Fréttablaðið - 19.05.2003, Blaðsíða 2
2 19. maí 2003 MÁNUDAGUR
„Nei, ríkisstjórnin situr áfram en það er
spurning um mig. Framtíðin er óviss
eins og hjá mörgum um þessar mundir.“
Í næstsíðasta þætti sínum í Silfri Egils kvaddi Egill
Helgason dramatískur og var helst á honum að
skilja að hann myndi ekki snúa aftur á Skjá einn
að loknu sumarfríi. Kveðja hans í síðasta þætti
þessa tímabils var hins vegar: „Það má hugsa sér
verra djobb en þetta.“
Spurningdagsins
Egill, er búið að kaupa þig til áfram-
haldandi veru hjá Skjá einum?
BANKARÆNINGINN
Hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald til
föstudags.
Bankaræninginn
í Kópavogi:
Hefur ekki
enn vísað
á féð
BANKARÆNINGI Pilturinn sem rændi
Sparisjóð Kópavogs hefur játað að
hafa framið ránið en ekki vísað á
féð. Að sögn varðstjóra í rannsókn-
ardeild Lögreglunnar í Kópavogi er
hann í stöðugum yfirheyrslum og
gefur misvísandi upplýsingar um
hvar peningana sé að finna.
Lögreglan vildi ekki staðfesta
orðróm þess efnis að pilturinn hafi
notað féð til að greiða fíkniefna-
skuld. Ekkert hafi komið fram við
rannsóknina sem bendi til þess.
Pilturinn er tvítugur, býr í for-
eldrahúsum og hefur lítillega komið
við sögu lögreglu áður. Hann huldi
ekki andlit sitt og þekktist af örygg-
ismyndavélum bankans. Hann var
úrskurðaður í gæsluvarðhald þar til
síðdegis á föstudag en talið er að féð
sem hann náði nemi allt að einni
milljón króna. ■
FLAKINU EKIÐ Á BROTT
Ísraelskur bílstjóri reynir að aka flaki strætis-
vagnsins burt af vettvangi.
Mannskæð árás:
Fyrsta árás
í hálft ár
JERÚSALEM, AP Átta manns fórust
þegar palestínskur hryðjuverka-
maður úr röðum Hamas-samtak-
anna sprengdi sjálfan sig í loft upp í
strætisvagni í Jerúsalem. Í kjölfar-
ið aflýsti Ariel Sharon, forsætisráð-
herra Ísrael, ferð sinni til
Washington þar sem ræða átti nýjan
vegvísi til friðar í Miðausturlönd-
um.
Árásarmaðurinn dulbjó sig sem
strangtrúaðan gyðing og fór um
borð í strætisvagn í borginni á há-
annatíma snemma morguns. Tutt-
ugu farþegar særðust, þar af sex
hermenn sem voru á leið til vinnu.
Staðfest hefur verið að nítján ára
gamall liðsmaður Hamas-samtak-
anna hafi framkvæmt árásina en
samtökin hafa ekki lýst ábyrgð á til-
ræðinu á hendur sér.
Skömmu fyrir árásirnar fund-
aði Ariel Sharon með Mahmoud
Abbas, forsætisráðherra Palest-
ínu, vegna hins nýja vegvísis.
Leiðtogunum tókst ekki að komast
að samkomulagi um framkvæmd
áætlunarinnar. ■
ÖRYGGISVERÐIR GRIPU ÞJÓF Brot-
ist var inn í Plastprent á Fosshálsi í
fyrrinótt. Öryggisverðir komu á
vettvang og mættu manni á leið út.
Þeir héldu honum þar til lögreglan
kom og handtók manninn. Í fórum
sínum hafði hann sitthvað sem
hann hugðist koma í verð.
BÍLVELTA NÁLÆGT ÞINGEYRI Bíl-
velta varð eftir hádegi í gær í
Brekkudal, á veginum á leið frá
Þingeyri á Hrafnseyrarheiði. Eldri
maður var einn í bílnum og slapp
hann án teljandi meiðsla. Hvasst
var á þessum stað. Bíllinn fór
nokkrar veltur og er gjörónýtur.
BIÐU KÖLD OG HRAKIN Bílvelta
var á veginum yfir Möðrudalsör-
æfi aðfaranótt sunnudags. Kona á
fertugsaldri og fimmtán ára sonur
hennar voru ein í bílnum og lentu í
krapaelg með þeim afleiðingum að
bíllinn valt. Þau voru orðin köld og
hrakin þegar bíll kom að um tveim
tímum síðar.
ÁTTA MANNS Í UMFERÐARÓHAPPI
Harður árekstur varð um tvöleytið
á laugardag í Kræklingahlíð norð-
an Akureyrar. Að sögn varðstjóra í
slökkviliði Akureyrar var jeppa
ekið aftan á tvo kyrrstæða fólks-
bíla og kastaðist annar þeirra 25-
30 metra útaf veginum. Átta
manns voru í bílunum þremur og
voru þrír fluttir á Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri til nánari
skoðunar en meiðsl þeirra eru tal-
in minniháttar.
