Fréttablaðið - 19.05.2003, Page 6
6 19. maí 2003 MÁNUDAGUR
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ: 8.679,0 -0,4%
Nasdaq: 1.538,5 -0,8%
FTSE: 4049,0 0,9%
DAX: 2989,1 0,0%
NIKKEI: 8117,3 -0,1%
S&P: 944,3 -0,3%
Veistusvarið?
1Í hvaða banka á höfuðborgarsvæðinuvar framið vopnað rán síðastliðinn
föstudag?
2Fyrrverandi forstjóri General Electrickom í heimsókn hingað til lands í boði
Baugs og Kaupþings. Hvað heitir maður-
inn?
3Hillary Clinton, fyrrum forsetafrúBandaríkjanna, hefur ritað bók um líf
sitt í Hvíta húsinu. Hvað heitir bókin?
Svörin eru á bls. 38
ÍRAK, AP Á milli fimmtán og þrjátíu
þúsund meðlimum Baath, stjórn-
málasamtaka Saddams Husseins,
verður bannað að taka þátt í eða að
mynda nýja ríkisstjórn í Írak,
samkvæmt ummælum ónefnds
háttsetts manns í endurreisnar-
hópi Bandaríkjanna.
Þetta mun þýða að flokkur
Husseins er í raun allur ef hann
getur ekki haft nein afskipti af
stjórn landsins. Þetta er hluti af
þeirri stefnu bandamanna að upp-
ræta öll ítök flokksins í landinu.
Þetta verður ekki auðvelt. Til
dæmis hafa allar stöðuveitingar
innan Íraks síðustu ár farið að
miklum hluta eftir tengslum við-
komandi innan flokksins. Banda-
ríkjamenn segja að hingað til
hafi einungis tvö þúsund með-
limir úr Baath sótt um störf inn-
an nýrrar ríkisstjórnar.
Ein og hálf milljón Íraka var
skráð í Baath flokkinn en að-
eins fyrrnefndir fimmtán til
þrjátíu þúsund voru fullir með-
limir. ■
Samkomulagi náð:
Verkföllum
lokið
PARÍS, AP Verkfalli opinberra
starfsmanna í Frakklandi, sem
lamað hefur allar samgöngur í
landinu síðustu daga, er lokið eft-
ir að sátt náðist við tvö stærstu
verkalýðsfélögin.
Strætisvagna- og lestarsam-
göngur voru komnar í horf fljót-
lega eftir það og íbúar Frakklands
geta því sett línuskautana og reið-
hjólin aftur inn í geymslu.
Samkomulagið er á þá lund að
opinberir starfsmenn greiða leng-
ur í lífeyrissjóði en áður var en
tilefni verkfallsins voru tillögur
stjórnvalda um að breyta núver-
andi kerfi áður en það hryndi.
Aðrar uppástungur sem stjórn-
völd samþykktu að skoða voru
hærri lífeyrisgreiðslur og að eft-
irlaunaaldur ákveðinna hópa
myndi lækka. ■
ÍRAK, AP Mannréttindasamtökin
Amnesty International hafa
greint frá því að þau eru að
rannsaka hvort breskir og banda-
rískir hermenn hafi framið mann-
réttindabrot á 20 föngum á meðan
á stríðinu stóð í Írak.
Fangarnir hafa undirritað yfir-
lýsingu þar sem kemur fram að
sparkað hafi verið í þá og þeir
barðir á meðan á yfirheyslum
stóð. Nokkrir þeirra eru óbreyttir
borgarar sem herir Breta og
Bandaríkjamanna grunuaðu um
að vera hliðhollir Saddam
Hussein, fyrrum Íraksforseta.
Einn þeirra segist hafa verið
pyntaður með rafmagni.
Breska varnarmálaráðuneytið
sagðist ekki hafa fengið neinar
kvartanir en neitaði alfarið að illa
hefði verið farið með fanga.
„Fangar okkar voru meðhöndlað-
ir samkvæmt Genfar-sáttmálan-
um og Rauði Krossinn leit reglu-
lega við í heimsókn,“ sagði í yfir-
lýsingu þeirra. „Ef grunur leikur
á öðru, þá munum við að sjálfs-
sögðu rannsaka það.“
Bandaríska varnarmálaráðu-
neytið hefur ekkert viljað tjá sig
um ásakanirnar.
Frá því Bandaríkin réðust inn í
Afganistan hafa borist fréttir af
því af og til að bandarískir
leyniþjónustumenn eða samstarf-
smenn þeirra hafi beitt of mikilli
hörku við yfirheyrslur. Þeim
hefur öllum verið neitað af ban-
darískum hermálayfirvöldum. ■
TÆKNI Hugmyndin um fljúgandi
bíla, á borð við þá sem sjást í kvik-
myndum eins og Minority Report
og Blade Runner, hefur lengi heill-
að flesta sem eru fastir á gatna-
mótum víðs vegar um heiminn síð-
degis á föstudögum.
