Fréttablaðið - 30.07.2003, Side 10
10 30. júlí 2003 MIÐVIKUDAGUR
ALVARLEGAR AUKAVERKANIR
Pelusa, fjórtán ára gömul birna í dýragarði
í Argentínu á ekki sjö dagana sæla. Hún
fékk heiftarlega sýkingu í feldinn og
brugðu dýralæknar á það ráð að gefa
henni sýklalyf. Aukaverkanir eru eins og
sést, fjólublár feldur. Dýralæknar segja að
Pelusa nái sínum skjannahvíta lit á ný eftir
mánuð eða svo.
Hátíð á Eiðum blásin af:
Ósáttur við sýslumannsembættið
ÚTIHÁTÍÐ „Við byrjuðum fyrir
tveimur mánuðum að skipuleggja
útihátíð á Eiðum en nú virðist
sýslumannsembættið á Egilsstöð-
um búið að stöðva þau áform,“ seg-
ir Davíð Sigurðarson einn af skipu-
leggjendum.
„Ég talaði við sýslumanninn
áður en hann fór í sumarfrí um
löggæslukostnaðinn en hann gat
þá ekki nefnt neina tölu. Hátíð sem
var í Borgarfirði um síðustu versl-
unarmannahelgi kostaði um 130
þúsund í löggæslukostnað þannig
að ég bjóst við upphæð á bilinu 100
til 200 þúsund.“ Þegar Davíð hélt
hins vegar á fund Helga Jenssonar
hjá sýslumannsembættinu á Egils-
stöðum kom annað upp á daginn.
„Þegar ég spurði Helga um vænt-
anlegan löggæslukostnað taldi
hann að það þyrfti þrettán lög-
reglumenn og að kostnaðurinn
yrði um 1,2 milljónir.“ Davíð segir
hátíðina hafa átt að vera litla í snið-
um þar sem tónlist skipar stærstan
sess. „Þetta átti ekki að vera neitt
Halló Akureyri eða Eldborg.“ Dav-
íð segir að lokum að fólkið fyrir
austan sé ekki sátt við þessa niður-
stöðu sýslumannsembættisins þar
sem hátíðin var orðin mikið til-
hlökkunarefni. ■
Þröskuldur sem
þarf að fjarlægja
Vegurinn um Almannaskarð er farartálmi allt árið um kring.
Fyrir áramót verður ráðist í að gera jarðgöng þar sem hallinn verður
mestur um 5 prósent. Halli á núverandi vegi er um 16 prósent.
JARÐGÖNG „Verið er að vinna að
hönnun ganga um Almannaskarð.
Meiningin er að bjóða verkið út
með haustinu. Vonandi verður
hægt að byrja á
verkinu fyrir ára-
mót og reiknum við
með að því ljúki að
mestu leyti á næsta
ári,“ segir Einar
Þorvarðarson, um-
dæmisstjóri Vegagerðarinnar á
Austurlandi, um fyrirhuguð jarð-
göng um Almannaskarð.
Einar segir brekkuna um Al-
mannaskarð vera þá lang brött-
ustu á hringveginum. Vegurinn er
farartálmi vegna grjóthruns árið
um kring. Á veturna er leiðin oft
erfið vegna hálku og snjóa. Nú-
verandi vegur norðan við Al-
mannaskarð liggur upp Skarðsdal
með um 5% halla en sunnan í Al-
mannaskarði liggur hann í brattri
skriðu með um 16% halla. „Að
öllu jöfnu reynum við að fara
ekki upp fyrir 7 til 8 prósent
halla. Brekkan er mikill farar-
tálmi fyrir alla bíla, sérstaklega
flutningabíla. Hættulegur staður
eins og í ljós hefur komið. Þetta
er eins og þröskuldur sem verið
er að fjarlægja.“
Í þessu verkefni er unnið að
undirbúningi 1,2 kílómetra jarð-
ganga með alls um 130 metra
löngum vegskálum. Göngin verða
tvíbreið með mest um 5 prósent
halla. Að norðan verður ganga-
munni 80 metra yfir sjávarmáli
en 40 metra að sunnanverðu. Nú-
verandi vegur er hæstur 155
metrar yfir sjávarmáli. Byggður
verður nýr vegur, 1,5 kílómetra
langur og 3,5 kílómetrar af nú-
verandi vegi verða endurbyggðir.
Einar segir að ekki sé langt síð-
an að ákveðið hafi verið að ráðast
í gerð ganganna. Talað hafi verið
um að horfa til þess að betr-
umbæta veginn og leggja nýjan
veg yfir skarðið. Þó hafi lengi ver-
ið í umræðunni að grafa göng und-
ir skarðið. „Þetta er eitt af þessum
flýtiverkefnum ríkisstjórnarinn-
ar. Ég held að allir sé ánægðir
með væntanleg göng, ekki bara
Austfirðingar heldur allir sem
þurfa að fara hringveginn.“
hrs@frettabladid.is
Yfirmaður kjarnorku-
áætlunar Íran:
Sagði af sér
TEHERAN, AP Khalil Mousavi, tals-
maður kjarnorkuþróunarmála í
Íran, sagði af sér í gær. Mousavi
gaf enga skýringu á athæfi sínu.
Íranar hafa sætt auknum al-
þjóðlegum þrýstingi um að leyfa
eftirlitsmönnum að fara óhindrað
um kjarnorkuver sín en Banda-
ríkjamenn gruna þá um að vinna
að smíði kjarnorkuvopna. Íranar
segja hins vegar að kjarnorku-
framleiðsla þeirra sé í friðsam-
legum tilgangi, kjarnorkan sé not-
uð til rafmagnsframleiðslu. ■
ELDBORG
„Þetta átti ekki að vera neitt Halló Akureyri
eða Eldborg,“ segir Davíð Sigurðarson.
■
Núverandi veg-
ur er hæstur
155 metrar yfir
sjávarmáli.
JARÐGÖNG UM ALMANNASKARÐ
Unnið er að hönnun jarðganganna sem eiga að vera tilbúin að mestu á næsta ári.