FESTI BÍL Tilkynnt var til lögregl-
unnar á Hvolsvelli aðfaranótt
laugardagsins að maður hefði fest
bíl sinn á Sprengisandsleið. Tveir
bílar frá lögreglunni fóru af stað
og fundu manninn, sem var
bandarískur frá Varnarliðinu í
Keflavík. Hann var kominn fót-
gangandi langleiðina í Veiðivötn
þegar hann fannst. Maðurinn var
hress og vel á sig kominn.
Síbrotamaður:
Braust inn
og var
gripinn
SÍBROTAMAÐUR Lögreglan á Selfossi
handtók á laugardagsmorgun inn-
brotsþjóf sem brotist hafði inn í
þrjú hús í bænum aðfaranótt laug-
ardags. Hann slapp úr tveimur
húsanna áður en tókst að klófesta
hann. Í þriðja húsinu tókst húsráð-
anda hins vegar að halda honum
og barst leikurinn út í garð þar
sem lögreglan hirti manninn.
Maðurinn hafði ekkert upp úr
krafsinu en hann hefur lítillega
komið við sögu lögreglunnar áður.
Á grundvelli fyrri brota óskaði
lögreglan eftir gæsluvarðhaldsúr-
skurði fram á föstudag. Að sögn
lögreglunnar hefur hann búið í
sýslunni um nokkurra ára skeið
og verið til vandræða. Hann verð-
ur vistaður á Litla Hrauni. ■
Kvótinn hverfur
af Vestfjörðum
Nánast hvert einasta sjávarþorp á Vestfjörðum hefur tapað stórum hluta
fiskveiðiheimilda sinna frá árinu 1991. Strandamenn hafa einnig mátt
sjá á bak verulegum hluta síns kvóta.
SJÁVARÚTVEGUR Á síðasta rúma ára-
tug hafa miklar sveiflur verið í
aflaheimildum á milli byggðarlaga.
Megin einkenni er að kvótinn
leitar frá minni sveitarfélögum og
safnast á stærri bæi. Þá hefur kvót-
inn einnig leitað frá einstöku land-
svæðum. Það á við um Vestfirði þar
sem flest sjávarþorp hafa misst
mikinn kvóta frá því 1991.
Ef veiðiheimildir í öllum fisk-
tegundum eru mældar sem
þorskígildi sést hvernig aflaheim-
ildirnar hafa breyst frá úthlutun
haustsins 1991 og til úthlutunar
kvótans í fyrrahaust.
Úthlutaður heildarafli fyrir fisk-
veiðiárið 1991 - 1992 var tæp 471
þúsund tonn. Síðasta haust nam út-
hlutunin nokkru
minna, eða 459 þús-
und tonnum.
Á Súðavík áttu
haustið 1991 heima-
höfn skip sem sam-
tals höfðu 4.557
tonna þorskígildisk-
vóta. Í dag er kvótinn aðeins fimmt-
ungur þessa magns, eða 896 tonn.
Kvótinn á Þingeyri er nú aðeins
26% þess sem hann var árið 1991.
Af 6.394 tonnum eru 4.700 tonn
horfin.
Heimaskip Ísfirðinga, sem áður
réðu yfir 18.185 tonnum, hafa nú
aflaheimildir upp á 11.514 tonn.
Tæp 37% kvótans eru farin.
Á Flateyri voru skip með 2.849
tonna kvóta haustið 1991. Nú eru
43% kvótans eftir; 1.216 tonn farin.
Sams konar sögu er að segja af
Bolungarvík. Þar voru aflaheimild-
ir 9.028 tonn. Helmingurinn er far-
inn.
Á Bíldudal hefur kvótastaðan
versnað mikið. Af 3.791 tonns kvóta
eru nú einungis 1.260 tonn eftir. Ná-
kvæmlega tveir þriðju hlutar kvót-
ans eru horfnir af skipum Bíldæl-
inga á þessu ellefu ára tímabili.
Kvóti á Suðureyri hefur reyndar
staðið í stað. Hann er nú 2.493 tonn
í stað 2.427 tonna.
Staðan er einnig mun betri á suð-
urfjörðum Vestfjarða. Á Patreks-
firði hafa aflaheimildir verið sem
næst óbreyttar. Á Tálknafirði hafa
þó tæplega 10% kvótans horfið.
Hinu megin á Vestfjarðakjálk-
anum, í Strandasýslu, hafa byggð-
irnar einnig mátt sjá á bak veruleg-
um hluta fiskveiðiheimilda.
Á Hólmavík er aðeins fjórðung-
ur eftir af kvótanum sem nú stend-
ur í 998 tonnum. Á Drangsnesi er
kvótinn nú 60% þess sem hann var
árið 1991.
gar@frettabladid.is
ATVINNUMÁL „Mér finnst þessar
hugmyndir vægast sagt mjög var-
hugaverðar og ég efast ekki um að
atvinnurekendum muni líka þær
mjög vel,“ segir Ögmundur Jónas-
son, formaður BSRB.
