Fréttablaðið - 30.07.2003, Síða 1

Fréttablaðið - 30.07.2003, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Tónlist 20 Leikhús 20 Myndlist 20 Bíó 22 Íþróttir 18 Sjónvarp 24 MIÐVIKUDAGUR 30. júlí 2003 – 174. tölublað – 3. árgangur ÍSRAELAR ÍHUGI AFLEIÐINGAR AÐGERÐA Sharon, forsætisráðherra Ísra- els hvikar hvergi frá þeirri ákvörðun að reisa girðingu um- hverfis heimastjórnar- svæði Palestínu- manna. Bush Banda- ríkjaforseti segist ánægður með jákvæð skref Ísraelsmanna en hvetur þá til var- færni. Bls. 2 SÓTT AÐ HJARTA KOLKRABBANS Talið er að Kaupþing vilji komast yfir Skelj- ung til að selja 6 milljarða eign í öðrum fé- lögum og strípa félagið. Valdablokk Kol- krabbans verst ásókninni. Stríðið um Skelj- ung í fullum gangi. Bls. 4 SKORTIR ÁKVÆÐI Bogi Nilsson segir Samkeppnisstofnun skorta ákvæði um að henni beri að vísa sérstaklega alvarlegum eða umfangsmiklum málum til ákæruvalds og lögreglu til meðferðar. Bls. 6 SYRGIR SYNI Saddam Hussein Íraksfor- seti syrgir syni sína á nýrri segulbandsupp- töku sem leikin var í gær. Á henni minnist hann sona sinna og sonarsonar og segir þá hafa látist píslarvættisdauða. Bls. 2 VEÐRIÐ Í DAG verða haldnir 9. ágúst Diana Krall: ▲ SÍÐA 28 Uppselt á tónleikana datt út af þingi Árni Steinar Jóhannesson: ▲ SÍÐA 29 Síðasti launatékkinn RIGNING SUNNAN TIL Þegar líða fer á daginn bætir í vind á höfuðborgar- svæðinu og á Suðurlandi. Þá er von á rigningarsvæði yfir suðurhluta landsins seinnipartinn í dag. Besta veðrið verður á Raufarhöfn og Húsavík en einnig þar gæti rignt. Bls. 6 STÓRLEIKUR Akurnesingar taka á móti KR á Skaganum. Fyrri leik liðanna lauk með 1-0 sigri vesturbæinga og eru KR-ing- ar í harðri toppbaráttu. ÍA situr nú í áttunda sæti deildarinnar en gæti með sigri bætt stöðu sína allnokkuð. Sjá nánar: DAGURINN Í DAG spilar á þjóðhátíð Árni Johnsen: ▲ SÍÐA 22 Brekkusöngur eins og venjulega Tveir fulltrúar úr þjóðhátíðar- nefnd Vestmannaeyinga voru kall- aðir á fund sýslumanns í gær vegna harðorðs bréfs sem nefndin ritaði sýslumanni vegna kröfu hans um að lögð verði fram fjögurra milljóna króna trygging vegna lög- gæslu á þjóðhátíð um verslunar- mannahelgina. Páll Scheving, framkvæmdastjóri ÍBV, er annar þeirra sem mættu á fund sýslu- manns. Hann segir að nefndin hafi alvarlegar athugasemdir við kröfu sýslumanns. „Við viljum ekki greiða löggæslu í Vestmannaeyja- bæ öllum heldur aðeins á hátíðar- svæðinu í Herjólfsdal,“ segir Páll. Hann segir að hátíðinni sé ætlað að greiða alls átta milljónir króna vegna gæslu. Þegar hafi verið samið við björgunarsveit, lækna og þá sem annist sálgæslu. Páll segir að allt þetta kosti um fjórar milljón- ir króna og krafa sýslumanns þýði að kostnaðurinn verði tvöfaldur. „Við viljum vita hvað er á bak við þennan himinháa reikning,“ segir Páll en vildi ekkert segja um hvað fór í milli hans og sýslu- manns. Hann segir að þjóðhátíðar- nefnd íhugi nú að kæra ákvörðun sýslumanns til dómsmálaráðuneyt- isins. ■ Vestmannaeyingar greiði fjórar milljónir vegna löggæslu: Þjóðhátíðarnefnd á teppi sýslumanns SJÖ BÍLA ÁREKSTUR Árekstur varð við gatnamót Laugavegar og Nóatúns í gærdag. Bifreið var ekið á sex aðra bíla. Fimm voru fluttir brott með sjúkrabíl, þó enginn alvarlega slasaður. Þrjá bílanna þurfti að fjarlægja með kranabíl. Tildrög slyssins eru óljós. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T BORGARMÁL Reykjavíkurlistinn boðaði til bráðafundar seint í gær- kvöld. Fundarefnið var framvind- an í máli Þórólfs Árnasonar borg- arstjóra, sem oddviti sjálfstæðis- manna sakar um að segja ósatt um þátt sinn í samráði olíufélaganna í útboði Reykjavíkurborgar árið 1996. „Ég vona ekki,“ sagði Þórólfur Árnason, aðspurður um það hvort framtíð hans í starfi myndi ráðast á fundinum.