Fréttablaðið - 30.07.2003, Side 6
6 30. júlí 2003 MIÐVIKUDAGUR
■ Sjávarútvegur
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 76.41 -0.21%
Sterlingspund 124.27 0.02%
Dönsk króna 11.81 -0.12%
Evra 87.75 -0.10%
Gengisvístala krónu 123,69 -0,01%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 264
Velta 4.178,1 milljónir
ICEX-15 1.518 0,49%
Mestu viðskiptin
Íslandsbanki hf. 409.753.258
Landsbanki Íslands hf. 137.121.477
Kaupþing Búnaðarbanki hf. 114.763.398
Pharmaco hf. 65.480.350
Nýherji hf. 64.260.000
Mesta hækkun
Skeljungur hf. 5,00%
Össur hf. 2,17%
Kaupþing Búnaðarbanki hf. 0,13%
Íslandsbanki hf. 0,98%
Mesta lækkun
Samherji hf. -8,24%
Eimskipafélag Íslands hf. -0,80%
Pharmaco hf. -0,46%
Og fjarskipti hf. -0,38%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ: 9243,3 -0,3%
Nsdaq: 1733,1 -0,1%
FTSE: 4137,0 -0,3%
NIKKE: 9834,3 -0,1%
S&P: 995,2 -0,1%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Veistusvarið?
1Framkvæmdarstjóri NATO fundaðimeð Halldóri og Davíð á Þingvöllum
á mánudag. Hvað heiti hann?
2Hvaða bandaríski skemmtikraftur léstá sunnudagskvöld, 100 ára að aldri?
3Hvað heitir yfirþjálfari íslenskalandsliðsins í sundi?
Svörin eru á bls. 28
NEYTENDUR „Neytendasamtökin
gera kröfu til þess að olíufélögin
leggi spilin á borðið og jafnframt
að þau upplýsi hvernig þau hyggist
bæta neytendum það tjón sem þau
hafa valdið,“ segir Jóhannes Gunn-
arsson, formaður Neytendasam-
takanna.
Jóhannes segir tjón neytenda
ekki einungis felast í að borga
hærra verð fyrir olíuvörur, heldur
hafi samráð olíufélaganna komið
fram í hærra verði á ýmsum öðrum
vörum og þjónustu. „Til þess að
bæta gráu ofan á svart hækkar
þetta neysluvöruverðsvísitölu.
Meginhluti skulda heimilanna eru
verðtryggðar skuldir þannig að
hækkun á neysluvöruverðsvísitölu
hækkar beinlínis skuldir heimil-
anna,“ segir Jóhannes. „Þetta hefur
því mjög víðtæk áhrif á neytendur.“
Jóhannes segir olíufélögin
verða að koma með ásættanleg
svör um það hvernig þau ætla að
bæta fyrir þær misgjörðir sem þau
hafa staðið fyrir gagnvart neytend-
um. „Öðruvísi öðlast þau ekki tiltrú
sinna viðskiptavina á nýjan leik,“
segir Jóhannes, en samtökin áskil-
ja sér allan rétt til þess að grípa til
frekari aðgerða þegar endanleg
skýrsla Samkeppnisstofnunar ligg-
ur fyrir. ■
Fyrirtæki sektuð vegna
háttsemi starfsmanna
Bogi Nilsson segir Samkeppnisstofnun skorta ákvæði um að
henni beri að vísa sérstaklega alvarlegum eða umfangsmiklum
málum til ákæruvalds og lögreglu til meðferðar.
RANNSÓKN „Ríkissaksóknari er
æðsti handhafi ákæruvalds í
landinu. Jón H. Snorrason er
saksóknari og sinnir sínum
störfum. Í reglugerð um efna-
hagsbrotadeild er kveðið á um
að ríkissaksóknari og saksóknari
efnahagsbrotadeildar geti haft
bein samskipti sín
á milli, án afskipta
r í k i s l ö g r e g l u -
stjóra,“ segir Bogi
Nilsson ríkissak-
sóknari.
Bogi segir ríkis-
saksóknara ekki
rannsaka mál
heldur geti hann
mælt fyrir um rannsóknir. Þær
séu lögreglurannsóknir fram-
kvæmdar í þágu ákæruvaldsins.
Því skipti það ríkissaksóknara
máli hvað sé að gerast á þeim
vettvangi.
Hann segir menn verða að
horfa til laganna sem um þetta
gildi, samkeppnislögin. Ekki séu
alveg afdráttarlaus og skýr
ákvæði um meðferð málanna.
„Búið er að efna til samkeppnis-
eftirlitsins með lögum. Sam-
keppnisstofnun og samkeppnis-
ráð eru að mörgu leiti mjög öfl-
ug, með sína sérhæfðu starfs-
menn. Hlutverk þeirra er að
hafa eftirlit með samkeppnis-
málum, jafnvel rannsaka brot á
lögunum og ákveða sektir.“
Bogi segir að sínu mati sé
afar þýðingarmikið að nýta þá
starfskafta sem fyrir hendi eru
og að ekki séu tveir að vinna að
sama verkinu.
