Fréttablaðið - 30.07.2003, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 30.07.2003, Blaðsíða 28
Það er klassi yfir þessum tón-leikum hjá okkur,“ segir Ein- ar Bárðason framkvæmdastjóri Concert, aðspurður um af hverju allt seljist upp hjá honum. „Mið- arnir á Kiri Tekanwa hurfu á 3 tímum og nú er orðið uppselt á djasssöngkonuna og Grammy- verðlaunahafann Diönu Krall. Við munum að vísu selja ósóttar pantanir fyrir tónleikana en það verða einungis örfáir miðar.“ Á Diönu Krall voru í boði 2.400 miðar og því augljóst að þjóðin er beinlínis að óska eftir góðum tónleikum. Stutt er frá því allir miðar á Foo Fighters seldust upp og í raun virðist sem Íslendingar séu mjög opnir fyrir góðum erlendum listamönnum. Diana Krall heldur tónleika í Laugardalshöll, 9. ágúst næst- komandi, en hún er að kynna 9. plötu sína, „Live in Paris“. Diana er trúlofuð tónlistarmanninum Elvis Costello, ekki er vitað hvort hann verður í hennar fríða föruneyti í ágúst. ■ 30. júlí 2003 MIÐVIKUDAGUR -réttur fyrir þig Laugavegi 176 / 0pið alla daga frá kl.10-23.30 Tónleikar EINAR BÁRÐARSON ■ hefur þegar selt alla miða á bæði Diönu Krall, sem spilar í Höllinni 9. ágúst, og miðarnir á Kiri Tekanwa, sem spilar í Háskólabíó í haust, seldust upp á 3 tím- um. Íslendingar vitlausir í góða tónleika. Uppselt á Krall EINAR BÁRÐARSON OG LEIFUR EINARSSON Einar og Leifur, starfsmaður Concert, halda hér á sínum eigin miðum. Þeir eru ekki til sölu og drengirnir eru ánægðir með að vera búnir að tryggja sér miða því það er upp- selt á Krall í Höllinni. DIANA KRALL Þau Elvis Costello eru trúlofuð en ekki er vitað hvort hann komi með henni og fylgist með tónleikunum í Höllinni, 9. ágúst. Árni Þór Sigurðsson, borgarfull-trúi, er 43 ára í dag. Hann segir að hefðbundin fundarhöld verði frameftir deginum í vinnunni og ekkert sé búið að ákveða í fram- haldinu. „Við erum fá í kotinu. Það getur vel verið að við og yngsti sonur okkar förum og fáum okkur að borða. Það er ekkert planað og fer líka svolítið eftir verði,“ segir Árni, sem er kvæntur þriggja barna fað- ir. Árni segist ekki hafa gert mikið af því að halda upp á afmælin sín til þessa. „Ég hélt reyndar upp á fert- ugsafmælið mitt á myndarlegan hátt. Þá vorum við með mikla veislu uppi í Elliðaárdal. Það var mjög ánægjulegt og við fengum af- skaplega gott veður,“ segir Árni. „Hins vegar á dóttir mín afmæli fjórum dögum seinna þannig að það er yfirleitt eitthvað afmælisstand um þetta leyti. Við höfum stundum slegið saman í veislu.“ Aðspurður segir Árni að eftir- minnilegasta afmælisgjöfin hans til þessa hafi einmitt verið sú stund þegar dóttir hans kom í heiminn fyrir 12 árum. Það hafi verið mikil og góð gjöf. Árni hefur verið önnum kafinn í sumar og aðeins getað tekið sér tveggja vikna sumarfrí. „Við fórum saman fjölskyldan til Frakklands og vorum þar í 10 daga. Það var mjög fín ferð og mikill hiti, einkum undir lokin þegar hitinn fór í 32 til 33 gráður.“ ■ Afmæli ÁRNI ÞÓR SIGURÐSSON ■ er afmælisbarn dagsins. Hann ætlar hugsanlega að fara út að borða með fjölskyldunni í kvöld. Fundarhöld frameftir degi ÁRNI ÞÓR SIGURÐSSON Eftirminnilegasta afmælisgjöfin þegar dótt- ir hans kom í heiminn fyrir 12 árum. Það er Misty eftir Errol Gar-dner. Afskapleg magnað lag sem fólk þekkir úr kvikmyndinni Play Misty for Me með Clint Eastwood,“ segir Jónas Jónasson útvarpsmaður um óskalagið sitt. „Það er laglínan og stemmningin sem heillar mig. Það er með þetta lag eins og svo mörg önnur góð; það er einfaldleikinn sem gerir það magnað.“ ■ ■ Veistu svarið? Svör við spurningum á bls. 6 1. 2. 3. George Robertson lávarður Bob Hope Steindór Gunnarsson ■ Óskalagið mitt Sem kunnugt er sækja átta lög-fræðingar um starf hæstarétt- ardómara sem losnar um miðjan september þegar Haraldur Henrýsson hæstaréttardómari lætur af stöfum vegna aldurs. Níu dómarar sitja í Hæstarétti en þeir eru auk Haraldar sem nú lætur af störfum: Árni Kolbeins- son, Garðar Gíslason, Guðrún Er- lendsdóttir sem er forseti réttar- ins, Gunnlaugur Claessen, Hrafn Bragason, Ingibjörg Benedikts- dóttir, Markús Sigurbjörnsson og Pétur Hafstein. Fréttiraf fólki

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.