Í Morgunblaðinu í gær vekur
Gunnar Páll Pálsson, formaður
Verslunarmannafélags Reykjavík-
ur, máls á hugmyndum sínum þess
efnis að fyrsti dagur í veikindum
launafólks verði launalaus. Þessi
dagur sé sá dýrasti út frá sjónar-
hóli vinnuveitandans og Gunnar
telur sniðugt að menn hafi sjálfsá-
hættu í minni veikindum gegn
betri tryggingum í lengri og alvar-
legri tilvikum.
Ögmundi lýst afar illa á og tel-
ur að ef þetta gangi eftir sé á ferð-
inni hættuleg réttindaskerðing
fyrir launafólk. „Tekjuminnsta
fólkið, sem má ekki verða af einni
krónu til að skrimta, myndi að öll-
um líkindum pína sig til vinnu
hundveikt. Og þegar talsmenn
verkalýðshreyfingar eru farnir að
tala um sjálfsáhættu í veikindum
þá held ég að mönnum beri að
hugsa sinn gang.“ ■
FARSÍMAR „Landssíminn skráði
„GSM Frelsi“ sem vörumerki
árið 1998 og því var síðar breytt í
Frelsi þannig að við erum ein-
faldlega að vernda vörumerkja-
rétt okkar,“ segir Heiðrún Jóns-
dóttir, upplýsingafulltrúi Lands-
símans, um kröfu fyrirtækisins
um lögbann á notkun samkeppn-
isaðilans Og Vodafone á orðinu
„frelsi“.
„Við vildum ekki gera fjöl-
miðlamál úr þessu en þeir hjá Og
Vodafone vilja það greinilega og
því er rétt að sjónarmið Lands-
símans komi fram. Þeir eru með
alls konar útúrsnúninga og orða-
leiki en aðalmálið er að Land-
ssíminn á „frelsi“. Við höfum
lagt stórfé í markaðssetningu á
hugtakinu og fáum ekki betur
séð en að Og Vodafone hyggist
spara sér umtalsverðar fjárhæð-
ir með því að nota „frelsi“ um
fyrirframgreidda farsímaþjón-
ustu sína. Við höfðum áður farið
fram á það við Og Vodafone að
þeir hættu að nota orðið en þeir
urðu ekki við því þannig að okk-
ur var nauðugur einn kostur að
fara fram á lögbann hjá sýslu-
manni sem hefur fallist á sjónar-
mið Landssímans.“ ■
Réttindalaus ökumaður:
Hlaupinn
uppi
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Sauð-
árkróki elti uppi ungan réttinda-
lausan ökumann aðfaranótt laug-
ardagsins.
Hann hafði ekið á ofsahraða
um bæinn og þegar hann varð
lögreglunnar var, stökk hann út
úr bílnum og hvarf út í nóttina.
Lögreglumenn hlupu hann uppi
á milli garða í bænum. Hann var
örmagna þegar hann náðist og
grunur leikur á að hann hafi ver-
ið ölvaður. Pilturinn var á bíl
foreldra sinna og hafði tekið
hann ófrjálsri hendi á meðan
þau sváfu. Hann fékk að sofa úr
sér í fangageymslum. ■
■ Lögreglufréttir
■ Lögreglufréttir
HEIÐRÚN JÓNSDÓTTIR
„Þeir eiga TalFrelsi sem vörumerki og er auðvitað frjálst að nota það áfram og geta svos-
em skeytt hverju sem er fyrir framan „frelsi“ en Landssíminn á orðið sem skráð vörumerki
og það er því eðlilegt að hann standi vörð um það.“
ÖGMUNDUR JÓNASSON
Þegar talsmenn verkalýðshreyfingar
eru farnir að tala um sjálfsáhættu í
veikindum held ég að mönnum beri
að hugsa sinn gang.
KVÓTASTAÐAN Á VESTFJÖRÐUM
Á þessari mynd sjást breytingar sem urðu frá 1991 til 2002 á aflaheimildum skipa sem
skráð eru til hafnar á Vestfjarðakjálkanum.
■
Á Súðavík er
kvótinn aðeins
fimmtungur
þess sem hann
var 1991.
6660
7
44
89
45
00
29
21
32
31
12
60
37
91
16
85
63
94
16
33
28
49
24
93
24
27
44
83
90
28
44
12 1
15
14
18
18
5
89
6
45
57
70
56
16
2
12
20
20
00
99
8
37
74
BRJÁNSLÆKUR
PATREKSFJÖRÐUR
TÁLKNAFJÖRÐUR
BÍLDUDALUR
ÞINGEYRI
FLATEYRI
SUÐUREYRI
BOLUNGARVÍK
HNÍFSDALUR
ÍSAFJÖRÐUR
SÚÐAVÍK NORÐURFJÖRÐUR
DJÚPAVÍK
DRANGSNES
HÓLMAVÍK
-89.16
-0,24
-9,61
-66,76
-73,64
+2,72
-42,68
-50,35 -36,68
-65,29
-80,34
-39,01
-73,55
1991 2002
38
19
6
61
50
5
VESTFIRÐIR ALLS:
-37,9
Formaður BSRB ósáttur við tillögur VR:
Veikir láglaunamenn
pína sig til vinnu
Landssíminn ver vörumerki sitt:
Vill hafa sitt frelsi í friði