Fréttablaðið - 30.07.2003, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 30.07.2003, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 30. júlí 2003 SÍÐASTA STOPPIÐ FYRIR FERÐINA F í t o n / S Í A F I 0 0 7 2 2 7 La n d lis t/ E R A N Ferðinni er heitið á ÍSAFJÖRÐ Kraftur og fjör! -þar er allt að gerast um verslunarmannahelgina! Hressir krakkar og kátir foreldarar! SAMA VERÐ - ALLS STAÐAR Á LANDINU! OPIÐ ALLA HELGINA: ekkert brudl- Afgreiðslutími í Ljóninu Ísafirði um verslunarmannahelgina Fimmtudagur 12.00 til 20.00 Föstudagur 10.00 til 22.00 Laugardagur 10.00 til 22.00 Sunnudagur 12.00 til 22.00 Mánudagur 10.00 til 18.00 FÓTBOLTI „Það má segja að eins og bæði lið hafa verið að spila upp á síðkastið þá verður um mikla prófraun að ræða hjá báðum aðil- um,“ sagði Bjarki Gunnlaugsson leikmaður Íslandsmeistara KR en þeir mæta ÍA á Akranesi í kvöld. „Þeir þurfa sigur til að komast af alvöru í toppbaráttuna og við þurfum sigur til að setja pressu á Fylkismenn. Ég lít á þennan leik sem ákveðinn prófstein fyrir lið KR vegna þess að leikir okkar í sumar hafa verið upp og niður. Við höfum verið að tapa stigum gegn andstæðingum sem eru lak- ari en við og það er óásættanlegt. Nú erum við á beinu brautinni og við þurfum sigur til að sýna að kjarninn í liðinu sé nógu góður til að sigra deildina.“ Bjarki segir að lið Skagamanna sé þekkt stærð og ekkert eigi að koma KR í opna skjöldu. „Vissu- lega er Akranesvöllur erfiður heim að sækja, hann er það alltaf en ef félag gerir sér vonir um titil að loknu sumri þá þarf að vinna leiki sem þessa.“ Þrátt fyrir sjö stiga mun í Landsbankadeildinni hafa bæði lið tapað þremur leikjum og markatala KR er hagstæðari um aðeins eitt mark. ■ FRESTUR EYJÓLFS Eyjólfur Sverr- isson hefur innan við tvo daga til viðbótar til að ákveða hvort hann spilar knattspyrnu með íslensku félagsliði í sumar en lokadagur félagsskipta samkvæmt reglu- gerð Knattspyrnusambands Ís- lands er fimmtudagurinn 31. júlí. SPÆNSKA LIÐIÐ Las Palmas hef- ur bæst í þann hóp liða sem áhuga hafa á að fá Jóhannes Karl Guðjónsson í sínar raðir en Palmas er í spænsku annarri deildinni eins og er. Jóhannes er sem stendur í Þýskalandi til reynslu hjá Borussia Dortmund en vitað er af áhuga liða eins og Chelsea og Manchester City. Þórður, bróðir Jóhannesar, var hjá Las Palmas um tíma en náði aldrei að festa sig í sessi. VESKINU LOKAÐ Arsene Wenger segir að Arsenal kaupi ekki fleiri leikmenn að þessu sinni enda sé buddan létt vegna stórfram- kvæmda liðsins við nýjan heima- völl. Í staðinn ætlar Wenger að leyfa yngri leikmönnum úr vara- liðinu að fá tækifæri til að sanna sig. Önnur umferð Meistara- keppni Evrópu: Flest liðin frá A-Evrópu FÓTBOLTI Fjölmargir leikir fara fram í kvöld í 2. umferð Meistara- keppni Evrópu en Íslendingar eiga ekki lengur fulltrúa þar eftir að KR datt út í fyrstu umferð fyr- ir Pyunik frá Jerevan. Það lið mætir búlgarska liðinu CSKA Sofia á heimavelli í kvöld. Aðrir helstu leikir í þessari umferð eru viðureignir Rapid Bukarest og Anderlecht, Rosen- borg mætir Bohemian FC, Celtic frá Glasgow ferðast til Litháen og mætir Kaunas og sænska liðið Djurgarden mætir Partizan Belgrad. ■ Bjarki Gunnlaugsson um leik ÍA-KR: Stærsta prófraunin í sumar ARNAR OG BJARKI GUNNLAUGSSYNIR Mæta sínum gömlu félögum uppi á Skaga í kvöld. STAÐA LIÐANNA Í DEILDINNI L U J T Mörk Stig 2. KR 11 6 2 3 15:13 20 8. ÍA 11 3 5 3 14:13 14 ■ Fótbolti

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.