Fréttablaðið - 01.04.2003, Blaðsíða 23
ÞRIÐJUDAGUR 1. apríl 2003 19
SÍMI 553 2075
Sýnd kl. 6, 8 og 10 b.i. 16 ára
Sýnd kl. 8 og 10THE HUNTED 5.50, 8 og 10.15
THUNDERPANTS kl. 4 SKÓGARLÍF 2 m/ísl. tali kl. 4 ABOUT SCHMIDT kl. 3 og 5.30
KALLI Á ÞAKINU m/ísl. tali um helgar
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15 b.i. 16 ára
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8, 10.15, 12.20
FRIDA b.i. 12 kl. 5.30 og 8 THE HOURS b.i. 12 5.40, 8 og 10.20
GANGS OF NEW YORK b.i. 16 kl. 10Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20 b.i. 12 ára
Sýnd kl. 6, 8 og 10 b.i. 16 ára
METALLICA
Er líklegast ein ástæðan fyrir því af hverju
miðar eru að seljast upp á hátíðina í ár.
Hróarskelduhátíðin 2003:
Miðar að
seljast upp
TÓNLIST Svo virðist sem aðsókn á
Hróarskelduhátína, sem haldin er
árlega í Danmörku, verði meiri í ár
en oft áður. Að minnsta kosti sáu
stjórnarmenn hátíðarinnar sig til-
neydda til þess að senda frá sér til-
kynningu þar sem áhugasamir
voru hvattir til þess að fara að gera
upp hug sinn. Hugsanlegt er að
uppselt verði í næsta mánuði.
Sjötíu og fjögur þúsund miðar
verða seldir á hátíðina í ár og hefur
salan verið mun betri en á sama
tíma í fyrra. Stúdentaferðir, sem
eru söluaðilar á Íslandi, eru þegar
búnar með sinn skammt og segjast
ekki eiga von á fleiri miðum fyrr
en um miðjan apríl. Þar á bæ eru
menn ekki lengur í þeirri aðstöðu
að geta tryggt þeim sem vilja miða.
Skrifstofan fékk 500 stykki til ráð-
stöfunar í upphafi árs og eru
miðarnir allir seldir.
Á meðal þeirra sem nú þegar
hafa boðað komu sína á tónleika-
hátíðina eru Blur, Coldplay, The
Datsuns, Dave Gahan, Gusgus,
Iron Maiden, Metallica, Queens of
the Stone Age og The Streets. ■
Söngvarinn Liam Gallagher færvíst aukið rými til lagasmíða
innan Oasis eftir vinsældir „Song-
bird“. Á næstu plötu sveitarinnar
verður meðal annars að finna nýtt
lag sem fjallar um fangelsisvist
hans í Þýskalandi. Lagið heitir
„They ain’t Got Nothing on Me,
They ain’t Got Nothing on You“.
Þetta er fimmta lagið sem piltur-
inn semur fyrir sveitina en hingað
til hefur eldri bróðir hans Noel séð
um lagasmíðar.
Þrátt fyrir að Madonna hafineyðst til þess að breyta mynd-
bandi fyrir væntanlega smáskífu
sína, „American Life“ neitaði hún
þó að klippa eitt
atriðið út og ótt-
ast útgefendur
hennar að það
eigi eftir að
valda deilum. Í
því sést
Madonna henda
handsprengju í
kjöltuna á
manni sem er
nauðalíkur
George W.
Bush. Það kemur svo í ljós að
„sprengjan“ er meinlaus kveikjari.
Söngkonan þverneitar því að hegð-
un hennar sé ekki við hæfi á
stríðstímum. Hún segist enn vera
á móti stríði en að aðal umhugsun-
arefni hennar núna sé að banda-
rískir hermenn komist heilir heim.