Fréttablaðið - 30.07.2003, Blaðsíða 9

Fréttablaðið - 30.07.2003, Blaðsíða 9
Mesta ferðahelgi ársins nálgast Keyptu gæðavörur hjá fagmönnum á frábæru verði ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U TI 2 18 09 07 /2 00 3 Smáralind mán.-fös. kl. 11-19 lau. kl. 11-18 sun. kl. 13-18 Glæsibæ mán.-fös. kl. 10-18 lau. kl. 10-16 OPIÐ www.utilif.is Smáralind - Glæsibæ Sími 545 1550 og 545 1500 High Peak Dakota 5 Frábært fjölskyldutjald með stóru fortjaldi sem opnast á tvo vegu. Vatnsheldni: 2000 mm Mesta hæð: 200 sm Stærð: 300 X 490 sm Verð: 34.990 kr. Tilboð: 24.990 kr. High Peak Bonito Pro 2 Gott 2ja manna kúlutjald með góðu fortjaldi. Vatnsvörn: 1000mm Þyngd: 3400g Verð: 7.990 kr. Tilboð: 5.990 kr. High Peak TRAIL 66l Bakpoki fyrir lengri ferðir. Stillanlegur miðað við baklengd notanda. Tvískipt meginhólf og hliðarvasar. Regnyfirbreiðsla fylgir. Verð: 12.990 kr. Tilboð: 7.990 kr. Buffalo Viper 1400 Dúnpoki Andadúnn 30 / 70 Fyrirferðarlítill og léttur, góður í gönguferðirnar. Þægindamörk: -6°c Mesta kuldaþol: -23°c Þyngd: aðeins 1395g Verð: 16.990 kr. Tilboð: 10.990 kr. High Peak JASPIS 3D Góður svefnpoki í sumarútilegurnar. Fylling: Duraloft, 3 D Spiral Þægindamörk: -5°c Mesta kuldaþol: -14°c Þyngd: 2240g Verð: 9.990 kr. Tilboð: 6.990 kr. Buffalo Phoenix V-3 Frábær, hlýr og vandaður svefnpoki. Fylling: Duraloft trefjar Þægindamörk: -8°c Mesta kuldaþol: -17°c Þyngd: 1900g Verð: 14.990 kr. Tilboð: 7.990 kr. Öll tjöld fyrir ferðalagið fást í Tjaldalandi við Umferðamiðstöðina. B A K P O K I : T J Ö L D : S V E F N P O K A R : MIÐVIKUDAGUR 30. júlí 2003 NEW YORK, AP Tveir af stærstu bönkum heims, JP. Morgan Chase og Citigroup, hafa samþykkt að greiða tæplega 23 milljarða króna í sáttafé vegna ákæru bandarískra stjórnvalda um að þeir hafi hjálpað fyrirtækinu En- ron að greina rangt frá reikning- um sínum og afvegaleiða fjár- festa. Fundist höfðu sannanir fyrir því að bankarnir sem og aðrir að- ilar hafi vitað af ráðabruggi En- ron og átt þátt í að hjálpa fyrir- tækinu að halda því áfram. Enron, sem var eitt af stærstu orkufyrirtækjum heims, sótti um gjaldþrotaskipti árið 2001. ■ JP. Morgan Chase og Citigroup: 23 milljarðar í bætur SAKSÓKNARI Robert Morgenthau, saksóknari í Manhattan, tilkynnir fréttamönnum um sáttaféð sem JP. Morgan Chase og Citigroup munu greiða. AP /M YN D GUATEMALA, AP „Það eru að meðal- tali myrt 2,6 ungmenni á hverjum einasta degi í höfuðborginni einni og morðunum fjölgar stöðugt. Alls staðar annars staðar hefðu stjórnmálamenn áhyggjur af slík- um fregnum en í Guatemala virð- ist öllum sama,“ sagði Bruce Harris, svæðisstjóri Casa Alianza, samtaka sem berjast fyrir rétt- indum götubarna. Samtökin segja að alda morða gangi nú yfir Guatemala. Fyrri helming þessa árs voru 373 ung- menni, 23 ára og yngri, myrt í höf- uðborginni. Þriðjungurinn, eða 105 þeirra, voru yngri en 18 ára. Casa Alianza segja að ekkert lát sé á. Í fyrra voru 400 ung- menni, 23 ára og yngri, myrt í borginni og 358 árið 2001. Lögregluyfirvöld vildu ekki tjá sig um málið, sögðu aðeins að eng- ar áreiðanlegar tölur um morð á ungmennum lægju fyrir. ■ Morðalda gengur yfir Guatemala: Ungmenni myrt í tugatali TÍÐ MORÐ Á UNGMENNUM Alda morða gengur yfir Guatemala. Það sem af er þessu ári hafa fleiri ungmenni verið myrt í höfuðborginni en allt árið 2001. FLUG „Það hefur verið gríðarlega góð nýting á öllum brottförum,“ segir Ólafur Hauksson, talsmað- ur Iceland Express. „Þá er mjög vel bókað í ágúst og við eigum von á miklum bókunum jafnóðum og líður á mánuðinn. Við gerum því ráð fyrir að heildarbókanir eftir sumarið verði mjög viðun- andi.“ Að sögn Ólafs er mjög mismun- andi hvert meginstraumur ferða- manna liggur og tekur sem dæmi að næstu rúmu vikuna séu öll flug til Kaupmannahafnar og frá London full. Hins vegar séu nokk- ur sæti laus í vélar frá Kaup- mannahöfn og til London. „Við erum með fleiri bókanir en á sama tíma í fyrra,“ segir Guðjón Arngrímsson, upplýsinga- fulltrúi Flugleiða. Guðjón segir stríðsið í Írak og umræða um bráðalungnabólguna hafa haft sín áhrif á bókanirnar en útlitið hafi hins vegar breyst til hins betra á síðustu vikum. „Við finnum greinilega fyrir því að ferða- mannamarkaðurinn er að ná sér á strik,“ segir Guðjón. Að sögn Guðjóns er sætanýt- ingin á þessum árstíma alltaf mjög góð og mjög mörg flug til helstu áfangastaða alveg full. Hann segir þó nægt framboð flug- sæta til og frá landinu. ■ Ferðamannamarkaðurinn að ná sér á strik: Fleiri bókanir en á sama tíma í fyrra ÚR LEIFSSTÖÐ Flugleiðir eru með fleiri bókanir en á sama tíma í fyrra, auk þess sem sætanýting ferða Iceland Express hefur verið mjög góð.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.