Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.03.2003, Qupperneq 25

Fréttablaðið - 29.03.2003, Qupperneq 25
og var stoltur af því.“ Albert sagðist sjálfur vera fyrir- greiðslupólitíkus og svaraði því einfaldlega svona: „Já, tvímæla- laust. Ég geri allt sem ég get fyr- ir alla sem leita til mín.“ Albert stofnaði Borgaraflokk- inn skömmu fyrir alþingiskosn- ingarnar árið 1987 eftir að Þor- steinn Pálsson, þáverandi for- maður Sjálfstæðisflokksins, fann „tylliástæðu til þess að losna við Albert úr flokknum,“ eins og Ás- geir Hannes orðar það. „Albert mætti andstreymi innan Sjálf- stæðisflokksins alla tíð og það var ekkert nýtt fyrir honum að það stæðu á honum öll spjót. Hann fór í stjórnmálin til þess að fram- kvæma hluti og hann keyrði áfram á fullri ferð, enda kemur hann inn í pólitíkina sem læri- sveinn Jónasar frá Hriflu. Hann kom inn á sínum eigin nótum og forsendum og ögraði öllu flokks- eigendaliðinu og gerði það alla tíð. Hann var alltaf í fyrsta eða öðru sætinu í prófkjörum,“ segir Ásgeir Hannes og rifjar svo upp stemninguna í kringum stofnum Borgaraflokksins. „Fjöldi stuðn- ingsmanna Alberts var gríðarleg- ur og meðbyrinn var ótrúlegur.“ Niðurstaða kosninganna er eftir- minnilegt dæmi um styrk Alberts og Hulduhersins hans en Albert fór á þing fyrir Borgaraflokkinn og tók sex menn með sér og það er ekki fyrirsjáanlegt að slíkur einleikur verði endurtekinn. Áfram Ísland Ásgeir Hannes Eiríksson var vinur og samstarfsmaður Alberts í Borgaraflokknum og hann segir það vilja svo skemmtilega til að Sjálfstæðisflokkurinn, sem á sín- um tíma hafnaði Albert, sitji landsfund sinn um helgina undir vígorði Alberts „Áfram Ísland“. „Þannig að sjálfstæðismenn sitja í skugga eða skjóli Alberts, allt eftir það hvernig á það er lit- ið. Áfram Ísland var slagorð Al- berts í forsetakosningunum 1980 en varð upphaflega til á fótbolta- völlunum í Frakklandi en Frakk- arnir öskruðu alltaf áfram Ísland þegar Albert geystist upp völlinn. Við notuðum þetta svo í kosninga- baráttunni og stofnuðum meira að segja þjóðmálasamtökin Áfram Ísland og gáfum út sam- nefnt blað í sextíu þúsund eintök- um.“ Ingi Björn segist helst geta skýrt áhuga hans á embættinu með því að hann var metnaðar- fullur persónuleiki sem hafi ætíð vilja ná sem lengst í því sem hann tók sér fyrir hendur. „Hann fékk líka mikið af áskorunum og sló því til.“ Indriði G. Þorsteinsson rithöf- undur var kosningastjóri Alberts í forsetakosningunum og stillti sínum manni upp sem „frambjóð- enda hinna óskólagegnu gegn akademíunni.“ Albert fékk 20% atkvæða í kosningunum, sem þótti góður vitnisburður um per- sónulegar vinsældir hans. Heiðarlegur töffari Ingi Björn segir það lýsa föð- ur sínum best að hann var „heið- arlegur maður og drengur góð- ur“. Hann var sannur vinur vina sinna og átti það til að komast í klandur vegna trygglyndis síns. Albert var örlátur og ekki mikið fyrir að safna auði og sagðist ekki hika við að gefa af því sem hann átti ef svo bæri undir. Hann svaraði því einhverju sinni til í viðtali við Vikuna að það væri ekkert mál að verða ríkur: „Það þarf bara að skapa sér traust og standa í skilum.“ Það eru til ófáar frægðarsög- urnar af Albert en ein sú minn- isstæðasta er þegar frambjóð- endum var hóað saman og þeir fengnir til að reyna að skora körfu. Menn bisuðust undir körfunni við að koma boltanum ofan í en þegar það kom að Al- bert gekk hann út á miðjan völl, þéttur á velli, og sparkaði bolt- anum beint ofan í körfuna. Þetta er lýsandi dæmi um sjálfsör- yggi mannsins. Karfan var glæsileg og er enn í minnum höfð en hefði hann skotið framhjá myndi það líklega enn fylgja honum. Ásgeir Hannes segist vera of ungur til þess að muna beint eft- ir knattspyrnuafrekum Alberts en rifjar upp gamla sögu sem hann hefur eftir Birgi Ísleifi Gunnarssyni seðlabankastjóra. „Þeir tóku einhvern tíma leigu- bíl saman í Frakklandi. Leigubíl- stjórinn hjó eftir þessu undar- lega tungumáli sem þeir töluðu og spurði hvaðan þeir væru. Birgir Ísleifur sagði honum það og þá tók hann heldur betur við sér og hrópaði „Island. Monseur Gudmundsson. Island. Monseur Gudmundsson“ og lýsti svo af- rekum Alberts á fótboltavellin- um, með miklum tilþrifum, alla ferðina. Þegar þeir koma svo á leiðarenda spyr Birgir Ísleifur Albert hvort hann vilji ekki kynna sig fyrir manninum. Al- bert gengur þá glaðlegur til mannsins og réttir honum nafn- spjaldið sitt. Frakkinn tók van- trúaður við því og horfði svo á Albert og sagði: „Ert þetta þú? Mikið helvíti ertu orðinn feitur.