Fréttablaðið - 30.07.2003, Side 8
KARLAR
L U J T Mörk Stig
Fylkir 12 7 2 3 19:9 23
KR 11 6 2 3 15:13 20
Grindavík 11 6 1 4 17:17 19
Þróttur 11 6 0 5 19:16 18
FH 12 5 3 4 20:19 18
ÍBV 12 5 1 6 18:19 16
KA 11 4 2 5 18:17 14
ÍA 11 3 5 3 14:13 14
Valur 12 4 0 8 16:22 12
Fram 11 2 2 7 14:25 8
Fylkir 3:0 ÍBV
8 30. júlí 2003 MIÐVIKUDAGUR
Í stuði með Guði
„Við verðum í góðum gír og enn
betri fíling í Fljótshlíðinni um
helgina.“
Geir Jón Þórisson í Fréttablaðinu 29. júlí.
Skammastu þín Davíð
„Það var vægast sagt
óskemmtilegt að lesa órök-
studdar fullyrðingar forsætis-
ráðherra um starfsmenn og
stjórnendur Símans í helgar-
blaði DV.“
Þorsteinn J. Óskarsson í DV 29. júlí.
Úbbs !
„Við kunnum að standa frammi
fyrir því að þurfa að verja tug-
um milljarða til varnarmála og
reksturs Keflavíkurflugvallar í
stað 0-framlagsins hingað til og
að tímabundið atvinnuleysi Suð-
urnesjamanna verði þeim þungt
í skauti.“
Kristján Pétursson í Morgunblaðinu 29. júlí
Orðrétt
Íslandsbanki var rekinn með 2,4 milljarða króna hagnaði fyrstu sex mánuði ársins:
Hagnaður eykst um 46%
VIÐSKIPTI Íslandsbanki var rekinn
með rúmlega 2,4 milljarða króna
hagnaði á fyrstu sex mánuðum
ársins, samkvæmt árshlutaupp-
gjöri fyrir fyrri helming ársins.
Þetta er 46% aukning miðað við
sama tímabil í fyrra.
Í uppgjörinu kemur fram að
hagnaður á öðrum ársfjórðungi
var 1.342 milljónir króna, sem er
ríflega 26% aukning frá fyrsta
ársfjórðungi.
Arðsemi eiginfjár var um 28%
fyrstu sex mánuði ársins, saman-
borið við tæplega 18% á sama
tímabili árið 2002. Rekstrarkostn-
aður nam rúmum 51% af tekjum,
og hefur minnkað því á sama
tímabili í fyrra var hann tæp 54%.
Heildareignir Íslandsbanka
námu 379 milljörðum króna í lok
júní og jukust um tæp 22% á
fyrstu sex mánuðum ársins. Eig-
ið fé nam 19,7 milljörðum. Alls
námu útlán Íslandsbanka um 274
milljörðum í lok júní og höfðu
þau aukist um rúm 8% frá ára-
mótum. ■
Taminn fíll í Taílandi:
Trylltist og
drap þrjá
menn
BANGKOK, AP Taminn fíll í norður-
hluta Taílands sleit af sér hlekk-
ina og gekk berserksgang.
Áður en yfir lauk hafði fíllinn
drepið þrjá menn, kramið þá og
slitið af þeim útlimi. Þá liggur
kona stórslösuð eftir fílinn. Ekki
er ljóst hvað varð til þess að fíll-
inn trylltist og réðist að fólkinu,
en líklegt er talið að það hafi ætl-
að að handsama fílinn.
Fjölmennt lið leitar nú fílsins og
freistar þess að koma á hann
böndum. ■
Anderston
Kelvingrove
Finnieston
City Centre
Woodlands
Premier
Lodge
Ramada Jarv
Glasgow
Cowcaddens
Townhead
Merchant
City
Kingston
Kinning Park St. Enoch
Princess
Square
Gladgows
Arts Centre
Central
Station
Royal
Concert Hall
Sauchiehall
Sauchiehall
Sauchiehall
West George
GeorgeSquare
St. Vincent
Ingram Street
Waterloo
Argyle
Argyle
Argyle
West Regent
Renfrew
Renfrew
Bath
Gordon
Bath
Bu
ch
an
an
S
t.
