Fréttablaðið - 30.07.2003, Blaðsíða 18
30. júlí 2003 MIÐVIKUDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
27 28 29 30 31 1 2
JÚLÍ
Miðvikudagur
Ólafur Þórðarson þjálfari ÍA:
Krafa um sigur gegn KR
FÓTBOLTI „Að mínu mati erum við
með sterkari heild en KR,“ sagði
Ólafur Þórðarson þjálfari Skaga-
manna í knattspyrnu. „Þeir hafa
hæfa og skemmtilega einstak-
linga en þeir vinna ekki leiki,
liðsheildin gerir það.“
Íslandsmeistarar KR sækja ÍA
heim en fyrri leik þessara liða í
Frostakjóli lauk með sigri KR 1-
0.
„Það má ekki líta framhjá
þeirri staðreynd að við höfum að-
eins tapað þremur leikjum í sum-
ar og mjög oft erum við að yfir-
spila önnur lið allan leikinn en
náum ekki að binda lokahnútinn á
og töpum því stigum. Liðinu hef-
ur hins vegar vaxið ásmegin und-
anfarið og þessi leikur er ekki
stærri en hver annar á þessu
stigi. Það skiptir engu að í KR
eru þrír fyrrverandi Skagamenn,
það hefur verið svo lengi og við
spilum okkar leik hvernig sem
hitt liðið lítur út. Krafan er að
sjálfssögðu sigur á heimavelli
eins og endranær.“ ■
Naumur sigur
í Þýskalandi
Sjaldan hefur heimsmeistaramótið í rallíi þótt eins jafnt og nú er þegar
sex umferðum er ólokið. Aðeins fimm stig skilja að þrjá efstu ökumenn
og næsti kappakstur er í Finnlandi þar sem hlutirnir fara venjulega á
annan veg en búist er við.
RALLÍ Frakkinn Sebastian Loeb
sigraði í áttundu umferð heims-
meistarakeppninnar í rallí sem
fram fór í Þýskalandi um helgina.
Mátti þó litlu muna að Svíinn
Marcus Grönholm stæli sigrinum
á lokasprettinum.
Svíinn var 13 sekúndum á eftir
Loeb þegar síðasta sérleið var
ekin og hafði minnkað muninn nið-
ur í sex sekúndur þegar sérleiðin
var hálfnuð.
„Ég var orðinn fremur rólegur
undir stýrinu,“ sagði Loeb að lok-
inni keppni. „Svo varð
mér ljóst að Gronholm
var að aka af stakri prýði
og aðeins voru fimm sek-
úndur á milli og þá varð
hjartslátturinn örari um
leið.“ Loeb er einmitt
þekktur fyrir ró undir
pressu og því kom fát
hans fólki á óvart.
„Gronholm er snilling-
ur undir stýri og ekki
hver sem er sem vinnur
tíu sekúndur á fremsta
mann á síðustu sérleið,“
sagði Corrado Provera
sem rekur lið Peugeot
sem Gronholm keyrir
fyrir.
Það er hins vegar Bretinn Ric-
hard Burns, sem endaði í þriðja
sæti, sem hefur pálmann í höndun-
um í stigakeppni ökumanna. Hann
hefur nú fjögurra stiga forskot á
Spánverjann Carlos Sainz sem
kemur næstur.
Skoda sendi nýjan Fabia til
keppni í fyrsta
skipti og vakti
hann mikla at-
hygli en náði
ekki sérstaklega
góðum tímum að
sama skapi. „Við
glímdum við
m i n n i h á t t a r
galla á öllum
sérleiðum en um leið og þeir verða
komnir í lag þá er engin ástæða af
hverju Skoda ætti ekki að velgja
öðrum undir uggum,“ sagði rall-
goðsögnin Didier Auriol, sem er
keppnisstjóri Skoda.
Peugeot leiðir enn samkeppni
bílaframleiðenda en fast á hæla
þeirra kemur lið Citröen. Aðrir
framleiðendur eru langt á eftir og
eiga litla möguleika á heimsmeist-
aratitlinum.
albert@frettabladid.is
LOFTBELGJAHÁTÍÐ
Hundruðir loftbelgja leggja leið sína til Frakklands á árlega loftbelgjahátíð.
18.30 Sýn
Western World Soccer Show. Heims-
fótbolti.
19.00 Sýn
Bein útsending frá Akranesi þar sem
ÍA og KR mætast í Landsbankadeild-
inni.
19.15 Akranesvöllur
ÍA fær Íslandsmeistara KR í heimsókn
í 12. umferð Landsbankadeildinni.
23.30 RÚV
Vélhjólasport 2003. Þáttur um keppni
vélhjólakappa sem fram fór fyrir stuttu.
00.00 Sýn
Champions World. Bein útsending frá
leik Barcelona og AC Milan
MARCUS GRONHOLM
Á PEUGEOT
Vann tíu sekúndur á síðustu sér-
leið og ógnaði sigurvegaranum
verulega.
HEIMSMEISTARAKEPPNIN Í RALLI
Framleiðendur
1. Peugeot 95 stig
2. Citröen 88 stig
3. Ford 50 stig
4. Subaru 49 stig
5. Skoda 20 stig
Ökumenn
1. R. Burns 43 stig
2. C. Sainz 39 stig
3. M. Gronholm 38 stig
4. S. Loeb 33 stig
5. P. Solberg 30 stig
SEBASTIAN LOEB Á CITRÖEN
Sigraði naumlega 8. rallið af 14 alls í heimsmeistarakeppninni í ralli
ÚR FYRRI LEIK KR OG ÍA
Leiknum lyktaði með sigri
þeirra svarthvítu í jöfnum og
spennandi leik.