Þessi hugmynd er ekki lengur
bara hugmynd, heldur veruleiki.
Að minnsta kosti þrjú fyrirtæki
hafa reynt að þróa útgáfur af fljúg-
andi bílum undanfarin ár, og eitt
þeirra er langt komið. Svo langt
komið í raun, að það er farið að
taka niður pantanir og auglýsinga-
bæklingar fyrirtækisins lofa sann-
arlega góðu. Drægi bílsins er 750
kílómetrar á fullum tanki, hann á
að komast í 29 þúsund feta hæð,
mesti hraði er 560 km á klukku-
stund og hann þarf einungis 12 fer-
metra til að taka á loft og lenda.
Flugbíll þessi, sem ber það
frumlega heiti Skycar, er þó langt
frá því að geta kallast hentugur
kostur til ferðalaga. Fyrsta vanda-
málið er hávaðinn en bíllinn svífur
á átta litlum en öflugum mótorum,
smækkaðri útgáfu af þyrlumótor-
um, og eins og þeir vita sem staðið
hafa nálægt þyrlum eru þær ekki
ýkja hljóðlátar. Bílpróf er ekki nóg
til að kíkja aðeins á rúntinn, heldur
verður að gangast undir próf sem
að líkindum verða jafn ströng og
flugpróf. Svo er hættan talsverð á
árekstrum nái flugbíllinn vinsæld-
um.
Stærsta vandamál Moller, sem
framleiðir Skycar, er þó sá að flug-
bíllinn virkar ekki. Þeim hefur tek-
ist að fá frumeintak bílsins til að
svífa fyrir ljósmyndara en lengra
hafa þeir ekki komist.
Þangað til fundinn er upp hljóð-
látur þotuhreyfill eru litlar líkur á
að flugbílar nái almennum vin-
sældum. Verðið er einnig fullhátt
ef marka má framleiðendur Skyc-
ar, en gert er ráð fyrir að slakasta
módelið kosti í kringum 37 milljón-
ir króna. ■
BÆNDASKÓLINN Á HVANNEYRI
Nemendum hefur fjölgað bæði á fram-
halds- og háskólastigi.
Landbúnaðarháskólinn
á Hvanneyri:
Nemendum
fjölgar
SKÓLASTARF Landbúnaðarháskólinn
á Hvanneyri útskrifar nú í vor 23
nemendur í bændadeild og 12
ljúka BS-prófi frá skólanum. Að
sögn Björns Garðarssonar
kennslustjóra hefur fjöldi nem-
enda aukist síðastliðin ár, bæði á
framhaldsskóla- og háskólastigi.
Umhverfisskipulagsdeild, námi í
arkitektúr, var bætt við fyrir
tveimur árum auk þess sem nem-
endum hefur fjölgað í þeim deild-
um sem fyrir voru. „Fókusinn er
ekki lengur á þessar hefðbundnu
ær og kýr, heldur á nýtingu lands
í heild, skógrækt og þess háttar,“
segir Björn, sem finnur fyrir vax-
andi áhuga nemenda á þessum
greinum. ■
TÓMLEGAR LESTARSTÖÐVAR
Verkfallinu er nú formlega lokið og
lestir ganga eðlilega.
Flugbílar
takast á loft
Fyrirtæki eitt er farið að taka við pöntunum í bíla sem á ekki aðeins að
vera hægt að keyra um götur heldur einnig fljúga um himinhvolfin.
Flugbíllinn á þó enn langt í land.
SKÝJABÍLLINN PRÓFAÐUR
Þrjú fyrirtæki fást við að þróa fljúgandi bíla. Engu þeirra hefur þó tekist að framleiða
flugbíl sem virkar.
Baath flokkur Saddams Husseins upprættur:
Ryður veginn
fyrir lýðræði
PAUL BREMER
Búinn að banna Baath, stjórnarflokk Saddams Husseins.
Amnesty International rannsakar kvartanir íraskra fanga bandamanna:
Ásakanir um mannréttindabrot
ÍRASKIR FANGAR
Sumir þeirra hafa kvartað yfir pyntingum.
DECODE HÆKKAR DeCode, móð-
urfélag Íslenskrar erfðagreining-
ar, hækkaði um 6,78 prósent á
Nasdaq-markaðnum á föstudag.
Félagið birti uppgjör í vikunni
sem sýndi auknar tekjur frá
fyrra ári. Tapið jókst einnig. Við-
brögð á markaði benda til þess að
uppgjörið hafi verið heldur yfir
væntingum. Lokagengi á föstu-
dag var 2,49 dollarar á hlut.
■ Viðskipti