Q
ue
en
Bi
sh
op
H
ol
la
nd
Pi
tt
D
ou
gl
as
s
Bl
yt
hs
w
oo
d
W
. C
am
be
ll
C
am
br
id
ge
S
tr
ee
t
W
el
lin
gt
on
H
op
e
Bu
ch
an
an
S
t.
H
ut
ch
en
so
n
R
en
f.
K
in
gs
to
n
Br
id
ge
K
in
g
G
eo
rg
eV
Br
id
ge
G
la
sg
ow
B
ri
dg
e
The Millennium
Hotel
Glasgow
Thistle Hotel
Glasgow
www.icelandair.is/glasgow
Verð frá 29.900 kr.
Skoða byggingar eftir arkitektinn Charles Rennie Mackintosh,
þann sama og gerði Mackintosh stólinn fræga.
Tapaðu þér í frábærum verslunum sem bjóða gott vöruúrval
og hagstætt verð. Enginn söluskattur á barnafötum.
Njóta skoskrar náttúrufegurðar í næsta nágrenni við borgina.
Umhverfis Glasgow eru margir fallegir og spennandi staðir sem
auðvelt er að komast til hvort heldur er í bíl eða með
almenningsfarartækjum.
Prófaðu þjóðarréttinn Haggis en ekki spyrja um innihaldið!
Áður en þú ferð heim þarftu að kaupa: föt á góðu verði,
skotapils eða sekkjapípu.
Í Glasgow þarftu að:
BEST AÐ BORÐA
Where the Monkey
Sleeps, 182 West Regent
Street. Kaffihús sem er
þekkt fyrir frábærar
samlokur og súpur.
Rab Ha´s, Hutchenson
Street. Þegar þú vilt fá
skoskan mat borinn fram
á nýstárlegan hátt.
BEST AÐ VERSLA
St. Enoch’s Shopping
Center. Eitt það elsta í
Glasgow.
Italian Center, Ingram
Street, ítölsk vörumerki
og veitingastaðir.
á mann í tvíbýli í 2 nætur. Innifalið: flug, gisting á Premier Lodge,
morgunverður, flugvallarskattar og þjónustugjöld.
Brottfarir 7. nóv, 6. feb. og 5. mars.
VR orlofsávísun
Munið ferða-
ávísunina
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
21
70
5
0
7/
20
03
LÖGGÆSLA „Ég held að þessir aðilar
hljóti að rannsaka ólíka hluti og
með ólíkum hætti,“ segir Ragnar
Aðalsteinsson hæstaréttarlögmað-
ur um þau sjónarmið embættis rík-
islögreglustjóra að embættið geti
ekki hafið opinbera rannsókn á ol-
íumálinu samhliða rannsókn Sam-
keppnisstofnunar, þar sem slíkt
kynni að valda sakarspjöllum á
málinu með tilliti til mannréttinda-
sáttmála. Ragnar gefur ekkert fyr-
ir þau rök.
„Nú er búið að fella grun á fjöl-
da manns og þetta fólk á rétt á því
að rannsókn fari fram þegar í stað
og henni verði lokið með eins greið-
um hætti og unnt er,“ segir hann.