„Ég mun á fundinum skýra mitt mál frekar,“ sagði Þórólfur áður en hann hitti full- trúa R-listans. Þórólfur sagðist ekki hafa í hyggju að segja af sér vegna málsins. Hann fullyrti í gærdag að hann hefði ekki vitað um samráð olíufé- laganna, heldur hefði Geir Magn- ússon, forstjóri Olíufélagsins hf., ákveðið verðið sem fyrirtækið hefði boðið. Þórólfur segist aðeins á þeim tím ahafa undirritað tilboð- ið fyrir hönd Olíufélagsins. Þórólfur segist nú vinna að greinargerð um þátt sinn í meintu samráði olíufélaganna og því vilji hann ekki tjá sig um málið frekar að svo stöddu. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna sagðist í samtali við Fréttablaðið í gær- kvöld ekki leggja trúnað í orð borgarstjórans. „Hann er ekki að segja satt og rétt frá og vísa ég til hans eigin gagna því til stuðnings,“ sagði Vil- hjálmur. „Ég tel að hann hafi verið einn af helstu forystumönnum olíufé- laganna um ólögmætt verðsamráð sem bitnaði meðal annars á borg- arfyrirtækjum. Ég skil ekki hvernig hann getur sagt núna að hann hafi ekkert vitað um þetta. Það er mjög alvarlegt mál þegar stjórnmálamenn segja ekki satt og rétt frá. Ég get einfaldlega sagt það að ef að ég væri staðinn að svona löguðu þá myndi ég segja af mér. Hann verður hins vegar að gera þetta sjálfur upp við sína samvisku.“ Vilhjálmur Þ. sagði að svo virt- ist sem Reykjarvíkurlistinn hefði snúið baki við borgarstjóranum. Fulltrúar listans hefðu ekki lýst yfir stuðningi við hann í borgar- ráði í gær og enginn af listanum hefði hingað til viljað verja mál- stað borgarstjórans. Sem dæmi um það hefði enginn viljað mæta sér í þættinum Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöld þar sem málið hafi verið rætt. Í samtali við Fréttablaðið þvertók Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir, fyrrverandi borgarstjóri, fyrir að Þórólfur væri orðin ein- angraður innan Reykjavíkurlist- ans. Hún segir rangt hjá Vilhjálmi Þ. að R-listinn hafi snúið baki við borgarstjóranum. Borgarfulltrúar listans hefðu ákveðið að tjá sig ekki opinberlega um málið fyrr en Þórólfur væri búinn að vinna sína greinargerð. „Stóryrði“ Vilhjálms í málinu væru engan veginn við hæfi. Bráðafundur bogarfulltrúa R- listans stóð enn yfir þegar blaðið fór í prentun í gærkvöld. trausti@frettabladid.is the@frettabladid.is Funduðu með Þórólfi Oddviti Sjálfstæðismanna segir að borgarstjóri hafi sagt ósatt í gær og að hann eigi að segja af sér. Borgarstjóri segir að sér hafi ekki verið kunnugt um samráð olíufélaganna í útboði Reykja- víkurborgar árið 1996. R-listinn boðaði til bráðafundar seint í gærkvöld. LITLA-HRAUN Stór hluti fanga á Litla-Hrauni hyggst fara að dæmi Árna og sækja um leyfi. Brekkusöngur í Eyjum: Mikill áhugi á Hrauninu ÞJÓÐHÁTÍÐ „Það er töluverður órói hér á Litla-Hrauni vegna um- ræðna um Árna Johnsen og brekkusönginn og um fátt annað meira rætt hér,“ sagði Atli Helga- son, en hann situr í trúnaðarráði fanga á Litla-Hrauni. Atli segir að fangar á Litla- Hrauni séu áhugasamir um þjóð- hátíðina og brekkusönginn og gera megi ráð fyrir að allt að 40 fangar sæki í dag um svokallað fylgdarleyfi eða skammtímaleyfi til að geta notið brekkusöngsins. Fái Árni leyfi til brekkusöngs sé það merki um tilslakanir á reglum þar að lútandi. „Annars er merkilegt að menn séu yfireitt að velta þessu fyrir sér í alvöru. Það er fjarri lagi mið- að við túlkun laga og reglna í dag. En ég fagna því hins vegar ef af verður og Árni fær að fara í brekkusönginn, bæði hans vegna og ekki síður Eyjamanna,“ sagði Atli. ■ KLUKKAN 21.15 Þórólfur borgarstjóri mætir til fundar með borgarfulltrúum R-listans í gærkvöld. Til fundarins var boðað í skyndi. Borgarstjóri skýrði stöðu sína í samsráðsmálinu.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.