Samkeppnisstofnun skorti
ákvæði um að henni beri að vísa
málum sem hún telji sérstaklega
alvarleg eða umfangsmikil til
ákæruvaldsins og lögreglu til
meðferðar. „Við verðum að beita
þessum lögum eins og skynsem-
in segir okkur til um.
Við verðum að hafa það í huga
þegar verið er að sekta fyrirtæki
fyrir brot á samkeppnislögum þá
er það vegna háttsemi tiltekinna
starfsmanna fyrirtækisins.“
hrs@frettabladid.is
Rúmenskir veiðiþjófar:
Drápu 28
álftarunga
CONSTANTA, AP Fjórir menn eru í
haldi lögreglu í Rúmeníu fyrir
svanadráp. Mennirnir eru á aldr-
inum 16 til 28 ára og fundust í fór-
um þeirra 28 álftarungar. Menn-
irnir sögðust hafa drepið ungana
við ósa Dónár, þar sem hún renn-
ur í Svartahafið.
Málið er litið alvarlegum aug-
um í Rúmeníu en ósar Dónár eru
griðland yfir 200 fuglategunda.
Svanamorðingjarnir eiga yfir
höfði sér allt að þriggja ára fang-
elsi. ■
SÍLD Um 8300 tonnum af sjó-
frystri síld hefur verið landað í
frystigeymslur Síldarvinnslunnar
á Neskaupstað í sumar. Meirihluti
aflans fékkst á veiðisvæðinu norð-
ur af Svalbarða, en þangað er um
þriggja sólarhringa sigling.
Pikköplínuhandbókin fylgir
sex-pakka af 0,5l Coke í
Select verslunum
HEILSAST VEL
Ji Hye er sjálfri sér næg meðan systir
hennar, Sa Rang, fær sér blund. Systrunum
heilsast vel en læknar aðskildu þær fyrir
skömmu.
Kóresku síamstvíburarnir:
Braggast vel
SINGAPÚR, AP Bati kóresku tvíbura-
systranna Sa Rang og Ji Hye þyk-
ir undraverður en læknar á Raf-
fle sjúkrahúsinu í Singapúr að-
skildu þær á dögunum. Systurn-
ar, sem eru rúmlega fjögurra
mánaða gamlar, voru samvaxnar
á mjóhrygg og mjöðmum og deil-
du þörmum og kynfærum að
hluta. Systurnar eru nú komnar
af gjörgæslu, lausar við næringu
í æð og farnar að drekka sjálfar
úr pela. Óvíst er hvenær þær út-
skrifast af sjúkrahúsinu en þær
eiga eftir að gangast undir fjölda
lýtaaðgerða. ■
JÓHANNES GUNNARSSON
Formaður Neytendasamtakanna segir
meint samráð olíufélaganna hafa skilað
sér í hærra verðlagi og hækkun skulda
heimilanna.
Neytendasamtökin skora á olíufélögin
að leggja spilin á borðið:
Bæti neytendum tjón
SAMKEPPNISSTOFNUN
Ríkissaksóknari segir mikilvægt að nýta þá starfskrafta sem til eru.
■
Samkeppnis-
stofnun og
samkeppnisráð
er að mörgu
leiti mjög öflug,
með sína sér-
hæfðu starfs-
menn.
Kaupm.höfn
London
París
Berlín
Algarve
Benidorm
Torrevieja
Krít
Kýpur
Róm
New York
Miami
22°C léttskýjað
20°C skúrir
23°C skúrir
24°C léttskýjað
26°C léttskýjað
31°C léttskýjað
33°C léttskýjað
28°C heiðskírt
34°C heiðskírt
30°C léttskýjað
23°C heiðskírt
29°C rigning
FimmtudagurÍ dag
Föstudagur
Veðrið úti í heimi í dag
Úrkomusvæði eru skyggð á kortinu. Minniháttar skúraleiðingar eru táknaðar með dropum. Hitatölur sýna hæstu hitagildi dagsins.
Veðrið
ÚRKOMUSVÆÐI
Þegar líður á
daginn bætir í
vind á Reykjavíkur-
svæðinu og á
landinu sunnan-
verðu. Að auki er
von á rigningar-
svæði og má
búast við rigningu
á öllum
suðurhelmingi
landsins síðdegis.
þurrasta, og því
besta, veðrið
verður á Raufarhöfn
og á Húsavík en
þar gæti þó dropað
seinnipartinn.
Athugið að eftir
rigningu styttir upp!
Kveðja,
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veðurfræðingur
Strekkingur
Strekkingur
Strekkingur
Strekkingur
Allhvasst
Allhvasst
Hægur vindur
Hægur
vindur
Hægur
vindur
Hægur
vindur