Um miðjan júní gengu fulltrúar
Samkeppnisstofnunar á fund ríkis-
lögreglustjóra til að upplýsa emb-
ættið um það sem stofnunin hafði
orðið áskynja eftir húsleit í höfuð-
stöðvum félaganna. Þórir Oddsson
vararíkislögreglustjóri sat fundinn
með Samkeppnisstofnun þar sem
sendinefndin upplýsti munnlega
um þær uppgötvanir sem gerðar
höfðu verið varðandi meðvitað og
víðtækt samráð. Vararíkislögreglu-
stjóri neitaði á fundinum að taka
við frumskýrslunni þar sem málið
væri ekki sett fram með formleg-
um hætti. Síðan gerðist ekkert í
málinu fyrr en eftir að Fréttablaðið
hafði birt kafla úr frumskýrslunni
þar sem því var lýst fullum fetum
að um samráð olíufélaganna væri
að ræða. Í fyrstu neitaði Haraldur
Johannessen ríkislögreglustjóri að
hafa neinar þær upplýsingar sem
gæfu vísbendingar um að forsvars-
menn olíufélaganna hefðu brotið
lög. „Við höfum engar þær upplýs-
ingar sem að Samkeppnisstofnun
hefur, og við teljum að sé grunur
um refsiverða háttsemi þá sé það á
ábyrgð Samkeppnisstofnunar að
gera viðeigandi ráðstafanir gagn-
vart ríkislögreglustjóra og ríkis-
saksóknara,“ sagði Haraldur í sam-
tali við Ríkisútvarpið á föstudag.
Ragnar segir að sjónarmið ríkis-
lögreglustjóra um að formlega
þurfi að tilkynna um grunsemdir
standist ekki. Þessu megi einna
helst líkja við það að maður fyndi
lík í bakgarði sínum og tilkynnti
lögreglunni um málið. Maðurinn
myndi síðan ekki vilja gefa skýrslu
málið og tengjast því þannig. Þá
yrði niðurstaða lögreglunnar sú að
ekki væri hægt að hefja rannsókn.
„Rannsókn lögreglu yrði miklu
víðtækari og beindist að hugsanleg-
um brotum á almennum hegningar-
lögum og refsiverðri háttsemi ein-
staklinga samkvæmt ýmsum sér-
lögum,“ segir Ragnar og vísar til
þess að rannsókn Samkeppnisstofn-
unar beinist að afmörkuðum at-
höfnum og athafnaleysi.
„Rannsókn lögreglu hlýtur að
snúa að því hvort haft hafi verið fé
af viðskiptavinum olíufélaganna
með ólögmætum og refsiverðum
hætti og af þeim aðgerðum hafi
leitt brot á öðrum lögum, svo sem
lögum um bókhald,“ segir Ragnar.
rt@frettabladid.is
RAGNAR AÐALSTEINSSON
Rannsókn lögreglu yrði af öðrum toga.
LONDON, AP Gestir sem heimsækja
ríkislistasafnið í London geta nú í
lok heimsóknarinnar prentað út
listaverkin sem þeim líst best á og
tekið með sér heim. Hingað til
hefur safnið legið með um 60 mis-
munandi plaköt af verkum á safn-
inu.
Nú hafa forráðamenn þess, í
samvinnu við Hewlett Packard
tölvufyrirtækið, látið koma 900
verkum á safninu á tölvutækt
form. Gestir geta því sjálfir
prentað út myndirnar í lok heim-
sóknar. Fyrir venjulega A-4 út-
prentun greiða gestir 10 sterl-
ingspund eða rúmar 1.200 krónur
íslenskar. Fyrir 25 sterlingspund
eða rúmar 3.000 krónur fá menn
tvöfalt stærra plakat. Ætlunin er
að öll verk á safninu, 2.300 talsins,
verði komin á tölvutækt form í lok
næsta árs. ■
Listasafnið í London:
Málverkin
á tölvutækt
form
LISTASAFNIÐ Í LONDON
Fjórðungur verka safnsins er nú kominn
á tölvutækt form.
ÚTLÁN AUKAST
Alls námu útlán Íslandsbanka um 274 milljörðum í lok júní og höfðu þau aukist
um rúm 8% frá áramótum.
Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður:
Gefur lítið fyrir
rök lögreglustjóra