Fréttablaðið - 30.07.2003, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 30.07.2003, Blaðsíða 29
MIÐVIKUDAGUR 30. júlí 2003 Stangaveiðihandbækurnar frá Skerplu svara öllum helstu spurn- ingum veiðimannsins um veiðiár og veiðivötn á Íslandi. Bækur fyrir þaulvana veiðimenn jafnt sem byrjendur í stangaveiði. • Hvar eru bestu veiðistaðirnir? • Hvaða agn á að nota? • Hvað kostar veiðileyfið? • Fjöldi litmynda og skýringarkorta frá Brynjudal að Brunasandi frá Hvalfirði að Hrútafirði Tvær ómissandi! Ég fæ síðustu greiðsluna ummánaðamótin,“ segir Árni Steinar Jóhannsson, fyrrum þing- maður vinstri grænna, sem féll af þingi í síðustu kosningum „Við fáum aðeins þriggja mánaða bið- laun, nema þeir sem setið hafa tvö kjörtímabil eða fleiri. Þeir fá sex mánuði.“ Áður en Árni Steinar settist á þing var hann garðyrkjustjóri Ak- ureyrarbæjar og fékk fjögurra ára leyfi til að gegna þingmennskunni: „Í millitíðinni lögðu þeir niður starfið mitt vegna skipulagsbreyt- inga og í dag heitir það eitthvað annað. Ég er að skoða framhaldið í samráði við bæjaryfirvöld en veit ekki hvað verður,“ segir Árni Steinar, sem er menntaður lands- lagsarkitekt og garðyrkjumaður. Gerir hann fastlega ráð fyrir að halda áfram störfum á þeim vett- vangi þar til kosið verður til Al- þingis á ný: „Ég er ekkert hættur í pólitík. Búinn að vera í þessu í rúm 20 ár og held reyndar að það sé hollt öllum stjórnmálamönnum að hverfa út í atvinnulífið á ný. Þó ég hafi öðlast mikla reynslu á þingi er reynslan úti í lífinu ekki síður dýr- mæt stjórnmálamönnum,“ segir hann. ■ Alþingi ÁRNI STEINAR JÓHANNSSON ■ er ekki hættur í pólitík þó hann sé dottinn af þingi. Síðasti launatékkinn ÁRNI STEINAR Fékk fjögurra ára leyfi frá störfum - starfið lagt niður í millitíðinni. Ég get ekki sagt meira en að þaðer búið að skrifa þetta, að svo stöddu,“ segir Sigurjón Kjartans- son, einn grínistanna á bak við nýjan þátt sem verður á dagskrá Stöðvar 2 í vetur. „Nú er verið að skipuleggja það hvenær farið verður í tökur.“ Það má búast við því að þessi þáttur, Svínasúpan, verði það langferskasta á dagskrá sjón- varpsstöðvanna í vetur enda val- inn maður í hverju rúmi: Sigurjón Kjartansson, Sveppi eða Sverrir Þór Sverrisson eins og hann er kallaður og vinur hans Auddi, sem heitir Auðunn Blöndal, auk Péturs Jóhanns sprellara. Þessir piltar sjá um þáttinn, leik og skriftir, ásamt huldumanninum Þrándi Jenssyni, vini Sveppa. Sigurjón því elstur, sannkallaður mentor. Ungur nemur, gamall temur: „Ég er þarna til að passa að þetta verði ekki of ferskt,“ segir Sigurjón, hálf kíminn, aðspurður um þetta frábæra framtak Stöðv- ar 2 að fá alla þessa ungu og hres- su til að sprella í sjónvarpi. Sveppi sjálfur segir þetta vera frábært allt saman og að þetta sé akkúrat það sem hann vilji gera. „Það er kominn tími á eitthvað nýtt grín. Gengur ekki að hafa bara Spaugstofuna,“ segir Sveppi. Svínasúpa ætti að komast á dagskrá þegar dimmir í vetur. ■ SVÍNASÚPA STÖÐVAR 2 Sigurjón Kjartansson og Sverrir Þór Sverrisson hræra Svínasúpu Stöðvar 2 í vetur. Sjónvarp ■ Svínasúpan er nýr sjónvarpsþáttur sem Stöð 2 er mun láta taka upp. Mikið grín og helstu ungliðar hláturtaugana á bak við þáttinn. Sigurjón Kjartansson er mentor drengja á borð við Sveppa, Audda og Pétur Jóhann. Svínasúpa á Stöð 2 ■ Jarðarfarir 13.30 Birgir Garðarsson, Krókatúni 4A, Akranesi, verður jarðsunginn frá Garðakirkju. 13.30 Lýður Bogason, Ásvegi 21, Akur- eyri, verður jarðsunginn frá Akur- eyrarkirkju. 13.30 María Guðmundsdóttir, Árskóg- um 8, Reykjavík, verður jarðsung- in frá Seljakirkju. 13.30 Sturlaugur Jóhannsson, Dalbraut 18, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Laugarneskirkju. ■ Andlát Elínborg Sigurðsson, Ljósvallagötu 10, lést 27. júlí. Sverrir Guðmundsson, Skúlagötu 40, Reykjavík, lést 27. júlí. Andrea Helgadóttir, Ásgarði 22, Reykja- vík, lést 26. júlí. Guðlaug Stefánsdóttir frá Siglufirði lést 26. júlí. Kristján Pétur Ingimundarson, Suður- túni 29, Bessastaðahreppi, lést 26. júlí. Kjellfrid Einarsson, Kirkjuvegi 5, Kefla- vík, lést 25. júlí. Guðmundur S. Kristjánsson, Garð- vangi, Garði, er látinn.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.