Fréttablaðið - 30.07.2003, Blaðsíða 20
■ ■ OPNUN
12.00 Aðalheiður S. Eysteinsdóttir
opnar sýningu á Mokka kaffi í Reykja-
vík. Þar verða sýnd málverk á dagblöð
unnin árið 2001. Aðalheiður tekur á
móti gestum fram eftir degi. Sýningin er
opin á opnunartíma kaffihússins.
■ ■ ÚTIVIST
18.30 Útivistarræktin ætlar að
ganga á Stóra-Kóngsfell, sem er 602 m
hátt. Brottför frá gömlu Toppstöðinni,
stóra brúna húsinu, í Elliðaárdalnum.
Allir eru velkomnir, ekkert þátttökugjald.
19.30 Ferðafélag Íslands skipu-
leggur ferð í Stardal og að Tröllafossi.
Verð kr. 1.600/1.900. Lagt verður af stað
frá BSÍ með viðkomu í Mörkinni 6.
■ ■ LEIKLIST
21.00 Leikhúsið í Litla Garði á Ak-
ureyri frumsýnir „Ellý, alltaf góð“, einleik
eftir Þorvald Þorsteinsson í flutningi
Ævars Þórs Benediktssonar, nema í
MA, í leikstjórn Skúla Gautasonar. Að-
gangseyrir kr. 700, innifalið súpa og
brauð. Leikritið er ekki talið við hæfi
barna.
■ ■ TÓNLIST
20.00 Söngleikurinn Grease sýnd-
ur í Borgarleikhúsinu.
Tónleikar með EE project á Gauk á
Stöng. Frítt inn.
■ ■ SÝNINGAR
Ljósmyndasýningin World Press
Photo 2003 er nú í Kringlunni. Þetta er
þekktasta samkeppni í heiminum á sviði
fréttaljósmyndunar og hefur verið haldin
árlega síðan 1955. Sýningin stendur til
2. ágúst.
„Meistarar formsins“ nefnist stór
höggmyndasýning í Listasafni Akureyr-
ar, sem gerð er í samvinnu við Ríkis-
listasafnið í Berlín. Á sýningunni eru
verk eftir 43 listamenn, þar af 11 Íslend-
inga.
Snorri Ásmundsson, forsetaefni og
heiðursborgari, er með sýninguna „Til
Þín“ í Kling og Bang gallerí, Laugavegi
23. Á sýningunni opinberar hann sitt sér-
staka vinasamband við almættið og deil-
ir því með þeim sem móttækilegir eru.
Dýrfinna Torfadóttir, gullsmiður og
skartgripahönnuður, sýnir verk sín í List-
húsi Ófeigs, Skólavörðustíg 5. Dýrfinna
sýnir í þetta sinn skart unnið úr íslenskri
ull með ívafi hefðbundinna eðalmálma.
Sýningin stendur til 31. júlí.
Sýningin “Look out for my Love, it’s
in your neighbourhood“ er í Gallerí
Hlemmi. Þetta er fyrsta einkasýning
Hrafnhildar Halldórsdóttur hér á landi,
en hún er búsett í Glasgow þar sem
hún útskrifaðist frá Glasgow School of
Art árið 2001.
Sýning á verkum þriggja listamanna í
Listasafni ASÍ. Verkin eru eftir lista-
mennina Svavar Guðnason, Nínu
Tryggvadóttur og Kristján Davíðsson.
Sýnd verða verk frá 5. og 6. áratug síð-
ustu aldar sem öll eru í eigu safnsins.
Um er að ræða verk sem safnið hefur
hlotið að gjöf frá velunnurum sínum.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
30. júlí 2003 MIÐVIKUDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
27 28 29 30 31 1 2
MARS
Miðvikudagur
Einleikur Þorvalds Þorsteins-sonar, Ellý, alltaf góð, mun
ekki vera við hæfi barna. Þorvald-
ur samdi þennan þátt fyrir Björg-
vin Franz Gíslason leikara fyrir
nokkrum árum.
Ungur menntaskólanemi á Ak-
ureyri, Ævar Þór Benediktsson,
ætlar að flytja þennan einleik í
leikhúsinu Litla Garði á Akureyri
í kvöld klukkan níu.
Leikstjóri er Skúli Gautason,
leikari og tónlistarmaður, sem býr
einmitt á Litla-Garði og hefur
komið sér þar upp notalegu leik-
húsi. ■
Ekki við hæfi barna
ÞORLEIFUR ÖRN ARNARSSON
Besta kaffi í bænum er á Kaffi-brennslunni,“ segir Þorleifur
Örn Arnarsson leikari. „Ef maður
fær sér þar tvöfaldan Caffe latte
með dash af English toffee og
einn brúnan sykurmola og sóda-
vatnsglas, þá ertu tvímælalaust
kominn með besta kaffið í bæn-
um.“
Bestakaffið
DÚNDURTILBOÐ
sólgleraugu,
fatnaður ofl.
opticalstudiosól smáralind
Undirbúið verslunarmannahelgina tímanlega
Eina
sérve
rslun
lands
ins m
eð
sólgle
raugu
hársverði?
BIO+ fæst á hársnyrtistofum og í apótekum.
Vandamál í • psoriasis
• exem
• flasa
• skán
• hárlos
• kláði
• feitur
hársvörður
lausnin er BIO+
hársnyrtivörur frá Finnlandi
■ LEIKLIST
ÞORVALDUR ÞORSTEINSSON
Stuttur einleikur eftir hann verð-
ur sýndur á Akureyri í kvöld.