Fréttablaðið - 01.04.2003, Side 11
■ Asía
11ÞRIÐJUDAGUR 1. apríl 2003
!
"#
$% &#'(
) * +,-+
"-". / 01"234# /
0
# 567. 894:
/
) ;
"#
5. <=
/=!
3
.;%
43 #4
( (> 5!
1
?
""2
!
"#
$% &#'(
) * +,-+
"-". / 51"234# /
0
# 567. 894:
/
:- &
"#
5. <=
/=!
3
.;%
43 #4
( (> 5!
4 =/ @'
. :67A5:B
: $#'( :"-"01"23# / /
!! "#$ %
!
!&' !!"#
1
? : $#'( :"-"01"23 /
1
?
""2
!
"#
$% &#'(
) * +,-+
"-". 0
# 567. 894:
/
:- &
"#
5. <=
/=!
3
.;%
43 #4
( (> 5!
!!"#$
1
? : $#'( :"-" /
Ísafjörður:
Sló lögreglu-
mann í andlitið
LÖGREGLUMÁL Stúlka barði lög-
reglumann á Ísafirði í andlitið að-
faranótt sunnudags þannig að á
honum sá. Tildrög voru þau að
lögreglan ætlaði að ræða við öku-
mann við almennt umferðareftir-
lit en stúlkan, sem var farþegi í
bílnum, veittist þá að lögreglu-
mönnunum. Þá er hún grunuð um
að hafa ráðist á stúlku skömmu
áður og veitt henni áverka. Sök-
um ölæðis stúlkunnar sá lögregla
sig tilneydda að handtaka hana,
setja í handjárn og flytja á lög-
reglustöðina. Þegar hún var tekin
úr járnunum og setja átti hana í
klefa sló hún lögreglumanninn í
andlitið. ■
VIÐSKIPTI Gjaldþrot rækjufyrir-
tækjanna Nasco Bolungarvíkur
ehf. og Nasco ehf. í Reykjavík
nemur um 1.130 milljónum króna.
Skiptum lauk í móðurfélaginu
Nasco í Reykjavík fyrr í þessum
mánuði. Samþykktar kröfur í búið
námu um 610 milljónum króna.
Upp í þær voru greiddar tæpar 48
milljónir króna, þar af 21,8 millj-
ónir fyrir öllum forgangskröfum.
Gjaldþrotaskiptum Nasco Bol-
ungarvíkur er hins vegar enn
ólokið. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins námu samþykktar
kröfur í bú þess félags 833 millj-
ónum króna. Upp í það fást 267
milljónir, þar af 250 milljónir
vegna sölu húsa. Þær fóru upp í
667 milljóna króna veðkröfur.
Þær 17 milljónir serm eftir eru í
búinu fara upp í 38 milljóna króna
launakröfur. Ljúka á skiptum í
þessu félagi á næstu mánuðum.
Stærstu einstöku kröfuhafarn-
ir í bú Nasco í Reykjavík eru
Byggðastofnun með 145 milljónir
króna, Eimskip með 75 milljónir
og Búnaðarbankinn með 64 millj-
ónir. Alls námu almennar kröfur
589 milljónum króna. Upp í þær
fengust um 27 milljónir, eða tæp
5%.
Nasco Bolungarvík rak rækju-
vinnslu. Nasco í Reykjavík hafði
með höndum umboðssölu fyrir
rækju og átti, auk vinnslunnar í
Bolungarvík, dótturfyrirtæki í
Kanada og í Bretlandi. ■
Fjölskylduharmleikur í
Slagelse:
Skaut eigin-
konu og dætur
DANMÖRK 35 ára fjölskyldufaðir í
bænum Slagelse í Danmörku
skaut tvær dætur sínar og eign-
konu til bana síðastliðið laugar-
dagskvöld. Hann framdi sjálfs-
morð í kjölfarið. Dæturnar voru
þriggja og fimm ára, en sam-
kvæmt upplýsingum lögreglu í
bænum tilkynnti maðurinn sjálf-
ur um morðin og sagðist myndu
taka sitt eigið líf. Allt var fólkið
látið þegar lögregla kom á staðinn
en deilur milli hjónanna voru or-
sök harmleiksins.
Hjónin voru bæði starfsmenn í
heilbrigðisþjónustu Slagelse. ■
Skotárás í kirkju:
Blóði úthellt
í messu
MICHIGAN, AP Sunnudagsmessa í
kirkju albanska safnaðarins í
Rochester Hills í Bandaríkjunum
hlaut dapurlegan endi þegar einn
kirkjugestanna stóð skyndilega
upp með skammbyssu á lofti og
skaut annan mann til bana. Tók
hann því næst að skjóta upp í loft-
ið en var að lokum yfirbugaður af
nærstöddum. Mikil skelfing greip
um sig á meðal kirkjugesta, sem
ýmist hlupu að útgöngudyrunum
eða reyndu að skríða út um glug-
ga, og slösuðust að minnsta kosti
sjö manns á flóttanum.
Árásarmaðurinn og fórnar-
lambið höfðu átt í illdeilum um
margra ára skeið en ekki liggur
fyrir hvort árásin var fyrir fram
skipulögð. ■
BLÓÐUGAR ÆTTAERJUR Byssu-
menn, íklæddir einkennisbúning-
um vígasveita, skutu tólf manns
til bana og særðu 26 í suðurhluta
Pakistan. Meðal hinna særðu
voru lögreglumaður og opinber
embættismaður. Árásin tengist
ættbálkaerjum og er óttast að
hún geti orðið kveikjan að hörð-
um átökum milli tveggja pakist-
anskra höfðingjaætta.
GASSPRENGING Í NÁMU Að
minnsta kosti sextán manns létu
lífið þegar gassprenging varð í
kolanámu í norðausturhluta Kína.
Nítján var bjargað úr námunni en
tíu er enn saknað. Kolanámur í
Kína eru þær hættulegustu í
heimi en árlega láta þúsundir
kínverskra námuverkamanna líf-
ið við störf sín.
ÁRÁS Á SVEITAÞORP Tólf manns
særðust og fjórtán hús brunnu til
grunna þegar á annað hundrað ís-
lamskra uppreisnarmanna gerði
árás á tvö sveitaþorp á sunnan-
verðum Filippseyjum. Árásar-
mennirnir tóku sex óbreytta
borgara í gíslingu og báru þá fyr-
ir sig í átökum við hermenn. Dag-
inn áður höfðu yfirvöld og
skæruliðar samið um að taka upp
friðarviðræður að nýju og koma
á vopnahléi.
Skiptum lokið í Nasco ehf. og að ljúka í Nasco Bolungarvík:
Gjaldþrot rækjuveldis
rúmur milljarður króna
Akureyri:
Girti niður
um sig
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Akur-
eyri veitti síðdegis á laugardag
athygli manni á reiðhjóli sem
hjólaði niður Gilið og beygði svo
norður Skipagötuna í átt að mið-
bænum. Lögreglu fannst maður-
inn hjóla heldur ógætilega en þó
tók út yfir allan þjófabálk þegar
hann girti niður um sig buxurnar
á miðri götunni og „múnaði“
framan í vegfarendur. Lögreglan
stöðvaði þessa ósvinnu og kom í
ljós að maðurinn hafði stolið reið-
skjótanum. Var honum gert að
haga sér framvegis siðsamlega á
almannafæri og hélt við svo búið
ferð sinni áfram fullgirtur á
tveimur jafnfljótum. ■