Fréttablaðið - 30.07.2003, Side 12

Fréttablaðið - 30.07.2003, Side 12
30. júlí 2003 MIÐVIKUDAGUR Upplagseftirlit dagblaða: Fréttablaðið yfir 90 þúsund eintök ÚTGÁFA Samkvæmt upplagseftirliti Verzlunarráðs var Fréttablaðinu dreift að meðaltali í 90.586 eintök- um fyrstu sex mánuði ársins. Þar af fóru 76.167 á heimili á höfuð- borgarsvæðinu og Akureyri fram að marslokum. Í lok mars bættust Suðurnes við dreifikerfi Frétta- blaðsins og þá var að meðaltali 82.455 eintökum dreift á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesj- um og Akureyri. Fyrstu sex mán- uði var að meðaltali 11.189 eintök- um dreift á sölustaði víðs vegar um landið. Á sama tíma voru að meðaltali 53.488 eintök af Morgunblaðinu seld í áskrift eða lausasölu. Það er svipað magn og selt var á fyrri helmingi síðasta árs eða 428 ein- tökum minna. Fréttablaðið hóf þátttöku í upplagseftirlitinu síð- astliðið haust svo samanburð á dreifingu þess á fyrri helmingi síð- asta árs vantar. Samkvæmt síðustu fjölmiðla- könnun Gallup lásu 65,9 prósent landsmanna á aldrinum 12 til 80 ára Fréttablaðið að meðaltali dag hvern en 53,4 prósent Morgunblað- ið. Lestur Morgunblaðsins hafði þá minnkað um 6,6 prósentustig frá mars 2002 en lestur Fréttablaðsins aukist um 21,5 prósentustig. Sam- kvæmt þessu voru um 2,62 lesend- ur um hvert selt Morgunblað í fyrra en eru nú 2,35. Miðað við upplagstölur frá Fréttablaðinu voru í fyrra 1,33 lesendur á bak við hvert Fréttablað en eru nú 1,71. Lesendum á bak við hvert eintak Morgunblaðsins hefur því fækkað um 10 prósent en lesendum á bak við hvert Fréttablað hefur fjölgað um 29 prósent. ■ Kaupfélag Árnesinga leitar nauðasamninga Skuldir KÁ eru metnar á 320 milljónir króna. Einar Gautur Steingrímsson, lögmaður kaupfélagsins, segir málið umfangsmikið. Markmið stjórnarinnar sé að ná sem mestu upp í kröfur. VIÐSKIPTI Kaupfélag Árnesinga stefnir að nauðasamningum við lánardrottna sína og að farið verði fram á áframhaldandi heimild til greiðslustöðvunar í þrjá mánuði. Á fundi sem for- svarsmenn kaupfélagsins héldu með kröfuhöfum á mánudag kom fram að skuldir félagsins umfram eignir séu metnar á um 320 milljónir króna. Einar Gautur Steingrímsson hrl. segir ekki tímabært að gera frumvarp að nauðasamningum. Málið sé umfangsmikið og halda þurfi vel á spöðunum til að ná því á næstu þremur mánuðum. Hann segir markmið stjórnar KÁ vera að ná sem mestu upp í kröfur. Endanlegar tölur ráðist af því hvernig eignir metist í raun og því hvort allar ábyrgðir sem kaupfélagið er skrifað fyrir haldi. Einar Gautur segir vafa leika á heimildum fyrrverandi framkvæmdastjóra félagsins fyrir því að veita ábyrgðir. Þar muni mestu ábyrgðir gagnvart Brú sem skráð er fyrir eignar- haldi Hótel Selfoss. Stærsta einstaka eign félags- ins er húsið að Austurvegi 3-5 sem metið er á 620 milljónir króna. Sé miðað við arðsemi þess út frá núverandi leigu- samningum má reikna verðmæti þess niður um 200 milljónir króna. Íslandsbanki á veð í hús- inu fyrir 436 milljónum. Olíufé- lagið sagði upp samstarfssamn- ingi um rekstur söluskála ESSO 30. júní sl. vegna óvissu um rekstur kaupfélagsins. Áætluð velta söluskálasviðs á árinu er 955 milljónir, rúmur helmingur af veltu KÁ. Búrekstrarsvið kaupfélagsins starfar á Selfossi og Hvolsvelli. Fóðurvörur vega þyngst í veltu þess og eru við- ræður hafnar við Fóðurblönduna um framtíð mála. Undir hótel- svið KÁ heyra hótel á Selfossi, Flúðum, Vík og Kirkjubæjar- klaustri. Velta þeirra í ár er áætluð um 400 milljónir króna. Grípa þarf til sérstakra aðgerða til að tryggja rekstur hótelanna. Af einstökum dóttur- og hlut- deildarfélögum KÁ sem standa illa um þessar mundir, fyrir utan Brú, munar mest um Áburðar- söluna Ísafold þar sem beiðni um gjaldþrotaskipti liggur fyrir og gjaldþrotabeiðni hefur líka verið lögð fram vegna HK-bú- vara og X-ferða. Vélsmiðja KÁ er í nauðasamningum og Álein- ingar á Hellu hafa verið innsigl- aðar. ■ LUNDÚNIR,AP Stjórnendur flugfé- lagsins British Airways vonast til að viðræður þeirra við leiðtoga þriggja verkalýðsfélaga flug- starfsmanna, sem staðið hafa yfir undanfarið, komi í veg fyrir að annað verkfall eigi sér stað. Starfsfólk við innritunarborð Heathrow flugvallar í Lundúnum fór í tveggja daga verkfall fyrr í mánuðinum vegna nýs innritun- arkerfis sem það óttast að muni umbreyta starfinu til hins verra. British Airways hefur átt í miklum fjárhagserfiðleikum undanfarið og óttast stjórnendur þess að annað verkfall gæti haft alvarlegar afleiðingar fyrir fyr- irtækið. ■ BRITISH AIRWAYS Annað verkfall gæti haft slæmar afleiðingar fyrir fyrirtækið. British Airways: Verkfallsviðræður standa yfir FUNDAÐ MEÐ KRÖFUHÖFUM Forsvarsmenn Kaupfélags Árnesinga þeir Jón Steingrímsson rekstrarráðgjafi, Einar Gautur Steingrímsson hrl, Valur G. Oddsteinsson stjórn- arformaður KÁ og Páll Zophaníasson stjórnarmaður í KÁ og stjórnarformaður Brúar útskýrðu fyrir kröfuhöfum stöðu mála á fundi sem haldinn var á mánudag. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S O FF ÍA S IG U RÐ AR D Ó TT IR FRÉTTABLAÐIÐ Upplagið var 90.586 að meðaltali.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.