“ Umsetinn fjölskyldufaðir Ingi Björn segir að faðir hans hafi vitaskuld verið önnum kafinn og þau systkinin, Helena Þóra, hann og Jóhann Halldór, hafi því ekki haft jafn mikið af honum að segja og æskilegt þykir í nútíma- samfélagi. „Hann myndi líklega þrífast illa í sambúð eins og þær eru orðnar í dag. En þetta var bara svona í þá daga og hann var ekkert verri faðir fyrir það. Hann naut svo auðvitað mikils skilnings móð- ur okkar, sem studdi hann í öllu sem hann tók sér fyrir hendur. Albert lést þann 7. apríl árið 1994, sjötugur að aldri. Afrek hans á sviði knattspyrnu, stjórnmála og félagsmála munu væntanlega halda nafni hans á lofti um ókom- na tíð en það verður hver og einn að meta hvort íslenskir atvinnu- menn í fótbolta spili í skugga eð skjóli Alberts og ekki síður hvort flokkurinn sem sneri við honum baki sitji landsfund sinn í skugga Alberts. Brynhildur Jóhannsdótt- ir, eiginkona hans, var ekki mikið fyrir að berast á þegar sól Alberts reis sem hæst en sagði þó að það þýddi ekki „að mér finnist ég stan- da í skugganum af manninum mín- um, heldur þvert á móti; ég stend í ljómanum sem af honum stafar og það nægir mér.“ thorarinn@frettabladid.is LAUGARDAGUR 29. mars 2003 Tíkin Lucy er einn af þekktustuhundum Íslandssögunnar, ásamt Sámi fóstra Gunnars á Hlíðarenda og Tanna hans Davíðs Oddssonar. Albert Guðmundsson var vitaskuld vanur því að heims- pressan sýndi sér áhuga en árið 1984 dróst Lucy með honum í sviðsljósið. Albert var fjármála- ráðherra þegar hann var kærður til lögreglustjórans í Reykjavík í janúar fyrir að halda hund í trássi við lög. Það var Rafn Jónsson, fréttamaður Ríkisútvarpsins, sem kærði Albert og krafðist þess að honum yrði refsað fyrir að brjóta bann við hundahaldi en honum þótti ekki við hæfi að alþingis- maður væri sjálfur lögbrjótur. Albert gaf ekkert eftir, frekar en venjulega, og sagðist fyrr mundu flytja úr landi en láta Lucy frá sér. Málinu lauk svo í júní þeg- ar Albert var dæmdur fyrir hundahald og gert að greiða 6.500 krónur í sekt. Borgarstjórn Reykjavíkur hafði þó engu að síð- ur samþykkt að leyfa hundahald með skilyrðum fyrr um vorið. Ingi Björn Albertsson eignað- ist Lucy upprunalega en hún ílent- ist í foreldrahúsum hans. „Tíkin hét Lucy þegar ég fékk hana, þannig að við gáfum henni ekki nafnið. Það er enginn vafi að hann ruddi hundahaldi í borginni braut með afstöðu sinni. Þetta varð auð- vitað heimsfrétt og hann fékk stuðningsbréf frá hundaeigendum út um allan heim og þetta birtist í ótrúlegustu fjölmiðlum.“ Heimild: Ísland í aldanna rás. Albert gaf ekkert eftir þegar hann var kærður fyrir hundahald: Barðist fyrir hundahaldi FJÁRMÁLARÁÐHERRANN Var kærður fyrir hundahald en sagðist fyrr flytja úr landi en hann léti Lucy frá sér. Bjarni Felixson: Ruddi kvennaknatt- spyrnu braut Albert Guðmundsson er fyrstiÍslendingurinn sem lagði fyr- ir sig atvinnumennsku á erlendri grund og sjálfsagt má með góðu halda því fram að hann hafi náð lengra en þeir sem fylgdu í kjöl- far hans þó umhverfið sé ger- breytt. Albert er til að mynda eini Íslendingurinn sem hefur leikið í ítölsku knattspyrnunni og það með stórveldinu AC Milan. „Það er erfitt að dæma um það hvort Albert hafi náð lengra en aðrir Íslendingar í atvinnu- mennskunni,“ segir Bjarni Felix- son íþróttafréttamaður. „Þetta var allt öðruvísi í gamla daga en ég býst við að Albert hafi verið með góð laun á Ítalíu þó það jafn- ist ekki á við það sem þekkist núna. Í enska fótboltanum voru menn til dæmis með ákveðin há- markslaun og þau voru ekkert sérstaklega há. Ætli það hafi ekki verið miðað við góðan iðnaðar- mann og þetta hefur líklega verið um 20 pund á viku og menn fóru ekkert yfir það.“ Bjarni og Albert störfuðu sam- an innan KSÍ þegar Albert var formaður þar en Albert ruddi meðal annars kvennaknattspyrnu braut á þeim vettvangi. „Við höfð- um nú ekki mikla trú á þessu og það var fyrst og fremst Albert sem keyrði þetta í gegn. Hann vann á mjög sérstakan hátt og átti auðvelt með að keyra mál áfram og lokka menn til liðs við sig.“ ■ BJARNI FELIXSON Spilaði gegn Albert eftir að hann kom heim úr atvinnumennskunni. „Ég er nú á því að hann hefði átt að hætta alveg þegar hann kom heim. Hann var í það minnsta viðráðanlegur á vellinum.“ 25

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.