Fréttablaðið - 30.07.2003, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 30.07.2003, Blaðsíða 22
30. júlí 2003 MIÐVIKUDAGUR22 ÚTIHÁTÍÐIR Útihátíðir koma og fara, sumar fyrir fjölskyldur, öðrum er beint að unga fólkinu. Halló Akur- eyri, Uxi, Eldborg, allar missubbulegar og skemmtilegar, en sú stærsta, sú víðfrægasta, sú sem hefur verið kosin eitt af topp 10 partíum veraldar af alvitrum útlendingum stendur alltaf fyrir sínu. Á hverju ári flykkjast ung- lingar og unga fólkið í röðum út í Eyjar og dansa, sukka og syngja. Flestir snúa heim ánægðir, aðrir muna ekki skýrt hvernig var. Auðvitað er eiturlyfjamisnotk- un, kynferðisglæpir, þjófnaður og ofbeldi eitthvað sem gamla settið og löggan tönnlast á og svitnar yfir langar nætur, enda alvarleg málefni sem alltaf virðast banka upp á. En varúðarráðstafanir eru þó viðameiri með hverju árinu. Útihátíðir eru öðrum meiði tónlistarhátíðir og það á sérstak- lega við um þjóðhátíð í Eyjum. Margar af þekktustu ballhljóm- sveitum landsins spila fyrir söng og dansi; Skítamórall er kominn aftur í gamla gírinn eftir langt hlé, Sálin hans Jóns míns þarfnast lítillar kynningar og Á móti sól er að ríg-skipa sig í sessi sem eftir- lætis sveitaballabatterí margra. Svo er fjöldi annarra listamanna á svæðinu, til að mynda hljómsveit- irnar Smack, Obbo síí, Oxford, Hippabandið, Yesmine Olsson ásamt fríðum flokki dansara, fjöl- di uppákoma og fleira og fleira. „Þetta er alltaf mjög gaman, mað- ur byrjar að spila um 12 leytið og svo er þetta keyrt fram undir rauðan morgun.“ segir Gummi Jóns, gítarleikari í Sálinni hans Jóns míns, en þeir hafa spilað margoft í Eyjum, fyrst stofnár sitt 1989. „Einkennandi fyrir þjóð- hátíð hvað allir eru staðráðnir í að skemmta sér, rosaleg gleði í fólki.“ Svo er sérstaklega mikil eftir- vænting fyrir Brekkusöngnum þetta árið þegar gestir taka sig saman í „heimsins stærsta kór“. Nú þegar klárt er að forystusauð- urinn Árni Johnsen verður með ættu íhaldssamir þjóðhátíðarfar- ar að anda léttar, þó einhverjir fyrrverandi fangar séu að ybba sig því ekki fengu þeir frí um verslunarmannahelgi. david@frettabladid.is Söngur, gleði, dans og bjór Verslunarmannahelgin merkir aðeins eitt fyrir mörgum: Þjóðhátíð í Eyjum. Þannig var það líka þetta árið, miðar í forsölu seldust eins og ísmolar á Ibiza. Verið er að ráðast í endurgerðmyndarinnar Flight of the Phoenix frá árinu 1965. Hún fjall- aði um hóp manna sem lifir af flugslys í Sahara eyðimörkinni og reynir að smíða sér nýja flugvél úr pörtum þeirrar gömlu. Sagan er nokkuð breytt en nú eru flugslysa- eftirlifendurnir strandaglópar í mongólskri eyðimörk og gerist hún í nútímanum. Í gömlu myndinni fóru James Stewart, Richard Attenborough, Peter Finch og Ernest Borgnine með aðalhlutverk. Dennis Quaid er eini leikarinn sem er örugglega í nýju útgáfunni, en John Moore leikstýrir myndinni í október fyrir 20’ Century Fox. Fréttiraf fólki Á MÓTI SÓL, SÁLIN HANS JÓNS MÍNS OG ÁRNI JOHNSEN Það er margt sem laðar að, ekki síst þessir for- láta skemmtikraftar. Foreldrar - Elskum börnin okkar Veist þú hvað unglingurinn þinn ætlar að gera um verslunarmannahelgina? kl. 6, 8 og 10 b.i. 12 ára kl. 6NÓI ALBINÓI-Enskur texti kl. 8RESPIRO 5.50 og 10HOLLYWOOD ENDING Ástríkur&Kleópatra-ísl.tal Forsýnd kl. 3 kl. 6.10 og 10.10USSSS b.i. 12 Sýnd kl. 6, 8, og 10 b.i. 16 ára kl. 8 b.i. 14DARK BLUE kl. 5.30, 8 og 10.30 TÖFRABÚÐINGURINN m/ísl.tali kl. 4, 6, 8 og 10:15 TERMINATOR 3 5.30, 8 og 10.30 Terminator 3 í Lúxus 6, 8.30 og 11 CHARLIE´S ANGELS2 5.40, 8 og 10.20 kl. 4 2 FAST 2 FURIOUS 2 kl. 8 b.i. 12 THE MATRIX RELOADED kl.10.10 bi.12 KANGAROO JACK kl. 4 kl. 3.45 - 5.50 - 8 - 10.10 bi.16 Sýnd í lúxus kl. 5.50 - 8 - 10.10 VIP Sýnd kl. 4 - 6 - 8 - 10.10 bi. 16. HULK kl. 4 - 5.45 - 8.30 - 10.10 bi.12 WHAT A GIRL. 3.45, 5.50 og 8

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.