Fréttablaðið - 30.07.2003, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 30.07.2003, Blaðsíða 2
2 30. júlí 2003 MIÐVIKUDAGUR “Nei, en ég á fellihýsi.“ Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn er fram- kvæmdastjóri útihátíðar hvítasunnumanna í Kirkjubæjarkoti í Fljótshlíð um verslunarmanna- helgina. Spurningdagsins Geir Jón, átt þú tjald? WASHINGTON,AP „Ég hvatti Sharon til aðgerða sem bætt geta daglegt líf Palestínumanna. Ísraelar og Palestínumenn eiga jafnan rétt til lífs án haturs, ótta og ofbeldis og umfram allt án ofsókna,“ sagði George W. Bush, forseti Banda- ríkjanna, eftir fund með Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels í gær. Þeir þinguðu í Hvíta húsinu í Washington síðdegis í gær og ræddu framgang friðarferlisins fyrir botni Miðjarðarhafs. Eitt að- alumræðuefnið var öryggisgirð- ingin sem Ísraelsmenn eru að reisa og á að ná í kringum heima- stjórnarsvæði Palestínumanna. Palestínumenn fordæma þá fram- kvæmd og segja að Ísraelsmenn séu að leggja undir sig meira land en gert sé ráð fyrir í friðaráætlun- um. „Við munum halda áfram að reisa girðinguna en munum gæta þess að hún raski lífi Palestínu- manna eins lítið og frekast er unnt,“ sagði Sharon. Bush hefur gagnrýnt girðing- una en segir hana stemma stigu við hryðjuverkaárásum. Það sé forsenda fyrir stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínumanna að hryðju- verkaárásum á Ísraelsmenn verði hætt. „Ísraelar verða þó að íhuga af- leiðingar allra sinna gjörða, hverjar þær verða fyrir friðar- ferlið,“ sagði Bush. Hann sagðist ánægður með þau skref sem Ísraelsmenn hefðu tek- ið til að greiða fyrir friðarferlinu fyrir botni Miðjarðarhafs, svo sem að láta fanga lausa, en Sharon hefur heitið því að sleppa 540 palestínskum föngum til að greiða fyrir friðarferlinu. Palestínskir ráðamenn krefjast hins vegar að tæplega 7.000 Palestínumönnum sem eru í haldi í Ísrael verði sleppt. Ísraelar segjast ekki láta lausa neina þá sem sannanlega eru félagar í Hamas eða Jihad. Samtökin segja það hins vegar forsendu þess að friðarferlið haldi áfram. the@frettabladid.is TÍKRIT, AP Bandarískar hersveitir handtóku í gærmorgun þrjá af nánustu fylgismönnum Saddams Hussein, fyrrum forseta Íraks. Þeirra á meðal var lífvörður Saddams, Adnan Abdullah Abid al-Musslit. Bandarískir hermenn réðust inn í íbúðarhús í Tíkrit, heimbæ Saddams, í gærmorgun. Til átaka kom og særðist lífvörð- urinn lítillega. Á mánudag fundu bandarískir hermenn mikið magn sprengiefna í Tíkrit, sem að sögn hefði nægt til árása á bandaríska hermenn í heilan mánuð. Lífvörðurinn, al-Musslit, fylg- di Saddam hvert fótmál og lögðu Bandaríkjamenn mikið kapp á að hafa hendur í hári hans. Hinir mennirnir tveir eru Da- her Ziana, yfirmaður öryggis- mála í Tíkrit, og Rafa Idham Ibra- him al-Hassan, foringi í Feda- yeen, vopnuðum sveitum fylgis- manna Husseins. Að auki voru minni spámenn handteknir í árásinni. Richard Armitage, aðstoð- arutanríkisráðherra Bandaríkj- anna, sagði í gærkvöld að sér- sveitarmenn hefðu aðeins verið hársbreidd frá því að hafa hendur í hári Saddams í gær, þeir væru á hælum hans. ■ Varnarliðsmaðurinn: Kemur fyrir rétt í dag DÓMSMÁL Þingfesting í máli varnar- liðsmannsins sem beitti hnífi í hópslagsmálum í Hafnarstræti sunnudagsmorguninn 1. júní er klukkan tíu í dag. Varnarliðsmaður- inn er ákærður fyrir tilraun til manndráps. Fórnarlamb árásarinn- ar, nítján ára piltur, hlaut fimm stungur alls, þar af þrjár lífshættu- legar. Miklar deilur hafa verið um hvort ríkissaksóknari eða Banda- ríkjamenn skuli fara með lögsögu í málinu. Hæstiréttur felldi dóm þess efnis að ríkissaksóknari hefði lögsögu málsins og staðfesti um leið úrskurð Héraðsdóms Reykja- víkur um gæsluvarðhald yfir manninum fram í byrjun septem- ber. Vörslu mannsins er nú fram- fylgt af hálfu hersins. ■ HRÆÐILEGT ÁSTAND Hungursneyð er yfirvofandi í Líberíu. Uppreisnarmenn í Líberíu: Lýstu yfir vopnahléi MONRÓVÍA, AP Uppreisnarmenn í Líberíu lýstu í gærkvöldi yfir ein- hliða vopnahléi og segjast nú munu bíða komu friðargæsluliða til landsins. Uppreisnarmenn hafa margoft lýst yfir vopnahléi en ekkert þeirra hefur haldið. Efnahagssamband Vestur-Afr- íkuríkja segist muni sjá til þess að 2.300 hermenn og friðargæsluliða verði sendir til Líberíu en tryggja verði greiðslu kostnaðar vegna þeirra. Að minnsta kosti 1.300 níger- ískir hermenn eru í viðbragðs- stöðu og segir Obasanjo, forseti Nígeríu, að þeir geti verið komnir til Líberíu eftir nokkra daga. Þá styttist í að þrjú bandarísk her- skip komi að ströndum Líberíu. ■ Eigandi óskast! ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S T O Y 21 84 7 0 7/ 20 03 Það er óþarfi að hafa líka áhyggjur af bílaviðskiptum Við bjóðum áhyggjulaus og örugg bílaviðskipti. Allir notaðir bílar hjá okkur fara í gegnum strangt skoðunarferli. Fjórtán daga skiptiréttur. Ókeypis skoðun eftir fyrstu þúsund kílómetrana. Allt að eins árs ábyrgð á notuðum bílum. Skoðaðu úrvalið á Nýbýlavegi 4, á www.toyota.is eða hringdu í síma 570 5070. Peugeot Boxer F.skráð: 12.1999 Ekinn: 40.000 km Vél: 2500cc, 5 gíra Litur: Hvítur Verð: 1.290.000 kr. Héraðsdómur Vestfjarða: Ekki akstur af gáleysi DÓMUR Rúmlega fertugur maður var sýknaður í Héraðsdómi Vest- fjarða fyrir að hafa ekið jeppabif- reið af gáleysi með þeim afleið- ingum að sambýliskona hans og tvær dætur hennar létust af áverkum sínum. Maðurinn ók jeppa með létta farangurskerru í eftirdragi norð- ur Djúpveg í Skutulsfirði þegar vindur feykti kerrunni til með þeim afleiðingum að hann missti stjórn á bílnum, sem valt. Vindur gekk á með hviðum þennan dag. Dómurinn taldi ekki hægt að virða manninum það til gáleysis að hafa ekki gert sér grein fyrir því þegar hann ók út Skutulsfjörð- inn í þægilegum meðvindi að hann mætti vænta skyndilegrar vind- hviðu þvert á veginn, svo hvassr- ar að hún dygði til að hliðra ker- runni til. Hann var því sýknaður að ákærunni og allur kostnaður vegna málsins fellur á ríkissjóð. ■ BAGDAD, AP „Uday, Qusay og Mustafa létust allir eftir hetju- lega baráttu við óvininn, baráttu sem stóð í sex klukkustundir,“ segir rödd á segulbandsupptöku sem arabíska sjónvarpsstöðin Al- Arabiya lék síðdegis í gær. , Upptakan er sögð frá Saddam fyrrum Íraksforseta, en á henni minnist hann sona sinna og Mustafas, 14 ára sonar Qusays. Saddam hóf lesturinn með versi úr kóraninum en vottaði síð- an Írökum samúð vegna dauða þremenninganna. Saddam sagði að dauði þeirra væru góðar fréttir þar sem þeir sem féllu í skotbar- daga yrðu píslarvottar á himnum. Á upptökunni segist Saddam þakka Guði fyrir að hafa heiðrað sig með píslarvætti sona sinna og barnabarns, þeir hafi dáið í þágu Guðs, lands og þjóðar. ■ AFMÆLI SONARINS Saddam Hussein, sem hér sést í afmælisveislu Udays, syrgir nú dauða hans og Qusays. Saddam Hussein syrgir syni sína í nýrri upptöku: Segir syni sína píslarvætti STRÆTÓ OG VÖRUBÍLL Strætisvagn og vörubíll lentu í árekstri við göngubrúna við Kringluna á Miklubraut í gær. Engin meiðsl urðu á fólki, aðeins eignatjón. FERÐAMENN UTAN VEGAR Þýskir ferðamenn lentu utan veg- ar á bílaleigubíl í Hrútafirði um hádegisbilið í gær. Óhappið átti sér stað þar sem verið var að leggja klæðningu á veginn og skiptist frá malbiki yfir í nýlagða klæðningu. Engin slys urðu á fólki en flytja þurfti bílinn á brott. ■ Lögreglufréttir Ísraelar íhugi afleiðingar aðgerða Sharon, forsætisráðherra Ísraels, hvikar hvergi frá þeirri ákvörðun að reisa girðingu umhverfis heimastjórnarsvæði Palestínumanna. Bush segist ánægður með jákvæð skref Ísraela en hvetur þá til varfærni. AÐ LOKNUM FUNDI Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, og George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, við Hvíta húsið að loknum fundinum. GIRÐINGIN UMDEILDA Sharon segir að Ísraelar muni halda áfram að reisa girðinguna umhverfis heima- stjórnarsvæði Palestínumanna. Bush hefur gagnrýnt girðingarsmíðina. SADDAM OG LÍFVÖRÐURINN Adnan Abdullah Abid al-Musslit, lífvörður fyrrum Íraksforseta, sem handtekinn var í gær- morgun sést hér til hægri á myndinni. Með honum er Saddam. Talsmenn Bandaríkjahers segjast vera á hælum Saddams. Eru á hælum Saddams: Lífvörðurinn handtekinn

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.