Fréttablaðið - 30.07.2003, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 30.07.2003, Blaðsíða 30
Hrósið 30 30. júlí 2003 MIÐVIKUDAGUR ■ Krossgátan Georg Ólafsson, forstjóri Sam-keppnisstofnunar, er alinn upp á Háteigsveginum í Reykja- vík. Þar sleit hann bæði barns-og knattspyrnuskónum, því Háteigs- vegurinn tilheyrði Framhverfinu og íþróttavöllur félagsins var staðsettur fyrir neðan Sjómanna- skólann: „Ég varð oft Íslands- meistari með Fram í yngri flokk- unum en hætti áður en ég komst í meistaraflokk,“ segir Georg sem á fullorðinsárunum hefur verið búsettur í vesturbænum en er nú aftur á leið á Háteigsveginn. Í sama húsið og hann ólst upp í: „Það verður gaman að flytja aftur heim,“ segir Georg sem veit nú sem er að hver vegur að heiman er vegurinn heim. Georg hefur verið forstjóri Samkeppnisstofnunar í tíu ár en þar áður var hann Verðlags- stjóri ríkisins í 19 ár. Hálft lífs- starfið hefur farið í þann mála- flokk sem nú skekur íslenskt samfélag. Og er kannski tím- anna tákn. Georg er 58 ára, menntaður viðskiptafræðingur og kvæntur Soffíu Stefánsdóttur, deildar- stjóra í Melaskóla. Saman eiga þau tvo uppkomna syni sem báð- ir eru í fluginu: „Annar starfar sem flugmaður en hinn er að ljúka atvinnuflugmannsprófi. Það er mikið flug í minni ætt og sjálfur var ég um tíma í stjórn Flugsögufélagsins. Í frítímanum spila ég þó aðallega bridge og hef gert lengi,“ segir Georg. ■ Persónan GEORG ÓLAFSSON ■ forstjóri Samkeppnisstofnunar hefur staðið í ströngu að undanförnu. Annars er hann mesti rósemdarmaður sem spilar bridge í frístundum Imbakassinn ...fær Arnold Schwarzenegger fyrir að eldast vel. Fréttiraf fólki Aftur heim í gamla húsið ■ Leiðrétting Að gefnu tilefni skal tekið fram að Draumur fangans er ekki eftir Árna Johnsen. Freymóður Jóhannsson samdi lagið. sniðin að þörfum húðarinnar ph 3,5 án ilmefna Húð sápa e in n t v e ir o g þ r ír 2 8 5. 0 18 Brjóstagjafa- fatnaður Auðbrekku 2, s: 564 1451 Móðurást Kári Bjarnason og félagarhans á Landsbókasafni hafa undanfarin ár sökkt sér niður í gömul handrit með það fyrir aug- um að leita að íslenskri tónlistar- arfleifð fyrri alda, sem fram að því hafði ekki fundist nema mjög lítið hluti. „Ég hef leitt þá vinnu að fara í gegnum öll íslensk handrit sem varðveitt eru í Landsbókasafni,“ segir Kári. Þar eru skráð á núm- er yfir 15000 handrit. Öll þessi vinna hefur verið unnin undir merkjum Skálholts- kirkju, sem hefur fengið ríflega styrki til verkefnisins. „Við höfum farið gegnum öll kvæða- og sálmahandrit með það fyrir augum að finna allar nótur sem leynast í þeim og skrifa jafn- framt upp alla þá sálma og öll þau kvæði sem passa við þessar nótur. Það hefur komið heilmikið í ljós sem ekki var vitað áður. Við erum í raun og veru að draga fram sálma- og tónlistarhefð Ís- lendinga.“ Kári segir að margir hafi hafi tekið þátt í þessu verkefni. Guð- rún Laufey Guðmundsdóttir hef- ur einkum stundað rannsóknir á nótunum, en sjálfur hefur hann einbeitt sér að sálmunum. „Og svo hefur Helga Ingólfs- dóttir unnið þrekvirki við að koma þessu efni í hendurnar á ís- lenskum tónskáldum, sérstak- lega tónskáldum af yngri kyn- slóðinni sem eru óhrædd við að laga þennan arf að nútímanum.