. Hann náði sér aftur á strik og lauk svo atvinnumannsferli sín- um í Frakklandi. Hann sneri aftur heim til Ís- lands árið 1954. Hann hafði komið sér upp viðskiptasam- böndum og náð í hin ýmsu um- boð í Frakklandi og haslaði sér völl sem heildsali í Reykjavík. Sagan segir að daginn eftir að hann sté út úr flugvélinni hafi hann verið farinn að þramma milli verslana bjóðandi fransk- an fatnað handa kvenfólki. Knattspyrnuhetjan var orðin að venjulegum heildsala. Albert henti sér út í stjórn- málin með hugarfari íþrótta- mannsins og lék oft einleik og fór oft gegn félögum sínum í Sjálfstæðisflokknum. „Ég skil ósköp vel óánægju Sjálfstæðis- manna með mig. Ég er ekkert að lá þeim hana,“ sagði Albert í bókinni frá 1982. „Ég tek þeirra óánægju eins og hverju öðru, því að um leið og ég finn að ég get ekki haldið mínu sjálfstæði, þá hætti ég í pólitík. Mín köllun er sú, að ég skuli láta eitthvað gott af mér leiða í þágu hópa eða einstaklinga, samfélagsins í heild.“ Albert sagðist ekki hafa verið mikið með hugann við pólitík þegar hann var í boltanum en ýmsir flokkar föluðust eftir kröftum hans þegar hann kom heim, þar á meðal Framsóknar- flokkurinn. Jónas frá Hriflu réð honum þó frá því að starfa með Framsókn. „Úr því að þú valdir það lífsstarf að gerast heildsali, þá er ekki við hæfi, að þú gang- ir í Framsóknarflokkinn.“ Maður fólksins spilaði alltaf sóló Albert varð þekktur fyrir greiðvikni sína og fólk leitaði til hans með ólíklegustu vandamál. Þegar fokið var í öll skjól og kom- ið hafði verið að luktum dyrum hjá bönkum og nefndum, var leit- að til Alberts, sem hafði enga þol- inmæði gagnvart málalengingum og dreif hlutina áfram. Ingi Björn, sonur Alberts, starfaði með honum í heildsöl- unni og eftir að Albert dró sig í hlé og fór á fullu í stjórnmálin var hann enn með skrifstofu í heild- sölunni og tók á móti fólki. „Þetta var oft eins og á biðstofu hjá lækni og það var varla vinnufrið- ur en hann tók á móti öllum. Hann mátti ekkert aumt sjá og stóð vel undir því að vera kallaður maður litla mannsins en það fór oft bæði fyrir brjóstið á samherjum hans og andstæðingum.“ Ingi Björn segist aðspurður ekki endilega telja að sú fátækt sem Albert ólst upp við hafi ráðið því hversu hjálpsamur hann var. „Það bjug- gu flestir við þetta á þessum tíma. Ég held að menn séu bara svona af Guði gerðir. Þá var hann mikill aðdáandi séra Friðriks og það hefur sjálfsagt haft sitt að segja. Hann var fyrirgreiðslupólitíkus 24 29. mars 2003 LAUGARDAGUR Með AVIS kemst þú lengra Pantaðu AVIS bílinn áður en þú leggur af stað – Það borgar sig Hringdu til AVIS í síma 591-4000 AVIS Knarrarvogi 2 – 104 Reykjavík – Sími 591 4000 Fax 591 4040 – Netfang avis@avis.is Innifalið í verði er ótakmarkaður akstur, trygging, vsk. og flugvallargjald. (Verð miðast við lágmarksleigu 7 daga). Ekkert bókunargjald. Bretland kr. 2.900,- á dag m.v. A flokk Danmörk kr. 3.700,- á dag m.v. A flokk www.avis.is Við gerum betur ■ GOÐSÖGN Albert Guðmundsson var fyrsti íslenski atvinnumaðurinn í knattspyrnu. Ferill hans var glæsilegur og þegar hann var upp á sitt besta var hann eitt þekktasta nafnið í fótboltanum í Evrópu og lék með stórliðunum Arsenal og AC Milan. Þegar hann kom heim aftur gerðist hann umfangsmikill heildsali og öflugur stjórnmálamaður. Í boltanum var hann kallaður „hvíta perlan“ en á Íslandi „vinur litla manns- ins“, enda var hann ætíð tilbúinn til þess að leggja fólki lið og fór ekki leynt með það að hann væri fyrirgreiðslupólitíkus. Í skugga og skjóli Alberts PLOTTAÐ VIÐ PYLSUVAGNINN Pylsuvagn Ásgeirs Hannesar var ein af höfuðstöðvum Alberts í forsetakosningunum. Þar var mikið skeggrætt og öll greinaskrif fóru í gegnum „orðalagsnefndina“ í vagninum. Höfum í boði, fyrir 21 árs og eldri, fararstjórn og umsjón með börnum og unglingum. Einstakt tækifæri til að kynnast menningu og siðum annara landa. Nánari upplýsingar og umsóknareyðublað á www.cisv.is. Í síma Halla Jónsdóttir 551 4078 hallajons@islandia.is og Fríða Agnarsdóttir 866 8246 fridaagnars@isl.is Sjálfboðaliðastarf í alþjóðlegu umhverfi sumarið 2003!!

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.