Fréttablaðið - 19.05.2003, Qupperneq 37
MÁNUDAGUR 19. maí 2003
Saga að
handan
BÆKUR Skáldsagan The Lovely Bo-
nes eftir Alice Seabold kemur út í
íslenskri þýðingu hjá JPV Útgáfu
síðar á þessu ári. Bókin kom út í
Bandaríkjunum í fyrra og hafði
selst í nær tveimur milljónum ein-
taka sex vikum eftir útkomu og
hefur setið á metsölulistum vestra
í 44 vikur.
Íslenskir bókaútgefendur
renndu því skiljanlega hýru auga
til bókarinnar en Jóhann Páll Valdi-
marsson var búinn að tryggja sér
útgáfuréttinn á henni áður en aðrir
tóku við sér og unnendur góðra
skáldsagna mega því eiga von á
miklu hnossgæti í haust.
The Lovely Bones er sérstak-
lega áhugaverð skáldsaga sem seg-
ir frá 14 ára stúlku sem er nauðgað
og myrt af nágranna sínum. Hún
segir sögu sína sjálf og fylgist með
sorgarviðbrögðum foreldra sinna
kljúfa fjölskyldu sína og hefur
gætur á morðingjanum úr einka-
himnaríkinu sínu. ■
46 ÁRA „Hver heldur þú að trúi
þessu? Ég er ekki deginum eldri en
40 ára,“ segir Gaui litli – afmælis-
barn dagsins.
Þessi helsti málsvari feita fólks-
ins á Íslandi segist ekki finna fyrir
aldrinum en játar að þar kunni að
spila inn í að hann nauðrakar á sér
skallann reglulega. „Hugsanlega
væri ég grárri og guggnari ef svo
væri ekki, því farin eru að sjást grá
hár í skegginu.“
Þegar þetta er skrifað er Gaui
litli staddur í Noregi að heilsa upp á
„Önnu litlu súkkulaðidrottningu“
sem er í megrunarátaki í Morgun-
sjónvarpi Stöðvar 2. En hann lendir
í dag og ætlar þá að heimsækja
frænku sína sem er áttræð í dag og
eftir að hafa kennt og hjólað er hug-
myndin að verja kvöldinu með fjöl-
skyldunni. Gaui telur víst að hann
fái gjafir frá sínum nánustu, en þó
líklega ekki það sem er efst á óska-
listanum. Nefnilega ný hné. „Já, þau
eru ónýt í mér hnén.“
Eftirminnilegasta afmælis-
veisla sem haldin hefur verið í
tengslum við afmæli Gaua litla
var þegar hann varð fertugur.
„Þetta var í lok sjónvarpsátaksins
fræga og ég hélt upp á afmælið á
Fjörukránni að víkingasið. Í þá
veislu mættu 150 manns. Það er sú
stærsta og eftirminnilegasta
veisla sem ég hef staðið fyrir í
mína þágu. Og þá fékk ég einnig
eftirminnilegustu afmælisgjöf
ferilsins. Snorri Þórisson kvik-
myndagerðarmaður vinur minn
gaf mér þá þúsundkall fyrir hvert
það kíló sem ég felldi á þeim tíma.
Hann er einn af hvatamönnum
þess að ég gerði eitthvað í mínum
málum á sínum tíma. Sé ekki eftir
því að hafa fylgt hans ráðum né
held ég að hann hafi séð eftir pen-
ingnum en Snorri þurfti að punga
út 53 þúsundum. Ég hafði gaman
að því að hafa þennan pening af
honum. Dýr þætti Hafliði allur.“ ■
Afmæli
GUÐJÓN SIGMARSSON
„GAUI LITLI”
■ Hafði gaman að því að hafa pening
af vini sínum, Snorra Þórissyni, sem gaf
honum þúsundkall fyrir hvert fellt kíló í
frægu megrunarátaki Gaua. Snorri þurfti
að punga út 53 þúsundum.
GAUI LITLI
Afmælisbarn dagsins hafði um það góð orð að berjast fyrir þingsæti í nýliðnum kosning-
um sem málsvari feita fólksins en það mun bíða þar til hann er búinn að tryggja sér það
að verða heilbrigðisráðherra.
ANDLÁT
Ester Hjálmarsdóttir Hansen, lést 14.
maí.
Guðrún Helga Arnarsdóttir, lést 16.
maí.
Guðbjört Ólafsdóttir, Njálsgötu 72,
Reykjavík, lést 14. maí.
Theodór Laxdal Sveinbergsson, Túns-
bergi, Svalbarðsströnd, lést 16. maí.
Andrjes Gunnarsson, Sólvangsvegi 3,
Hafnarfirði, lést 16. maí.
Halldóra Halldórsdóttir, fyrrverandi
húsfreyja á Sveinsstöðum, lést 15. maí.
Guðrún Margrét Hallgrímsdóttir, Lang-
holti 14, Akureyri, lést 15. maí.
Sigríður Breiðfjörð, Snorrabraut 56,
Reykjavík, lést 15. maí.
JARÐARFARIR
10.30 Hrafnhildur Líf Baldursdóttir,
Hátúni 6, Reykjavík, verður jarð-
sungin frá Grafarvogskirkju.
13.30 Kolbrún Guðmundsdóttir, Gull-
smára 9, Kópavogi, verður jarð-
sungin frá Dómkirkjunni.
13.30 Katrín Sigurðardóttir, Logafold
42, Reykjavík, verður jarðsungin
frá Grafarvogskirkju.
13.30 Kristinn Helgason, Grundargerði
9, Reykjavík, verður jarðsunginn
frá Einarsstaðakirkju.
14.00 Eyvindur Áskelsson, Laugafelli,
Reykjadal, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju.
15.00 Guðrún Hermannsdóttir, fyrrver-
andi kennari, verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju.
■ Tímamót
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/RÓ
B
ERT
THE
LOVELY
BONES
Er afskaplega
falleg, sorgleg
og spennandi
þroskasaga
stúlku sem
verður að konu
eftir dauða sinn.
Saga hennar gleymist seint en hún segir
hana eftir dauðann og fylgist með afdrif-
um sinna nánustu úr himnaríkinu sínu.
53 þúsund
fyrir felld kíló