“ Afraksturinn hefur meðal annars mátt heyra á Sumartónleikum í Skálholti. Kári segir stefnt að því að gera allar niðurstöður þessa verkefnis aðgengilegar í gagna- grunni á vef Skálholts ekki síðar en næsta sumar, þegar þrjátíu ár verða liðin frá fyrstu Sumartón- leikunum í Skálholti og tíu ár frá því Landsbókasafnið flutti í nýtt húsnæði í Þjóðarbókhlöðu. gudsteinn@frettabladid.is Lárétt: 1 dálítið heitur, 6 skærur, 7 nafn á vita, 9 smáir, 10 þráður, 13 karlfugl, 14 flan, 15 tímabil. Lóðrétt: 1 myndarlega, 2 fugl, 3 ófríð- ari, 4 lítilfjörlegur drykkur, 5 plöntur, 8 rykkorn, 11 útlim, 12 fugl, 14 verkfæri. Lausn: Óvissa ríkir um framhald ævi-söguritunar Jóns Baldvins Hannibalssonar, sendiherra í Finn- landi. Fyrra bindi ævisögu hans kom út fyrir síðustu jól, en hún var skrifuð þegar Jón var sendiherra í Washington. Nú hef- ur Kolbrún Bergþórsdóttir, sem ritaði ævisöguna, gefist upp á að bíða eftir svari frá Jóni um framhald- ið og íhugar að gefa verkið endan- lega frá sér. Munu útgefendur hjá Vöku Helgafelli ekki alveg vita í hvorn fótinn þeir eigi að stíga; hvort Jón Baldvin skrifi síðara bindið sjálfur eða hvort finna verði þriðja aðila til að ljúka verkinu. Miðað við stöð- um mála í dag bendir allt til að bókin verði alls ekki skrifuð. INGIBJÖRG SÓLRÚN Ferðast um með kúlutjald og fer í bændagistingu þegar rignir. Ingibjörg á faraldsfæti KÚLUTJALD Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir, fyrrverandi borgarstjóri, var meðal þeirra sem gistu í tjaldi í Tungudal í Ísafirði þegar bæjar- yfirvöld létu aka mykju í veg- kanta þar hjá með þeim afleiðing- um að tjaldbúa lögðu flestir á flót- ta. Þó ekki Ingibjörg og fann hún sig knúna til að senda blaðinu Bæjarins besta leiðréttingu vegna fréttar þar um. Í blaðinu segir Ingibjörg Sólrún: „Fólk hefur verið að spyrja mig hvort ég hafi verið að flýja undan lyktinni. Mér finnst það nú bara móðgandi. Því fer víðs fjarri, ég var búin að vera í góðu yfirlæti í Tungudal í tvær nætur með manni mínum. Að vísu höfðum við orðið vör við einhverja lykt en við Hjörleifur höfum bæði verið í sveit og kipptum okkur ekki upp við hana,“ segir Ingibjörg Sólrún í athugasemd sinni. „Ég er búin að ferðast vítt og breitt um fjórðung- inn með mitt kúlutjald. Það eru ýmsir sem halda að við séum út- lendingar. Þetta er svo auðveldur ferðamáti því maður er ekki nema hálftíma að koma sé fyrir og flyt- ur tjaldið með hvert sem maður fer. Svo hoppar maður bara inn í bændagistingu þegar rignir“. ■ Ekki svona hátt. Uss... Nei, hva! Hér hangir jú sundmedalía. Ha? Og silfurmedalía frá Dansskóla Hildar. Og hér ertu með: „Stiltasti drengurinn á Gulu borg“. GEORG ÓLAFSSON Verðlagsstjóri og forstjóri Samkeppnisstofnunar í 29 ár. Gömul tónlist grafin upp Tónlistararfur fyrri alda er smám saman að koma fram í dagsljósið á Landsbókasafninu. SKÁHOLTSKIRKJA Vinna við að fara í gegnum öll handrit sem varðveitt eru í Landsbókasafni hefur verið unnin undir merkjum Skálholtskirkju. Handrit ■ Í Þjóðarbókhlöðunni eru geymd fimmtán þúsund íslensk handrit frá fyrri tíð. Grúskarar safnsins hafa undanfarin ár farið í gegnum öll þessi handrit í leit að tónlistararfi Íslendinga. Tónleikagestir í Skálholti hafa nokkrum sinnum fengið að heyra forsmekkinn. Lárétt:1volgur, 6erjur, 7grótta, 9litlir, 10garn,13ari,14an,15öld. Lóðrétt: 1veglega,2orri,3ljótari,4gutl, 5urtir, 8ar, 11arm,12önd,14al. 1 6 7 9 10 11 13 15 14 12 2 3 4 5 8

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.